Morgunblaðið - 02.02.1996, Page 60
ttgmtÞlfifrifr
FJORFALDUR1. VINNINGUR
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 KEYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FOSTUDAGUR 2. FEBRUAR 1996
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Skoðanakönnun Gallup fyrir Samtök iðnaðarins
64% fylgjandi
veiðileyfagjaldi
SAMKVÆMT niðurstöðum skoð-
anakönnunar, sem Gallup hefur
framkvæmt fyrir Samtök iðnaðarins,
á afstöðu fólks til töku veiðileyfa-
gjalds eru 64% þeirra sem afstöðu
taka fylgjandi veiðileyfagjaldi og
36% andvígir því.
Könnunin náði til 1.200 manns
sem valdir voru af handahófi úr
jjþjóðskrá og svöruðu 846 sem er
rúmlega 70% svarhlutfall. Spurt var
hvort fólk væri fylgjandi eða and-
vígt veiðileyfagjaldi fyrir aðgang
að fiskimiðunum, gjaldi sem rynni
í ríkissjóð. 31.5% sögðust mjög
fylgjandi gjaldtöku, 28,1% frekar
fylgjandi, 6,6% voru hvorki fylgj-
andi né andvígir, 16,5% voru frekar
andvígir töku veiðileyfagjalds og
17,3% voru mjög andvígir töku slíks
gjalds. Ef eingöngu eru teknir þeir
sem taka afstöðu eru 64% fylgjandi
töku veiðileyfagjalds og 36% and-
vígir því.
Nánast sama niðurstaða varð í
atkvæðagreiðslu meðal almennings
á Stöð 2 í gærkveldi í þættinum
Almannarómur þar sem veiðileyfa-
gjald var til umræðu. 7.434 áhorf-
endur tóku afstöðu til álagningar
veiðileyfagjalds og voru 4.800 fylgj-
andi því eða 64,6% og 2.634 andvíg-
ir því eða 35,4%.
Skýrir sig sjálf
Haraidur Sumarliðason, formaður
Samtaka iðnaðarins, sagði í samtali
við Morgunblaðið að niðurstöður
þessar könnunar skýrðu sig að
mestu sjálfar. Þessi mál hefðu lengi
verið til umræðu, að minnsta kosti
í ákveðnum hópum. „Alþingi hefur
ekki viljað taka þetta upp og engin
ríkisstjórn hefur viljað taka þetta
upp. Nú er búið að leggja fram þing-
sályktunartillögu á Alþingi um veiði-
leyfagjald sem ekki er útlit fyrir að
fái afgreiðslu. Þessi könnun sýnir
hins vegar að meirihluti þjóðarinnar
vill taka upp veiðileyfagjald í ein-
hverri mynd. Við höfum lengi verið
sannfærðir um að þetta sé ekkert
einkamál sjávarútvegsins og geti
aldrei verið það.“
Haraldur sagði að afkoma sjávar-
útvegs á hveijum tíma hefði gífurleg
áhrif á afkomu allra annarra at-
vinnugreina. Þannig mætti iðnað-
urinn búa við sífelldar sveiflur eftir
því hvernig áraði í sjávarútvegi.
Haraldur sagði að flestum grein-
um iðnaðarins hefði vegnað betur
að undanförnu en oft áður. „Við
vonum það alveg eins og aðrir lands-
menn að það sé batnandi hagur
framundan í sjávarútveginum, en
að hafa það yfir höfði sér að slík
jákvæð þróun í sjávarútveginum
muni samkvæmt öllum rökum, sem
við kunnum frá fyrri tíð, hafa bein-
línis neikvæð áhrif á það sem við
erum að gera í iðnaðinum er auðvit-
að ekki ásættanlegt," sagði Harald-
ur og benti á að meiri verðmæta-
sköpun ætti sér stað í iðnaði, að
meðtöldum byggingariðnaði, heldur
en í sjávarútvegi og fískvinnslu til
samans.
Glæðist
á loðnu-
miðunum
LIFNAÐ hefur yfir veiðum á
loðnumiðunum að undanfórnu og
hafa nótaskipin verið að fá um
300 tonn í kasti, en þó hefur
mest af aflanum fengist í flot-
troll. Telja menn að loðnan sé
að þétta sig og ganga að hefjast.
Fyrsta loðnan á þessu ári kom
til Akraness í gær þegar Höfr-
ungur AK og Bjarni Olafsson AK
lönduðu báðir fullfermi, alls um
^jivö þúsund tonnum. Að sögn
Sveins Sturlaugssonar, útgerðar-
stjóra HB hf. mældist hrognafyll-
ing loðnunnar 9,5% svo stutt er
í að loðnufrysting geti hafist.
Þegar hún hefst verður fryst í
báðum frystihúsunum á Akranesi
og eins mun frystitogarinn Höfr-
ungur III liggja í höfn og verður
íiotaður til að frysta Ioðnu líkt
og undanfarin ár.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Missti Qóra fíngur 1972, nýra nýlega
og lenti með handlegg í pressu í vikunni
Morgunblaðið/Þorkell
JÚLÍUS Bald vinsson er bjartsýnn á fullan bata eftir vinnuslys.
1
aumingjaskap
„ÉG geri mér litla grein fyrir
slysinu, en man þó að ég hugs-
aði með mér, hvernig í ósköp-
unum ég ætti nú að aka bílnum,
því ég missti Qóra fingur af
vinstri hendi fyrir mörgum
árum. Mér fannst ég þurfa að
bíða lengi eftir hjálp, en tíminn
er nú lengi að líða við þessar
aðstæður," sagði Júlíus Bald-
vinsson, starfsmaður sorpeyð-
ingarstöðvarinnar í Keflavík,
en hægri framhandleggur hans
klemmdist í sorppressu á mið-
vikudag. Handleggurinn fór
nær í sundur, en læknar á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Borg-
arspítala, saumuðu hann saman
á ný. Júlíus er bjartsýnn á að
hann fái aftur full not af hand-
leggnum.
„Eg hef forðast að hugsa um
slysið og ætla fyrst að ná mér
betur,“ sagði Júlíus. „Hérna
hafasnillingar tekið mig að
sér. Ég fór í fimm tíma skurð-
aðgerð eftir slysið, þeir styttu
upphandlegg um 3 sentimetra
og notuðu bein úr honum í
framhandlegg. Á laugardag fer
ég í aðra aðgerð. Þá verður
sárinu á handleggnum lokað.
Læknarnir eru ánægðir með að
ég fékk strax tilfinningu í fing-
ur, svo ég er bjartsýnn.“
Júlíus fór í sinn fyrsta túr á
sjó fyrir nær aldarfjórðungi, en
túrinn varð einnig sá síðasti, því
hann missti fjóra fingur vinstri
handar i blökk. „Ég hef alltaf
unnið fulla vinnu í landi," sagði
Júlíus. „Það þýðir ekkert að
leggjast í aumingjaskap."
Júlíus lá síðast á Borgarspít-
alanum í nóvember fyrir rúmu
ári, en þá var annað nýrað tek-
ið úr honum. „Ég reikna með
að vera búinn með skammtinn
minn á þessu sjúkrahúsi núna,“
sagði hann og lét sér hvergi
bregða. Aðspurður hvort æðru-
leysi hefði alltaf einkennt hann
yppti hann öxlum en eiginkona
hans, Hafrún Víglundsdóttir,
skaut þvi inn í að hann færi
þetta á þijósku og jákvæðni. „Ég
hélt að hann ætti ekki meira af
þeim eiginleikum, en hann hefur
víst fengið ofurskammt.“
Júlíus bað fyrir kveðju til
sjúkraflutningamanna í Kefla-
vík og kollega þeirra á Kefla-
víkurflugvelli, sem komu hon-
um til hjálpar.
Hæstiréttur sýknar breskan sjómann af ákæru um nauðgun
HÆSTIRETTUR sýknaði í gær
breskan sjómann af ákæru um að
hafa nauðgað íslenskri konu um borð
í togara í Reykjavíkurhöfn, en mað-
urinn var dæmdur til 1 árs fangelsis
í héraðsdómi. Íslensk DNA-rannsókn
benti til að yfirgnæfandi líkur væru
á að sæði úr manninum hefði verið
í veiju sem konan framvísaði, en
rannsókn í Noregi sýndi fram á að
sæðið gæti ekki verið úr honum.
Sýni var þá sent til bandarísku alrík-
islögreglunnar FBI, en Hæstiréttur
hafnaði að dómsuppsögu yrði frestað
þar til niðurstaða þeirrar rannsóknar
lægi fyrir.
Breski sjómaðurinn sagði í gær
að hann væri feginn að málinu væri
lokið. Hann héldi heim í dag og þá
kæmi í Ijós hvort hann héldi starf-
inu. Hann kvaðst ekki vita annað
nú, en að hann yrði sjálfur að standa
straum af kostnaði við uppihald sitt
hér. Veijandi Bretans, Ásgeir A.
Ragnarsson, sagði að hann hefði
falið sér að skoða hugsanlegt skaða-
bótamál.
„Frestur á dómsuppsögu eftir
íhugar rétt á
skaðabótum
dómtöku máls til að veita ákæru-
valdi frekari tækifæri til gagnaöflun-
ar á ekki stoð í lögum og stríðir
gegn rétti sakbornings," segir í dómi
Hæstaréttar. Hallvarður Einvarðs-
son, ríkissaksóknari, sagði engu við
dóm Hæstaréttar að bæta. Hann
sagði í höndum rannsóknarlögreglu-
stjóra hvort beiðni um DNA-rann-
sókn í Bandaríkjunum yrði afturköll-
uð. Ekki náðist í gær í Boga Nils-
son, rannsóknarlögreglustjóra, sem
er staddur erlendis.
Hæstiréttur segir að rannsókn
málsins hafi í upphafi verið ábóta-
vant. Ekki hafi verið gerð læknis-
skoðun á ákærða og því lægi ekkert
fyrir um hvort áverkar hafi verið á
honum. Aðeins einn skipsfélaga hans
hafi verið yfirheyrður og það mjög
takmarkað. Ekki hafi verið kannað,
hvenær ákærði kom um borð í skip
sitt og ekki rætt við vaktmann um
borð í togaranum, þar sem meint
nauðgun var framin, fyrr en 17 dög-
um eftir kæru.
Norska rannsóknin
fullnaðarrannsókn
Hæstiréttur rekur DNA-rann-
sóknir hér heima og í Noregi og að
síðari rannsóknin hafi tekið til fleiri
þátta en sú fyrri og teljist fullnaðar-
rannsókn. Með hliðsjón af hinum
nýju gögnum og farbanni ákærða
hafi Hæstiréttur ákveðið að taka
málið til munnlegs málflutnings þeg-
ar er málsgögn hefðu borist.
Með bréfi til ríkissaksóknara og
skipaðs veijanda mannsins 23. jan-
úar hafí verið tilkynnt að málflutn-
ingur yrði 25. janúar. Við málflutn-
inginn hafi ríkissaksóknari skýrt frá
því, að 18. janúar var ákveðið að
leita umsagnar dansks sérfræðings
um DNA-rannsóknirnar og 19. jan-
úar haft samband við FBI. Niður-
stöðu væri að vænta eftir eina til
tvær vikur, ef vel gengi, og hefði
ríkissaksóknari óskað frestunar á
dómsuppsögu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var mat danska sérfræð-
ingsins á íslensku rannsóknaraðferð-
unum á þá leið, að öryggi þeirra teld-
ist ekki 1 á móti 1000, eins og is-
lenskir rannsóknaraðilar hefðu talið,
heldur 1 á móti 500. Ekki náðist í
Gunnlaug Geirsson, yfirmann rann-
sóknastofu Háskóla Islands í meina-
fræði, í gær.