Morgunblaðið - 27.02.1996, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
TVÆR íbúðir í raðhúsi við Öldugötu á Árskógssandi gjöreyðilögðust i eldi aðfaranótt sunnudags.
Fólksbíll sem stóð utan við húsið eyðilagðist einnig og hjólaskófla skemmdist mikið.
*
Mikið tjón í eldsvoða á Arskógssandi
Einn maður fórst
í eldsvoðaniim
Foreldrarnir
fengu að kynnast
skátastarfinu
RANNSÓKN á ugptökum eldsvoð-
ans í raðhúsi á Arskógssandi að-
faranótt sunnudags er lokið, en
hann má rekja til þess að hella á
eldavél í íbúð í húsinu var á fullum
straum. Einn maður fórst í eldsvoð-
anum, en hjón í næstu íbúð sluppu
naumlega út. Um er að ræða rað-
hús með fjórum íbúðum og er tvö-
faldur bílskúr á milli miðíbúðanna.
Tvær íbúðanna eru gjörónýtar, en
tjón af völdum eldsvoðans er áætlað
um 15 til 20 milljónir króna.'
Slökkviliðið á Dalvík var kallað
út um kl. hálf þrjú aðfaranótt
sunnudags. Sigurður Jónsson
slökkviliðsstjóri ,á Dalvík sagði að
aðkoman hefði verið slæm. Eld-
tungur stóðu upp úr húsinu og veðr-
ið var afar slæmt, norðanáhlaup
með snjókomu. „Þegar við komum
á staðinn voru giuggar farnir úr
húsinu og vindurinn blés gegnum
það, það má líkja þessu við prímus,
eldurinn biossaði út um þakið og
fauk yfir næstu íbúð og að næsta
raðhúsi. Þetta var alveg skugga-
legt, ég átti alveg eins von á að
við myndum ekki ráða við þetta,“
sagði Sigurður.
Eldglæringar yfir húsið
Hann sagðist á tímabili hafa ver-
ið hræddur um að missa eldinn yfir
í næstu raðhúsalengju, því eldglær-
ingarnar hefðu þotið yfir húsið, en
sem betur fer hefðu menn náð tök-
um á eldinum.
Alls fóru 8 slökkviliðsmenn frá
Dalvík á staðinn og þá var leitað
eftir aðstoð Slökkviliðsins á Akur-
eyri sem sendi tankbíl með um 10
tonn af vatn á staðinn. Auk þess
sagði slökkviliðsstjóri að heima-
menn hefðu tekið virkan þátt í
slökkvistarfinu. Það tók slökkvilið
um tvo tíma að ná yfirhöndinni, en
þá átti enn eftir að slökkva mikið.
FÉLAGAR í Oddeyrardeild Skáta-
félagsins Klakks létu óveðrið á
laugardag ekki hafa áhrif á sig og
buðu foreldrum sínum til kynningar
á skátastarfinu í íþróttahúsi Odd-
eyrarskóla. Um þessar mundir eru
fimm ár síðan skátastarf, svokölluð
fyrsta deild, var endurvakið á Odd-
eyrinni eftir nokkuð langt hlé.
Fyrsta deild starfar í skólahverfí
Oddeyrarskóla, þ.e. á Oddeyri og í
Holtahverfi. Á foreldradeginum var
kynning á væntanlegu Landsmóti,
sem fram fer á Úlfljótsvatni 21.-28.
júlí í sumar. Skátarnir unnu verk-
efni tengt Landsmótinu og sýndu
foreldrum sínum, eins og hægt er
innanhúss, hvernig fyrirkomulagið
er á slíku móti.
Um 50 úr deildinni
á landsmótið
Tryggvi Marinósson, deildarfor-
ingi á Oddeyrinni, segir að þrátt
fyrir leiðindaveður hafi 50-60 for-
eldrar mætt á kynninguna. „Á Odd-
eyrinni starfar ein sveit fyrir stúlk-
ur og önnur fyrir stráka og þá
starfa þar tveir hópar eldri skáta,
16-18 ára. Við stefnum að því að
fjölga skátum á svæðinu og erum
því að byija á ný með ylfingastarf,
fyrir stelpur og stráka á aldrinum
9-10 ára.“
Tryggvi segir að stefnt sé að því
að fara með um 50 skáta úr deild-
inni á landsmótið og kynningin um
helgina hafi verið til þess að vekja
Morgunblaðið/Kristján
UPPTÖK eldsins má rekja til straums sem var á eldavélarhellu,
en á myndinni eru rannsóknarlögreglumennirnir Daníel Snorra-
son og Jóhannes Sigfússon að skoða eldavélina.
„Það var töluvert álag á mönnum,
veðrið var vont og menn voru hrakt-
ir og kaldir.“~
Nágrannar létu vita af eldinum
og taldi Sigurður að þeir hefðu
vaknað upp við reyksprengingu sem
varð í íbúðinni.
íbúðirnar gjörónýtar
Auk þess sem íbúðirnar tvær eru
gjörónýtar, eyðilagðist fólksbíll sem
---------f-------------------------
stóð við húsið og hjólskófla sem
einnig var úti fyrir húsinu skemmd-
ist mikið. Tjónið er áætlað um 15
til 20 milljónir króna.
Sigurður sagði að Slökkvilið Dal-
víkur hefði í fyrsta sinn notað þjón-
ustu Neyðarlínunnar, sem kallað
hefði mannskapinn út og hefði það
tekist afar vel, sírena sem jafnan
var notuð til að ræsa slökkviliðs-
menn hefði ekki farið í gang.
áhuga krakkanna og foreldranna á
því sem framundan er. „Landsmótið
stendur yfir í viku, það kostar tölu-
vert að taka þátt í því og það er
að ýmsu að hyggja í undirbúningn-
um,“ segir Tryggvi.
Fyrsta deild Klákks er með að-
stöðu í húsi á skólalóð Oddeyrar-
skóla, sem kallað var Gunnarshólmi
en Akureyrarbær afhenti félaginu
húsið til afnota um það leyti sem
starfið var endurvakið.
Morgunblaðið/Kristján
KRAKKARNIR í fyrstu deild Skátafélagsins Klakks unnu verk-
efni tengt Landsmótinu á kynningu fyrir foreldra sina í íþrótta-
húsi Oddeyrarskóla um helgina.
BSRB gefur fé til
jafningjafræðslu
STJÓRN Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, BSRB hefur afhent
Jafningjafræðslu framhaldsskól-
anna 250 þúsund króna framlag til
að vinna að settum markmiðum
þessa átaks. Jafningjafræðslan
starfar á landsvísu og er það ósk
stjórnar BSRB að framlag samtak-
anna nýtist þar sem þess er þörf
meðal framhaldsskólanema 'lands-
ins.
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB sagði við afhendingu fram-
lagsins að alvarleg staða væri kom-
in upp hér á landi vegna aukinnar
neyslu fíkniefna, skelfilegt væri til
þess að vita hversu margt ungt
fólk hefði ánetjast eiturlyíjum og
jafnvel svipt sig lífi af völdum slíkr-
ar neyslu.
„En það er að verða einhvers
konar þjóðarvakning, við erum að
vakna til vitundar um það hversu
alvarlegur þessi vandi er,“ sagði
Ogmundur og benti m.a. á lofsvert
framtak framhaldsskólanema,
Jafningjafræðsluna, þar sem ungt
fólk í framhaldsskólum landsins
hefði tekið höndum saman til að
sporna gegn þessari þróun.
Morgunblaðið/Krislján
FREYJA Dögg Frímannsdóttir nemandi í Menntaskólanum á
Akureyri og í sljórn Félags framhaldsskólanema tók við framlagi
BSRB til Jafningjafræðslu framhaldsskólanna, en það afhenti
formaður félagsins, Ögmundur Jónasson.
Gamli
Svalbakur
seldur til
Siglufjarðar
RÆKJUVÉRKSMIÐJAN Pól-
ar hf. á Siglufirði hefur keypt
gamla Svalbak EA, togara
Útgerðarfélags Akureyringa.
Togarinn er í skoðun hjá Slipp-
stöðinni Odda hf. en fer fljót-
lega til nýrrar heimahafnar.
Svalbakur EA var smíðaður
í Noregi árið 1969 og er um
780 brúttórúmlestir að stærð.
Svalbakur verður gerður út á
rækjuveiðar en þar sem togar-
inn hefur ekki veiðiheimildir í
íslenskri lögsögu fer hann að
öllum líkindum til veiða á
Flæmska hattinum.
Aukasýning
á Sporvagn-
inum Girnd
TAFIR á flugsamgöngum og
illviðri kom í veg fyrir síðustu
sýningu sem vera átti á Spor-
vagninum Girnd hjá Leikfélagi
Akureyrar um síðustu helgi.
Nær uppselt var á sýninguna
og verður því aukasýning og
jafnframt allra síðasta sýning
á verkinu næstkomandi laug-
ardag, 2. mars, kl. 20.30.
Næsta verkefni verður ís-
Ienskt leikrit, Nanna systir
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson og verður það
frumsýnt 29. mars næstkom-
andi.
Þrír piltar
viðurkenndu
innbrot
TVEIR Ijórtán ára piltar og
einn sextán ára hafa viður-
kennt við yfirheyrslur hjá
Rannsóknariögreglunni á
Akureyri tvö innbrot í húsnæði
Brauðgerðar K. Jónssonar á
Akureyri. í innbrotunum höfðu
þeir hátt í 400 þúsund krónur
upp úr krafsinu.
Piltarnir viðurkenndu einnig
að hafa borist inn í Lundar-
skóla og Lón og einnig inn í
10 til 15 bíla.
Málþroski
barna
BJÖRG Bjarnadóttir flytur
fyrirlestur um málþroska
barna á opnu húsi fyrir for-
eldra með ung börn, mömmu-
morgni í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju á morgun, mið-
vikudaginn 28. febrúar kl. 10
til 12.
L
>
I
i
i
m
i'.
.
I
L
'
L
S
L
ú