Morgunblaðið - 27.02.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 39
ÞÓRUNN
SIG URÐARDÓTTIR
+ Þórunn Sigurðardóttir
fæddist í Langahvammi í
Vestmannaeyjum hinn 6. ágúst
1911. Hún lést á Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 17. janúar síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Landakirkju 27. jan-
úar.
NÚ ÞEGAR mágkona mín blessuð
er horfin til feðra sinna rifjast upp
ýmislegt frá liðnum árum. Eg
minnist þess oft þegar spennandi
fótbolti var leikinn hér í Reykjavík
fyrr á árum komu þau hjónin úr
Eyjum, en Jón Ólafsson, maður
Þórunnar, var mikill áhugamaður
um íþróttir og liðtækur í þeim efn-
um. Hann var t.d. í liði sem íslend-
ingar sendu til Þýskalands á
Ólympíuleikana 1936. Þórunn og
Jón höfðu ekki eignast börn þótt
þau væru búin að vera gift í fimmt-
án ár. Þegar þau voru hér í bænum
gistu þau oftast hjá mér. Einhvern
tíma þegar þannig stóð á var ég
nýbúin að eignast barn. Þau sýndu
nýfæddu barninu mínu mikinn
áhuga og létu vita af því. Nokkru
seinna gerðist það að þau eignuð-
ust dreng. Ég trúi að þau hafi þar
fengið óskabarnið sitt.
En lífið er blanda, hjá flestum,
af gleði og sorg. Seinna komu þau
í öðrum erindum. Veikindi höfðu
sótt þau heim, bæði þrálát og erf-
ið. Þórunn þjáðist um árabii af
gallsteinum, svo mjög að stundum
varð að kalla til næturlækna til
að gefa verkjalyf. Þar kom að hún
sagðist ekki geta lifað svona kval-
in. Var hún þá skorin upp og fékk
bata þótt læknar hefðu talið bata-
líkur litlar. Seinna fór hún að
kenna sér annars meins sem reynd-
ist vera krabbamein. Hún gekkst
undir aðgerðir, barðist hetjulega
og hafði sigur á þeim skæða sjúk-
dómi. En þá fór að halla undan
fæti með heilsuna hjá Jóni. Veikt-
ist hann af krabbameini og þjáðist
mikið. Hann var sendur til Dan-
merkur þegar ekkert var hægt að
gera fýrir hann á íslandi. Meinið
lét undan í bili en eftir langa og
erfiða baráttu hafði „hinn slyngi
sláttumaður“ betur. Nú var Þórunn
orðin ein með einkasoninn, barn
að aldri. Næstu árin hafa vafa-
laust verið erfíð. Sárt var að sjá á
eftir þessum glaðlynda og góða
maka, Jóni Ólafssyni. En ekki var
þar lokið þrautagöngu mágkonu
minnar. Þegar gosið hófst í Vest-
mannaeyjum varð hún eins og allir
Eyjamenn að flýja undan eldi og
eimyiju. Sú raun varð mörgum
Eyjamönnum áfall. Enginn vissi
þá hvort hægt yrði að búa þar
áfram. Enda misstu margir hús
og eignir sínar undir hraun og
ösku. En Þórunn var ein þeirra sem
gat flutt í hús sitt á nýjan leik,
sem þó hefur verið illa farið. Hún
flutti til Eyja jafnskjótt og hægt
var. Nú átti Þórunn nokkur góð ár
í sambýli við son sinn og hans fjöl-
skyldu. Hún lifði það að sjá sonar-
dóttur sína og nöfnu vaxa úr grasi.
Síðustu árin dvaldist Þórunn á
sjúkrahúsi í Eyjum og lést þar.
Hún var borin til grafar í sinni
heimabyggð í yndislegu veðri sem
um sumar væri.
Ég votta Sigurði og hans fjöi-
skyldu innilega samúð. Blessuð sé
minning mágkonu minnar, Þór-
unnar Sigurðardóttur.
Oddrún Pálsdóttir.
+ Kristján Bogi
Einarsson fædd-
ist á Siglufirði 1.
ágúst 1943. Hann
lést á Borgarspítal-
anum 24. janúar síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Dóm-
kirkjunni 1. febrúar.
ÞEGAR boðin bárust
okkur um að Bogi vinur
okkar væri látinn þá var
eins og tíminn stæði
kyrr og hugur okkar
hvarf aftur í tímann á
þann stað sem við
kynntumst Boga og fjöl-
skyldu hans. Það var á Flúðum sem
kynni okkar hófust, en þar höfðum
við komið okkur fyrir sumarlangt
með hjólhýsin okkar. Við vissum að
tími var til kominn að hefja sumar-
starfið á Flúðum þegar það fréttist
að Sóllukot væri komið á sinn stað
þar. Við vorum eins og ein fjölskylda
sem undum okkur þar saman í þess-
um sælureit og var Bogi vinur okkar
þar ávallt framarlega ef eitthvað
þurfti að gera eða ræða
okkur til hagsbóta.
Hláturinn hans Boga
hljómaði hressilega í
eyrum þegar komið var
að því að grilla kvöld-
verð fyrir fjölskylduna
og gesti sem oft voru í
Sollukoti um helgar.
Bogi sýndi að hann var
sannur vinur manna og
dýra. Margan góðan
bitann lét hann frá sér
fara í ferfættu vinina
sína sem voru fljótir að
finna það á sér þegar
Bogi og hans fjölskylda
voru komin I hjólhýsið.
Hjólhýsið á Flúðum var þeim hjón-
unum sannkallaður sælureitur þar
sem þau gróðursettu í sameiningu
tré og falleg sumarblóm.
Solla og fjölskylda, við sem áttum
því láni að fagna að vera samtíða
ykkur á Flúðum, munum geyma
minningu Boga í hjarta okkar um
ókomin ár. Góður guð blessi ykkur
alla tíð.
Hjólhýsavinir á Fiúðum.
KRISTJÁN BOGI
EINARSSON
HAWÞAUGL YSINGAR
Sölumaður-
framtíðarstarf
Óskum eftir að ráða öflugan sölumann.
Viðkomandi þarf að hafa örugga framkomu,
geta unnið sjálfstætt, hafa bíl til umráða og
vera tilbúinn að leggja sig 100% fram í starfi.
Reynsla af sölustörfum æskileg en ekki nauð-
synleg. Starfið kemur inn á flesta þætti at-
vinnulífsins og verður viðkomandi í beinum
tengslum við atvinnurekendur um allt land.
Mjög góð laun í boði fyrir árangursrík störf.
Umsóknum, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal skila á afgreiðslu Mbl.
fyrir 1. mars merktar: Sölumaður - 523“.
Varnarliðið - laust starf
Framkvæmdastjóri
Stofnun verklegra framkvæmda,
Flotastöð varnarliðsins.
(Director of Fiscal/Personnel Division
of Public Works Department).
Um er að ræða starf, er hentar vel einstakl-
ingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi
og síbreytileg verkefni, getur unnið sjálf-
stætt og á gott með að umgangast aðra.
Starfið felst m.a. í að vera til ráðgjafar for-
stjóra stofnunarinnar, auk þess að gera fjár-
málaáætlanir og samninga við innlenda og
erlenda aðila og hafi umsjón með skiptingu
fjármagns og mannafla milli hinna ýmsu
deilda stofnunarinnar.
Unnið er eftir bandarískum og íslenskum
reglum eftir því sem við á.
Hæfniskröfur:
Staðgóð starfsreynsla við fjármálastjórn eða
rekstur. Háskólapróf er æskilegt, t.d. í við-
skiptafræði. Krafist er mjög góðrar munn-
legrar og skriflegrar kunnáttu í ensku.
Skriflegar umsóknir á ensku berist til Varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, ráðn-
ingardeild, Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ,
eigi síðar en 5. mars 1996.
Starfslýsing liggur frammi á sama stað og
er mjög nauðsynlegt að væntanlegir um-
sækjendur lesi hana áður en þeir sækja
um, þar sem að ofan er aðeins stiklað á
stóru um eðli og ábyrgð starfsins.
STJÓSEFSSPÍTAUBtM
HAFNARFIRÐI
Yfirmeinatæknir
Staða yfirmeinatæknis er laus til umsóknar.
Um er að ræða fullt starf. Við leitum að áreið-
anlegum og hressum starfskrafti, sem getur
haft yfirumsjón með starfsemi rannsókna-
stofu spítalans.
Læknaritari
Staða læknaritara er laus til umsóknar.
Um er að ræða fullt starf, en þó kemur hluta-
starf til greina. Nauðsynlegt er að viðkom-
andi hafi réttindi sem læknaritari.
Umsóknarfrestur er til 4. mars nk.
Nánari upplýsingar um stöður þessar eru
veittar í síma 555 0000.
St. Franciskusspítali,
Stykkishólmi
Ljósmæður með
hjúkrunarmenntun
Ljósmóðir með hjúkrunarmenntun óskast til
starfa frá 1. maí nk. Um er að ræða 100%
starf.
Umsóknarfrestur rennur út 15. mars 1996.
Húsnæði í boði.
Meinatæknir
Meinatæknir óskast til starfa frá 1. maí nk.
Um er að ræða 100% starf.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 1996. Hús-
næði í boði.
Stykkishólmur er um 1.300 manna byggðar-
lag, þar sem perlur breiðfirskrar náttúru
glitra í hlaðvarpanum í aðeins 210 km fjar-
lægð frá Reykjavík.
í Stykkishólmi er góður leikskóli fyrir tveggja
til sex ára börn, krefjandi einsetinn grunn-
skóli með framhaldsdeildum (2 ár) auk fjöl-
breytts tónlistarskóla.
Mikið íþrótta- og félagslíf er á staðnum,
m.a. 9 holu golfvöllur.
Hafir þú áhuga á skemmtilegu, en oft krefj-
andi starfi þá hafðu samband við hjúkrunar-
forstjóra eða framkvæmdastjóra í síma
438 1128.
Tómstunda- og
íþróttastarf
Auglýst er eftir fangaverði við fangelsið á
Litla-Hrauni er m.a. sér um tómstunda- og
íþróttastarf í fangelsinu. Um nýtt starf er að
ræða.
Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum
20-40 ára og hafa reynslu og/eða menntun
í tómstunda- og íþróttastörfum auk áhuga á
að starfa náið með föngum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, ásamt sakavottorði, sendist
Fangelsismálastofnun, Borgartúni 7, Reykja-
vík, fyrir 11. mars nk. Ráðning verður eftir
samkomulagi.
Fangelsismálastofnuri ríkisiris.
ÓSKAST KEYPT
Mjótkurkvóti
Óska eftir mjólkurkvóta. Greiði 140 kr. á lítra.
Þeir sem hafa áhuga vinsamlega sendið
nafn og síma á afgreiðslu Mbl. merkt:
„Mjólk - 15415“ fyrir 5. mars.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Nýtt skrifstof uhúsnæði
183 fm nýtt skrifstofuhúsnæði á 3. hæð og
282 fm á 4. hæð til leigu við Hlemm.
Lyfta er í húsinu.
Upplýsingar í síma 852 1010.
HÚSNÆÐI í BOÐI
Einbýlishús til leigu
Einbýlishús í Norðurbæ Hafnarfjarðartil leigu
frá 1. júní. Framtíðarleiga.
Áhugasamir vinsamlegast leggið inn nafn
og símanúmer á afgreiðslu Mbl. fyrir 2. mars
merkt: „Einbýlishús - 524“.