Morgunblaðið - 27.02.1996, Blaðsíða 56
MORGVNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL/SCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Stóraukin
umsvif hjá
Marel hf.
REKSTRARTEKJUR Marels hf. og
dótturfélaga á árinu 1995 urðu alls
rösklega 1,1 milljarður króna eða um
46% meiri en árið á undan. Hagnaður
fyrirtækjanna varð alls um 56 milljón-
ir króna á árinu 1995 samanborið við
14,8 milljóna hagnað árið áður.
Marel naut mjög góðs á síðasta ári
af þeirri miklu grósku sem var í norsk-
um fiskiðnaði. I sölustarfinu var meg-
-ináhersla lögð á kynningu og sölu
hefðbundinna vöruflokka eins og
flokkara, voga og kerfislausna.
A árinu 1996 er gert ráð fyrir
áframhaldandi vexti fyrirtækisins og
að hagnaður verði af rekstrinum.
■ Veltan jókst/14
-----» -»-<--
Sveitarfélög-
Afkoman
batnaði árið
1995
AFKOMA sveitarfélaga batnaði um-
talsvert á síðasta ári miðað við árið
á undan. Er hallinn talinn hafa
minnkað um nær helming vegna
aukinna tekna og aðhaldsaðgerða.
Þetta kemur fram í skýrslu sem
fjármálaráðherra lagði fram á Al-
þingi í gær um ríkisfjármál á síðasta
ári. Er áætlað að halli á rekstri sveit-
arfélaga hafi verið 3,3 milljarðar
króna árið 1995, eða um 10% af tekj-
um en -árið 1994 var halli á rekstri
sveitarfélaga um 7 milljarðar króna
eða rúmlega 20% af tekjum. Árið
1990 var hins vegar afgangur af
rekstri sveitarfélaga.
Morgunblaðið/Júlíus
Tveir klippt-
ir út úr bíl
HARÐUR árekstur tveggja fólks-
bíla varð á gatnamótum Háteigs-
vegar og Lönguhlíðar rétt fyrir
klukkan fimm í gærdag. Kalla varð
á tækjabíl Slökkviliðsins í Reykja-
vík til að klippa ökumann og far-
þega úr öðrum bílnum. Meiðsl
þeirra voru þó ekki talin alvarleg.
Stj ómarformaður
Samskipa segir af sér
GUNNAR Jóhannsson, formaður
stjórnar Samskipa hf., sagði sig úr
stjórn félagsins í gær ásamt Jóni
Pálmasyni í Hagkaup, en ástæðuna
segir Gunnar vera trúnaðarbrest
sem orðið hafi í samskiptum við
Ólaf Ólafsson, forstjóra Samskipa.
Gunnar vildi í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi ekki tjá sig frek-
ar að svo stöddu um ástæðu þess
að hann og Jón sögðu sig úr stjórn
félagsins.
Geir Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins hf., hefur tekið við for-
mennsku í stjórn Samskipa fram
að aðalfundi félagsins sem verður
í næsta mánuði, en Geir var áður
varaformaður stjórnar. Hann sagði
í samtali við Morgunblaðið að síð-
astliðið haust hefðu Gunnar og
eignarhaldsfélag Hagkaups ákveðið
að selja hlutabréf sín í Samskipum
og ekki væri óeðlilegt að þeir sem
væru á leið út úr fyrirtækinu vikju
úr stjórn þess. Hlutur Gunnars í
Samskipum er 100 milljónir króna
og hlutur Hagkaups 40 milljónir,
en samtals er hlutafé Samskipa um
900 milljónir króna.
„Það er erfitt að reka stjórn þeg-
ar hluti af stjórninni er eiginlega
búinn að kveðja. Menn eru að horfa
til framtíðar og þetta eru mjög
hörð samkeppnisviðskipti eins og
alþekkt er. Þegar hluti af stjórn er
búinn að ákveða að selja sig út þá
er mjög eðlilegt að menn segi af
sér. Við gerðum engar athugasemd-
ir við það þótt þeir óskuðu eftir að
hætta. Það er stutt í aðalfund og
þetta breytir litlu fyrir féiagið,"
sagði Geir.
Ekki trúnaðarbrestur milli
forstjóra og meirihlutans
Ólafur Ólafsson vildi ekki tjá sig
um málið í gærkvöldi en sagði það
eiga sér langan aðdraganda og ekki
tengjast sér nema að litlu leyti, en
Ólafur á helming í þýsku fyrirtæki
sem á tæplega 30% eignarhlut í
Samskipum.
Geir sagði að þegar núverandi
eigendur Samskipa hefðu keypt
hlut Landsbankans í fyrirtækinu
1994 hefði verið gerð grein fyrir
því að Ólafur væri einhvern veginn
tengdur þýska fyrirtækinu og þá
óskað eftir skýringum sem hann
hefði gefið á fyrsta stjórnarfundi.
Aðspurður hvort eitthvað nýtt hefði
komið upp í því sambandi sagði
Geir ekkert slíkt hafa komið upp
sem meirihluti stjórnar teldi óeðli-
lega að staðið.
Hann sagði að ef um trúnaðar-
brest væri að ræða, væri það ekki
milli meirihluta stjórnar og for-
stjóra Samskipa. „Trúnaðarbrestur
getur verið á fleiri en einn veg sem
verða ekki útskýrðir í blöðum,“
sagði Geir.
MANUEL Arjona hamskeri stoppar upp bolvíska ísbjörninn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bolvíski bangsinn
á stallinn
Risaslepping göngu-
seiða í Rangárnar
VEIÐIFÉLÖG Eystri- og Ytri-
Rangár og Þverár, ásamt leigutaka
Ytri-Rangár og vesturbakka Hóls-
ár, munu í vor standa fyrir mestu
sleppingu gönguseiða sem þekkt er
hér á landi. Alls verður sleppt
430.000 til 450.000 seiðum víða á
svæðinu og fer að veiðast lax á
svæðinu úr sleppingunni sumarið
1997. Að sögn Þrastar Elliðasonar,
fiskeldisfræðings og leigutaka Ytri-
Rangár og Hólsár, þætti ekki mikið
miðað við reynslu manna af slepp-
ingum á svæðinu þótt veiddust milli
4.000 og 5.000 laxar úr slepping-
unni, en gangi það eftir verður um
íslandsmet að ræða. í fyrra gaf
slepping um 100.000 seiða rúmlega
1.500 laxa sumarafla í Eystri- og
Ytri-Rangá. Talið er að kostnaður-
inn við þesar framkvæmdir liggi í
kring um 16 milljónir króna.
Að sögn Þrastar sleppir hann
sjálfur í vor milli 50.000 og 70.000
seiðum á svæði sín og eru það seiði
af Rangárstofni, alin í fiskeldis-
stöðinni í Fellsmúla í Landssveit.
Veiðifélag Ytri-Rangár bætir við
þá sleppingu 80.000 seiðum sem
fest hafa verið kaup á í seiðaeldis-
stöðinni að Núpum í Ölfusi. Stöðin
sú er hluti af þrotabúi Silfurlax,
hafbeitarstöðvarinnar í Hrauns-
firði á Snæfellsnesi'og eru seiðin
að sögn Þrastar af Kollafjarðar-
stofni. Veiðifélag Eystri-Rangár
hefur keypt 200.000 seiði úr sömu
stöð og Veiðifélag Þverár 100.000
seiði.
VERIÐ er að stoppa upp ísbjörn-
inn sem skipveijar á báti frá
Bolungarvík bönuðu út af Vest-
fjörðum fyrir þremur árum.
Verkið er unnið á vegum Náttúru-
fræðistofnunar og fer björninn á
Náttúrugripasafn Vestfjarða sem
stofnað verður í Bolungarvík á
þessu ári.
Manuel Arjona hamskeri segir
að gaman sé að eiga við ísbjörninn
og skemmtilegt að taka að sér
svona óvenjuleg verkefni. Hann
hefur reyndar áður stoppað upp
ísbjörn, það var fyrir íslenska
dýrasafnið fyrir tuttugu árum.
Isbjarnarhræið hefur lengst af
verið í frysti. Skrokkurinn var
rannsakaðar á Keldum og beina-
gi-indin er komin á Náttúrugripa-
safn Islands. Manuel saltaði skinn-
ið og sútaði. Hann er nú að gera
nýjan skrokk úr trefjaplasti og
pappamassa og síðan er skinnið
strekkt yfir.
Manuel ætlar að selja bangsa á
ísjaka úr plasti og hafa sel liggj-
andi hjá honum. Isbjörninn var
ungt karldýr, ekki fullvaxið, og
ætlar Manuel að hafa hann með
lokaðan munninn, fremur góðleg-
an á svip.
Jón Gunnar Ottósson, forstöðu-
maður Náttúrufræðistofnunar,
segir að farið verði með ísbjörninn
vesturívor.