Morgunblaðið - 27.02.1996, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Dagur símenntunar
Ahugi á tölvum en ekki
á fíkniefnavörnum
MISJAFNT var eftir skólum og fé-
lagasamtökum hversu vel sóttur
Dagur símenntunar var sl. laugar-
dag, en þá kynntu um 50 aðilar
víða á landinu starfsemi sína og
möguleika til endurmenntunar. I
Fjölbraut við Ármúla komu til dæm-
is á sjöunda hundrað gestir og
kvaðst Sölvi Sveinsson skólameist-
ari stefna að því að gera slíkan dag
að árlegum viðburði. Heldur minni
aðsókn virðist hafa verið hjá minni
félagasamtökum. Til dæmis kom
enginn að hlusta á fyrirlestur Árna
Einarssonar um að snúa vörn í sókn
í fíkniefnavanda unglinga.
Ingibjörg Gísladóttir deildarstjóri
hjá Rannsóknaþjónustu Háskólans
og framkvæmdastjóri Dags sí-
menntunar segist hafa verið mjög
ánægð með þá athygli og umfjöllun
sem dagurinn hlaut. „Sú mikla
umræða sem skapast hefur í kring-
um þennan dag hefur skilað miklu.
Ljóst er að fyrir utan nokkur þús-
und manns sem mættu í skólana
sátu margir heima og veltu þessum
málum fyrir sér. Ég tel fullvíst, að
umfjöllun í fjölmiðlum hafi fengið
fólk til að huga að eigin möguleik-
um til menntunar, sem eru gífulega
fjölbreyttir.“
í Menntaskólanum í Hamrahlíð
voru menn mjög ánægðir, en þar
sýndi almenningur afstæðiskenn-
ingu Einsteins mikinn áhuga, svo
og héraðsbundinni matargerðarlist,
svo dæmi séu tekin. Þá voru for-
svarsmenn tölvuskóla að öllu jöfnu
ánægðir með þátttöku. Fjöldi
manns kom einnig í Fræðslumiðstöð
iðnaðarins og fylltust til dæmis öll
námskeið Prenttæknistofnunar.
Á Akureyri og víðar á Norður-
landi var dagskrá felld niður vegna
veðurs, en Verkmenntaskólinn á
Akureyri stefnir á að hafa opið hús
20. apríl og sömuleiðis verður ráð-
stefna um lauslæti á vegum Háskól-
ans á Akureyri haldin í vor.
Ráðstefna um símenntun
Símenntun er ekki á ábyrgð eins
aðila heldur koma þar margir við
sögu; einstaklingar, menntastofn-
anir og fyrirtæki, hvert á sinn hátt.
Þetta var samdóma álit þeirra fram-
sögumanna sem sátu ráðstefnu
Rannsóknaþjónustu háskólans sl.
laugardag.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra gerði grein fyrir stefnu
ráðuneytisins. Sagði hann að sam-
kvæmt frumvarpi um framhalds-
skóla sem iiggur nú fyrir Alþingi
sé stefnt að því að endurskoða
námsframboð öldungadeilda,
breikka það og bæta við hagnýtum
námsleiðum.
Þá nefndi Björn ákvæði í frum-
varpinu sem fjallar um fullorðins-
fræðslumiðstöðvar. Þar væri kom-
inn vettvangur fyrir samstarf og
samvinnu hinna ýmsu aðila. Kvaðst
hann þess fullviss að góð samstaða
muni skapast bæði á heimavett-
vangi og hjá heildarsamtökum um
stofnun slíkrar miðstöðvar.
Einnig vakti menntamálaráð-
herra athygli á ákvæði í frumvarp-
inu sem heimilar einkaaðilum að
bjóða upp á nám sem falli undir lög
um framhaldsskóla. Sagði hann það
nýmæli, að menntamálaráðherra
geti veitt slíkum einkaskólum viður-
kenningu. „Með öðrum orðum geta
menn leitað eftir stimpli ráðuneytis-
skólar/námskeið
tölvur
myndmennt
■ Tréskurðarnámskeið
Fáein páss laus í mars og apríl.
Hannes Flosason, s. 554 0123.
■ Tölvunámskeið
Starfsmenntun:
- 64 klst tölvunám
- 84 klst. bókhaldstækni
Stutt námskeið:
- PC grunnnámskeið
- Windows 3.1 og Windows 95
- Word grunnur og framhald
- WordPerfect fyrir Windows
- Excel grunnur og framhald
- Access grunnur
- PowerPoint
- Paradox fyrir Windows
- PageMaker fyrir Windows
- Internet námskeið
- Tölvubókhald
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Barnanám
- Unglinganám í Windows
- Unglinganám í Visual Basic
- Windows forritun
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning
í síma 561 6699.
■ Bréfaskóianámskeið
í myndmennt
Á nýársönn, janúar-maí, eru kennd eftir-
farandi námskeið:
Grunnteikning. Líkamsteikning. Lita-
meðferð. Listmálun meö myndbandi..
Skrautskrift. Innanhússarkitektúr.
Híbýlafræði. Teikning og föndur fyrir
börn.
Fáðu sent kynningarrit skólans með því
að hringja eða senda okkur línu.
Sími 562 7644, pósthólf 1464,
121 Reykjavík.
http://www.mmedia.is/handment/
ýmislegt
Bi Tölvuskóli Reykiavíkur
FiorKarnjm 28, hinn 561 6699.
nudd
■ Námskeið í ungbarnanuddi
fyrir foreldra með börn á aldrinum 1 til
10 mánaða.
Upplýsingar og innritun á Heilsusetri
Þórgunnu í síma 562 4745 eöa milli kl.
9.30 og 10.30 í síma 552 1850.
■ Barnfóstru-
námskeið 1996
1. 6., 7., 11. og 12 mars.
2. 13., 14., 18. og 19. mars.
3. 20., 21., 25. og 26 mars.
4. 10., 11., 15. og 16. aprfl.
5. 17., 18., 22. og 23. aprfl.
6. 6., 7., 8. og 9. maí.
7. 29. og 30. maí, 3. og 4. júní.
8. 5., 6., 10. og 11. júní.
Kennsluefni: Umönnun ungbarna og
skyndihjálp.
Upplýsingar/skráning: Sími 568 8188
kl.8-16.
Reykjavikurdeild RKÍ.
tónlist
■ Píanókennsla
Einkakennsla á píanó og í tónfræði.
Upplýsingar og innritun í s. 553 1507.
Anna Ingólfsdóttir.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna við Burda. Sparið og saumið
fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Sigríður Pétursd., s. 5517356.
tungumál
■ Enskunám í Englandi.Lengi lang-
að? - Láttu nú drauminn rætast.
Boðið upp á námsferð í hóp og á eigin
vegum. Mjög góðir skólar víða í Eng-
landi. Hagstætt verð. Uppl. í s. 565
0056.
Erla Aradóttir,
MA í enskukennslu,
fulltrúi enskuskólanna
The Bell og Anglo Worid.
Á SJÖUNDA hundrað manns komu við í Ármúlaskóla. Nokkrir
fylgdust til dæmis með krufningum dýra. Hér má sjá Boga Ingi-
marsson kennara aðstoða Svein Steinarsson við að kryfja rottu.
ins á það nám sem þeir bjóða. Verð-
um við að ganga að því sem vísu
að þar verði um gæðastimpil að
ræða.“
Magnús Oddsson veitustjóri
ræddi um ábyrgð einstaklinga til
símenntunar og kvað hana afger-
andi. „Sá starfsmaður sem ekki
skilur kall tímans i þessu efni situr
uppi, verður sár og reiður og finnst
framhjá sér gengið, þegar aðrir
verða teknir fram fyrir hann. Á ég
þar bæði við gagnvart verkefnum,
stöðuhækkunum og launum.“
Elínbjörg Magnúsdóttir sagði
að skapa yrði einstaklingum skil-
yrði til símenntunar. Hún benti á
að 50-60 þúsund manns væru á
vinnumarkaði sem hefðu ekki lok-
ið annarri formlegri menntun en
grunnskóla. „Verði ekki hafist
handa við að koma á skipulegu
námi breikkar enn bilið á milli
þeirra sem skemmsta skólagöngu
hafa og hinna sem búa við öfluga
menntun," sagði hún.
í orði en ekki á borði
Snorri S. Konráðsson fram-
kvæmdastjóri MFA talaði um
„týnda fólkið" þ.e. það sem hefur
ekki frumkvæði til menntunar.
Sagði hann MFA hafa þjónað því
undanfarin ár með námskeiðahaldi.
Hann gagnrýndi hins vegar ráða-
menn fyrir að sýna fræðslustarfi
fyrir atvinnulausa lítinn skilning og
engu væri iíkara en þeim væri sama
um þetta fólk. „Stjórnvöld stöðva
allar fjárveitingar hvað eftir annað
á meðan þau halda uppi ómarkviss-
um og langdregnum umræðum um
hugmyndafræði fræðslustarfsins
fyrir atvinnulaust fólk. Enn 1 dag
sér ekki fyrir endann á þessum
vinnubrögðum."
Sveinn Hannesson framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins sagði
samtökin hafa beitt sér fyrir því á
undanförnum misserum að efla
samstarf þeirra sem fara með sí-
menntunarmál í iðnaði. Komið hefði
verið á fót Félags- og fræðslumið-
stöð, sem væri í Húsi iðnaðarins
og ættu 11 iðngreinafélög aðstöðu
þar auk Samstarfsnefndar atvinnu-
lífs og skóla. Hann sagði atvinnulíf-
ið sjálft móta sína menntastefnu
með hliðsjón af nýrri tækni og
markaðskröfum.
Hann sagði samtökin ennfremur
hafa það að markmiði að breyta
viðhorfi ungs fólks til verk- og
tæknimenntunar, ræddi um ný-
sköpun og sagði hana ganga best
þegar hún ætti sér stað innan fyrir-
tækja og meðal starfsmanna á gólf-
inu. „Þarna á sér stað virk símennt-
un sem með öllum tiltækjum ráðum
þarf að efla.“
Ályktun reykvískra skólastjórnenda
Skólabúðir verði
afram að
SEXTÍU skólastjórar og aðstoðar-
skólastjórar samþykktu með sam-
hljóða atkvæðum að senda eftirfar-
andi ályktun til Björns Bjarnasonar
menntamálaráðherra:
„Fundur reykvískra skólastjórn-
enda haldinn að Nesjavöllum þ. 8.
febrúar 1996 samþykkir að beina
þeirri eindregnu áskorun til
menntamálaráðherra, að hann beiti
sér fyrir áframhaldandi rekstri rík-
isins á skólabúðunum að Reykjum
í Hrútafirði.
Heyrst af lokun
Um uppeldis- og fræðslugildi
skólabúðanna þarf ekki að fjölyrða.
Heilladrjúg reynsla af þeim undan-
farin ár talar sínu máli,“ segir í
ályktuninni.
Ragnar Gíslason skólastjóri í
Reykjum
Foldaskóla segir að skólastjórar
hafi ekki fengið formlega tilkynn-
ingu um að leggja eigi skólann nið-
ur, en starfsmenn skólans hafi tjáð
þeim að slíkt hefði verið til um-
ræðu. Því hafi verið gripið til þess-
ara aðgerða.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að fjölmargir skólastjórar
og skólamenn hafi bent á mikil-
vægi skólabúðanna. „Ég dreg rétt-
mæti þeirra ábendinga síður en svo
í efa og minn vilji stendur ekki til
þess, að starfsemin þar leggist af
við flutning grunnskólans til sveit-
arfélaganna. Ég tel að reksturinn
eigi að vera í höndum sveitarfélag-
anna og vona að um málið náist
samkomulag milli aðila,“ sagði
hann.