Morgunblaðið - 27.02.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
)
►
)
>
>
>
I
I
3
I
I
B
1
I
I
I
I
(
I
3
I
4
_______________________________ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 37
MINNINGAR
AUÐURH. ISFELD
OG JÓNKR. ÍSFELD
+ Auður H. ísfeld
fæddist í Tungu í
Fáskrúðsfirði 2. maí
1917. Hún lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði 21.
janúar síðastliðinn.
Séra Jón Kr. ísfeld
fæddist á Haga í Mjóa-
firði 5. september
1908. Hann lést á
Hrafnistu í Hafnarfirði
1. desember 1991.
Bæði voru þau jarð-
sungin frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík af
séra Jakobi A. Hjálm-
arssyni frá Bíldudal og
hvíla nú í Fossvogs-
kirkjugarði.
Mjúk skal sængin lífs við ystu ósa,
unaðs njótið bjartra meðal rósa.
Sagði gamalt skáld héðan úr
Arnarfirði á sínum tíma og þessi
orð eiga vel við sæmdarhjónin
Auði og Jón Kr. ísfeld. Þau gengu
í hjónaband 25. júlí 1942. Mig
langar að minnast þeirra í stuttu
máli.
Ef þessi hjón hafa ekki mótað
ungar sálir hér á Bíldudal á sínum
tíma þá veit ég ekki hvað. Eg held
að það sé eins öruggt eins og að
dagurinn kemur eftir nóttina. Eg
byijaði ungur að syngja í sunnu-
dagaskólanum hjá þeim hjónum
en þar spilaði Auður á orgelið. Hún
mun vera minn fyrsti undirleikari,
þegar ég söng, Ó, Jesú bróðir besti,
á sínum tíma, þá var maður ekki
hár í loftinu. En marga góða tón-
ana hefur maður átt í þessu húsi
æ síðan enda 40 ára söngferill
góður tími.
Alltaf var hún Auður mín jafn
ljúf og yndisleg því það var hennar
aðalsmerki hvar sem hún var og
fór.
Svo ég minnist aftur á frumraun
mína í sunnudagaskólanum hjá
Auði þá voru einnig tvær konur
hér á stað sem hvöttu mig til dáða
í söng síðar meir og ég ætla mér
að nafngreina hér, Osk Laufey
Hallgrímsdóttir og Bára Kristjáns-
dóttir. Bára söng í kirkjunni í
mörg ár og var rödd hennar þar
mikil prýði. Þökk sé þeim og bless-
uð sé minning þeirra.
Auður var mjög listhneigð kona,
málaði og saumaði út, enda eins
og gamalt máltæki segir: Eplið
fellur ekki langt frá eikinni. Bræð-
ur hennar tveir, Björn gullsmiður
og Leifur frummótasmiður, báðir
miklir listamenn.
Þau hjón komu til Hrafnseyrar
1942, þá ung að árum, en um
1943 urðu óvænt þáttaskil í starfí
hins unga prests. Þá varð skyndi-
lega dimmt í ranni þegar sjóslysið
mikla dundi yfír Bíldudal er Þor-
móður fórst nóttina milli 17. og
Erfidrykkjur
Glæsilegt kaffihlaðborð
og hlýleg salarkynni.
Góð þjónusta.
HOTEL
REYKJAVIK
Sigtúni 38.
Upplýsingar í símum 568 9000 og 588 3550
18. febrúar 1943. Upp úr því komu
þessi góðu hjón hér til starfa. Það
var hið mikla lán fyrir þennan stað.
Mér hefur oft dottið það í hug
í gegnum árin að svo mikill og
merkur æskulýðsleiðtogi sem séra
Friðrik Friðriksson var, held ég
ekki ofsögn að segja að séra Jón
Kr. ísfeld hafi staðið honum jafn-
fætis í þeim málum.
Ég undirritaður byrjaði að starfa
hjá séra Jóni Kr. í Bíldudalskirkju
1958, þá 18 ára að aldri. Ég var
beðinn að sjá um þrif í u.þ.b. eina
viku, en sú vika varð gífurlega
löng og hefur mér verið þetta hús
og kirkjustörf mjög hugleikin. Nú
kveður við annan tón, ég er hættur
störfum þar.
Nú lýk ég þessum minningar-
brotum. Þessi merku hjón eru horf-
in yfír landamæri lífs og dauða og
ég dreg ekki-dul á það að þegar
þau þáttaskil urðu hér 1960 að þau
fluttu héðan dró ský fyrir sólu.
Þeirra skarð verður aldrei fyllt, í
það minnsta ekki í hugum þeirra
sem nutu mannkosta hjónanna.
Ég kveð ykkur og þakka enn
og aftur fyrir mig.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Ók. höf.)
Jón Kr. Ólafsson.
+
Konan mín,
MAGNEA HJÁLMARSDÓTTIR
kennari,
lést á hjúkrunar- og vistheimilinu
Droplaugarstöftum sunnudaginn 25.
febrúar.
Friftrik Jónasson
Faftir okkar, tengdafaftir og afi,
KRISTINN FRIÐÞJÓFSSON,
Urðargötu 15,
Patreksfirði,
andaðist í Landspítalanum 25. febrúar.
Minningarathöfn um hinn látnaferfram
í Fossvogskirkju föstudaginn
1. mars kl. 10.30.
Sólrún B. Kristinsdóttir, Guðni Jónsson,
Hauður Kristinsdóttir, Magnús Alfonsson,
Þóra Sjöfn Kristinsdóttir,
Anna M. Kristinsdóttir, Gísli Reynisson
og barnabörn.
+
Útför systur okkar,
ÁSTU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Njörvasundi 22,
fer fram frá Fossvogskapellu miðviku-
daginn 28. febrúar kl. 13.30. Blóm vin-
samlegast afþökkuö, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Hjartavernd.
Gísli Guðjónsson,
Ágúst Guðjónsson,
Guörún Guðjónsdóttir,
Þorbjörg Guðjónsdóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móftir, tengda-
móöir, amma og langamma,
GUÐRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Háamúla,
Fljótshlíð,
til heimilis að
Eyrarvegi 9,
Selfossi,
lést að heimili sínu að morgni laugar-
dagsins 24. febrúar sl.
Sigurgeir Ingvarsson,
Sigrún Sigurgeirsdóttir,
Guðmundur Birnir Sigurgeirsson,
Pálmar Sigurgeirsson,
tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar
KRISTJÁNS S. JÓNSSONAR,
Akranesi.
Rósa Sigurðardóttir,
Bergþóra S. Kristjánsdóttir, Klaus Slavensky
Kristján H. Slavensky, Jakob W. Slavensky,
Egill Jón Kristjánsson,
Ragnar Örn Egilsson, Droplaug N. Magnúsdóttir,
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vift fráfall eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS GEIRS SIGURJÓNSSONAR
frá Geirlandi,
tilheimilisá
Þykkvabæ 7,
Áróra Tryggvadóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn
og aðrir aðstandendur.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför föður okk-
ar.tengdaföður, afa, langafa og langa-
langafa,
SKÚLA ÞÓRÐARSONAR
skipasmíðameistara,
fsafirði,
Ágústa Skúladóttir, Kjartan T. Ólafsson,
Svandís Skúladóttir, Páll Theodorsson,
Skúli Þ. Skúlason, María Jóakimsdóttir,
Árni Skúlason, Laufey Þorsteinsdóttir,
barnabörn og aðrir afkomendur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegr-
ar móður minnar, tengdamóður, ömmu
og systur,
KATRÍNAR SVEINSDÓTTUR
fyrrv. talsímakonu,
Fannborg 8,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar
A7 og gjörgæsludeildar í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur, Fossvogi.
Þórheiður Einarsdóttir og fjölskylda,
og systkini hinnar látnu.
+
Hugheilar þakkir til allra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
MÖRTU DANÍELSDÓTTUR,
Vesturgötu 7,
Reykjavík,
Sérstakar þakkir til starfsfólks Þjón-
ustumiðstöðvar og heilsugæslustöðvar
Vesturgötu 7 fyrir góða umönnun.
Björn K. Lárusson,
Gunnar D. Lárusson, Anna Þrúður Þorkelsdóttir,
Ragnar Lárus Gunnarsson, Ingibjörg Sveinsdóttir,
Ragnhildur Anna Gunnarsdóttir, Anna Þrúður Guðbjörnsdóttir,
Þorkell Máni Gunnarsson, Sigrún Erla Blöndal.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður og
ömmu,
BERTU SNÆDAL,
Hvassaleiti 69.
Gunnlaugur Snædal,
Jón Snædal, Guðrún Karlsdóttir,
Kristján Snædal, Sólrún Vilbergsdóttir,
Gunnlaugur G. Snædal, Soffía Káradóttir
og barnabörn.