Morgunblaðið - 27.02.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 45
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ökum ekki undir áhrif-
um sljóvgandi lyfja
BUDDAN er fljót að tæmast þegar gera þarf við bíl eftir árekstur.
Hér er hópurinn að meta Ijón á skemmdum bíl.
Frá hópi 4 og 5 hjá Sjóvá-Almenn-
um:
VIÐ erum tveir hópar sem sóttu
námskeið fyrir unga ökumenn hjá
Sjóvá- Almennum í janúar. Okkur
langar til að miðla til ykkar, kæru
jafnaldrar, reynslu okkar en við
áttum það sameiginlegt að hafa
lent í árekstri og þess vegna var
okkur boðið á tveggja kvölda nám-
skeið. Við höfum skoðað hvers
vegna við lentum í tjóni og langar
nú til að miðla okkar reynslu til
ykkar.
Ekið á kyrrstætt ökutæki
Við vorum nokkur sem vorum
svo óheppin að keyra á bíla sem
höfðu verið stöðvaðir ýmist löglega
eða ólöglega. Við vorum sammála
um að ef við hefðum ekið hægar,
verið með ökuljósin hrein og fylgst
betur með umferðinni í kringum
okkur hefðum við ekki lent í
árekstri. Við erum einnig sannfærð
um að þeir sem lögðu bílum sínum
ólöglega hafi átt sinn þátt í að
árekstur varð. Ef bílbeltin hefðu
verið spennt hefði enginn slasast
af okkur. Við hvetjum einnig ykkur
til að nota viðvörunarþríhyrning eða
viðvörunarljós, ef bíllinn bilar og
þið neyðist til að stöðva hann á
götunni. Ef dekkin eru í lagi er
i minni hætta á að þið þurfið að
stöðva vegna þeirra.
Framúrakstur
Nokkrir lentu í árekstri við að
aka fram úr bíl. Við sem lentum í
þessu viljum benda á nokkur atriði
sem dregið geta úr hættu á árekstri
við framúrakstur.
1. Notum stefnuljósin þegar við
á.
2. Bíllinn sem á móti kemur
nálgast mjög hratt. Munum að hafa
nægilegt svigrúm til að komast inn
á okkar akrein aftur.
3. Munið að vinstri akrein er
ekki fyrir þá sem aka hægt. Notum
hana rétt, þ.e. til framúraksturs.
Aftanákeyrslur
Flest okkar lentum í að aka aftan
á. Við höfum skoðað vel hvers vegna
og nú viljum við benda á eftirfar-
andi atriði sem forðað geta ykkur
frá því að aka aftan á.
1. Hjá öllum okkar var bilið í
næsta bíl of stutt. Við hvetjum ykk-
ur til að auka það. Höfum 3 sekúnd-
ur í næsta bíl. Teljum 1001, 1002,
1003 og þá ættum við að vera á
sama punkti og bíllinn fyrir framan
var þegar við byrjuðum að telja.
2. Við hvetjum þig til að horfa
lengra en á næsta bíl fyrir framan.
Þá erum við betur viðbúin þegar
hann hemlar. Þá sjáum við líka
umferðarmerkin löngu áður en við
þurfum að aka eftir þeim.
3. Virðum hámarkshraðann, þá
þurfum við ekki að aka fast við
næsta bíl.
4. Ökum alltaf í samræmi við
aðstæður. Munum að veður getur
breyst og þá getum við þurft lengri
stöðvunarvegalengd. Munum að
þegar hitastig er lágt getur fryst
snögglega þegar við förum hærra
upp.
5. Atriði eins og að tala í síma,
reykja, borða, fikta í útvarpi eða
segulbandi hafa oft leitt til þess að
ökumaður fylgist ekki með umferð-
inni fyrir framan og ekur á næsta
bíl. Látið það ekki henda ykkur.
Munið að farþegar geta truflað líka.
6. Þegar þið nálgist gatnamót
með umferðarljósum skuluð þið
vera á varðbergi ef þau hafa logað
lengi, þá styttist í að gula ljósið
kvikni og bíllinn fyrir framan gæti
stöðvað snöggt
7. Reiknið með að allir ökumenn
séu mannlegir og geti gert mistök,
þið líka.
Forgangur á gatnamótum
Við vorum nokkrir krakkar sem
lentum í árekstri á gatnamótum.
Við erum viss um að hefðum við
farið eftir eftirtöldum atriðum hefð-
um við sloppið.
1. Virðið umferðarmerkin s.s.
þið- og stöðvunarskyldu þegar þið
nálgist gatnamót. Þá vitið þið hver
á forgang.
2. Farið hægar að gatnamótum
og lítið vel í kring um ykkur.
3. Ef þið þurfið að beygja á um-
ferðarljósum, þá athugið sérstaklega
vel bílana sem á móti koma, þeir
nálgast ykkur ótrúlega hratt.
4. Munið að gula ljósið þýðir
ekki að þið eigið að halda áfram.
Þið eigið að stöðva nema þið séuð
komin alveg að stöðvunarlínunni.
5. Verið ekki of fljótfær, það
getur orðið dýrkeypt.
Mætingar
Nokkur okkar lentu í tjóni þegar
við vorum að mæta bíl. Við viljum
benda á eftirfarandi atriði:
1. Varist hraðann. Hægið ferð-
ina verulega áður en þið mætið bíl.
Það getur borgað sig að stöðva al-
veg sé vegurinn mjög þröngur.
2. Takið tillit til breidd vegarins.
Kantar geta verið hættulegir.
3. Þið skuluð ekki nauðhemla,
því þá gætuð þið misst stjórn á bíln-
um og hann lent framan á bílnum
sem á móti kemur.
Að bakka á
Það vakti furðu okkar hve marg-
ir lenda í því að bakka á annan bíl
eða mannvirki. Um 20% okkar lentu
í slíku. Við viljum benda á nokkur
atriði sem forðað gætu ykkur frá
slíku klaufaóhappi.
1. Höfum rúður vel hreinar áður
en bakkað er.
2. Horfum vel í kringum okkur
og notum líka speglana þegar við
bökkum.
3. Það er góð regla að skoða vel
aðstæður í kring um bílinn þegar
við erum að koma að honum. Þá
sést hvort öðrum bílum er illa lagt
eða hvort staur er fyrir aftan.
4. Bökkum hægt en örugglega
út og sýnum varkárni og treystum
ekki á aðra vegfarendur.
5. Eru bakkljósin ekki örugglega
í lagi hjá ykkur?
Að lokum viljum við benda ykkur
á nokkur mikilvæg atriði sem hjálpa
okkur öllum í umferðinni:
1. Munum að aka ekki syijuð,
þreytt eða undir áhrifum áfengis.
2. Tökum ekki óþarfa áhættu í
umferðinni og fórnum hvorki eigin
lífi né annarra með slíku.
Fyrir hönd hópa 4 og 5 hjá Sjóvá-
Almennum,
EINAR GUÐMUNDSSON,
fræðslustjóri.
MORGl\
BLAÐSINS
Nám & framtíö
Sunnudagsblaöi Morgunblaösins, 10. mars nk., fylgir blaöauki sem
heitir Nám & framtíb. Blaöaukinn er gefinn út í tengslum viö
Námskynningu 1996, sameiginlega námskynningu skólanna sem
haldin veröur á fjómm stööum í Reykjavík sunnudaginn 10. mars.
í þessum blaöauka veröur fjallaö um námskynninguna, birt viötöl viö
námsráögjafa og fjárhagsleg þjónusta við námsmenn könnuð. Fjallað
verður um endurmenntun, fullorðinsfræðslu, símenntun, fjarkennslu,
háskólanám hér heima og erlendis og fólk tekið tali um nám þess og
framtíö. Tilgangur blaöaukans er að auðvelda fólki að átta sig á þeim
námsmöguleikum sem í boöi em.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka, er
bent á ab tekib er vib auglýsingapöntunum til kl. 12.00
mánudaginn 4. mars.
Dóra Gubný Sigurbardóttir, sölufulltrúi í auglýsingadeild,
veitir allar nánari upplýsingar
í síma 569 1171 eba meb símbréfi 569 1110.
- kjarní málsins!
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, simi
567-1800 ^
Löggild bílasala
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig.
Dodge Grand Caravan LE 4x4, 7 manna,
'91, 4 captain stólar og bekkur, ABS
bremsur og loftpúði í stýri, rafm. í öllu,
samlæsingar, ek. 96 þ. km. V. 1.980 þús.
Nissan Terrano SE V-6 '90, 5 dyra,
sjálfsk., ek. 85 þ. km., álfelgur, sóllúga,
rafm. í rúðum, hiti í sætum o.fl. Einn eig-
andi. V. 1.950 þús.
MMC L-200 D.cap diesil '91, grár, 5 g.,
ek. 98 þ. km. lengd skúffa, 32" dekk, ál-
felgur, m/spili, kastararo.fi. V. 1.350 þús.
Toyota Corolla XLi Secial Series '95, 5
dyra, blár, 5 g., ek. 15 þ. km., geislasp.
o.fl. V. 1.180 þús.
MMC Pajero langur V-6 '92, sjálfsk., ek.
80 þ. km., ABS, rafm. í rúðum, álfelgur
o.fl. V. 2,8 millj.
Nissan Primera SLX 2000 '95, 5 dyra,
sjálfsk., ek. 16 þ. km., álfelgur, rafm. í
rúðum, geislasp., spólvörn o.fl. V: 1.680
þús.
Toyota Corolla GLi 4x4 station '92, 5 g.,
ek. 55 þ. km. V. 1.250 þús.
Renault 19 RT 1.8 '94, 5 g., ek. 40 þ. km.
V. 1.170 þús.
Fiat Panda 4x4 '91, rauður, 5 g., ek. að-
eins 56 þ. km. V. 470 þús.
GMC Tracker 4x4 (Suzuki Sidekick) '90,
hvítur, 5 g., ek. 83 þ. km. V. 980 þús.
Toyota Corolla Hatchback XLi '94, grá-
sans., 5 g., ek. 47 þ. km. V. 990 þús.
Útvegum hagstæð
bflalán
MMC Pajero diesel Turbo (langur) '88,
blár, 5 g., ek. 126 þ. km, rafm. í rúðum
o.fl., ný coupling, tímareim, bremsur o.fl.
Nýskoðaður. V. 1.090 þús.
Suzuki Fox 413 langur '85, 33“ dekk, 5
g., rauður og svartur, allur yfirfarinn. Bíll
í toppstandi. Tilboðsverð aðeins 400 þús.
Sk. ód.
Hyundai Elantra GT 1.8 Sedan '94, 5 g.,
ek. 23 þ. km. V. 1.180 þús.
Mercedes Benz 230 E '91, sjálfsk., ek.
135 þ. km., sóllúga, ABS o.fl. V. 2,3 millj.
MMC Lancer GLX hlaðbakur '91, sjálfsk.,
ek. 86 þ. km. Gott eintak. V. 780 þús.
Tilboðsv. 670 þús.
Nissan Patrol diesel Turbo Hi Roof (lang-
ur) '86, 5 g., ek. 220 þ. km. 36" dekk,
spil o.fl. Mikið endurnýjaður. V. 1.550 þús.
V.W. Golf 1.4 cl station '94, blár, 5 g.,
ek. 32 þ. km., rafm. í rúðum, dráttarkúla
o.fl. V. 1.150 þús.
Grand Cherokee Limited V-8 '94, ek. 15
þ. km., grænsans., einn með öllu, gullfal-
legur bíll. V. 3.950 þús.
Cherokee Laredo 4.0L '92, ek. 46 þ.
km., grænn, rafm. í rúðum, samlæsingar,
flöskugrænn o.fl. Sem nýr. V. 2.280 þús.
Ath.: Tilboðsverð
á fjölda bifreiða.
V.W. Golf CL 1800Í '92, 5 dyra, sjálfsk.,
ek. 52 þ. km., geislasp. o.fl. V. 960 þús.
Toyota Corolla XL '91, 5 dyra, sjálfsk.,
ek. 52 þ. km. V. 730 þús.
Toyota Hilux D.cap bensín SR-5 '92, 5
g., ek. aðeins 45 þ. km. V. 1.550 þús.
V.W. Polo „Fox“ '95, 5 g., ek. 15 þ. km.
V. 870 þús.
M. Benz 280 SEL '82, sjálfsk., ek. 177
þ. km., rafm. i öllu, 2 dekkjagangar. Óvenju
gott eintak. V. 1.250 þús.
MMC L-300 Minibus 4x4 '88, grásans.,
5 g., ek. 120 þ.km., vél yfirfarin (timareim
o.fl. Nótur fylgja). V. 990 þús. Mjög góð
lánakjör.
Willys Koranda 2.3 diesil (iangur) '88, 5
g., ek. aðeins 30 þ. km. V. 980 þús.
Nissan Micra 1.3 LX '94, 5 dyra, 5 g.,
ek. 30 þ. km. V. 820 þús.
Toyota 4Runner V-6 '91, sjálfsk., ek. að-
eins 43 þ. km. V. 2.150 þús.
Snjósleðapakki: Ski Formula '91,
ek. 3.300 km., 70 hö, hvítur. Falleg-
ur sleði. V. 380 þús.
Ski Doo Safari '90, ek. 5 þ. km.,
60 hö, rauður. Ferðasleði. Loran
C. V. 420 þús. og 2ja sleða kerra
kr. 120 þús.