Morgunblaðið - 19.03.1996, Side 4

Morgunblaðið - 19.03.1996, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ - FRÉTTIR Tveggja hreyfla feijuflugvél hrapaði skammt austan við Innri-Njarðvík Slapp lífs þrátt fyrir að hreyfilblað skæri sætið „ÉG SKIL hreinlega ekki hvernig konan lifir þetta af og meira að segja sleppur næstum ómeidd. Það má hreinlega kalla þetta kraftaverk," sagði Karl Eiríksson, formaður Fiug- slysanefndar, um flugslys sem varð austan við Innri-Njarðvík í hádeginu sl. sunnudag. Fullorðin bresk kona var að ferja tveggja hreyfla flugvél af gerðinni Islander vestur um haf, þegar hún nauðlenti skammt frá byggðinni í Njarðvík. Konan heitir Janet Ferguson og er 67 ára. Hún kom til landsins í byijun mánaðarins frá Bretlandi með millilendingu í Færeyjum. Ferguson lagði af stað frá Reykjavíkurflugvelli kl. 11.50 á sunnudags- morgun. Ferðinni var heitið til Wisconsin í Bandaríkjunum með millilendingu í Narss- asuaq á Grænlandi. Þegar vélin var komin 11-12 mílur út á Faxa- flóa missti Ferguson GPS-staðsetningartæki á gólfíð í vélinni og rann það aftur fyrir sætið. Hún gat ekki fundið tækið og tók þess vegna þá ákvörð- un að snúa við. Þar sem hún var nær Keflavík- urflugvelli en Reykja- víkurflugvelli tók hún stefnuna til Keflavíkur. Annar lireyf illinn missti afl Skúli Sigurðarson, framkvæmdastjóri flugslysarannsókna flugmálastjórnar, sagði ekki ljóst hv,að hefði farið úrskeiðis þegar flugvélin náigaðist Keflavík. Hún hefði til- kynnt flugturni á Keflavíkurflugvelli kl. 12.08 að hún hefði misst afl á hægri hreyfli og ætti í erfiðleikum með að halda hæð. Hún var þá í 1.000 feta hæð. Skúli sagði að ítarlegri rann- sókn stæði nú, yfir á hreyflum og vél flugvélarinnar og hún myndi væntanlega leiða í ljós hvað hefði valdið slysinu. Súsanna Gunnarsdóttir og Ómar Pálsson urðu vitni að slysinu. Þau búa á Kópabraut 2 í Njarðvík og sátu við eldhúsborðið þar sem þau voru að hlusta á útvarpsfréttirnar. „Við vorum með þvottahúsdyrnar opnar og heyrðum þess vegna vel í flugvélinni. Ég veitti henni strax athygli vegna þess að hún flaug svo lágt og stefndi beint á húsið. Mér varð að orði hvort hún ætlað virki- lega að nauðlenda. Síðan skall vélin niður.“ Flugvélin kom niður kl. 12.13 um 400-500 metra frá Kópabraut og brakið blasti við úr eldhúsgluggan- um frá húsi Súsönnu og Ómars. Súsanna segist hafa verið sannfærð um að hún hefði orðið vitni að dauða- slysi. Henni hefði því létt mikið að heyra að flugmaðurinn hefði sloppið ómeiddur. Flugvélin er ónýt Flugvélin er gerónýt. Hún kom niður í grýttri hesta- girðingu, fór í gegnum girðinguna og skorðað- ist í lítilli laut vestan við hesthúsin í Innri- Njarðvík. Annar væng- urinn skemmdist mikið og nefhjólið brotnaði undan vélinni þar sem hún kom niður. Flug- stjómarklefinn stór- skemmdist og gekk all- ur til í átt að vinstri hreyflinum. Annað hreyfilblaðið gekk alla leið inn í klefann og náði að skera flug- mannssætið í sundur. Það sem bjargaði Ferguson var að hún virðist hafa kastast' fram við nauðlending- una í sama mund og hreyfillinn klauf sætið. Flugvélin var full af eldsneyti, enda átti það að duga til 12 klukku- tíma flugs. Það var því mikið lán að ekki kom upp eldur í flugvélinni þegar hún hrapaði. Slökkviliðsmenn frá Keflavíkurflugvelli, sem vom með þeim fyrstu sem komu á slys- stað, byrjuðu á því að aftengja rafkerfi vélar- innar og forða þannig hugsanlegri íkveikju. -Ferguson sat í flugmannssætinu þegar björgunarmenn komu á stað- inn. Hún mun hafa misst meðvitund, en kom fljótlega til sjálfrar sín. Hún var flutt á Sjúkrahúsið í Keflavík til aðhlynningar þar sem í ljós kom að hún hafði hlotið óveruleg meiðsl. Eftir að fulltrúar flugslysanefndar höfðu tekið af henni skýrslu á lög- reglustöðinni í Keflavík var hún flutt á Landspítalann til frekari rannsókn- ar. Hörður AJfreðsson, iæknir á skurðdeild Landspítala, sagði í gær að líðan Ferguson væri eftir atvikum góð. Hún væri marin og rifbeinsbrot- in. Hann sagðist gera ráð fyrir að hún yrði á spítalanum í 3-4 daga. Súsanna Gunnarsdóttir Ómar Pálsson Morgunblaðið/Þorkell ANNAÐ hreyfiiblaðið úr vinstri hreyflinum gekk inn í flugstjórn- arklefann og klauf sæti flugmannsins í sundur. Flugmaðurinn kastaðist fram við lendingu og slapp þess vegna við að fá blaðið í sig.Við skoðun kom í ljós að flugmaðurinn hafði meiðst óveru- lega og er búist við að spítalavistin verði aðeins 3-4 dagar. Vélin snýr til Keflavíkur um 11-12 mílur úli á Faxaflóa , ...............^ Reýkjavíku^/ ÁHtanes \ flugVÖIIUr íV' Keflavikur-j^SZkJ vbgl • flugmllur^ Vélin fór á loft um kl. 11.50 á sunnudagsmorgun, áleiðis til Narssaauaq á Grænlandi W % Vélin brotlenti kl. 12.13 um 4-500 m frá Kópabraut, austast í Innri-Njarðvík Hirtu lembda kind úr fjárhúsi í Kópavogi og óku með hana í fólksbíl Aðframkomin og skelfd FJÓRIR piltar, 17-24 ára, voru handteknir í Reykjavík á sunnudag með lembda sauðkind í fólksbíl sín- um. Að sögn lögreglu var dýrið aðframkomið og skelfingu lostið. Áverkar voru á kynfærum ærinnar, sem piltarnir höfðu tekið í fjárhúsi við Smárahvamm í Kópavogi. Am- fetamín fannst í fórum piltanna og sagðist eigandi þess hafa keypt efn- ið á tónleikum í Laugardalshöll á laugardagskvöld. Lögregla hafði afskipti af mönn- unum vegna gruns um að þeir hefðu raskað ró fólks í fjölbýlishúsi við Kleppsveg um klukkan ellefu á sunnudagsmorgun. I litlum bíl sem þeir voru á lá ærin útötuð eigin saur og þvagi milli sæta bílsins og reyndu tveir piltanna að fela hana fyrir lögreglu. Þegar kindin var tekin út úr bílnum lagðist hún fyrir og var greinilega langt leidd, að sögn lögreglu. Ætluðu að skemmta sér yfir fréttaflutningi í ljós kom að piltamir höfðu far- ið inn í fjárhús við Smárahvamm og tekið ána. Tveir fjórmenning- anna höfðu farið inn í fjárhúsið, að sögn þeirra úr hópnum sem mundu eftir atvikum næturinnar. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins kannaðist enginn þeirra við það við yfirheyrslur að hafa veitt dýrinu þá áverka á kynfærum sem skoðun dýralæknis leiddi í ljós en hins vegar var talið að allir fjórir gengjust við því að hafa slegið til ærinnar til að reyna að „hafa hemil á henni“ inni í bílnum. Þeir piltanna sem að þessu stóðu tjáðu lögreglu að í upphafi hefðu þeir ætlað sér að skilja ána eftir við Kringluna eða annars staðar á al- mannafæri í því skyni að skemmta sér yfir fréttaflutningi af uppátæk- inu. Með amfetamín úr Laugardalshöll Þeir voru áberandi ölvaðir, að sögn lögreglu, og í fórum eins þeirra fannst amfetamín, sem hann sagð- ist hafa keypt á tónleikum sem þeir sóttu allir í Laugardalshöll kvöldið áður. Frá því tónleikunum lauk og fram að handtöku höfðu þeir auk innbrots í fjárhúsið m.a. farið vestur á Seltjarnames, þar sem tökur á kvikmyndinni „Þar sem Djöflaeyjan rís“ fara fram og valdið þar skemmdum á bíl. Osk um rannsókn á undirskriftasöfnun Sýslumaður vísaði málinu frá STEFÁN Skarphéðinsson, sýslumað- ur í Borgarnesi, vísaði í gær frá er- indi Þorvaldar Pálmasonar sem ósk- aði eftir rannsókn á því hvernig stað- ið hefði verið að undirskriftasöfnun vegna vegalagningar í Reykholts- daishreppi. í bréfi sýslumanns til Þorvaldar segir að með vísan til laga um með- ferð opinberra mála þyki ekki efni til að hefja lögreglurannsókn, enda vandséð á hvaða lagagrundvelli slík rannsókn ætti að byggja. Bent er á að Þorvaldi sé heimilt samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála að bera ákvörðunina undir ríkissak- sóknara. Stefán sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann teldi að ef verið væri að safna undirskriftum þar sem fólki væri gefinn kostur á að lesa það sem það væri að skrifa undir, og ekki væri beitt líkamlegu harð- ræði eða fólk keypt til hlutanna, þá væri öllum fijálst að safna undir- skriftum. Þorvaldur sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði ekki lit- ið á bréfið til sýslumanns sem form- lega kæru þar sem hann áliti það ekki í sínum verkahring að vera dóm- ari í því hvort menn brytu lög eða ekki. Bréfið hefði hins vegar verið beiðni um að'fram færi rannsókn á því hvort um saknæmt athæfi hefði verið að ræða eða ekki. Þorvaldur sagðist á þessu stigi ekki vilja tjá sig um hvort hann myndi kæra mál- ið til ríkissaksóknara. „Ég kem til með að hugleiða þetta frekar og heyra viðbrögð þeirra sem eru mér samsinna í þessu máli, en að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um þetta," sagði hann. Fundur þingmanna Vesturlands um vegamál í Reykhoftsdal hefur ekki verið tímasettur en að sögn Sturlu Böðvarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, verður hann væntanlega haldinn í lok vikunnar. -----♦---------- Undirskriftasöfnun í Langholtssókn 40% vilja að séra Flóki farifrá TÆPLEGA 1.457 sóknarbörn eða 40% sóknarbarna í Langholtssöfnuði hafa skrifað undir yfírlýsingu um að nauðsynlegt sé að séra Flóka Kristinssyni verði veitt lausn frá störfum svo að friður megi komast á í söfnuðinum og safnaðarstarfið fái að dafna á ný. I fréttatilkynningu kemur fram að undirskriftarlistamir hafi verið afhentir kirkjumálaráð- herra á mánudag. Flóki sagði að sér fyndist afar ótraustvekjandi hvernig farið hefði verið að söfnun undirskrifta. „Eng- inn hefur komið fram undir nafni fyrir hönd þessa hóps. Þetta fólk vill fela sig þrátt fyrir að hafa geng- ið mjög hart fram í því að fá nöfn annarra á þennan lista gegn prest- inum sínurn," sagði séra Flóki. Hann sagði að túlka mætti niður- stöðuna á þann veg að 60% safnað- arins vildu ekki leggja nafn sitt við þennan málstað, „og ég mun á næst- unni þiggja ráðleggingar frá vígslu- biskupunum Bolla Gústavssyni og Sigurði Sigurðarsyni um hvort ég eigi að sýna einhver frekari við- brögð,“ sagði hann. Góð kirkjusókn Góð kirkjusókn var í Langholts- kirkju um helgina. Um 300 manns sóttu messu í kirkjunni kl. 11 á sunnudaginn. Kirkjan tekur um 400 manns í sæti með sætum á svölum. \ > I I > l r i > i ! I l i I I í é E 1 I I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.