Morgunblaðið - 19.03.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1996 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Egill
Flateyringum afhent-
ar tæpar 20 milljónir
SVEITARFÉLÖGIN á íslandi
söfnuðu tæplega 20 milljónum
króna vegna hörmunganna á
Flateyri í haust þegar snjó-
flóðið féll þar. Afhentu for-
maður og framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga upphæðina á Flateyri fyr-
ir skömmu. Á myndinni eru
Sigurður Hafberg, forstöðu-
maður sundlaugarinnar á
Flateyri, Ólafur Kristjánsson,
bæjarstjóri á Bolungarvík,
Þórður Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Steinþór Bjarni
Kristjánsson, Krislján Jó-
hannsson sveitarsljóri og Ág-
ústa Guðmundsdóttir.
Yfirlýsing frá Kjartani Ragnarssyni
Furða og hneyksl
an á gjörðum LR
KJARTAN Ragnarsson, sem sagði
af sér formennsku í Leikfélagi
Reykjavíkur á dögunum, er upp
kom að Viðari Eggertssyni leikhús-
stjóra var sagt upp störfum, er er-
lendis við leikstjórn, nánar tiltekið
í Málmey í Svíþjóð. Hann hefur
sent Morgunblaðinu eftirfarandi
yfirlýsingu:
„Vegna þeirra atburða, sem átt
hafa sér stað hjá Leikfélagi Reykja-
víkur, eftir að ég sagði af mér sem
formaður félagsins mánudaginn 11.
mars sl. vil ég taka fram eftirfar-
and:
Ég er um þessar mundir að vinna
við leikstjórn erlendis og á því
óhægt með að taka þátt í þeirri
umræðu, sem nú fer fram um þá
atburði, sem átt hafa sér stað hjá
félaginu. En ég lýsi furðu minni og
hneykslan yfir því sem LR hefur
gert, að segja upp Viðari Eggerts-
syni áður en hann hafði tækifæri á
að taka til starfa og gera yfirleitt
eitthvað af sér. Ég hef ekki ennþá
séð eða heyrt nein þau rök, sem
réttlæta uppsögn Viðars. Ég vona
að leikfélagið hafí einhver rök. Þau
hafa ekki enn komið fram.
Tii að taka af allan vafa um hvers
vegna ég sagði af mér sem formað-
ur LR, þá var það vegna þess að á
félagsfundi 27. febrúar sl. lagði fé-
lagið þá skyldu á herðar stjóminni
að koma að hverri uppsögn, sem
gerð yrði á vegum leikhússins. Það
gat ég ekki sætt mig við.
Ég stóð að ráðningu Viðars Egg-
ertssonar sem leikhússtjóra hjá
Borgarleikhúsinu í þeirri von að
hann myndi standa að breytingum
hjá húsinu sem bættu listræna
stöðu þess. Ég get ekki séð að það
sé hægt ef ekki má hreyfa við samn-
ingum þess fólks, sem hefur skapað
sér forréttindi með því að gerast
félagar í Leikfélagi Reykjavíkur.
Ég hef barist fyrir þeirri grund-
vallarreglu að leikhússtjórinn hefði
það listræna vald að ráða fólk eða
segja því upp eftir því sem listræn
stefna krefðist hverju sinni. Ég
hafði áhyggjur af því að félagar í
LR hefðu úrslitavaldið um sína eig-
in samninga. Það hlyti að leiða til
þess að hagsmunagæsla færi að
sitja í fyrirrúmi. Mér virðist að fé-
lagið hafi sjálft tekið af allan vafa
um að þær áhyggjur voru ekki
ástæðulausar. Ég lýsi fullri ábyrgð
á hendur núverandi meirihluta í
félaginu og stuðningi við Viðar
Eggertsson."
Morgunblaðið/Árni Sæberg
írskir dansar og tónlist
í TILEFNI af þjóðhátíðardegi
írlands, St. Patricksdegi, síðast-
liðinn sunnudag flutti Dubliner-
kráin í Hafnarstræti inn írskan
dansflokk, The Booleyhouse Set
Dancers, sem dansar gamla, fjör-
uga, írska þjóðdansa. Einnig kom
til landsins írska þjóðlagahljóm-
sveitin The Butterfly-band. Þess-
ir skemmtikraftar léku og döns-
uðu á Dubliner og á Ingólfstorgi
um helgina. Myndin er tekin er
skemmtikraftarnir hituðu upp
fyrir utan Dubliner.
Biskup til Strassborgar
BISKUP Islands, hr. Olafur Skúla-
son, heldur í dag til Strassborgar
til undirbúningsfundar fyrir aðal-
fund guðfræðistofnunar Lúterska
heimssambandsins en hr. Ólafur
er stjórnarformaður þeirrar stofn-
unar.
Að auki er biskupinn formaður
þeirrar þingnefndar á vegum
heimssambandsins er lætur til sín
taka málefni aðildarkirkna og mun
hann sinna málum þeirrar nefndar
í sömu ferð. Að fundinum loknum
mun biskupinn dveljast erlendis í
einkaerindum í nokkra daga ásamt
frú Ebbu Sigurðardóttur, bisk-
upsfrú. Vígslubiskupar eru hvor í
sínu stifti staðgenglar biskups ís-
lands og annast þau störf sem hann
felur þeim.
Ertu að velta fyrir þér framtíáinni?
Ætlardu að efia fýrirtækið
með nýju upplýsinqakerfi?
Ráðstefnukynninq
á helstu bókhalds- oq qaqnaqrunnskerfum Tslenskra huqbönaðarfyrirtaekja
á Grand hótel föstudaqinn ZZ. mars kl. 13.30 -17.00.
Opin kerfi hf., umboðsaðili Hewlett-Packard
á íslandi, boða til ráðstefnukynningar þar
sem fuUtrúar Opinna kerfa hf. og íslenskra
hugbúnaðarframleiðenda kynna hið allra
nýjasta á sviði hugbúnaðar á íslandi.
Fyrirlesarar frá einstökum fyrirtækjum
kynna hugbúnaðinn og að lokum verða
hringborðsumræður.
Bókhaldskerfi:
Fjölnir frá Streng.
Concord frá Hug.
ÓpusAllt
frá íslenskri forritaþróun.
Gagnaqrunnskerfi:
Oracle frá Teymi.
Informix frá Streng.
Adabase frá Software AG.
frelsi tilaðvelja
Leitaðu lausna í samvinnu við Opin kerfi hf.
Við höfum ávallt lagt áherslu á að selja
vandaðan vélbúnað og - í samvinnu við flest
stærstu hugbúnaðarfyrirtæki landsins -
að gefa stjómendum fyrirtækja kost á að velja
hugbúnað sem hentar þörfum þeirra best.
Ráðstefnukynning Opinna kerfa hf. er einstakt
tækifæri til að fræðast á einum stað um kosti
einstakra bóklialds- og gagnagrunnskerfa og
notkunargildi þeirra fyrir fyrirtækið.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 567 1000.
Fjöldi ráðstefnugesta er bundinn við tiltekið hámark.
OPIN KERFIHF
HEWLETT
PACKARD
Höfðabakka 9, Sími: 567 1000