Morgunblaðið - 19.03.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.03.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1996 39 Nýtt verkfræðingatal væntanlegt í vor AÐALFUNDUR Verkfræðingafélags íslands (VFÍ) va_r haldinn 14. mars sl. Á fundinum tók Pétur Stefánsson við for- mennsku í félaginu af Karli Ómari Jónssyni sem verður áfram eitt ár í stjórn samkvæmt félagslögum. Á starfsárinu hóf göngu sína nýtt ferða- blað Verktækni sem gefið er út sameigin- lega af Verkfræðinga- félagi íslands, Tækni- fræðingafélagi Islands og Stéttarfélagi verk- fræðinga og kemur blaðið út hálfsmánað- arlega. Þá kom út á árinu 5. bindi Raftækniorðasafns á vegum Orða- nefndar rafmagnsverkfræðinga- deildar VFÍ en hún hefur starfað óslitið frá árinu 1941. Sögu orða- nefndar VFÍ má hinsvegar rekja allt aftur til ársins 1919. Verkfræðingatal kom síðast út PÉTUR Stefánsson, nýkjörinn formaður Verkfræðingafélags íslands. 1981 en á vordögum er væntanlegt nýtt tal með æviskrám um 2000 verkfræðinga. Af þeim eru um 300 látnir. Stjórn Verkfræð- ingafélags íslands starfsárið 1996-97 skipa: Pétur Stefáns- son, formaður, Karl Ómar Jónsson, fráfar- andi formaður, Snæ- björn Jónsson, með- stjórnandi, Hildur Rík- harðsdóttir, með- stjórnandi, Sigurður Brynjólfsson, með- stjórnandi, Birgir Ómar Haraldsson, varameðstjómandi og Benedikt Hauksson, varameð- stjórnandi. Úr stjórn gengu: Jó- hann Már Maríusson, fv. formað- ur, Páll Gíslason, meðstjórnandi og Halla Norland, varameðstjórn- andi. Framkvæmdastjóri VFÍ og TFÍ er Arnbjörg Edda Guðbjörns- dóttir. ■ TRÍÓ Kristjáns Guðmunds- sonar leikur nk. miðvikudagskvöld á Kringlukránni. Tríóið skipa auk Kristjáns, sem leikur á píanó, þeir Bjarni Sveinbjörnsson kontra- bassaleikari og söngvarinn James Olsen. Dagskrá tríósins er að mestu byggð á þekktum djasslög- um frá ámnum 1950-60. Tónleik- arnir heijast kl. 22. Morgunblaðið/Þorkell Listhár í Listhúsinu NÝLEGA var opnuð í Listhúsinu í Laugardal, Engjateigi 17-19, hársnyrtistofan Listhár. Eigandi er Hildur Blumen- stein. Hún lærði og starfaði á Salon Ritz og var síðan annar eigandi Hárlitrófs. Listhár annast alla almenna hárþjónustu fyrir dömur og herra. Listhár hefur opið alla daga nema sunnudaga. Bókahringrás Máls og menningar og Kvennadeildar RRKI Rúm 550 þúsund til bókakaupa ÁRNI Einarsson, verslunarstjóri, og Sigurður Svavarsson, fram- kvæmdastjóri, afhenda Sigurveigu H. Sigurðardóttur, formanni Kvennadeildarinnar, afrakstur bókahringrásarinnar. MÁL og menning hefur afhent Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands ríflega hálfa milljón króna, afrakstur bókahring- rásarinnar sem efnt var til í febr- úar. Fénu verður varið til kaupa á bókum fyrir bókasöfn deildarinnar á sjúkrahúsunum í Reykjavík og til endurnýjunar á bókavögnum. Kvennadeild RRKÍ fagnar 30 ára afmæli sínu á þessu ári og hefur rekstur bókasafna á sjúkrahúsun- um verið snar þáttur í sjálfboða- starfi deildarinnar nær frá upphafí. Bókahringrásin er nýjung á ís- landi og vegna góðrar viðbragða almennings mun Mál og menning endurtaka hana að ári. Alls bámst um tvö tonn af bókum í verslanir MM á meðan á hringrásinni stóð og seldist um helmingur þess. Kvennadeildin átti kost á að velja úr því sem eftir stóð til afnota á bókasöfnunum. Upphæðin sem rann til deildar- innar samsvarar því sem til þessa hefur verið lagt í rekstur bókasafn- anna á heilu ári. Bókasöfn Kvennadeildarinnar eru á Landspítalanum, Sjúkrahúsi Reykjavíkur og á Sjúkrahóteli Rauða kross íslands. ATVIN tMMAUGLYSINGAR Reykjavík Hjúkrunarfræðingar Starfsfólk til aðhlynningar Hjúkrunarfræðingur óskast nú þegar í 100% starf vegna veikinda. Einnig vantar hjúkrun- arfræðinga/hjúkrunarfræðinema til ýmissa sumarafleysinga bæði á hjúkrunardeildir og vistheimilið, m.a. vantar á næturvaktir (grunnröðun f. næturvakt Ifl. 213). Starfsfólk til aðhlynningar óskast nú þegar í hlutastörf. Upplýsingar veita ída Atladóttir, hjúkrunar- forstjóri, og Þórunn A. Sveinbjarnar, hjúkrun- arframkvæmdastjóri, í símum 553 5262 og 568 9500. Tækjamenn óskast í flutningamiðstöð EIMSKIPS í Sundahöfn eru laus til umsóknar sérhæfð störf tækja- manna. Unnin er vaktavinna, tvískiptar vaktir á virkum dögum. Óskað er eftir starfsmanni með: • Meirapróf og þungavinnuvélaréttindi. • Þjónustulund. • Ábyrgðartilfinningu. Við bjóðum fjölbreytt og krefjandi starfs- umhverfi hjá traustu fyrirtæki. Vinsamlega skilið umsóknum til starfsþróun- ardeildar EIMSKIPS, Pósthússtræti 2, í síðasta lagi mánudaginn 25. mars nk. fyrir kl. 16.00. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. EIMSKIP EIMSKIP leggur áherslu á að auka hlut kvenna í ábyrgðarstöðum hjá fyrirtækinu og þar með stuðla að því að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Stýrimenn - vélstjórar Laus eru til umsóknar eftirtalin störf á m/s Svalbarða Sl 302 (Svalbakur EA 302). 1. stýrimaður og afleysingaskipstjóri. 2. stýrimaður, yfirvélstjóri, 1. vélstjóri og 2. vélstjóri. Skipið mun stunda veiðar utan ísl. landhelgi og fyrst halda til rækjuveiða í Flæmska hatt- inum upp úr miðjun apríl nk. Upplýsingar eru gefnar hjá Siglfirðingi hf. í síma 467 1518, fax 467 1672, þar sem jafn- framt er tekið við umsóknum. Hjúkrunarfræðingur Innflutningsfyrirtæki óskar eftir hjúkrunar- fræðingi í sölustarf á lækningavörum. Skemmtilegt og krefjandi starf. Góð enskukunnátta æskileg. Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merktar: „A - 15593“. SHACi augíýsingor □ EDDA 5996031919 III 1 Frl. □ FJÖLNIR 5996031919 I 2 Frl. atkv. FÉLAGSLÍF Hlutastörf Óskum að ráða 4 starfsmenn í hlutastörf til að veita 5-6 fötluðum einstaklingum frekari liðveislu við sjálfstæða búsetu. Um er að ræða kvöld- og helgarvaktir skv. fyrirliggj- andi vaktskrá. Starfsmenn vinna undir hand- leiðslu fagaðila. Menntun og/eða reynsla í störfum með fatlaða er æskileg. Laun eru skv. kjarasamningi starfsmannafé- lags ríkistofnana og fjármálaráðuneytisins. Umsóknarfresturertil 1. apríl. Nánari upplýs- ingar gefur Jóna S. Harðardóttir á skrifstofu- tíma í síma 562 1388. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist til Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra, Nóatúni 17, 105 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást. FERDAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Aðalfundur Ferðafélags íslands Miðvikurdagirm 20. mars nk. verður aðalfundur Ferðafélags- ins haldinn í Mörkinni 6 (stóra sal) og hefst stundvíslega kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Ath,: Sýnið félagsskírteini (1995) við innganginn. Helgarferð 23.-24. mars Holtavörðuheiði - Norðurár- dalur, ný skíðaferð (gist í Sveina- tungu). Fararstjóri: Árni Tryggvason. Frá Feröafélag íslands. - kjarni málsins! □ HAMAR 59960319191 2 Frl. □ HLÍN 5996031919 VI - 2 I.O.O.F. Ob. 1 = 17703198:30 = FL I.O.O.F. Rb. 4 = 1453198 - 8'Á.O. AD KFUK, Holtavegi Aðalfundur KFUK og sumar- starfsins i Vindáshlið í kvöld kl. 20.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.