Morgunblaðið - 19.03.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1996 9
I
I
I
|
I
I
I
I
I
I
I
FRÉTTIR
A annað þúsund eldri borgara sótti afmælishátíð í Laugardalshöll
» lýkomnai vörur AniHwumir, KlnppM'stúj 40, síml552 7977.
Scetir sófar á óviðjafnanlegu verði HÚSGA GNALAGERINN Smiðjuvegi 9 (gul gata) - Kópavogi - simi 564 1475 Opið mán.-fös. 13-18, lau. 11-14.
c I r ?portlegar, einlitar buxnadragtir Verð kr. 23.700. m Hra Cl - Veriö velkomin - Opið virka daga 1 K X X vneðs*við kL9"18’ ■ MA KP V. Dunhaga, laugardaga — sími 562 2230 kl. 10-14.
Morgunblaðið/Ásdís
FJOLDI listamanna hefur
lagt 10 ára afmælisviku Fé-
lags eldri borgara í Reykjavík
lið. Myndin er tekin í Laugar-
dalshöll á fimmtudaginn þar
sem kór félagsins var að
syngja undir stjórn Kristínar
Pétursdóttur.
Vel hefur
tekist til
AFMÆLISHÁTÍÐ Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni
lauk á föstudag með móttöku í
Risinu sem félagið hélt fyrir
ýmsa þá, sem lagt hafa hönd á
plóg við að gera hátíðina sem
glæsilegasta. Á annað þúsund
manns sótti dagskrá í tilefni af-
mælisins í Laugardalshöllinni á
fimmtuadg, en að sögn Páls Gísla-
sonar, formanns félagsins, var
það hápunktur afmælisvikunnar.
Tíu ár eru um þessar mundir lið-
in frá stofnun félagsins.
Gönguferð, myndlist og fundir
„Hátíðin gekk mjög vel. Við
höfuin verið hæstánægð enda
mjög fjölbreytt dagskrá, sem boð-
ið hefur verið upp á. Aðsókn hef-
ur verið misjöfn, en yfirleitt mjög
góð. Við byrjuðum í snjómuggu
á laugardaginn með fjölmennri
göngu og síðan hefur hver við-
burðurinn rekið annan. Dagskrá
hefur verið í Tjarnarsal á degi
hverjum þar sem einnig var sett
upp myndlistarsýning iistmálara
67 ára og eldri sem Kjarvalsstað-
ir stóðu fyrir. Við höfum haft
morgunfundi með borgarfulltrú-
um og alþingismönnum um mál-
efni aldraðra. Síðan reis hátíðin
hæst í Laugardalshöll þó að veðr-
ið hafi ekki verið nógu hagstætt.
Hún þótti samt takast vel og fram
kom fjöldi landsþekktra
skemmtikrafta, sem buðu okkur
þjónustu sína fyrir lítið eða ekk-
ert verð.“
Tókst að vekja athygli á
félaginu
Páll segist, á heildina litið, vera
mjög ánægður með hvernig til
hcfur tekist. „Tilgangurinn var
náttúrulega sá að vekja athygli á
félaginu og málstað aldraðra
þannig að þar færi fólk, sem
væri virkt og lifandi auk þess sem
þetta myndi verða okkur styrkur
við að stækka félagið okkar og
auka áhrif okkar á það sem
brennur hvað mest á öldruðum,
hagsmunagæslu í sambandi við
lífeyrisgreiðslur og þær skerð-
ingar, sem eru að herja á okkur.“
Sex þúsund eldri borgarar eru
í félaginu í Reykjavík og rúmlega
sex þúsund eru í 43 félögum úti
á landi. Landssamband aldraðra
tengir síðan öll þessi félög saman.
NÁMSMANNASTYRKIR
Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Veittir verða 12 styrkir hver að
upphæð 125.000 krónur.
Styrkirnir skiptast þannig:
• Útskriftarstyrkir til nema í
Háskóla íslands.
• Útskriftarstyrkir til nema á
háskólastigi/sérskólanema.
• Styrkir til námsmanna erlendis.
Einungis aðilar í Námsmannalínunni eiga
rétt á að sækja um þessa styrki.
Umsóknareyðublöð eru afhent í öllum
útibúum Búnaðarbankans og á skrifstof-
um Stúdentaráðs, SÍNE og BÍSN.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. maí til:
BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS,
markaðsdeild, Austurstræti 5,
155 Reykjavík.
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
NÁMSI
LÍNAN A
Gallaskokkar, gallakjólar,
skyrtur og fleira.
Stutt pils, bolir og vesti á
stúlkur frá ca. 12 ára.
Ljósu stretchbuxurnar
komnar.
Eiðistorgi 13, 2. hæð,
yfir torginu,
sími 552-3970.
Sjón er
sögu ríkari
Ferðatöskur
Fatapokar
Handtöskur
Innanklæðaveski
„Beuty“-box-Bakpokar
Laugavegi 58,101 Reyk|av(k, slmi 551 3311
Blóðfitumælar
AccuMeter einnota
blóðfitumælamir
eru þægilegir,
nákvæmir og
auðveldir í notkun.
íslenskar
leiðbeiningar.
Utsölustaðir: Apótekin.
)»
Mér líður
allri mikið betur
„Eftir að égfór að taka fjallagrasahylkin
reglulega líður mér allri mikið betur og
meltingin er í góðu lagi."
Edda er meðal þeirra fjölmörgu sem hefur sannre^nt
hvað fjallagrasahylki hafa góð áhrif á orku- og
vatnsbúskap líkamans.
Fjallagrasahylkin og aðrar heilsuvörur frá íslenskum fjallagrösum hf.
byggja á áralöngum rannsóknum og eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti.
Fjallagrasahylkin innihalda a.m.k. 5% fléttusýrur.
Fæst í heilsubúðum, apótekum og heilsuhillum stórmarkaða.