Morgunblaðið - 19.03.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1996 25
LISTIR
„hefna pápa, ekki
HEFNA PÁPA“
LEIKUST
Bandamcnn
AMLÓÐASAGA
Dæmisaga handa nútímanum byggð
á frásögnum Saxós, Ambáles rimum,
Amlóða sögu, Bijáms sögu og ýmsum
fleiri gömlum heimildum islenskum
og erlendum, sett saman af Sveini
Einarssyni og leikhópnum. Leikend-
ur: Borgar Garðarsson, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir, Jakob Þór
Einarsson, Felix Bergsson, Ragn-
heiður Elfa Arnardóttir, Guðni
Franzson og Stefán Sturla Siguijóns-
son. Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
Tónlist: Guðni Franzson. Búningar:
Elín Edda Amadóttir. Ljósahönnun:
David Walters. Grímur: Helga Steff-
ensen. Aðstoð við hreyfingar: Nanna
Olafsdóttir. TæknLstjóri: Olafur Om
Thoroddsen. Borgarleikhús, litla
svið, laugardagskvöld, 16. mars.
MARGIR kannast vafalaust við
viðurnefnið „amlóði" viðhaft um
mann sem þykir ólíklegur til afreka
og vitgrannur, eða eins og Sveinn
Einarsson leikstjóri útskýrir það:
ættleri, ónytjungur, fífl. Hitt kunna
færri að vita að nafn og saga prins-
ins Hamlets, sem Shakespeare gerði
ódauðlegan, á rætur sínar að rekja
til fornra amlóða-sagna, hugsan-
lega keltneskra, sem til eru í ýmsum
myndum og útgáfum, þar á meðal
íslenskum. Grunnur amlóða sög-
unnar fjallar um föðurmorð, sæmd
og hefndarskyldu og lýsir sagan
sálarstríði amlóðans og viðleitni
hans til að komast undan hefndar-
skyldu sinni, t.a.m. með því að gera
sér upp fíflsku.
Þetta er efniviðurinn sem
Bandamenn vinna úr leiksýning-
una Amlóða saga sem þeir frum-
sýndu á íslandi síðastliðið laugar-
dagsdvöld en fyrir tveimur vikum
á Helsingjaeyri í boði Kaupmanna-
hafnarborgar og Frederiksborg
Amt. Mun sýningin hafa verið sú
fyrsta í röð sýninga sem allar
tengjast Hamlet-minninu á einn
eða annan hátt.
Þótt bókmenntaminnið um am-
lóðann liggi sýningunni til grund-
vallar spinna Bandamenn efnis-
þræði fijálslega saman og bæta inn
skírskotunum til samtímans og vís-
unum í ýmsar áttir, í bókmenntir
og þjóðmál þar sem við á. Leikstíll
þeirra er einnig fijálslegur og er
tónlist, hreyfilist og dans virkur
þáttur sýningarinnar.
í stuttu máli sagt er Amlóða
saga þessi hin mesta skemmtun.
Kemur þar til bráðskemmtileg efn-
isflétta, fagleg útfærsla á öllum
þáttum sýningarinnar og sú mikla
leikgleði sem einkennir hópinn. All-
ir leikararnir leika af innlifun og
sumir hafa sjaldan sýnt betri leik
(t.d. Felix Bergsson). Greinilegt er
að Sveinn Einarsson stýrir banda-
mönnum sínum styrkri hendi og
kemur það kannski fáum á óvart.
Með hlutverk Amlóða fer Jakob
Þór Einarsson og gerir hann það
vel. (Hirð)fífl leikur Stefán Sturla
Siguijónsson og áttu þeir Jakob
góða spretti saman í fíflalátum og
sprelli. Borgar Garðarsson leikur
Horvendil kóng af kómísku öryggi
og var samleikur þeirra Þórunnar
Magneu Magnúsdóttir, sem leikur
ekkjudrottninguna Ömbu, ágætur.
Ragnheiður Elfa Arnardóttir var
áhrifamikil seiðkona (í vel hönnuðu
gervi) og sýndi að henni er fleira
til lista lagt en leiktjáning og spil-
aði á flautu. Felix Bergsson lék
ráðamanninn Gamalíel og sýndi
hann með frábærum leik að hann
á skilið að fá bitastæðari hlutverk
en þau sem honum hafa verið út-
hlutuð undanfarna vetur.
Umgjörð sýningarinnar er einföld
en hnitmiðuð. Leikmunir eru fáir
en skemmtilega nýttir. Hvað varðar
umgjörð er einna mest lagt upp úr
búningum sem eru vandaðir og
skemmtilega útfærðir hjá Elínu
Eddu Árnadóttur. Tónlist Guðna
Franzsonar á stóran þátt í heildar-
svip sýningarinnar og er svo samof-
in leikfléttunni að hún verður ekki
skilin þar frá. Guðni, sem er þekkt-
ur tónlistarmaður, bregður sér hér
einnig á svið sem fullgildur leikari
(ekki í fyrsta sinn) og stendur sig
með prýði.
Bandamenn bjóða upp á fyrsta
flokks leikhússkemmtun, sýningu
sem er ólík öllu öðru sem íslenskt
leikhús hefur á boðstólunum í dag.
Áhugamenn um leiklist ættu ekki
að missa af þessari sýningu.
Soffía Auður Birgisdóttir
NÝSTOFNUÐ kammersveit íslend-
ingafélagsiins í Kaupmannahöfn hélt
fyrstu tónleika sína í Jónshúsi
sunnudaginn 3. mars. Kammersveit-
ina skipa þau Ingibjörg Guðjónsdótt-
ir söngkona, Helga Steinunn Torfa-
dóttir fiðluleikari, Ólafur Flosason
óbóleikari, Örnólfur Kristjánsson
sellóleikari og Valgerður Ándrés-
dóttir píanóleikari. Efnisskráin er
íjölbreytt og flutt voru verk eftir
íslenska og erlenda höfunda.
Fyrstu tónleikar sveitarinnar
Kammer-
tónleikar
í Jónshúsi
þóttu lofa góðu og tóku tónleikagest-
ir listamönnunum vel. Á efnis-
skránni voru bæði einleiks- og
kammerverk, meðal annars ensk
þjóðlög í útsetningu Beethovens fyr-
ir rödd og píanótríó og þýskar aríur
eftir Hándel fyrir sópran, óbó, selló
og píanó
Þess má geta að Ingibjörg Guð-
jónsdóttir sópran mun syngja með.
Sinfóníuhljómsveitinni í Óðinsvéum
í lok þessa mánaðar sópransólóið í
„Stabat Mater“ eftir tékkneska tón-
skáldið Anton Dvorák.
Starfsemin í Jónshúsi hefur verið
með blómlegasta móti undanfarið.
Falleg oggagnleg fermingargjöf
Ensk-íslensk orðabók
34.000 ensk uppflettíorð
íslensk-ensk orðabók
35.000 íslensk uppflettíorð
2.200 blaðsíður
Saman í fallegri gjafaöskju
á aðeins kr. 4.600,-
Gagnleg og glæsileg fermingargjöf,
sem nýtíst vel í nútíð og framtíð
Fæst hjá öllum bóksölum
Oröabókaútgáfan
Stefánsstyrkur
Auglýst er eftir umsóknum um Stefánsstyrk, sem Menningar-
og fræöslusamband alþýðu og Félag bókagerðarmanna veita
til minningar um Stefán Ögmundsson prentara og fyrsta
formann MFA.
Tilgangur styrkveitingarinnar er að veita einstaklingi,
einstaklingum, félagi eða samtökum stuðning vegna
viðfangsefnis, sem lýtur að fræðslustarfi launafólks, menntun
og menningarstarfi verkalýðshreyfingarinnar.
Heimilt er að skipta styrknum milli fleiri aðila.
Styrkurinn er nú 230.000 krónur.
Áformað er að veita hann 1. maí næstkomandi.
Umsókn þarf að skila á þar til gerðu umsóknarblaði á
skrifstofu MFA, Grensásvegi 16a, ekki síðar en klukkan 12.00,
mánudaginn 15. apríl. Umsókninni fylgi skrifleg greinargerð
um viðgangsefnið, stöðu þess og áætlaðan framgang.
Nánari upplýsingar veita Ásmundur Hilmarsson í síma
533-1818 og Svanur Jóhannesson í síma 552-8755.
Félag bókagerðarmanna.
Menningar- og fræðslusamband alþýðu.
■'//////
Máttur Faxafeni 14 • Sími 568 9915* Máttur kvenna Skipholti 50a Sími 588 9297
kjarni malsins!
blabib
- kjarni máhins!
Máttur tryggir þeim, sem eru í þjálfunarástandi
undir meðallagi, 20% aukningu á þoli og krafti,
að öðrum kosti fá þeir kortið endurgreitt.
í áskorun okkar er innifalið:
• Sex vikna æfingakort, þrisvar í viku, eftir þinni
getu í tækjum og leikfimi.
• Nákvæmar mælingar fyrir og eftir námskeið
• Persónulegt aðhald.
Hafir þú ekki náð 20% meira þoli og krafti á
sex vikum færðu alla tímana endurgreidda.
Ef þú vinnur færðu endurgreitt
ef við vinnum þá er gróðinn þinn!
Hringdu í 568 9815
-og þú erl í góðum málum...
Ekki hugsa um að tapa! |
| Hugs^ðu um að vinna!
Við aukum þol þitt
og kraft um fimmtung
- annars færðu endurgreitt