Morgunblaðið - 19.03.1996, Síða 45

Morgunblaðið - 19.03.1996, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1996 45 BRÉF TIL BLAÐSIIMS Palli var einn í heiminum Fré Karli Þ. Löve: HÉR áður fyrr þegar amerískar bíómyndir úr seinni heimsstytjöld- inni voru sem vinsælastar sá maður stundum atriði sem áttu að gerast í Kyrrahafsstyrjöldinni. Þau sýndu japanska hermenn sem voru um- kringdir og áttu við algjört ofurefli að etja. í stað þess að gefast upp og halda lífi óðu þeir fram með ógurlegu stríðsöskri og börðust til síðasta manns. Þessar aðfarir þeirra voru kallaðar sjálfsmorðsárásir og komu vestrænum „siðmenntuðum“ þjóðum alveg í opna skjöldu vegna þeirrar sóunar á mannslífum sem þær kostuðu. Ástæðan fyrir þessu, eins og allir vita í dag, lá djúpt í menningu þeirra og uppeldi þannig að það var ekki beint við blessaða mennina að sakast þótt þeir höguðu sér á þennan hátt. Hjólreiðar að vetrarlagi finnast mér ekki svo ólíkar þessum hugsun- arhætti þar sem vaðið er áfram í algjöru ofstæki og tillitsleysi fyrir umhverfinu og samferðamönnum sínum. Það er bara ekki hægt að skilja hvernig þetta vesalings lokaða fólk getur með einhveijum rökum ætlast til að ökumenn geti hliðrað til fyrir þeim í umferðinni. Hvernig á að vera hægt í snjóruðningum, hálku, skammdegi, skafrenningi, lélegu skyggni og 'yfir höfuð öllum þeim tegundum af vetraveðrum sem hér geisa að koma ykkur fyrir á nú þegar kjaftfullum götum? Það er reglan frekar en undan- tekningin að þið sjáist mjög illa í áðurnefndum veðrum, ekki bara vegna veðurs heldur líka þeirrar sorglegu staðreyndar að þið eruð yfirleitt mjög illa upplýst og merkt. Hvaða hugsanir bærast með ykkur þegar þið berjist í roki, snjókomu og myrkri eða bara í hálku utan i snjóruðningnum og verðið að hafa ykkur öll við til að halda jafnvægi? Dettur ykkur einhverntímann í hug að þið gætuð hugsanlega ver- ið að leggja ykkur í lífshættu og að þið gætuð skilið eftir ykkur í þessu lífi einhveija vesalings manneskju sem þyrfti að lifa með það á sálinni það sem hún ætti eftir ólifað að hafa orðið ykkur að bana? Enginn óvitlaus ökumaður veður út í ófærð og blindu á ljós- lausum bíl eða á sléttum sumar- dekkjum (þó alltaf séu til undan- tekningar) nema hann sé í sjálfs- morðshugleiðingum, fullur, undir áhrifum lyfja eða að öðru leyti ekki í neinu ástandi til að aka. Það hlýtur að vera eðlileg sann- girniskrafa að ætlast til þess af hjólreiðamönnum að þeir hafi til að bera þá lágmarksgreind sem geri þeim kleift að átta sig á þeirri fárán- legu stöðu sem þeir eru í þegar þeir ákveða að fara út í umferðina án þess að taka tillit til veðurs og færðar. Eigendur ökutækja eru þeir sem mætti kalla rétthafa veganna vegna allra þeirra skatta og gjalda sem ■þeir þurfa að standa skil á og er því ekki óeðlilegt að þeir skuli leyfa sér að ergja sig þegar aðilar sem lausir eru við slíkt vaða um vegina með frekju og tilætlunarsemi. Eitt atriði vil ég nefna og það er ljósaskortur hjólreiðamanna, það er til reglugerð fyrir ökutæki sem segir nákvæmlega til um hvaða lág- mark skuli vera á styrkleika ljós- anna sem ökutæki hafa og væri gaman að vita hvort einhver álíka væri til fyrir hjólreiðamenn því það er allt að því glæpsamlegt hvað hjólreiðamenn leyfa sér að vera ósýnilegir í umferðinni. Við ökumenn erum bara mann- legir og þið getið ekki ætlast til þess að við getum brugðist rétt við og tímanlega í öllum tilvikum. Það er alltaf farsælast ef allir í umferð- inni gera sitt besta til að hún gangi sem áfallalausast fyrir sig, en það að skjögra um í öllum veðrum og öllu skyggni rétt við hliðina á bíl- um sem eru að reyna að halda eðlilegum huaða getur ekki kallast neitt annað en tillitsleysi og eigin- girni. Ég skrifa þetta í þeirri veiku von um að einhver í þessum sértrúar- söfnuði láti sér segjast og að á næstu samkomu í söfnuðinum verði einhver til þess að rísa á fætur og bera það undir atkvæði hvort ekki beri að leggja reiðhjólunum yfir veturinn. Það er ekki gaman að þurfa að standa í svona skrifum um hluti sem ættu að vera öllum augljósir en það virðist vera eitt- hvað í sálarlífi ákveðins hóps fólks sem gerir hann óhæfan um að umgangast aðra án þess að árekstr- ar verði. Ég vil ítreka það að hjól- reiðamenn hafa ekki nokkurn skap- aðan hlut að gera út á vegi að vetrarlagi og að mínu áliti tæplega að sumri til. Að lokum óska ég öll- um velfarnaðar í umferðinni og við skulum muna að það erum við og engin nema við sem sköpum okkur það umhverfi sem við lifum eða deyjum við. KARLÞ.LÖVE, Sigluvogi 7, Reykjavík. Panasonic Ferðatæki RX DS15 Ferðatæki með geislaspilara, 40W magnara, kassettutæki, og útvarpi. BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI GLÆSILEGAR GJAFAVÖRUR KR. 4.750 MÖRKINNI 3 • SlMI 588 0640 Hvað er orðið af söngvakeppniimi? Frá Einari Braga Bragasyni, Seyðisfirði: FYRIR nokkrum árum var söngva- keppnin það sjónvarpsefni sem fæst- ir vildu missa af, þá er ég ekki ein- -göngu að meina aðalkeppnina heldur frekar undankeppnina hér heima sem var hin besta skemmtun. Síð- astliðin ár hefur sú keppni horfið smám saman og er nú orðin að engu, sumir eru sjálfsagt fegnir þessari þróun en svo er undirritaður ekki. Ef við horfum nokkur ár aftur í tímann var öll landsbyggðin með, allsstaðar voru menn og konur að semja íslensk dægurlög með íslensk- um texta, höfðu menn oft mikið fyr- ir því að gera lögin sem best og notuðu því oft atvinnuhljóðfæraleik- ara sem hjálpuðu til með útsetning- ar, mörg þessara laga hafa lifað vel og lengi (oft lengur en sjálft vinning- slagið); þess má geta að það lag sem lengst hefur komist, kom frá lands- byggðinni. Eins var mikið lagt til keppninnar í Ríkissjónvarpinu og voru það bestu hljóðfæraleikarar landsins sem fengnir voru til þess að flytja lögin þar og öll umgjörð keppninnar hin glæsilegasta. Af þessu má sjá að margir höfðu atvinnu út úr þessari keppni. Hljóð- færaleikarar, söngvarar, hljóðmenn, stúdíó o.fl. um allt land. Er þetta er skrifað er greinilega engu eytt í íslenska dægurtónlist í sjónvarpi og er leiðinlegt að sjá hvernig tónlistarstefnum er mismun- að af hinum opinbera, og ekki veitir greinilega af að styrkja íslenska popptónlist á íslensku. EINAR BRAGI BRAGASON, Seyðisfirði. 248 VINNINGAR Auk þess eru dregnar út þrjár utanlandsferðir fyrir tvo á hverjum miðvikudegi í mars, Aðeins dregið úr greiddum miðum. Fylgstu með í Sjónvarpinu! Þú vinnur hvernig sem á það er litið! Vinningar að verdmæti yfir 35 milljónir drögum sinnum alla miðvikudaga í mars. Því fyrr sem greitt er þess meiri möguleikar. ’s Happdrætti ; Slysavarnarfélags Íslands Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Seykjanesbraut. Kopavogi, simi 567-1800 ^ Löggild bílasala Verið velkomin. Við vinnum fyrir þig. MMC Lancer GLi Sedan '93, rauður, 5 g., ek. 56 þ.km. Gott eintak. V. 920 þús. Grand Cherokee Limited V-8 '94, ek. 15 þ. km., grænsans., einn með öllu, gullfall- egur bíll. V. 3.950 þús. Pontiac Trans Sport SE '92, rauður, sjálfsk., ek. 73 þ. km. Fallegur bíll. V. 1.980 þús. Mazda 323 F 1600 '92, sjálfsk., ek. 54 þ., álfengur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.080 þús. Tilboðsverð #kr. 990 þús. m t — "i"|i.i.lll||IMl||« 1 Mazda 121 1.3 16 ventla '92, 5 dyra, 5 g., ek. 50 þ. V. 750 þús.Tilboðsverð 650 þús. Plymonth Voyager SE '95, 7 manna, blár, sjálfsk. (6 cyl.), ek. 18 þ.km. Rafm. í rúðum o.fl. Sem nýr. V. 2.850 þús. V.W Golf CL 1600 '90, 3 dyra, rauður, 5 g., ek. 128 þ. Ný tímareim o.fl. Gott ein- tak. V. 580 þús. Audi 100 c '86, 4 g., ek. 180 þ. Góður bíll. V. 450 þús. Nissan Patrol diesel turbo Hi Roof (lang- ur) '86, 5 g., ek. 220 þ.km. 36“ dekk, spil o.fl. Mikið endurnýjaður. V. 1.550 þús. M. Benz 280 SEL '82, sjálfsk., ek. 177 þ.km. rafm. í öllu, 2 dekkjagangar. Óvenju gott eintak. V. 1.250 þús. Hyundai Accent GS Sedan '95, ek. aðeins 4 þ.km. V. 960 þús. Nissan Patrol Turbo diesel langur '92, 5 g., ek. 156 þ.km., rafm. i rúðum, læst drif, áfelgur o.fl. V. 2.550 þús. Dodge Grand Caravan LE 4x4, 7 manna, '91, 4 captain stólar og bekkur, ABS bremsur og loftpúði í stýri, rafm. í öllu, samlæsingar, ek. 96 þ.km. V. 1.980 þús. Honda Accord EX '91, rauður, sjálfsk., ek. 102 þ. km., sóllúga, rafm. i öllu, álfelg- ur o.fl. V. 1.090 þús. Cherokee Laredo 4.0L '92, ek. 46 þ. km., grænn, rafm. í ruðum, samlæsingar, flöskugrænn o.fl. V. 2.190 þús. MMC Pajero langur V-6 '92, grænn, sjálfsk., ABS, saml., stuðarar o.fl. V. 2,7 millj. V.W. Jetta GL '91, 5 g., 1800 vél, ek. 120 þ. km., spoiler o.fl. V. 690 þús. V.W. Golf 1.4 cl station '94, blár, 5 g., ek. 32 þ. km., rafm. í rúðum, dráttarkúla o.fl. V. 1.150 þús. Toyota Hi Lux Extra Cap '91, ek. 80 þ. km., plasthús, flækjur, 38“ dekk, álfelgur, 5:71 drifhlutföll. No-Spin að aftan, geisl- asp. o.fl. V. 1.580 þús. Toyota Landcruiser GX diesel Turbo '93, 5 dyra, sjálfsk., ek. 77 þ. km., 33“ dekk, brettakantar, álfelgur o.fl. V. 3,9 millj. Sk. ód. Honda Accord Si ’95, grænsans., sjálfsk., ek. 29 þ. km., sóllúga, ABS, spoiler, þjófa- vörn, rafm. í öllu. V. 2.060 þús. Toyota Hi-Lux Extra Cab '87, ek. 114 þ. km., 31 * dekk. Fallegur bíll. V. 680 þús. Subaru Legacy 1.8 Station 4x4 '90, sjálfsk., ek. 98 þ. km., rafm. í rúðum, grjótagrind o.fl. V. 1.080 þús. Sk. ód. Mercedes Benz 190 '88, blár, 4 g., ek. 134 þ. km..V. 1.080 þús. Nissan Terrano V-6 '95, 4ra dyra, sjálfsk., ek. aðeins 12 þ. km., sóllúga, rafm. í öllu. Sem nýr. V. 3,3 millj. Renault Clio TR 1.4 5 dyra '94, 5 g., ek. aðeins 11 þ. km., rafm. i rúðum o.fl. V. 990 þús. Bílar á tilboðsverði: Mazda 323 GLX 3ja dyra '86, hvít- ur, 5 g., ek. 100 þ. km. á vél, spoil- er o.fl. V. 330 þús. Tilboðsv. 230 þús. Dodge Aries '87, 2ja dyra, sjálfsk., ek. 95 þ. km., brúnsans. V. 390 þús. Tilboðsv. 270 þús. M. Benz 250 '82, blár. V. 390 þús. Tilboðsv. 250 þús. MMC Pajero stuttur '83, 32“ dekk, upph. Fallegur og góður bíll. V. 440 þús. Tilboðsv. 360 þús. Nissan Micra '88, 5 g., ek. 122 þ. km. (langkeyrsla). V. 280 þús. Til- boðsv. 190 þús. Lada Samara 1500 '90, 5 g., ek. 80 þ. km. V. 220 þús. Tilboðsv. 150 þús.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.