Morgunblaðið - 19.03.1996, Page 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
t « / . ,".i
HÁSKOLABÍÓ
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
ÓPUS HERRA HOLLANDS
CHARD DREYFUSS
s Richard Dreifuss slær
3, - .aldrei feilnótu í sterkri og
. ; • t . 1 (ffllilæbrigðarikari túlkun,
P ekki óliklegt aö hann
K. & uppskeri Óskarsverölaunin
*}§&%)**<*%* S.V. Mbl.
M R
Einstaka sinnum koma myndir sem almenningur
hreinlega gerir að sinni eign. Ópus herra Hollands er
einstök mynd sem hefur sannarlega slegið í gegn
vestanhafs og Richard Dreyfuss er tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir magnaðan leik sinn.
Sýnd kl. 5, 6.45 og 9.
FRUMSYNING: DAUÐAMAÐUR NALGAST
FNINGAR
sta leikkonan
SUSAN SARANDON
BRUCE SPRINGSTEEN
lASfÍ* Helgarpósturinn
Iíá3iiíi
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15. B.i. 16.
> Sharon Joe
i STONE PESCI
Robert
DENIH
■’* 2 lVr'r
Sýnd kl. 5 og 9. B.i. 16 ára.
Stund
milli
stríða
FLESTIR skyldu ætla að fyrir-
sætur þyrftu að láta daga eins
og bolludaginn fram hjá sér fara.
Línurnar þurfa jú að vera í lagi
og hver hitaeining sem fer upp
í munn og ofan í maga að vera
þaulhugsuð. Það aftraði þó ekki
nokkrum af íslensku fyrirsætun-
um í Mílanó, því enda þótt bollu-
dagurinn sé ekki til á ítalska
dagatalinu leitaði hugurinn heim
til marglitra bolluvandanna og
minningar um gómsætar bollurn-
ar komu í veg fyrir frekari
vangaveltur um hitaeiningar.
Einhver átti uppskrift að bollum,
farið var í verslunarleiðangur og
að því Ioknu ráðist í bakstur og
bollur bakaðar að íslenskum sið.
Fyrirsæturnar, sem eru flestar
á aldrinum sextán til tuttugu og
tveggja ára, komu saman heima
hjá nokkrum stelpnanna og var
mikið um glens og gaman. Þetta
eru allt hörkuduglegir krakkar
sem lagt hafa land undir fót og
freistað gæfunnar í hinum harða
heimi tískunnar. Allir eru þeir
með fast áðsetur í Mílanó, sem
þýðir að mest af vinnu þeirra fer
fram þar enda þótt þeir fari tíma-
hljómtækjasamstæða MHC 801
Glæsileg samstæða með
geislaspilara, kassettutæki,
160W. surround magnara,
Karaoke, tónjafnara, útvarpi,
hátölurum og fjarstýringu.
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
Ljósmynd/Haraldur Hannes
FYRIRSÆTUR í formi, f.v. Áslaug, Guðrún, Geir og Kata.
bundið til módelstarfa annar-
staðar, t.d. til Grikklands, Spánar
eða Japans. Þeim hefur flestum
gengið fremur vel og á milli þess
sem þau gæddu sér á bollunum
var ýmislegt spjallað.
Kom meðal annars fram að
þau starfa ekki endilega öll innan
sama geirans. Flest þeirra vinna
þó mest við ýmiskonar auglýsing-
ar bæði fyrir sjónvarp og tíma-
rit, og var mikið hlegið þegar
þau fóru að metast um hver hefði
unnið fyrir frægustu hönnuðina
eða verið í flestum sjónvarpsaug-
lýsingum. Svo eru alltaf einhver
módel sem vinna við að auglýsa
ákveðin merki og gera þá jafnvel
víðreist í söluherferðum með við-
komandi. Þá er eftir að nefna
tískusýningar, vörulista og svo
mætti lengi telja, en allt ræðst
þetta af útliti viðkomandi fyrir-
sætu og því hvað „look“ er í tísku
á hveijum tíma.
Á þessu sést best að starf fyrir-
sætunnar getur verið fjölbreytt
og margslungið en framundan
eru spennandi og annasamur
tími í tískuheiminum öllum og
eiga íslensku fyrirsæturnar
eflaust eftir að koma þar víða
við.
Þegar Guðlaug L. Arnar,
fréttaritari Morgunblaðsins og
ljósmyndari, kvöddu þennan
glaðlega hóp sem að þessu sinni
sýndi á sér hina hliðina voru þau
enn að háma í sig bolludagsboll-
ur, fylltar sultu og ijóma með
velþöktum súkkulaðitopp og var
ekki að sjá að þau hefðu hinar
minnstu áhyggjur af hitaeining-
um. Sannkölluð stund milli
stríða.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
Sambíóin for-
sýna myndina
„Copycat“
BÍÓHÖLLIN forsýnir kvikmyndina
„Copyeat" í kvöld, þriðudaginn 19.
mars. Það eru leikkonurnar Sigo-
umey Weaver og Holly Hunter sam
fara með aðahlutverkin.
Fjöldamorðingi gengur laus í San
Francisco og vekur það athygli
Helen Hudson (Weaver), sem er
afbrotasálfræðingur og hefur sér-
hæft sig í málefnum fjöldamorð-
ingja. Hún er nær dauða en lífi
þegar kolklikkaður og stórhættu-
legur maður reynir að drepa hana.
Eftir þetta einangrar hún sig í íbúð
sinni, hrædd við að verða á vegi
glæpamannsins aftur, og einu sam-
skiptin við umheiminn eru tölvan
og aðstoðarmaðurinn hennar.
Rannsóknarlögreglan Monahan
(Hunter), framúrskarandi í sinni
grein, veit að eina leiðin til að ná
morðingjanum er samstarf við He-
len Hudson. Án árangurs reynir
lögreglan að fá afbrotasálfræðing-
inn til samstarfs. En morðunum
fjölgar og brátt kemst Helen að
aðferðum fjöldamorðingjans sem
greinilega notfærir sér útsjónar-
semi þekktra fjöldamorðingja. Nú
hefst leikur kattarins að músinni
þar sem margt kemur á óvart.
Leikstjóri er Jon Amiel.
Fólk
RobLowe
sest í ieik-
stjórastólinn
LEIKARINN Rob Lowe mun
á næstunni leikstýra sinni
fyrstu mynd sem hann skrif-
aði einnig handritið að.
Myndin kallast „American
Untitled" og mun hugmyndin
hafa kviknað út máli fyrir-
sætunnar Lindu Sobeck sem
var myrt af ljósmyndara og
eins fjölmiðlafárinu í kringum
réttarhöld O.J. Simpsons.
Lowe segir sig lengi hafa
langað til að leikstýra og nú
loksins sé hann kominn með
efnivið sem hann geti unnið
vel úr. Myndin fjallar um þrá-
hyggju ástarinnar á kaldhæð-
inn hátt.