Morgunblaðið - 22.03.1996, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Undirbúningur fyrir Arctic-Open
golfmótið í fullum gangi
Margar fyrir-
spurnir borist
aðutan
UNDIRBÚNINGUR fyrir Arctic-
Open miðnæturgolfmótið stendur
nú yfir af fullum krafti hjá Golf-
klúbbi Akureyrar. Mótið fer fram
á Jaðarsvellinum dagana 26.-29.
júni og er það heldur seinna en
undanfarin ár. Mótið hefur jafnan
farið fram á Jónsmessunni, sem
er 24. júní. Ásgrímur Hilmisson,
formaður GA, segir að menn hafi
verið frekar óheppnir með veður
síðustu ár og því hafi verið ákveð-
ið að fresta mótinu aðeins og
freista þess að fá betra veður yfir
mótsdagana.
Enn hafa engar erlendar þátt-
tökutilkynningar verið staðfestar
en mikið um þreifingar og Ásgrím-
ur gerir ráð fyrir að mótið verði
vel sótt af erlendum kylfingum.
Til að mynda er 50 manna hópur
þýskra kylfinga að kanna mögu-
leika á þátttöku. Fjöldi þátttak-
enda í mótinu hefur farið upp í
150 manns og þar af um 40-50
erlendir kylfingar og væntir Ás-
grímur þess að þátttakan verði enn
meiri í ár.
Frægur bandarískur kylfingur
sýnt áhuga
Bandaríski kylfingurinn Johnny
Miller hefur sýnt áhuga á að
mæta til leiks. Hann var um tíma
einn allra besti kylfingur heims
og hefur m.a. unnið sigur á tveim-
ur stærstu atvinnumannamótun-
um, US-Open árið 1973 og Brit-
ish-open árið 1976. Þegar Miller
vann sigur á US-Open lék hann
síðasta hringinn á 63 höggum,
sem er lægsta skor kylfings á loka-
degi stórmóts til þessa.
David Barnwell, golfkennari hjá
GA, segir að Miller hafi verið í
stuttan tíma á toppnum, eða í 4-5
ár 1973-77 en síðan hafi farið
að halla undan fæti hjá honum.
Þó eru ekki nema um tvö ár síðan
hann vann stórmót í Bandaríkjun-
um. Miller er orðinn fimmtugur
og er því með keppnisrétt í öldun-
gaflokki en auk þess lýsir hann
golfmótum fyrir NBC-sjónvarps-
stöðina í Bandaríkjunum.
Aðalstyrktaraðili Arctic-open er
bandaríska fyrirtækið Sun Mount-
ain 'Sports í Montana, sem fram-
leiðir íþróttafatnað. Ásgrímur seg-
ir að bandaríska fyrirtækið hafi
áhuga á enn frekara samstarfi við
GA og verði þau mál rædd frekar
í kringúm mótið. Auk þess sem
bandaríska fyrirtækið styrkir mót-
ið hefur hópur kylfinga komið á
þess vegum til þátttöku í mótinu.
Einnig hafa íslenskir aðilar styrkt
GA við framkvæmd mótsins.
NYJIING A ISLANDI
OSTRIN GTZ PLUS
1' gegnum aldirnar hafa ostrur
verið taldar lostæti. Ostran
býr yfir einstæðum eiginleikum
sem bætiefni og fjöldi íþrótta-
manna um allan heim taka
Ostrin reglulega. Ostrin er
einnig vinsælt meðal fólks sem
vantar orku í dagsins önn,
enda inniheldur það sérvalda
blöndu af bætiefnum..
HeiSsj
hornn
inniheidur:
Ostrin plus Zink <
GTZ6ÍI Ginseng
Tauríne Niacin
Skipagötu 6, 600 Akureyri.
Sími/fax: 462 1889.
Söluaðiiar:
Heilsuhúisið í Kringlunni.
Kornmarkaðurinn, Laugavegi 27.
Hollt og gott, Skagaströnd.
Morgunblaðið/Kristján
STÖLLURNAR Fjóla Stefánsdóttir og Anna Freyja Eðvarðsdóttir voru mættar í golf á Jaðarsvöllinn
í gærdag þar sem þær tóku léttan hring.
Polaris á Akureyri hefur
flutt inn vélsleða í 20 ár
UM ÞESSAR mundir eru 20 ár frá
því að fyrsti vélsleðinn af Polaris
gerð var fluttur til landsins af Pol-
arisumboðinu á Akureyri. Áhugi
fyrir vélsleðum hefur aukist jafnt
og þétt á þessu tímabili og hefur
umboðið selt eitthvað á íjórða þús-
und sleða á síðustu 20 árum. Polar-
is er eitt þekktasta merkið i vélsleð-
um og hérlendis hafa slíkir vélsleð-
ar verið í fremstu röð í ýmiss kon-
ar keppni.
Árið 1986 hóf umboðið innflutn-
ing á Polaris ljórhjólum og segir
Eyþór Tómasson hjá Polarisumboð-
inu að næstu tvö ár þar á eftir
hafi verið mikil sala í slíkum hjól-
um. Hins vegar hafi salan dottið
niður eftir að tollar voru hækkaðir
úr 10 í 90%. Umboðið hefur einnig
flutt inn svokölluð sexhjól með
sturtupalli og hafa bæði bændur
og smáverktakar sýnt þeim hjólum
mikinn áhuga. Til viðbótar selur
umboðið ýmiss konar aukahluti,
hlífðarfatnað og ýmislegt fleira
tengt vélsleðaíþróttinni.