Morgunblaðið - 22.03.1996, Síða 52
52 FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
#
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
sími 551 1200
Stóra sviðið
Kl. 20.00:
• ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Simonarson.
í kvöld uppselt - fös. 29/3 uppselt, 50. sýning - lau. 30/3 uppselt - fim. 11/4 - lau.
13/4 - fim. 18/4 - fös. 19/4 uppselt.
Kl. 20.00:
• TRÖLLAKIRKJA eftir Ólaf Gunnarsson í leikgerð Þórunnar Sigurðardóttur.
6. sýn. á morgun uppselt - 7. sýn. fim. 28/3 uppselt - 8. sýn. sun. 31/3 kl. 20 - 9.
sýn. fós. 12/4 - 10. sýn. sun. 14/4.
• KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjörn Egner.
Á morgun kl. 14 örfá sæti laus - sun. 24/3 kl. 14 uppselt - sun. 24/3 kl. 17 örfá
sæti laus - lau. 30/3 kl. 14 uppselt - sun. 31/3 kl. 14 uppselt, 50. sýning lau. 13/4 kl.
14 - sun. 14/4 kl. 14.
Utla sviðið kl. 20:30
• KIRKJUGA RÐSKLÚBBURINN eftir Ivan Menchell
Á morgun uppselt - sun. 24/3 laus sæti - fim. 28/3 uppselt - sun. 31/3 uppselt.
Smíðaverkstæðið kt. 20.
• LEIGJANDINN eftir Simon Burke
Á morgun - fim. 28/3 næstsíðasta sýning - sun. 31/3 síðasta sýning. Sýningin er
ekki við hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst.
Gjafakort í leikhús - sígild og skemmtileg gjöf
Midasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13 til 18 og fram að sýningu
sýningardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10 virka daga.
Sími miðasölu 551 1200 - Sími skrifstofu 551 1204.
BORGARLEIKHUSIÐ
sími 568 8000
LEIKFELAG REYKJAVIKUR
Stóra svið kl 20:
0 HIÐ LJÓSA MAN eftir íslandsklukku Halldórs Laxness í leikgerð og
leikstjórn Bríetar Héðinsdóttur.
5. sýn. sun. 24/3 gul kort gilda, örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 28/3, græn kort gilda,
fáein sæti laus, 7. sýn. lau. 30/3, hvít kort gilda uppselt.
0 ÍSLENSKA MAFÍAN eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson
Sýn. lau. 23/3, fös. 29/3. Sýningum fer fækkandi.
• VIÐ BORGUM EKKI, VIÐ BORGUM EKKI eftir Dario Fo á Stóra
sviði kl. 20:
Sýn. í kvöld fáein sæti laus, sun. 31/3, lau. 13/4. Þú kaupir einn miða, færð tvo!
• LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren á Stóra sviði kl. 14:
Sýn. sun. 24/3, sun. 31/3, sun. 14/4.
Litla svið kl. 20
SAMSTARFSVERKEFNI VIÐ LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR:
Leikhópurinn Bandamenn sýnir á Litla sviði kl. 20.30:
0 AMLÓÐA SAGA eftir Svein Einarsson og leikhópinn.
Sýn. lau. 23/3 kl. 17, sun. 24/3 kl. 17, þri. 26/3 kl. 20.30, fim. 28/3 kl. 20.30.
Alheimsleikhúsið sýnir á Litla sviði kl. 20:
0 KONUR SKELFA, toilet-drama eftir Hlín Agnarsdóttur.
Sýn. í kvöld uppselt, lau. 23/3 uppselt, sun. 24/3 uppselt, mið. 27/3 uppselt, fös.
29/3 uppselt, lau. 30/3 uppselt, sun. 31/3, fös. 12/4, lau. 13/4 fáein sæti laus.
Barflugurnar sýna á Leynibarnum kl. 20.30:
0 BAR PAR eftir Jim Cartwright.
Sýn. í kvöld kl. 20.30 uppselt, lau. 23/3 kl. 23 örfá sæti laus, fös. 29/3 kl. 23, örfá
sæti laus, sun. 31/3 kl. kl. 20.30 fáein sæti laus, fös. 12/4 uppselt, lau. 13/4.
0 TÓNLEIKARÖÐ L.R. á stóra sviði kl. 20.30.
Þriðjudaginn 26. mars: Gradualekór Langholtskirkju, Kór Öldutúnsskóla og Skóla-
kór Kársness. Miðaverð kr. 1.000.
Fyrir börnin: Línu-bolir og Línu-púsluspil
Miðasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga, nema mánudaga frá kl. 13-17. Auk þess
er tekið á móti miðapöntunum í síma 568-8000 alla virka daga frá kl. 10-12.
Faxnúmer er 568-0383.
Gjafakortin okkar — frábær tækifærisgjöf!
MOGULEIKHUSIÐ sími 562 5060
• EKKI SVONA! eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson
Pétur Eggerz.
Þriðjud. 26/3 kl. 17.00, örfá sæti laus, kl. 20.30, uppselt.
• ÆVINTÝRABÓKIIM, barnaleikrit eftir Pétur Eggerz.
Laugard. 23/3 kl. 14, uppselt - laugard. 30/3 kl. 14, örfá sæti laus.
FURÐULEIKHÚSIÐ SÝNIR:
• BÉTVEIR eftir Sigrúnu Eldjárn.
Sunnud. 24/3 kl. 15, aðeins þessi eina sýning.
°9
ballettkvöld í Islcnsku óperunni
Tilbrigði • Danshöfundur: David Greenall • Tónlist: William Boyce
Af mönnum • Danshöfundur: Hlíf Svavarsdóttir • Tónllst: Þorkell Sigurbjörnsson
(Hjartsláttur • Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir • Tónlist: Dead can dance
Sýning í kvöld kl. 20.:00
Miðasala í íslensku óperunni, s. 551-1475
lslenslgansfi0kkurinn
&
í Sýnt í Tjarnarbíói
Frumsýn. sunnud. 24. mars
kl. 20:30. 2. sýn. 30. mars kl. 20:30.
Miðasala opin frá kl. 17 sýningard.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 561 0280.
Kjallara
leikhúsið
kn,,l"JsKrar
cl'lir Fdwunl \ll»«•«■
Þýðandi: Hallgrimur Helgi Helgason
Lelkstjóri: Helgi Skúlason
Leikarar: Helga Bachmann,
Edda Pórarinsdóttir, Halla Margrét
Jóhannesdóttir
Leikmynd og búningar: Elin Edda
Árnadóttir
Lýsing: Björn B. Guðmundsson
Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík sýnir
OEUBOMA
Frægasta kúrekasöngleik í heimi
Síðasta sýning í fslensku óperunni laugardaginn 23. mars kl. 20
Miðapantanlr og -sala I íslensku óperunnl, sfmi 551-1475 - Miðaverð kr. 900
FÓLK í FRÉTTUM
COLDCUT félagar.
BRESK daostónlist nýtur mikillar
og vaxandi hylli hér á landi, en hér
er einmitt staddur hópur breskra
tónlistarmanna og tekur þátt í hátíð-
inni Mallað og brallað sem haldin
verður í Tunglinu í kvöld og annað
kvöld. Undanfarna tvo daga hafa
listamennirnir leikið á menntaskóla-
dansleikjum Verziunarskólans og
Menntaskólans í Reykjavík, en í
kvöld verður svokallað Háskólaball,
en annað kvöld venjulegt dansiball
öllum opið. í hópnum eru tónlistar-
menn sem tengjast Ninja Tunes út-
gáfunni bresku, þar á meðal DJ
Food-þrenningin, Coldcut-félagarnír,
sem eiga reyndar Ninja Tunes, plötu-
snúðurinn Graham Sherman og tví-
menningarnir í Woodshed.
Breski dúettinn Woodshed er
þriggja ára gamall, en liðsmenn hans
segjast ekki hafa starfað af krafti
nema tvö undanfarin ár. „Við byijuð-
um á því að senda frá okkur plötu
og fólk tók henni svo vel að við
ákváðum að halda áfram. Eftir því
sem okkur gekk betur óskuðu fleiri
og fleiri eftir því að fá að sjá okkur
á tónleikum og hvað leiddi af öðru,“
segja þeir og kíma, „hér erum við
svo komnir í dag.“
Þeir segja að tónlistin sé þeirra líf
og yndi, þegar þeir séu ekki að semja
eða spila séu þeir að hlusta á tónlist
úr öllum áttum, „að leita að ein-
hveiju til að stela“, segja þeir og
skella uppúr, en bæta svo við af
meiri alvöru að danstónlistin lifi mik-
ið til á því að fá hugmyndir að láni,
endurgera og skapa eitthvað nýtt.
„Það kemur fyrir að við grípum á
lofti gítarrokkfrasa, togum og teygj-
um og notum í bakgrunn eða sem
skraut og þeir sem hæst hafa yfir
slíku gleyma því að gítarleikarinn
fékk frasann að láni frá einhverjum
öðrum og svo koll af kolli til blús-
söngvara í Mississippi. Þannig er
danstónlistin sífellt að endumýja sig
og meðal annars þess vegna er hún
svo fersk og skapandi í Bretlandi í
dag,“ segja þeir ákveðnir. „Þess sér
líka stað í því hve tónlistarsmekkur
manna er orðinn fjölbreyttur og for-
dómalaus; það eru allir að hlusta á
allt og áhrifin teygja sig víða.“
Annað sem hefur styrkt danstón-
listina að mati Woodshed-manna er
frelsið sem fylgir smáfyrirtækjunum
sem eru legió í Bretlandi. „Það
spretta sífellt upp nýjar og nýja út-
gáfur,“ segja þeir, „sem gefa kannski
bara út tvær eða þijár plötur, gjarn-
an tengdar einni hljómsveit eða lista-
mannaklíku, og hverfa síðan af sjón-
arsviðinu jafnskjótt. Fyrir vikið er
sífellt eitthvað nýtt að koma út og
tónlistarmenn óragir við að reyna
að fara ótroðnar slóðir.
Við kusum að vera á mála hjá
smáfyrirtæki, Cloak & Dagger, frek-
ar en leita eftir samningi við stórfyr-
irtæki, því þar finnum við stuðning
og skilning. Stóru fyrirtækin reyna
alltaf að hafa áhrif á tónlistarmenn-
ina, hvað þeir gefa út, hvenær og
hvernig, og það er óþolandi fyrir þá
sem eru að reyna að skapa eitthvað
nýtt.“
Þeir félagar segja að þeim þyki
gaman að spila á tónleikum, sérstak-
lega þegar þeim tekst vel upp, en
rifja með hryllingi upp tónleika þegar
þeir hafa ekki verið í stuði, eða áheyr-
endur ekki með á nótunum. „Þegar
allt gengur upp, eins og það gerir
reyndar nánast alltaf, þá fyllir það
okkur svo mikilli orku að allt annað
gleymist,11 segja þeir og takast á loft
í ákafa, „og það verður gaman að
leika fyrir íslenska tónlistarunnend-
ur. Yfirleitt er danstónlist ekki mikið
fyrir augað, en annar okkar leikur á
bassa, sem gefur þó eitthvað til að
horfa á, og svo reynum við að gera
sitthvað af okkur á sviðinu.“
Eins og áður er getið kemur fram
fríður flokkur breskra listamanna í
Tunglinu í kvöld og annað kvöld, en
einnig troða upp Páll Óskar Hjálm-
týsson og plötusnúðurinn ungi PS
Daði.
líatíiLcitehflsiftl
f HLAÐVARI’ANUM
GRÍSK KVÖLD ð
í kvöld kl. 21.00 uppsell,
sun. 24/3, örlá sælilaus,
lau. 30/3 uppselt,miSi. 3/4 laus sæli.
Fim. 11/4 luus sæli
KENNSLUSTUNDIN
lau. 23/3 kl. 20.00,
fös. 29/3 kl. 20.00.
SÁPA ÞRJÚ OG HÁLFT
lau. 23/3 kl. 23.30, fös. 29/3,
oJe/ns þessar tvær sýningat
ENGILLINN OG HÓRAN
fim. 28/3 kl. 21.00,
fim. 4/4, lau. 6/4.____
FORSALA Á MIÐUM
MIÐ. - SUN. FRÁ KL. 17-19
■ Á VESTURGÖTU 3.
IMIOAPANTANIR S: 55 I 9055
HAF N/m FIJfR ÐARLEIKHUSIÐ
HERkÓÐUR
1 OG HÁÐVÖR
SÝNIK
HIMNARÍKI
CEÐKLOFINN GAMANLEIKUR
í2 ÞÁTTUM EFTIR ÁRNA ÍBSEN
Gamla bæjarútgerðln, Hafnarflröl,
Vesturgðtu 9, gegnt A. Hansen
I kvöld Nokkur sæti laus.
Lau. 23/3. Örtá sæti laus.
Fös. 29/3.
Lau. 30/3.
Miöv.d. 3/4.
Fös. 12/4.
Lau. 13/4.
Sýningum fer fækkandi
Sýningar hefjast kl. 20:00
Miðasalan er opin milli kl. 16-19
Pantanasimi ailan sólarhringinn
555-0553. Fax: 565 4814.
Ósóttar pantanir seldar daglega
Vinsælastl rokksöngleikur allra tima!
Sexý, fyndin og dúndrandi kvöldskemmtun.
Miðasalan opin
mán. - fös. kl. 13-19
Héðinshúsinu
v/Vesturgötu
Simi 552 3000
Fax 562 6775
Leiklisturféiagið
V Aristófanes kvnnir
Michcal Frayifs
Sýningar hefjast
kl. 23.30
í kvöld og
laugardagskvöld 23/3
SKYALDUR
W Miðapantanir & upplvsingar
W í síma: 557-7287
f SÝOT II lEIÁITtoAIRSAlL
f JJÖlUBIBAHnMiSlKlÍLAHS 11 IBUflKnBIHIOlL'iriI
Tónleikar í Hallgrímskirkju
24. mars kl. 17.00
Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt einsöngvurum og
hljóöfæraleikurum flytur:
Óttusöngvar á vori. Jón Nordal.
Miserere, mótetta fyrir 2 kóra. Gregorio Allegri.
Spem in alium, 40 radda móteta. Thomas Tallis.
Miðasala í Hallgrímskrikju.
Allir að
hlusta
áallt
Breskir danstónlistar-
haldin danshátíð í
Tunglinu. Þar taka þátt
meðal annars liðsmenn
hljómsveitarinnar
Woodshed, sem segja
breska danstónlist með
miklum blóma um þess-
armundir.
menn fjölmenna til
landsins um þessar
mundir og í kvöld er
WOODSHED vinir. ' Morgunblaðið/Svemr
Tónleikar