Morgunblaðið - 25.04.1996, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 25.04.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996 47 MINNINGAR og stoltið og krafturinn fleytti henni yfir margs konar erfiðleika. Hún hafði skemmtilega kímnigáfu og athugasemdir hennar og svör vöktu oft glaðlegan hlátur hjá fólkinu hennar. Ég á margar góðar minningar frá samtölum okkar Bjargar, sér- staklega þegar við vorum tvær ein- ar. Þó hún væri gamansöm og oft glettin í tali ræddum við oft saman á alvarlegum nótum og vona ég sannarlega að ég sé fær um að nýta mér til góðs þau gullkorn sem hún lét falla á slíkum stundum. Mér er efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Björgu og þykja vænt um þessa góðu konu. Elsku Björg, þakka þér fyrir alla jákvæðnina og skemmtilegheitin frá upphafi okkar kynna. Megi góð- ur guð leiða þig í ljósinu hinu meg- in og veita Ella þínum styrk á erf- iðri stundu. Eygló. Elsku Björg. Þegar ég hugsa til þín minnist ég hreinskilni þinnar og kímnigáfu um sumt af mínum málum. Ég get ekki annað en brosað þegar því skýtur upp í huga minn hversu feimin ég varð stundum. Þú veist hvað ég er að hugsa. En nú ertu farin yfir í annan heim og ég veit að þú brosir með mér. Mynd af þér geymi ég í hjarta mínu um ókomna tíð. Blessuð sé minning þín. Þín, Hulda. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn siðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Það var ávallt svo gott að koma í heimsókn til ömmu og afa. Hún amma var svo gjöful á allt sem hún átti, ekki síður á kærleika og vin- áttu en kaffi og með því. Hún var falleg og virðuleg kona sem bar með sér mikla hlýju og góðvild. Amma var stolt og bar sig vel. Við dáðum hana fyrir hennar yndislegu persónu. Hún var af- skaplega dugleg og allt sem hún gerði var skipulagt og vel af hendi leyst. Hún tókst á við gleði og sorg af sínum einskæra dugnaði og þrautseigju. Það var gott að um- gangast hana, því hún var svo yfir- veguð og henni fylgdi ákveðin ró og festa. Þegar farið er að rifja upp, kem- ur fyrst í hugann hvað henni þótti tilsvör barnabama sinna skemmti- leg og hversu vel hún varðveitti þau. Þó vegalengdin væri mismikil milli okkar þá fylgdist amma alltaf jafnvel með því sem við höfðumst að, hún spurði út í skólann, íþrótt- irnar og vinnuna. Það var alltaf gaman að fá að gista hjá þeim, en best var þó að fá að kúra á milli hennar og afa að loknum degi. Við munum aldrei gleyma hennar innilega bjarta brosi, sem fyllti hjarta manns ávallt gleði og hvatn- ingu til að líta á hið fallega og bjarta sem lífið hefur upp á að bjóða. Hún veitti sínum nánustu allt sem hún átti og fengum við svo sannarlega að njóta hlýju hennar, glaðlyndis, ástar og alúðar, allt til síðasta dags. Elsku amma, þó að þú sért nú horfin sjónum okkar, munt þú ávallt lifa í hjörtum okkar. Barna- og barnabarnabörn. Á SUMARDAGINN FYRSTA í húsi Kvennakórs Reykjavíkur að Ægisgötu 7 Klukkan 15:30 - 17:30 Fram koma Léttsveit Kvennakórsins, Vox Feminae, Senjorítur, og Kórskólinn ásamt söngkonunum Björk Jónsdóttur, Jóhönnu Þórhallsdóttur og Margréti J. Pálmadóttur. Þá munu Egill Ólafsson og fleiri góöir gestir koma í heimsókn. Klukkan 20:30 - 23:00 Kvennakór Reykjavíkur tekur lagiö ásamt góðum gestum. Aðgangseyrir er kr. 1.000.- fyrir fullorðna, en kr. 200.- fyrir börn á hvora skemmtun. Allir velkomnir! Munið vortónleika Kvennakórs Reykjavíkur sem haldnir verða í Hafnarborg í Hafnarfirði 8. maí og í Langoltskirkju 10., 11. og 12. maí. Nánar auglýst síðar. KVENNAKÓR REYKJAVÍKUR Besta frumsamda bamabókin var valin Sossa litla skessa eftir Magneu frá Kleifum Herra Zippó og þjófótti skjórinn hlaut verðlaun sem besta þýdda sagan Hólmfríður Gunnarsdóttir þýddi. Góöar bœkur eru tilvaldar sumargjafir! Mál og mennlng Uugevsgl 18 • Úlmli 888 4848 ^JIðumúla ?-B • Slml: 888 88 Verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.