Morgunblaðið - 27.04.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.04.1996, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Búist við fleiri erlend- um veiðimönnum í sumar FRETTIR ERLENDIR veiðimenn með afla á bökkum Laxár í Kjós. Sumir halda tryggð við ísland, en aðrir fara til Rússlands. veiðiár á leigu, hann er með vand- aða kynningarbæklinga þar sem landsstjórar og embættismenn leggja nöfn sín við að allt sé í lukk- unnar velstandi. Þetta er í raun ekki svo stór hópur sem er að veiða lax í útlöndum og ég býst við því að ef allt gengur að óskum hjá þeim sænska í sumar, þá flykkjast menn aftur til Rússlands.. Hvers vegna? Vegna þess að árnar þar eru ekki lakari, sumar betri, laxinn er stærri og allur pakkinn er miklu ódýrari en hér, auk þess sem menn eru að koma aðstæðum við rúss- nesku árnar í boðlegt horf,“ segir Pétur. Breytingar við Selá Og Pétur bætti við: „Einhverjir íslenskir laxveiðimenn gleðjast ör- ugglega, þeir fá kannski betri veiðileyfi á minna verði í kjölfarið, en það er bara eitt sjónarmið. Ef erlendum veiðimönnum fækkar glatast óheyrilegar upphæðir í er- lendum gjaldeyri." Veiðimenn sem fara til veiða í Selá í sumar koma að breyttu fyrir- komulagi frá því sem verið hefur. Neðra svæðið hefur verið lengt og hafa veiðistaðirnir Bryggjur og Bakkahylur, sem voru neðstir á efra svæðinu, nú verið teknir inn í neðra svæðið. Ástæðan er sú, að vegur upp með á, sem náði aðeins fram að Skipahyl, hefur verið lengd- ur að því marki að allmargir veiði- staðir sem áður þurfti strangar göngur til að skoða, eru nú í seiling- arfjarlægð. Þá hafa eigendur og leigutakar Selár velt fyrir sér að selja allra efsta svæðið út sem sér svæði með tveimur stöngum.. Myndi stöngum þá fjölga um tvær í ánni og er til heimild fyrir því. Um er að ræða svokallaðan Efri-Foss og hyli þar fyrir neðan. Mikill lax gengur á svæðið, en það er verulega úr al- faraleið og fer dagurinn að fullu í að sækja þangað. Morgunblaðið/Sverrir SAMSKIPTAKERFIÐ var formlega tekið í notkun I gær, en á myndinni eru Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og Þorgeir Pálsson deildarverkfræðingur. Röntgenmyndir sendar símleiðis FREMUR rólegt hefur verið á sjó- birtingsslóðum að undanförnu. Komið hafa skot og skot í Vatna- mótunum svokölluðu. I Geirlandsá var mjög dauft eftir að páskahret- inu slotaði, raunar veiddist lítið eða ekkert allt þar til allra síðustu daga, að það glaðnaði yfir veiði- skapnum aftur. Velta menn fyrir sér hvort fiskur er að stórum hluta genginn til sjávar vegna góðs ár- ferðis. Útlendingum gæti fækkað Svo virðist sem fleiri erlendir veiðimenn verði í íslenskum lax- veiðiám í sumar en síðustu ár. Pét- ur Pétursson kaupmaður, sem selur fjölmörgum erlendum veiðimönnum leyfi í íslenskar ár í samvinnu við franska veiðiferðaskrifstofu sagði að tii grundvallar lægi að mikil mistök urðu á veiðislóðum í Rúss- landi í fyrra, er einstakir leigutakar reyndust eiga óuppgerða leigu við rússneska landsstjóra sem brugðust við með þeim hætti að senda vopn- aðar sveitir á vettvang til að reka menn úr ánum. „Veiðimenn kæra sig eðlilega ekki um að lenda í slíku og margir koma því hingað í sumar í staðinn. Sumir voru í íslenskum ám áður en þeir fóru að veiða í Rússlandi. Ég á samt ekki von á því að þetta verði varanleg breyting nema að til komi mikil breyting á viðhorfum hér á landi. Nú er kominn sænskur aðili fram á sjónarsviðið sem er með fimm frábærar rússneskar SAMSKIPTAKERFI fyrir fjar- greiningu röntgenmynda var form- lega tekið í notkun í gær, en kerfið er notað til þess að senda röntgen- myndir um símalínu milli sjúkra- húsa eins og til dæmis á milli sér- greinasjúkrahúsanna í Reykjavík og sjúkrahúsa víða um landið. Þetta gerist með þeim hætti að röntgenmynd er tekin á sjúkrahúsi úti á landi, filman skönnuð á tölvu- tækt form og síðan send um síma- línu til sérgreinasjúkrahúss. Þar getur sérfræðingur skoðað myndina á tölvuskjá og sent síðan sína grein- ingu til baka. I frétt frá Landsspítalanum segir að spítalinn hafi haft forgöngu um hönnun á kerfi til að tengja sjúkra- hús sem veita röntgenþjónustu sjúkrahúsum sem hafa yfir að ráða sérfræðikunnáttu til að greina rönt- genmyndir. 1992 hafi sendingar á röntgenmyndum hafist frá Sjúkra- húsi Vestmannaeyja til Landspítal- ans. Eðlisfræði- og tæknideild og röntgendeild Landsspítala ásamt Verkfræðistofnun háskólans hafi staðið að verkefninu, en frá 1994 hefur spítalinn í samvinnu við Land- læknisembættið unnið að gerð áætl- unar um tengingu sjúkrahúsa vegna þessa. Áætlað er að tengja fjórar sjúkrastofnanir við Lands- spítalann í ár og tólf til viðbótar á næsta og ef til vill þar næsta ári. Dánarbú athafna- manns á Höfn Kanna grundvöll til einkaskipta „ÉG MUN senda þeim, sem hags- muna eiga að gæta í þessu máli, bréf og kynna þeim niðurstöðu dómsins. í framhaldi af því mun ég svo kanna hvort grundvöllur er fyrir einkaskiptum á dánarbúinu, eða hvort koma þarf til opinberra skipta," sagði Páll Björnsson, sýslu- maður á Höfn, í samtali við Morg- unblaðið. Á föstudag féll dómur fyrir Hér- aðsdómi Austurlands í máli, sem fullorðin kona höfðaði til að fá við- urkennt að athafnamaður á Höfn væri faðir dóttur hennar. Maðurinn og dóttirin létust bæði á síðasta ári, en þar sem til voru vefjasýni úr þeim var hægt að gera DNA- rannsókn. Niðurstaða hennar var sú, að 99% líkur væru á að maður- inn væri faðir konunnar. Þeim dómi verður að öllum líkindum ekki áfrýj- að, enda telst óraunhæft að ætla sér að hnekkja niðurstöðum hans, sem byggðar eru á svo afgerandi niðurstöðum DNA-rannsóknar. Að fenginni niðurstöðu héraðs- dÖms gera börn konunnar, barna- börn athafnamannsins, kröfu um arf eftir hann, þar sem þau séu réttmætir lögerfingjar. Hann hafði hins vegar gert erfðaskrá, þar sem ættingjar hans eru tilgreindir erf- ingjar. Þegar menn eiga lögerfingja er þeim lögum samkvæmt aðeins heimilt að ráðstafa þriðjungi eigna sinna til annarra. Eslandsglíman 90 ára Vöm verið snúið í sókn AÐ VAR 21. ágúst árið 1906 að glímt var um Grettisbelt- ið í fyrsta sinn í húsi Góð- templara á Akureyri. Grett- isbeltið, sem gefið var af Glímufélaginu Gretti þar í bæ, er veglegur gripur með silfurbúnum sylgjum og skreytt skildi með mynd af Gretti Ásmundarsyni. Að undaskildum árum fyrri heimsstyijaldarinnar hefur verið keppt árlega um grip- inn og í dag klukkan 14 koma sjö bestu glímumenn landsins saman í íþrótta- húsi Kennaraháskólans og glíma um Grettisbeltið í 86. sinn. Fyrsti handhafi þess var Ólafur Valdimarsson frá Vopnafirði en hann er jafnframt yngsti glímumað- urinn, 19 ára, sem hefur borið sigur úr býtum. Núverandi Grettisbeltishafi er Jóhannes Sveinbjörnsson úr HSK. „Það má með sanni segja að Íslandsglíman sé upphafið að íþróttakeppni hér á landi með nútímasniði þar sem í verðlaun er farandgripur," segir Jón M. ívarsson, formaður Glímu- sambands Islands. - Hversu margir glímumenn hafa sigrað í keppninni um Grettis- beltið? „Tuttugu og níu menn hafa sigr- að í Íslandsglímunni og á hveiju ári hefur verið gerður skjöldur sem á er grafið nafn sigurvegarans. Beltið er því hlaðið skjöldum. Þó það sé stórt er ekki pláss á því fyrir alla skildi sem gerðir hafa verið og nú er svo komið að á hveiju ári er einn skjöldur tekin af og settur á annað belti sem geymt er i glerbúri á skrifstofu sambandsins. Ármann J. Lárusson hefur oftast sigrað í íslands- glímunni, fimmtán sinnum, þar af fjórtán sinnum í röð. Hann sigraði fyrst árið 1952 og síðan óslitið frá 1954 til 1967.“ - Glíman hefur átt undir högg að sækja í samkeppni við aðrar íþróttir síðustu árin. Hver er staða hennar nú að þínu mati? „Eins og í öðrum íþróttum hafa komið hæðir og lægðir í glímunni. Ég held að enginn vafi leiki á að við höfum verið á uppleið und- anfarinn áratug og vonandi erum við enn á þeirri leið. Unglingum hefur fjölgað mikið í iðkendahópn- um og síðan eru konurnar einnig komnar inn í glímuna, en áður máttu þær ekki keppa. Því var breytt fyrir átta árum og hefur mælst vel fyrir og nokkur hópur kvenna lagt stund á íþróttina." - Hvaða tregða var að hleypa konunum í glímuna? „Um var að kenna almennri íhaldssemi innan hreyfingarinnar vegna þess að í hugum margra var glíman hin dæmigerða karlaíþrótt, en það hef- ur sem betur fer breyst.“ - Hvernig hafið þið glímumenn unnið að útbreiðslustarfí síðastliðin ár? „Við höfum gert það í gegnum skólana. Á íþróttaþingi árið 1988 beittum við okkur fyrir að ÍSÍ og Glímusambandið tækju höndum saman um að fá fjárveitingu frá Alþingi til kynningar og út- breiðslustarfs vegna þess að í grunnskólalögunum segir að nem- endur skuli fá kynningu í glímu en því var lítið framfylgt. Nú veit- ir Álþingi ákveðna fjárupphæð ár- lega til kynnigarstarfs í skólum landsins. Með þessum stuðningi hefur sambandið sent mann sem fer um landið til að kynna íþrótt- M. ívarsson ► Jón M. Ivarsson hefur verið í stjórn Glímusambandsins síð- astliðin átta ár, þar af formaður siðasta árið. Hann lærði glímu hjá Sigurði Greipssyni í Haukadal árið 1968. Eftir það tók hann sér hlé frá æfingum í nokkur ár en kom á ný fram á sjónarsviðið er hann sigraði í Fjórðungsglímu Suðurlands 1985 og varð íslandsmeistari árið 1988. í ár eru 90 ár liðin síðan fyrst var keppt um Grett- isbeltið, elsta verðlaunagrip í íslenskri íþróttasögu, og í dag klukkan fjórtán verður tekist á um beltið í 86. sinn, í íþróttasal Kennaraháskólans. ina. Af þessu hefur leitt að á síð- ustu árum hafa á milli fjörutíu og fímmtíu þúsund nemendur kynnst glímunni og viðhorfið til hennar batnað að sama skapi.“ - Hafi þið tekið einhver svæði landsins fyrir í einu? „Sérstök áhersla hefur verið lögð einstök landsvæði í hvert sinn og tekinn sá póll í hæðina að reyna að breiða út íþróttina frá þeim svæðum þar sem greinin er stund- uð. Sem dæmi má nefna að á síð- asta ári vorum við mikið fyrir aust- an Fjall og í Reykjavík.“ - Getur þú nefnt dæmi um vaxandi glímuáhuga síðustu ár? „Fyrir tíu árum lá glíman niðri að mestu leyti á Suðurlandi en nú er það orðið fjölmennasta glímu- svæðið með um tvö hundruð virka þátttakendur. Þá er mikill áhugi á Sauðárkróki og Hólmavík þar sem engin var fyrir nokkrum árum. Þá er mikill áhugi og vaxandi á Reyð- arfirði, eftir að þar hafði glímuiðk- un legið niðri í fimmtán ár. Eitt skýrasta dæmið um vaxandi glímuáhuga er grunnskólamótið. Fyrir rúmum tíu árum voru kepp- endur níu en í ár voru þeir eitt hundrað og þrjátíu." - Hefur tekist að snúa vöm í sókn? „Það er okkar von sem í þessu stöndum að svo sé. Margir ungl- ingar leggja nú stund á glímu en það tekur sinn tíma að læra glímu og raunverulega er þetta íþrótt þar menn verða aldrei fullnuma. Til þess að verða góður glímumaður þarf að læra mörg tæknileg atriði." - Eru glímumenn bjartsýnir á framtíðina? „Við erum það. Unglingum sem leggja stund á íþróttina fjölgar og við sjáum marga efnilega glímu- menn af báðum kynjum. Þegar ungu stúlkurnar verða komnar upp í fullorðinsflokki munum við án efa byija með Islandsglimu í kvenna- flokki." Jón Menn verða aldrei fuli- numa í glímu í 3 I ) J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.