Morgunblaðið - 27.04.1996, Side 52

Morgunblaðið - 27.04.1996, Side 52
52 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ BREF TLL BLAÐSINS Dýraglens Grettir Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Askorun til foreldra GLEÐIN yfir lokum samræmdu prófanna getur snúist upp í andhverfu sína, segir greinarhöfundur, og hvetur foreldra til að fylgjast með börnum sínum. Frá Áslaugu Brynjólfsdóttur: NÆSTKOMANDI þriðjudag, 30. apríl, ljúka nemendur 10. bekkja grunnskólanna samræmdum próf- um og þannig stendur á að frí er í skólunum daginn eftir, 1. maí. Á þessum tímamótum í lífi nemenda hefur skapast sú venja að nemend- ur þyrpast saman til að fagna þess- um prófalokum. Hér í Reykjavík þekkjum við öll að unglingar úr Reykjavík og nágrenni hópast í stórum stíl í miðbæinn. Ekki væri athugavert við það að nemendur hittust til að samfagna af slíku tilefni, en það sem vekur upp ugg í bijósti manns er neikvæð reynsla undanfarinna ára vegna óhóflegrar neyslu áfeng- is og annarra vímuefna. Af því tilefni beini ég þeim ein- dregnu tilmælum til foreldra og forráðamanna nemenda að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að þessi já- kvæða stund breytist í andhverfu sína. Af þeim sökum er mikilvægt að foreldrar leggi börnum sínum lið við undirbúning þessarar fagn- aðarstundar og gerist með ein- hveiju móti virkir þátttakendur við þessi tímamót barna sinna, enda þótt hér sé engan veginn um skólalok grunnskólans að ræða, því að þau eru ekki fyrr en síðast í maí. Mjög væri það æskilegt að for- eldrar úr hinum ýmsu skólum stæðu saman og stuðluðu að því að þessum prófalokum yrði fagnað á ánægjulegan og heiíbrigðan máta. Við eigum góðan efnivið þar sem er æska þess lands og það er skylda foreldra og allra fullorðinna að standa vörð um þennan dýr- mæta mannauð. ÁSLAUG BRYNJÓLFSDÓTTIR, fræðslustjóri í Reykjavík. Tímarnir breytast... í gamla daga hefði sjóræningi aldrei sést bíða eftir skólabílnum ... t Fyrirspurn til Trygg- ingastofnunar ríkisins Frá Sigrúnu Þórarinsdóttur: ÞANN 4. apríl sl. fór ég á Slysa- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Fossvogi, vegna þess að ég hafði klemmt fingur og óttaðist að hann væri brotinn. Læknir skoðaði fing- urinn og sendi mig svo í röntgen- myndatöku. Fingurinn reyndist ekki brotinn og með það fór ég. Þegar að greiðslu kom var mér sagt að greiða kr. 1.240, 300 fyrir myndatökuna og 940 fyrir skoðun (gjald lífeyrisþega). Á spjaldi við lúguna stóð hins vegar að lág- marksgjald fyrir komu væri kr. 500. Nú er mikið talað um að auka kostnaðarvitund sjúklinga svo mér fannst eðlilegt að spyija hvers vegna ég ætti að greiða kr. 940 fyrir skoðun en ekki lágmarksgjald. Svarið var að ég ætti að greiða 500 + 13,3% af umframgjaldi. Ég vildi vita í hveiju umframgjaldið væri fólgið þar sem ekkert var gert við mig umfram skoðun og röntgen- mynd, ekkert áhald notað eða efni. Svarið sem ég fékk var þetta: „Við erum ekki að svindla á fólki, þú skalt bara spyija Tryggingastofn- un.“ Nú spyr ég: 1. Hvaða þjónusta fæst fyrir lág- marksgjald? 2. Fyrir hvaða þjónustu fær slysadeildin kr. 3.300 (13,3% af 3.300 eru 440)? 3. Ef kr. 940 er lágmarksgjald fyrir lífeyrisþega, hvers vegna er gefið upp að lágmarksgjald sé kr. 500 (veggspjald frá TR frá 1. febr. 1996)? Með von um skýr svör. SIGRÚN ÞÓRARIN SDÓTTIR, Arnarsmára 10, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni tjl birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.