Morgunblaðið - 27.04.1996, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 27.04.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 45 i I JÓN GUÐMUNDUR * JONSSON + Jón Guðmund- ur Jónsson fæddist í Vestra- íragerði á Stokks- eyri 16. janúar árið 1913. Hann lést á I Hrafnistu í Reykjavík 29. mars síðastliðinn. Jón var næstyngstur sjö barna hjónanna Guðnýjar Bene- diktsdóttur og Jóns Jónssonar, formanns. Þau systkinin sem upp komust voru auk Jóns: Elín, gift Asmundi Hann- essyni, Guðjón, kvæntur Ing- veldi Jónsdóttur, Benedikta, gift Pétri Daníels- syni, Margrét, gift Haraldi Bachmann, og Hallgrímur, kvæntur Guðrúnu Alexandersdóttur. Jón var um aldar- fjórðung aðstoðar- vélstjóri á farskipum Sambandsins, lengst á Jökulfellinu. Síð- ustu ár starfsævinn- ar vann hann í Bún- aðarbanka íslands sem bílstjóri og síðan sem gæslumaður í bankahólfum. Hann var ókvæntur og barnlaus. Útför Jóns var gerð frá Stokkseyrarkirkju 10. apríl. Látinn er Jón Guðmundur Jóns- son frá Vestra-íragerði á Stokks- eyri 81 árs að aldri. Ég hitti Jón í fyrsta skipti er ég kom til starfa um borð í olíuskipinu Litlafelli haustið 1954. Þá var ég ókunnugur störfum, sem vinna þarf um borð | í olíuskipi, en Jón þaulreyndur í ' þeim efnum. Hann tók mér eins og syni sínum og tókust með okkur og síðan fjölskyldu minni einlæg vinátta, sem staðið hefur síðan. Jón var stór og karlmannlegur, sem tekið var eftir hvar sem hann fór. Hann var ekki mannblendinn, en traustur félagi og vinur þeirra sem hann tók vináttu við enda heiðarleiki og samviskusemi hon- um í blóð borin. Eftir samstarfíð á Litlafellinu lágu leiðir okkar aft- ur saman á Jökulfellinu og vorum við klefafélagar þar, þangað til ég fór í land rúmu ári síðar til starfa í skipadeild Sambandsins. Ekki rofnaði sambandið milli okkar, þegar ég og fjölskyldan fluttum til Akureyrar vorið 1961. Margar góðar stundir höfum við átt saman einir sér eða með fjöl- skyldu minni í gegnum tíðina og margs er að minnast. Ófáar veiði- ferðirnar fórum við saman þegar þú komst hingað norður, t.d. í Svartá, Selá, Hofsá og Laxá í S- Þing., svo einhverjar ár séu nefnd- ar, enda veiðiskapur þitt aðal- áhugamál. Jón giftist aldrei en með honum og dætrum okkar fjórum myndað- ist sérstakt samband, sem var í þá veru að þeim fannst hann vera nákominn ættingi og þar af leið- andi einn af fjölskyldunni. Fyrir þessi kynni og allar gjafirnar, sem hann færði þeim úr siglingunum, þakka þær innilega. Þegar að leiðarlokum er komið vil ég og fjölskylda mín þakka þér órofa vináttu. Einnig fyrir allar gistinæturnar og góðgerðirnar á Reynimelnum, en þær eru orðnar margar í gegnum tíðina. Kæri vinur, þessi fátæklegu kveðjuorð eru aðeins brot af því sem við hjónin hefðum viljað segja að leiðarlokum. En þegar við heyr- um góðs manns getið kemur nafn Jóns G. Jónssonar upp í hugann. Guð geymi góðan dreng. Valgerður og Karl Jörundsson. HARALDUR EINARSSON + Haraldur Einarsson fæddist á Brúsastöðum í Þingvalla- sveit 26. apríl 1913. Hann lést í Reykjavík 10. apríl síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 23. apríl. Hinn 10. þessar mánaðar lést Haraldur Einarsson úr sjúkdómi sem margur hefur orðið að lúta í lægra haldi fyrir. Síðastliðin 17 ár höfum við ijölskyldan gist á heimili Helgu og Haraldar í flestum Reykjavíkurferðum okkar. Sama var hvenær við komum, hvort sem var á nóttu eða degi, alltaf var okkur jafnvel tekið og við fundum alltaf jafnvel fyrir því hvað velkom- in við vorum hvernig sem á stóð. Venjulega þegar við fórum sagði svo Haraldur: Og hvenær komið þig svo aftur? Haraldur var einstakt prúðmenni bæði til orðs og æðis. Hann var mikið snyrtimenni og sér- staka vandvirkni viðhafði hann við allt sem hann gerði. Sumarbústaður þeirra hjóna var honum sérstaklega kær og ber hann merki um vand- virkni Haraldar á öllum sviðum. Þar hóf Haraldur að rækta skóg, en tijárækt var honum sérstaklega hugleikin. Það var hrein unun að rölta með honum milli tijánna við sumarbústaðinn óg hlusta á hann segja frá uppvexti tijánna. Hvert tré var fyrir honum sem sjálfstæður einstaklingur og hann kunni vel skil á æviferli hvers trés fyrir sig. Hann hlúði að trjánum eins og þau væru börnin hans, reyndar má segja að þau hafi verið það í vissum skiln- ingi. Trén launuðu honum það líka margfalt, þau döfnuðu vel og gáfu honum og fjölskyldunni allri það sem af þeim var vænst. Sumarbú- staðurinn var lítill í fyrstu, en Har- aldur stækkaði húsið eftir því sem með þurfti og er hann nú orðinn hið ágætasta hús. Þarna átti hann sínar bestu stundir við að sinna húsinu og garðinum og njóta fugla- söngsins og náttúrunnar. Maður sá vel hvað Haraldur naut sín vel þarna. Þar ræktaði hann auk þess kartöflur og grænmeti til heimilis- ins og var þá ekki laust við að dálít- ill bóndi kæmi upp í Haraldi, enda var hann af bændum kominn og sveitin átti alltaf ítök í honum. Haraldur var sérstaklega greiðvik- inn og alltaf var sjálfsagt að hjálpa öðrum. Það mátti treysta því að það stóð allt sem hann hafði lofað. Haraldur vann hjá SÍS mjög lengi sem einkabílstjóri forstjórans. Það starf hæfði honum vel, þar naut sín lipurð hans, snyrtimennska og áreiðanleiki. Sl. hálft ár sem Har- aldur hefur verið veikur hefur Helga að mestu leyti sjálf annast hann með aðstoð dætra þeirra og fóstur- sonar. Elsku Helga, Sigrún, Gréta, Friðþjófur og fjölskyldur ykkar. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Þið hafíð misst mikið og skarðið sem skilið er eftir verður aldrei fyllt. En minningin um Harald er góð og dýrmæt og verður aldrei tekin frá okkur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Ragnhildur og Sigurður. ÞÓRUNN ÞÓRÐARDÓTTIR + Þórunn Þórðardóttir var fædd 9. mars 1976 á Akra- nesi. Hún dó 31. mars sl. á heim- ili sínu á Akranesi og fór útför- in fram frá Akraneskirkju 10. apríl. Elsku Þórunn, okkur fínnst erfitt að hugsa'til þess að nú sért þú farin. Okkur finnst einnig erfitt að hugsa til þess að við getum aldrei hitt þig aftur, heimsótt þig eða tal- að við þig. Það eina sem við getum gert er að hugsa til baka, til allra góðu stundanna sem við áttum sam- an. Til dæmis til allra áranna í Brekkubæjarskóla, skólaferðalag- anna og matarboðanna sem við héldum. Við munum aldrei gleyma hversu frábær félagi þú hefur alltaf verið. Elsku Þórunn, við munum sakna þín sárt. Kata, Doddi og Jósep, við hugs- um hlýtt til ykkar á þessari sorgar- stundu og vottum ykkur innilega samúð okkar. Hrund og Jórunn. Við höfum þekkt Þórunni frá því í sex ára bekk. Alla tíð síðan hefur hópurinn verið mjög samheldinn og því sárt að hugsa til þess að ein úr hópnum sé farin. Það er erfitt að koma orðum að því hvernig Þórunn var, en hún var vissulega góð manneskja sem var vinur vina sinna. Þrátt fyrir mikil og erfið veikindi var Þórunn alltaf ákaflega sterk og lét aldrei bug- ast. Við virtum hana fyrir hvað hún var dugleg og kvartaði aldrei. I gegnum veikindi hennar höfum við lært að meta lífið og heilsuna á annan hátt. Elsku Þórunn, það er sárt að þurfa að kveðja þig svo snemma. Við spyijum sjálf okkur: Af hveiju? En við þeirri spurningu eru engin svör. Við huggum okkur við að þér líði vel á þeim stað sem þú ert núna. Við þökkum Guði fyrir að hafa fengið að kynnast þér. í gegnum árin höfum við upplifað margt sam- an, bæði gleði og sorg, en gleði- stundirnar munu ætíð standa upp- úr. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.I.H.) Við vottum Kötu, Dodda og Jósep okkar dýpstu samúð. Elsku Þórunn, við munum aldrei gleyma þér. Þínir vinir, Anna, Amdís, Eiríkur, Elva, Eyfi, Gerður, Guðrún, Hákon, Hrund, Jórunn, Reynir, Rúnar, Valdís, Valey, Þórður, Þórhildur og Þura. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar I um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og bæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Ilöfundar eru beðnir að liafa skírnarnöfn sln en ekki stuttnefni undir greinunum. ESTER SIGFÚSDÓTTIR + Ester Sigfús- dóttir fæddist á Leiti í Suðursveit 23. nóvember 1919. Hún lést á Land- spítalanum 16. apríl siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Lang- holtskirkju 26. apríl. Þegar ég hitti í fyrsta sinn tengdaföð- ur minn Björn Hall- dórsson, gullsmið, fyr- ir tæpum 24 árum, á jólunum 1972, var hann maður ókvæntur. Á fallegu heimili sínu í Álfheimum 52 bjó hann með móður sinni Hólmfríði Björnsdótt- ur sem gekk til allra húsverka og hélt heimili fyrir son sinn þrátt fyril' að hún væri orðin 88 ára gömul. Við Gæflaug, dóttir Björns, urðum bæði þess aðnjótandi að ferðast með Birni um ísland og hlýða á frásagnir hans um menn og málefni, og ekki síst náttúru íslands. Hvert sem leið okkar lá var Björn fróður um umhverfið og svo er enn í dag. Hann var og er frábær ferðafélagi. Og gott var að koma í Álfheima og njóta veit- inga Hólmfríðar. Árið 1980, þegar Björn varð sextugur, kcm hann okkur öllum í opna skjöldu þegar hann opinber- aði trúlofun sína og Esterar Sigf- úsdóttur. Þau giftu sig 29. maí 1981. Þau Ester og Björn voru glæsilegt dæmi um samband sem einungis ást og innbyrðis virðing milli karls og konu getur skapað og nært. Það var auðséð á ferðafé- laga okkar Gæflaugar að hann var maður hamingjusamur. Hann eignaðist förunaut sem var tilbú- inn að fara með honum allra ferða. Ester var gleðigjafí, kát og hress, söngelsk. Það var einstakt að fá að vera vitni að gleði þeirra og kærleik og frétta af ferðum þeirra og ráðagerðum. Og þau slógu ekki slöku við. Hún deildi áhuga Björns á ætt- rækni og ferðalögum og saman fóru þau vítt og breitt um landið. Hún virti áhuga Björns á bókum, listum og náttúru og var honum einstaklega góður félagi. Ester tók á móti okkur opnum örmum í Álfheimum, spurði frétta og sagði okkur fréttir af sér og sínum við borðið í eldhúsinu yfír kaffibolla, heimabökuðum flatkök- um og öðru góðgæti. Hún lá ekki á skoðunum sínum og mér fannst einstaklega gaman að sitja með Ester í eld- húsinu og ræða við hana, líka um spaugi- legar hliðar tilverunn- ar. Dillandi hlátur hennar hljóðnar aldr- ei. Vinnustaður henn- ar til margra ára, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, sem hún nefndi aldrei annað en Stöðina, var henni hugleikinn. Sveitin hennar, Suðursveitin, var henni kær og frændgarðurinn, einkum og sér í lagi sonardætur og -sonur hennar og ömmubörnin. Ester varð líka börnum okkar Gæflaugar sem amma og mér var hún sem góð tengdamóðir, ávallt umhugað um velferð okkar allra. Við kveðjum Ester. Fyrir hug- skotssjónum okkar stendur hún, glæsileg á velli, í upphlut, bros- andi, hlæjandi, eða í eldhúsinu með svuntuna, iðin við bakstur eða matseld sem hún var meistari í. Við Gæfa, Björn Eiríkur og Nína Margrét vottum Birni, börnum Esterar, barnabörnum og börnum þeirra samúð okkar. Blessuð sé minning hennar. Lars H. Andersen. Mig langar til að minnast með nokkrum orðum frænku minnar, ekki síst vegna þess hversu einstök manneskja hún var. Kynni mín af henni hófust fyrir alvöru eftir 1990 þegar ég fluttist í Efstasund. Það- an er stutt í Álfheimana og þótt þær yrðu ekki margar ferðirnar til hennar í kaffi, urðu þær nógu margar til að sjá það að hún var gull af manni og bráðskemmtileg. Það var gaman að tala við hana og ávallt sýndi hún mínum málum áhuga og þá ekki síst uppvexti dóttur minnar. Síðast hitti ég Ester í fyrrasum- ai' í Suðursveit og hefði það ekki hvarflað að mér þá að það yrði það síðasta. Hún var þá sem endranær vel til höfð og góða skapið var á sínum stað. Ég minn- ist hennar sem lífsglaðrar og hlát- urmildrar konu og dáðist að dugn- aði hennar og Björns við að ferð- ast bæði innanlands og utan. Ég kveð þig, elsku Ester, og þakka þér fyrir góðar stundir. Birni og öðrum aðstandendum votta ég samúð mína. Þóra Bjarndís Þorbergsdóttir. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför, MARGRÉTAR JÓHANNSDÓTTUR, Grandavegi 45. Einar Halldórsson, Ólöf Unnur Harðardóttir, Guðfinna Halldórsdóttir, Hilmir Elísson, Jóhann Halldórsson, Olga Guðmundsdóttir, Þorsteinn Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkaerar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður, GUÐRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Háagerði 87, Reykjavik. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir umönnun í veikindum hennar. Stefania Júníusdóttir, Herborg Júniusdóttir, Guðmundur Hermannsson, Guðjón Júníusson, Ólafur Júníusson, Árdis Bragadóttir, Sævar Júniusson, Guðný Þorsteinsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.