Morgunblaðið - 27.04.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27 APRÍL 1996 27
Draumar
eiga tíl
a B rætast
Baltasar Kormákur
Baltas
Kormákur
er hálfur
Spánverji og hálf-
ur íslendingur. Því
var við hæfi að fara
með honum út að
borða á ítalskan
veitingastað.
Þegar við höfum
heilsast vísar
þjónninn okkur
fagmannlega til
borðs. Sólin skín
inn um gluggann.
„Þessi staður er
mjög bjartur,, ,
verður honum að
orði. Þegar þjónninn hefur hellt
vatni i glösin og leyft okkur að
skoða matseðilinn er Baltasar
reiðubúinn að panta.
Ertu mikill matmaður?
-Já, ég er eins og fleiri, mér
fínnst gott að borða. Mér líst best
á ofnbakaða snigla með hvítlauk
og tómatmauki í forrétt. I aðalrétt
er ég að hugsa um að fá mér
kjúklingabringu, fyllta með spín-
ati og fjallaskinku, með rauðvíns-
sósu.
Hvað með muðvín?
-Eru þessi vín öll ítölsk? Já,
svarar þjónninn. Þá held ég að þú
verðir að velja vínið, því ég hef
ekki vit á ítölskum vínum. Þjónn-
inn velur Barolo og Baltasar er
mjög sáttur við það. Þetta vín
minnir mig að vissu leyti á Rioja,
uppáhaldsvínið mitt, sem er
spænskt.
Hvað ertu að bralla þessa daga-
na?
- Núna er ég önnum kafínn við að
að framleiða uppfærslu Loft-
kastalans á leiki-itinu A sama tíma
að ári, sem verður frumsýnt í lok
maí. Sá undirbúningur tekur
mikinn tíma. Einnig hef ég tekið
að mér leikstjórn á verkinu Leitt
hún skyldi vera
skækja, sem verð-
ur frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu í
haust. Undirbún-
ingur í kringum
það er rétt að byr-
ja. Svo má ekki
gleyma að ég leik í
Djöflaeyjunni
þeirra Friðriks
Þórs og Einars
Kárasonar.
Hvernig eru
sniglarnir?
- Þeir eru mjög
góðir. Eg myndi
gefa þeim fjórar
stjörnur af fimm mögulegum.
Mikill hEstamaður
Ég hef heyrt að þú sért mikill
hestamaður.
- Já, það er alveg rétt. Ég á hest-
hús með átta hestum og reyni að
ríða út þegar ég get. Ég hef farið í
nokkrar hestaferðir upp á hálend-
ið, en allt of fáar þó.
Hvenær byrjaðh• þú í hesta-
mennskunni?
- Ég var kornungur, þriggja ára
held ég. Við bjuggum í Lundi í
Fossvoginum og pabbi fór alltaf
með hestana í Gust. Þar dvaldi ég
mikið.
Hvað er svona heillandi við
hestamennskuna ?
- Það eru hestarnir.
Blaðamaður hefði mátt segja
sér það sjálfur. Hvað hyggstu
fyrir í framtíðinni?
- Ég stefni að því að gera aðeins
það sem ég hef áhuga á að gera.
Svo dreymir mig um að stofna til
búskapar, kaupa jörð nærri
borginni, svo ég geti sinnt öðru
um leið.
Með átta hundruðhestum?
býst við að innan
skamms verði karl-
maður kjörinn
Ungfrú heimur.
*
Ivar Páll Jónsson
vonar að svo verði
aldrei, en hann
ræddi við Baltasar
yfír kvöldverði á
La Primavera.
ekki alveg í hvaða átt hlutirnir
stefna, en það er kannski ágætt.
Þetta er að minnsta kosti ekki
steingelt. Þjóðleikhúsið hefur
gengið afar vel síðustu misseri og
sömuleiðis náttúrulega Loft-
kastalinn. Velgengni Loftkastal-
ans hefur sýnt að það er ýmislegt
mögulegt.
Þessi mikla velgengni hjá
Loftkastalanum, með Rocky
Horror, hefur vakið mikla athygli.
Bjuggust þið við henni fyrirfram?
- Við hefðum aldrei farið út í þetta
ef við hefðum ekki haft trú á að
þetta væri hægt. Margir héldu að
hann hefði bara verið byggður
fyrir Rocky Horror, svo ætti ekki
að gera meira. En við höfum mjög
mikið á dagskránni, leiksýningar
og aðrar uppákomur.
Hvaða álit hefur þú á banda-
rískri kvikmyndagerð?
- Margt er vel gert, en ég held að
fæstar þeirra mynda komi hingað
til lands. Þó get ég nefnt myndina
Dauðs manns göngu, eða „Dead
Man Walking“, sem mér finnst
alveg frábær. Tim Robbins leik-
stjóri tekur á viðfangsefninu,
dauðarefsingu, af stakri snilld.
Þjónninn kemur og spyr okkur
hvort við viljum eftirrétt. Við
kinkum kolli og úr verður að
Baltasar pantar ítalskan rjóma-
búðing með hindberjasósu. Hann
er beðinn um að gefa honum
einkunn.
- Þetta er hreint ágætt. Þessi
búðingur á fyllilega skilið að fá
þrjár og hálfa stjörnu í einkunn.
Kamst ekki í bíó
Hefurðu séð myndina Neðan-
jarðar, sem var valin besta mynd-
in í Cannes í fyrra?
- Nei, ég ætlaði einmitt að fara á
hana í kvöld, en þú komst í veg
fyrir það.
Attu þér einhverjar fyrirmyndir
úr leikarastéttinni?
- Ekki iyrirmyndir, frekar uppá-
haldsleikara. Þar má nefna Ro-
bert De Niro og fleiri.
Hvað fínnst þér um Pamelu
Anderson?
- Mér finnst hún best, langbest.
Mér finnst bæði hún og Madonna
frábærar. Þær sanna að maður
þarf ekki að vera neitt. Þetta er
allt búið til. Frægasta söngkona í
heimi getur ekki sungið og
kynþokkafyllsta kona heims er
afrek læknavísindanna og dverg-
ur í ofanálag. Það er sennilega
ekki langt í að karlmaður verði
valinn Ungfrú heimur.
Lúxusútgáfa
a
í tilefni sænskra daga og hversu vel íslendingar hafa
tekið Volvo 850, getum við nú boðið sérstaka lúxusútgáfu
af Volvo 850 sedan á einstöku tilboðsverði.
Tilboðið er fólgið í því að þú færð ffrían aukahlutapakka
að verðmæti hvorki meira né minna en 137.400 kr.
í þessum pakka er:
• Líknarbelgur fyrir farþega
• Fjarstýring fyrir samlæsingu
• Þokuljós
• SC-800 útvarp/segulband
• 8 hátalarar
• Armpúði að framan m/glasahaldara
• Volvo taumottur
- Minnst.
Er þessi draumur langt frá því
að verða að veruleika?
- Það held ég ekki. Draumar eiga
til að rætast. Að minnsta kosti
hefur það verið þannig hjá mér
hingað til.
Hvaða einkunn gefur þú kjúk-
lingnum?
- Mér finnst kjúklingurinn í
ágætu lagi, ep hann mætti vera
bragðmeiri. Ég vil hafa matinn
bragðsterkan og sérstakan. Ég er
líka lítið iyrir soðið grænmeti sem
meðlæti. En engu að síður er
þetta í fínu lagi.
Hveryrði einkunnin?
- Ég hugsa að þessi kjúklingur fái
þrjár stjörnur.
Nú varst þú íBarcelona á síðas-
ta ári, þar sem þú leikstýrðir
Hárinu. Hvernig var að vinna með
Spánverjunum ?
- Það var alveg stórfínt.
Spánverjar, eða Katalanar, eru
ólíkir íslendingum. Þeir eru
rólegri, blóðið rennur hægai’. Það
hefur sína kosti og galla.
Katalanar líta reyndar ekki á sig
sem Spánverja.
Ertu frægur á íslandi?
-Þú verður að svara því. Jú,
vissulega verð ég var við að fólk
kannist við mig.
Er það ekkert erfítt?
-Nei, ekki ef maður fær svona
ókeypis að borða. Nei, grínlaust
hef ég nú ekki orðið fyrir neinum
teljandi óþægindum. Það er einna
helst að drukkið fólk abbist upp á
mann. En það er ekkert sem held-
ur fyrir mér vöku.
Ekkert sjálfgefið
Hvað fínnst þér um leik-
húsheiminn eins oghann ernú?
- Það er afskaplega mikið að
gerast og gamla formið er að
riðlast. Það er ekkert sjálfgefíð
þessa stundina og ekki hægt að
ganga að neinu vísu. Menn vita
L....................
Morgunblaðið/Ásdís
VOLVO
BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST
Athugið að einnig er tilboð
á Volvo 850 station.
Volvo 850 sedan kostar með þessum aukahlutum auk ríkulegs
staðalbúnaðar frá aðeins: 2.498.000 kl'. Stgl*.
BRIMBORG
FAXAFENl 8 • SlMI 515 7010
einstöku tilboði