Morgunblaðið - 07.05.1996, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vanvirti leiði manns
sem hann banaði
ÁTJÁN ára piltur í Hafnarfirði hef-
ur viðurkennt að hafa vanvirt leiði
fyrrverandi sambýlismanns móður
sinnar. Pilturinn var dæmdur í
þriggja ára fangelsi í febrúar sl.
fyrir að hafa orðið manninum að
bana með því að aka á hann. Hann
hefur beðið afplánunar frá því að
dómurinn féll, en hóf hana í gær.
Leiðið í kirkjugarðinum við
Garðakirkju á Álftanesi var vanvirt
aðfaranótt sunnudags, kross á því
brotinn og blóm rifín upp. Þegar
skemmdarverkið uppgötvaðist féll
grunur á piltinn. Við yfírheyrslur
hjá rannsóknarlögreglunni í Hafn-
arfírði viðurkenndi hann verknað-
inn. Hann hafði þó ekki verið einn
að verki, heldur tók kunningi hans
þátt í skemmdarverkinu.
Pilturinn var dæmdur í þriggja
ára fangelsi þann 22. febrúar sl.
fyrir að hafa af ásetningi ekið á
manninn, þar sem hann var á hjóli
á götu í Hafnarfírði. Maðurinn kast-
aðist af hjólinu, skall í götuna 18
metrum framar og slasaðist svo
alvarlega að hann lést skömmu síð-
ar.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar í Hafnarfirði
hafði pilturinn beðið afplánunar frá
því dómur Hæstaréttar féll. í fram-
haldi af verknaðinum um helgina
var ákveðið að hann myndi hefja
hana í gær.
Aukið frelsi
ALÞINGI samþykkti í gær ný
mannanafnalög sem veita meira
frelsi í nafngiftum en fyrri lög.og
heimila m.a. svonefnd millinöfn.
Lagafrumvarpið, sem hefur ver-
ið nokkuð umdeilt, var samþykkt
með 33 atkvæðum gegn tveimur.
9 þingmenn sátu hjá. Stefán Guð-
mundsson, Framsóknarflokki, og
Hjörleifur Guttormsson, Alþýðu-
bandalagi, greiddu atkvæði gegn
frumvarpinu.
Hjörleifur og Svavar Gestsson,
Alþýðubandalagi, höfðu áður lagt
fram frávísunartilögu við frum-
varpið en drógu hana til baka.
Svavar lagði þess í stað fram breyt-
ingartillögu um að dómsmálaráð-
herra skuli stofna 3 manna nefnd
sem fylgist með framkvæmd lag-
anna og skili greinargerð haustið
í nafngiftum
1997. Þessi tillaga var samþykkt
og Svavar lýsti því yfír í kjölfarið
að hann myndi sitja hjá við at-
kvæðagreiðsluna um frumvarpið í
heild.
Sólveig Pétursdóttir þingmaður
Sjálfstæðisflokks sagði að verið
væri að samþykkja fijálslyndari
ramma um nafngiftir en gilt hefði,
og vonir stæðu til að þjóðin fengi
nú betra tækifæri til að móta
nafnasiði sína en innan ramma
fyrri laga.
Sagður hafa
notfært sér
ölvun stúlku
TUTTUGU og sex ára varnarliðs-
maður hefur verið kærður fyrir mis-
neytingu, en hann kom fram vilja
sínum við 15 ára stúlku úr Keflavík
aðfaranótt laugardagsins.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar í Keflavík hafði
stúlkan þegið far í bíl vamarliðs-
mannsins. Hann er sakaður um að
hafa notfært sér ölvunarástand
stúlkunnar og haft við hana kynmök.
Að loknum yfírheyrslum var mað-
urinn afhentur herlögreglunni á
Keflavíkurflugvelli. Rannsókn máls-
ins er ekki lokið.
Morgunblaðið/Ásdís
Forsætisráð-
herrar ákváðu
úrslitafundinn
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra Ís-
lands og Gro Harlem Brundtland for-
sætisráðherra Noregs áttu fyrir
skömmu samtal símleiðis að frum-
kvæði norska forsætisráðherrans, að
sögn Halldórs Ásgrímssonar utanrík-
isráðherra, og var á grundvelli þess
samtals ákveðið að utanríkis- og
sjávarútvegsráðherrar íslands og
Noregs hittust í London.
„Við áttum langan fund og má
segja að hann hafi leitt til þess að
haldið var áfram. Síðan áttu Norð-
menn fund með Rússum og Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra fund-
aði með Færeyingum. Allur þessi
aðdragandi varð til þess að þessi
samningur er kominn á og það er
ljóst og rétt að forsætisráðherrar
Noregs og íslands áttu hlut að þessu
máli, eins og eðlilegt var því að hér
var orðið um alvarlegt vandamál að
ræða í samskiptum þessara þjóða,“
segir Halldór.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála um viðskipti með osta
Samkeppnislög gilda
um sumar tegundir osta
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
ismála hefur staðfest úrskurð sam-
keppnisráðs um að Osta- og smjör-
sölunni beri að bjóða viðskiptavinum
sínum magnafslátt af þeim tegund-
um osta sem ekki eru verðlagðir af
opinberum verðlagsnefndum. Guð-
mundur Sigurðsson, forstöðumaður
samkeppnissviðs Samkeppnis-
stofnunar, telur að með úrskurðum
áfrýjunamefndar í þessu máli og í
máli eggjabænda á dögunum hafí
Annir á
dekkja-
verkstæðum
15. APRÍL síðastliðinn áttu allir
bílar að vera komnir af nagla-
dekkjum. Um helgina hóf lögregla
að svipast um eftir bilum sem enn
aka um göturnar á nöglum. Berg-
dís Una Bjarnadóttir vinnur á
dekkjaverkstæði Krissa í Skeif-
unni og þar eins og á öðrum
dekkjaverkstæðum hafa annir
verið miklar undanfarið.
línur skýrst um gildi samkeppnis-
reglna í búvöruviðskiptum.
Vegna kvörtunar Bónuss úr-
skurðaði samkeppnisráð um miðjan
febrúar síðastliðinn að mæla fyrir
um að Osta- og smjörsalan bjóði
viðskiptavinum sínum magnafslátt
af viðskiptum með þær vörur sem
ekki eru háðar hámarksverðlagn-
ingu samkvæmt búvörulögum.
Viðskiptakjör skuli vera almenn
þannig að fyrirtæki sem eigi í sams-
konar viðskiptum við fyrirtækið
njóti sömu kjara.
Deilt um gildi
samkeppnislaga
Osta- og smjörsalan áfrýjaði úr-
skurðinum til áfrýjunarnefndar
samkeppnismála. Meðal annars voru
færð fram þau rök að almennar
samkeppnisreglur gætu ekki átt við
þegar um væri að ræða opinber
afskipti af framleiðslu og talið ljóst
að verðlagning mjólkurvöru í heild-
sölu heyrði ekki undir samkeppnis-
lög. Samkeppnisráð túlkar lögin
hins vegar svo að samkeppnislögin
taki til viðskipta með landbúnaðar-
vörur, nema beinlínis sé kveðið á
um annað í búvörulögum.
í úrskurði sínum bendir áfrýjun-
amefndin á að nefnd sú sem verð-
leggur mjólkurvörur í heildsölu hafi
ekki haft nein afskipti af verðlagn-
ingu umræddra osta. Hún hafi ekki
tekið sérstaka ákvörðun um að und-
anskilja þessar ostategundir frá
verðlagningarákvæðum búvörulag-
anna. Við þessar aðstæður verði að
líta svo á að sérstök fyrirmæli um
verðlagningu ostanna samkvæmt
búvörulögum hafi ekki verið sett og
falli hún því undir samkeppnisregl-
ur. Staðfestir áfrýjunarnefndin úr-
skurð samkeppnisráðs.
Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs Sam-
keppnisstofnunar, telur að með
þessum úrskurði áfrýjunarnefndar
og nýlegum úrskurði hennar um
eggjaviðskipti hafí línur skýrst. í
báðum málunum töldu hinir kærðu
sig vinna eftir búvörulögum og efuð-
ust um gildissvið samkeppnislaga í
landbúnaðarmálum en áfrýjunar-
nefndin staðfesti úrskurði stofnun-
arinnar.
Tillögur stjórnar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur til skoðunar hjá ráðherra
Stofnunin verði lögð
niður í núverandi mynd
STJÓRN Heilsuvemdarstöðvar
Reykjavíkur leggur til að stofnunin
verði lögð niður í núverandi mynd.
Mæðra- og ungbarnaeftirlit flytjist
í auknum mæli til heilsugæslu-
stöðva en sameinist að öðru leyti
sambærilegum einingum á Land-
spítalanum. Heimahjúkrun flytjist
einnig til heilsugæslustöðva og þær
sameinist um miðstöð til að mæta
sveiflukenndu álagi heimahjúkrun-
ar. Aðrar einingar verði endur-
skipulagðar eða lagðar niður.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra hefur tillögurnar til skoð-
unar og hefur ákveðið að láta meta
hagkvæmni þeirra.
I tillögum stjórnar er lagt til að
mæðradeildin verði sameinuð svip-
aðri starfsemi á Kvennadeild rík-
isspítala og að ungbarnaeftirlit
verði með sama hætti sameinað
svipaðri starfsemi á göngudeild
Bamaspltala Hringsins. Flestar
skoðanir barna og barnshafandi
kvenna fari fram á heilsugæslu-
stöðvum en þangað komi sérfræð-
ingar á þessum sviðum til ráðgjaf-
ar. Bent er á að undanfarið hafí
átt sér stað mikil umræða um fram-
tíð mæðraverndar og ungbarna-
eftirlits í Reykjavík. Talið sé sjálf-
sagt og eðlilegt að samræmi sé í
fyrirkomulagi þjónustunnar.
Mikilvægt sé vegna vaxandi sér-
þekkingar að efla tengsl heilsu-
gæslunnar við sjúkrahúsþjónustu á
þessum sviðum og ekki síst að
tengja hana með skýrum hætti við
rannsóknarstarfsemi, sem fram fer
í Háskóla Islands og á stóru sjúkra-
húsunum.
Lítil deild
Fram kemur að atvinnusjúk-
dómadeildin sé mjög lítil og að henni
hafí verið sinnt í hlutastarfi í nokk-
urn tíma. Klíniski þáttur göngu-
deildarinnar eigi vel heima á göngu-
deildum sjúkrahúsa og á heilsu-
gæslustöðvum. Ráðgjafarþátturinn
og forvarnavinna tengist starfsemi
Vinnueftirlits ríkisins sem heyri
undir félagsmálaráðuneytið. Auk
þess verði eðlilega lögð áhersla á
umhverfisáhrif á heilsu á komandi
árum. Bent er á að Hollustuvernd
ríkisins sinni einnig svipuðum verk-
efnum.
Samleið með lungnadeild
á Vífilsstöðum
Lungna- og berkladeildin eigi
samleið með lungnadeild á Vífil-
stöðum. Tóbaksvarnir eru hluti af
starfsemi deildarinnar en þeim væri
best fyrir komið hjá Forvarnasjóði.
Fram kemur að berklavarnir eigi
að fara fram á heilsugæslustöðvum.
Hvað varðar kynfræðslumiðstöðina
sem rekin hefur verið á Heilsu-
vemdarstöðinni þá mætti einnig
koma henni fyrir hjá Forvamasjóði.
Stjórnin leggur til að starfsemi
skólatannlækna verði endurskipu-
lögð og tryggt að öll börn á skóla-
skyldualdri njóti lögboðinnar tann-
vemdar án tillits til efnahags og
áhuga foreldra. Skólaheilsugæsla
hafi flust til heilsugæslustöðvanna
og sé henni sinnt I skólum. Bent er
á að mikilvægi hennar aukist með
hverju ári, þar sem skólaheilsugæsl-
an sé oft besta leið heilbrigðisþjón-
ustunnar til að ná til barna og ungl-
inga í vanda.
Leggur stjórnin til að Samstarfs-
ráði heilsugæslunnar í Reykjavík
verði falið að gera tillögur um
hvernig tryggja megi að þessi þjón-
usta verði ekki látin víkja í framtíð-
inni.
Breytt í
forvarnamiðstöð.
Minnt er á að I ýmsum fyrri til-
lögum um framtíðarhlutverk
Heilsuverndarstöðvarinnar sé gert
ráð fyrir að stofnuninni verði breytt
í forvarnamiðstöð er þjóni landinu
öllu. Stjórnin telur að starfsemin
sem fer fram á Heilsuvemdarstöð-
inni sé ólík um margt þeirri starf-
semi sem fram myndi fara á mið-
stöð forvarna fyrir landið og að
betra sé að leggja niður Heilsu-
vemdarstöðina og hefja starfsemi
forvarnastöðvar á nýjum gmnni.
Skynsamlegt sé að setja á laggir
forvarnamiðstöð sem myndi þjóna
heilsugæslustöðvum og að innan
hennar yrðu ýmis ráð, nefndir og
stofnanir sem sinntu forvörnum,
eins og tóbaksvarnaráð, manneldis-
ráð, umferðarráð, áfengisráð o.fl.
Jafnframt yrði stofnsettur for-
varnasjóður, er fengi úthlutað ár-
Iega fjármagni á fjárlögum og út-
hlutaði til ýmissa verkefna á sviði
forvarna.
Stjórnin tekur ekki afstöðu til
tillagna um nýtingu á húsnæði
Heilsuvemdarstöðvarinnar en
minnir á að saga stofnunar og húss
er samtvinnuð og því ef til vill eðli-
Iegt að stefnt verði að því að húsið
hýsi áfram heilbrigðisþjónustu. Vel
mætti hugsa sér að þær einingar
sem áfram störfuðu yrðu til húsa í
Heilsuvemdarstöðinni.