Morgunblaðið - 07.05.1996, Side 14

Morgunblaðið - 07.05.1996, Side 14
I 14 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Mikil ásókn í sumar-' störf hjá bænum , ALLS bárust 613 umsóknir um sum- arstörf hjá Akureyrarbæ, frá fólki 17 ára og eldri og er það svipaður fjöldi umsókna og árið áður. Karl Jörundsson, starfsmannastjóri bæj- arins, segir að um sé að ræða hin almennu sumarstörf, afleysingar og flokkstjórn í unglingavinnu. Hann segir að af þessum 613 sem sóttu um vinnu, verði aðeins hægt að ráða um 360 manns, eða svipaðan ijölda og árið áður. Um 170 16 ára unglingar sóttii um vinnu hjá bænum og fá þeir all- ir vinnu í 210 klst., eða 7 tíma á dag í 6 vikur. Er þetta svipaður fjöldi umsókna og árið áður. Um 375 ungl- ingar á aldrinum 14-15 ára sóttu um vinnu nú en í fyrra voru umsókn- irnar 410 frá þessum aldurshópi. Allir þeir sem sóttu um vinnu í þess- um aldursflokki nú fá vinnu í sam- tals 122,5 klst., eða 3,5 klst. á dag í 7 vikur. Könnun í byrjun júní Karl segir að sl. tvö ár hafí verið gerð könnun í byijun júní á því hversu margir nemendur 17 ára og eldri hafi ekki fengið vinnu og hann gerir ráð fyrir að slík könnun fari einnig fram í ár. „í framhaldinu höfum við | boðið þessu skólafólki vinnu í sex | vikur og er ráðgert að fyrirkomuiag- ið verði eins í sumar. Við höfum tek- ið um 60 manns inn í þessa átaks- vinnu okkar og það er viðbúið að fjöldinn verði svipaður í ár.“ Karl segir að almennt sé fjöldi atvinnuumsókna nú svipaður og í fyrra en árið 1994 hafi eftirspurnin | verið mun meiri. Hann segir að verið ® sé að loka á ráðningar og þeir sem ekki fá vinnu, fái skriflegt svar um | það í vikunni. jj Morgunblaðið/Margrét Þóra LÖGREGLUMENN og félagar í Kiwanisklúbbnum fóru yfir reiðhjól barnanna og bentu á það sem betur mátti fara varðandi útbúnaðinn. Sjö ára börn fengu reiðhjólahjálma SJÓMANNADAGS VERÐLAUNAPENINGAR 0G - HEIÐURSKRÖSSAR Verðlaunapeningur kr. 350 m/áletrun og hálssnúru. Heiðurskross kr. 3.500 m/áletrun. Pantið tímanlega Gullsmiðir Sigtryggur & Pétur sf. Brekkugötu 5 - P.O.box 53 - 602 Akureyri Sími 96-23524 - Fax 96-11325 í Fimm sóttu um styrki til jafnréttismála FIMM umsóknir bárust um styrki til jafnréttismála sem jafnréttis- nefnd Akureyrarbæjar auglýsti. Listasumar á Akureyri sótti um 100 þúsund króna styrk til að fá til sýningar leikverkið „Konur skelfa“. Tímaritið Vera sótti um styrk til að ljalla um efnið „Konur og Akureyri", Safnfræðingafélagið sótti um styrk til að fá Margréti Guðmundsdóttur til að flytja fyrir- lesturinn „Líknarstörf kvenna“ og Félag áhugafólks um heimspeki á Akureyri um styrk til að halda tvo fyrirlestra, um kvennaguðfræði og kvennasiðfræði í samstarfi við Rannsóknarstofnun í kvennafræð- um við Háskóla íslands og loks sótti Megnea Marinósdóttir um styrk til útgáfu námsefnis byggðu á ritgerð hennar „Hugmyndin um eðlismun kynjanna á dögum fijáls- ræðis og jafnræðis." Samþykkt hefur verið að veita Listasumri, Safnfræðingafélagi Akureyrar og Félagi áhugahóps um heimspeki styrki samtals að upp- hæð 175 þúsund krónur. STEFÁN Jónsson formaður hjálmanefndar Kaldbaks að- stoðar Aldísi við að festa nýja reiðahjólahjálminn á sig. UM 250 sjö ára börn á Akur- eyri fengu um helgina að gjöf reiðhjólahjálma og öryggis- veifur á reiðhjól frá félögum í Kiwanisklúbbnum Kaldbak, en þetta er sjötta árið í röð sem klúbburinn gefur sjö ára börnum reiðhjólahjálma. Alls hafa akureyrskum börnum þannig verið gefnir um 1.500 hjálmar, samanlagt að verð- mæti rúmlega 4 milljónir króna. Hjálmarnir voru afhentir við verslunarmiðstöðina Sunnuhlið og var margt um manninn á svæðinu. Lögreglan ræddi við unga hjólreiðafólkið og skoð- aði reiðhjólin og leiðbeindi einnig um rétta notkun hjálm- anna og hvernig best væri að festa veifurnar á hjólin. Vorhret KRAKKARNIR í öðrum bekk í Síðuskóla voru ekkert óánægðir með snjóinn sem blasti við þeim í gærmorgun, | en þeir voru að Ieika sér á lóð- inni við Glerárkirkju í frímín- útunum í gær. Snjóinn var ekki lengi að taka upp og síðar í vikunni er gert ráð fyrir sunnanátt þannig að þetta vor- hret stendur væntanlega stutt. . ------------» ♦ ♦------ Heilsufar p frekar slæmt HEIMILISLÆKNAR á Akureyri hafa haft í nógu að snúast síðustu vikur enda hefur heilsufar bæj- arbúa verið frekar siæmt og mikið um víruspestir í gangi. Friðrik g Vagn Guðjónsson, yfirlæknir á " Heilsugæslustöðinni á Akureyri, segir að ástandið hafi verið svipað | allan aprílmánuð en sé heldur að | skána. Friðrik Vagn segir að vírusteg- undir hafi verið á ferðinni; slæmt kvef, einhver flenusbróðir og magakveisa. Ekki sé um hættuleg- ar pestir að ræða en þó hafi marg- ir legið veikir heima síðustu vikur. -------»■ ♦ ♦------- Atvinnulaus- um fækkar ATVINNULAU SIR á Akureyri voru 374 þann 1. maí, 174 karlar og 200 konur og hafði fækkað um 40 frá 1. apríl. Á sama tíma í fyrra voru 617 skráðir atvinnu- lausir. ( Af þeim sem skráðir eru nú eru 86 með hlutastarf og fá atvinnu- * leysisbætur til viðbótar. Atvinnu- : leysisdagar í apríl sl. voru 7.802 I talsins en 10.720 í apríl 1995. Morgunblaðið/Kristján Skipulagsnefnd ^Akureyrarbæjar Kynningarfundur um DEILISKIPULAG MIÐBÆJAR Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar l)oðar til kynn- ingarfundar um tillögu að deiliskipulagi norður- hluta Miðbæjar þriðjudaginn 7. inaí nk. kl. 20.30 í húsi aldraðra, Lundargötu 7. Skipulagssvæðið nær frá Hofsbót í suðri að íþróttavelli í norðri. Greint verður frá helstu markmiðum með endurskoðun deiliskipulagsins og meginatriðum tillögunnar, m.a. hugmyndum um aukna íhúðarhyggð í miðhænum. Fundurinn er ölluin opinn, en hagsmunaaðilum á svæðinu, húseigendum, íhúum og eigendum fyrirtækja, er sérstaklega bent á að kynna sér tillöguna og taka þátt í umræðum um hana. Tillagan liggur jafnframt frammi, almenningi til sýnis, á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar, Geisla- götu 9, 3., hæð, til þriðjudagsins 28. maí 1996. Þeir, sem þess óska, geta kynnt sér tillöguna og gert við hana formlegar athugasemdir. Skipulagsstjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.