Morgunblaðið - 07.05.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996 19
VIÐSKIPTI
Fjárhagsleg endurskipulagning hjá KÁ farin að skila árangri
Gertráð fyrir 17 millj.
króna hagnaði í ár
GERT er ráð fyrir því að KÁ
muni skila rúmlega 17 milljóna
króna hagnaði af reglulegri starf-
semi á þessu ári í kjölfar þeirrar
endurskipulagningar sem fram
hefur farið á rekstri fyrirtækisins,
en það hefur verið rekið með tapi
undanfarin ár. Tap síðasta árs
nam sem kunnugt er 29 milljónum
króna. Tap á fyrstu 3 mánuðum
þessa árs nam 21 milljón, rúmlega
3 milljónum minna en áætlað hafði
verið, en jafnan er tap af rekstri
félagsins á þessum árstíma, að því
er fram kom í ræðu Þorsteins
Pálssonar, framkvæmdastjóra
KÁ, á aðalfundi félagsins sl. föstu-
dag.
Þorsteinn gerði grein fyrir þeirri
endurskipulagningu sem átt hefur
sér stað í rekstri KA frá ársbyrjun
1995. Seldar voru rekstrareining-
ar sem samtals veltu um 350
milljónum af rösklega 2,2 milljarða
veltu ársins 1994. Þetta svarar til
um 15% af veltu félagsins það ár.
Engu að síður jókst velta KÁ árið
1995 um 10% og nam rúmum 2,4
milljörðum á síðastliðnu ári. Ef
tekið er tillit til sölu rekstrarein-
inga nam veltuaukningin tæpum
30%.
Sagði Þorsteinn að efnahagur
félagsins hefði batnað nokkuð.
Heildarskuldir hefðu lækkað um
tæpar 200 millj. og hefðu verið
1.183 millj. um áramót. „Þrátt
fyrir nokkurn bata á árinu eru
skuldir félagsins miklar og þarf
að stefna markvisst að lækkun
þeirra," sagði Þorsteinn. „Einnig
er óviðunandi að veltufjárhlutfall
sé undir 1,0 og þarf markvisst að
hækka það.
Fjárfest fyrir 120
milljónir í fyrra
Þorsteinn gerði einnig ítarlega
grein fyrir þeirri eignasölu og fjár-
festingum sem fram hefðu farið á
síðasta ári. Sagði hann að fjöl-
margar eignir sem nýst hefðu tak-
markað eða ekkert í rekstrinum
hefðu verið seldar. Andvirði þeirra
hefði síðan verið notað til greiðslu
skulda og fjárfestinga.
Sagði Þorsteinn að fjárfestingar
fyrirtækisins hefðu numið 120
milljónum króna á síðastliðnu ári,
þar af hefðu 50 milljónir runnið
til hlutafjárkaupa. 40 milljónum
hefði verið varið í hlutabréf í SG-
Byggingavörum í tengslum við
sameiningu þess og Bygginga-
vörudeildar KÁ. Þá hefðu einnig
verið keypt hlutabréf fyrir 5 millj-
ónir króna í 11-11 verslunarkeðj-
unni og ætti KÁ nú 63% hlutafjár
11-11. „Þær verslanir nýtast okk-
ur mjög vel við sameiginleg inn-
kaup, en velta 11-11 verslananna
var u.þ.b. 600 milljónir króna á
síðasta ári.“
Þorsteinn vék lítillega að sam-
einingunni við KR. Sagði hann að
farið yrði út í mikla uppstokkun á
fjárhag þess, í samvinnu við lána-
drottna félagsins. Reynt hefði ver-
ið að gæta þess að fjárhagsstaða
KÁ versnaði ekki við sameiningu
félaganna tveggja, en hins vegar
væri ljóst að til skemmri tíma
myndi hún valda einhverri röskun
á starfsemi KÁ og fjárhagsstöðu.
Til lengri tíma væri þetta hins
vegar báðum félögunum til hags-
bóta.
Ný umferðarmiðstöð opnuð
um mánaðamótin
Þorsteinn sagði að framtíðar-
horfur félagsins væru góðar eftir
þessa endurskipulagningu í
rekstri. Áætlanir gerðu ráð fyrir
einhverjum hagnaði á þessu ári
og gæfu 3 mánaða tölurnar góð
fyrirheit um það. Hins vegar væri
ljóst að samkeppni í verslun á
Selfossi færi vaxandi og því væri
ljóst að félagið þyrfti að standa
sig enn betur en aðrir keppinaut-
ar.
Lítið yrði um fjárfestingar hjá
félaginu á þessu ári en kaupin á
meirihlutanum I Fossnesti myndu
þó hafa talsverð áhrif á reksturinn
og styrkja ferðaþjónustusvið fé-
lagsins, enda velti rekstur þess á
þriðja hundrað milljón krónum á
ári. Þá væri nú unnið að því að
reisa þar umferðarmiðstöð, í sam-
vinnu við alla sérleyfishafa á Sel-
fossi, og væri stefnt að opnun
hennar um hvítasunnuhelgina.
Fyrsta stjórn KÁ eftir samein-
inguna við KR var kosin á aðal-
fundinum. Kjörtími þeirra Arndís-
ar Erlingsdóttur og Garðars Hann-
essonar var útrunninn og í stað
þeirra voru kjörnir tveir fulltrúar
Rangæinga, þeir Bjarni Jónsson
og Jónas Jónsspn. Auk þeirra
skipa stjórn KÁ þeir Erlingur
Loftsson, Þorfinnur Þórarinsson,
Erlendur Daníelsson, Garðar Ara-
son og Valur G. Oddsteinsson.
NÝKJÖRIN stjórn KÁ ásamt framkvæmdasljóra. F.v. Hákon
Halldórsson, áheyrnarfulltrúi starfsmanna, Valur G. Oddsteins-
son, Jónas Jónsson, Garðar Arason, Erlingur Loftsson formaður,
Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri, Erlendur Daníelsson, Þor-
finnur Þórarinsson og Bjarni Jónsson.
Iðnlánasjóður
Umhverfis-
verðlaun veitt
VERND, umhverfisviðurkenn-
ing Iðnlánasjóðs, verður veitt
í 5. sinn á ársfundi sjóðsins á
morgun. Nefnd skipuð fulltrú-
um Iðnlánasjóðs, umhverfis-
ráðuneytis og Vinnueftirlits
ríkisins velur fyrirtækið.
Til þessa hafa hlotið þessa
viðurkenningu Delta hf. 1992,
Hekla hf. 1993, Sæplast hf.
1994 og Sláturfélag Suður-
lands 1995. Viðurkenningin
nú er listaverk eftir Magnús
Tómasson, sem unnið er sér-
staklega fyrir Iðnlánasjóð.
Tónlistarvor í Fríkirkjunni
Tónleikar þriðjudag,
7. maí, kl. 20.30.
Flytjendur Auður Hafsteinsdóttir, fiðla.
Ilka Petrova Benkova, þverf lauta.
Pavel Smid, orgel.
Violeta Smid, orgel.
1'
f ð
Fyrsta Halifax-fiugið farið 14. maí nk.
Nýtt til að efla
viðskiptatengsl
ÁKVEÐIÐ hefur verið að nýta fyrsta
flug Flugleiða til Halifax þann 14.
maí til kynningar á viðskiptum ís-
lenskra og kanadískra fyrirtækja.
Hátt í tuttugu íslensk fyrirtæki, eink-
um í útflutningi eða alþjóðaviðskipt-
um, munu senda fulltrúa utan, fyrir
milligöngu Verslunarráðs íslands og
Amerísk-íslenska verslunarráðsins.
2-4 sæti eru enn laus, segir í frétt
frá Verslunarráði.
Áætlunarflugið kemur til viðbótar
áætlunarsiglingum íslenskra skipafé-
laga til Halifax. Mörg íslensk fyrir-
tæki hafa nýtt sér aðstöðuna þar,
þ.á.m. Marei hf., sem hefur rekið
útibú þar í 11 ár. Þau fyrirtæki sem
nota sér flugið hafa flest reynslu af
viðskiptum á Nova Scotia.
Meðal farþega verður forseti ís-
lands, sem mun opna flugáætlunina
formlega við komuna til Halifax.
Dagana 22.-24. maí verða fulltrúar
opinberra aðila á Nova Scotia og
íjöldi fyrirtækja þar með kynningu
á Hótei Sögu og í Háskólabíói.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
AÐALFUNDUR
Aöalfundur Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga
verður haldinn fimmtudaginn 9. maí 1996, kl. 16.00.
Fundarstaður: Þingholt, Hótel Holti.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Atkvæðagreiðsla um tillögur um siðareglur félags-
manna FVH.
3. Halldór Blöndal samgönguráðherra, flytur erindi:
Samkeppni á fjarskiptamarkaði.
Stjórn FVH.
Bresk vika hjá Samskipum
Dagana 6.-10. maí verða fulltrúar okkar á
Bretlandseyjum staddir hér á landi í tilefni breskrar
viku hjá Samskipum.
Ása Einarsdóttir framkvæmdastjóri Samskip Ltd.
sem staðsett er í Hull, mun verða hjá okkur þessa
daga, ásamt þeim Kristjáni Pálssyni sölustjóra og
Lynn Scott fulltrúa.
Phil Hall starfsmaður frá Hull Economic Society
kemur í heimsókn föstudaginn 10. maí. Þeir sem
vilja íhuga viðskipti við fyrirtæki í Hull og Humberside
svæðinu ættu að koma og hitta Phil til pess að fá hjá
honum upplýsingar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í söludeild
Samskipa í síma 569 8300
SAMSKIP
Holtabakka v/Holtaveg, 104 Reykjavík
Sími: 569 8300 - Fax: 569 8349
Hittu okkar ^fólk frá
Bretlandi á Islandi í
þessari viku
Kristján Pálsson
Ása Einarsdóttir