Morgunblaðið - 23.05.1996, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Háskólabíó
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
LÁN í ÓLÁNI
... HÉgfcdsktirti þaa
FRUMSYj
Hún braut.. Jj
brotak®
Antony 1
★★★ ó.H.T.
„Einstakle
*** HK
JVIunið ‘12 'jjju cij
i)iú 'ATIA
arides
tJStrictly
MAOEIEINE
RffllOUifX
Sýnd kl. 9. B.i. 16 ára.
Sýningum fer fækkandi,
Besta franska myndin 1995:
Kostuleg rómantísk gamanmynd frá Ben Lewin (The Favor,
The Watch and The Very Big Fish) um sérlega óheppið par
sem lendir í undarlegustu raunum viö aö ná saman. Lúmsk
áströlsk mynd í anda Strictly Ballroom og Brúðkaups Muriel,
Sýnd kl. 7 og 9.
Tilboð kr. 400
Sýnd kl. 7. B.i. 16 ára.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
Laugarásbíó frumsýnir
myndina Tölvurefir
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn-
inigar á kvikmyndinni Tölvurefir eða
„Hackers“ með Johnny Lee Miller,
Ángelina Jolie og Fisher Stevens í
aðalhlutverkum. Leikstjóri er Ian
Softley.
Ef merkin „Cereal Killer",
„Phantom Phreak", „Crash
Óverdrive“ birtast á tölvuskjánum
þínum máttu vita að allt er um
seinan, það er búið að „hakka“ þig.
Myndin segir frá nokkrum ungum
tölvusnillingum sem stunda þann
vafasama leik að bijótast inn í ann-
arra manna tölvur og „hakka“ þær
í spað af einskærri ánægju. Dade
Murphy og Kate Libby hafa eldað
grátt silfur saman í langan tíma
og neyðast til að semja vopnahlé
og snúa bökum saman þegar þau
hitta Pláguna, eiturnsjallan hakk-
ara sem notar öflugan tölvubúnað
risafyrirtækis til að millifæra illa
fengið fé inn á eigin reikning. En
það versta er að Plágan notar kunn-
áttu sína til að klína sökinni á Dade,
Kate og vini þeirra sem þurfa nú á
öllu sínu að halda til að snúa spilinu
FISHER Stevens í hlutverki
sínu í myndinni Tölvurefir.
við. En það er hægara sagt en gert.
Þetta er æsispennandi og flókin
barátta þar sem taktíkin byggist á
snilli, kunnáttu og hraða.
Bíóborgin forsýnir
myndina Trufluð tilvera
BÍÓBORGIN forsýnir í kvöld,
fimmtudagskvöldið 23. maí kl. 21
bresku kvikmyndina Trufluð tilvera
eða „Trainspotting“ einhveija um-
töluðustu kvikmynd Breta á síðustu
áratugum. Höfundar eru þeir hinir
sömu og stóðu á bak við gaman-
hrollvekjuna „Shallow Grave“, vin-
sælustu mynd Breta á síðasta ári,
segir í fréttatilkynningu.
Myndin er byggð á samnefndri
metsölubók Irvine Welsh, sem síðar
færði verkið upp á svið og fjallar
um ungt fólk í Skotlandi nútímans,
fólk sem lært hefur að bjarga sér
á götunni og í harðri lífsbaráttu á
tímum glæpa og atvinnuleysis. Á
afar raunsæjan hátt er sagt frá lífi
þessa fólks og ekkert dregið undan.
Eiturlyf, kynlíf og baráttan fyrir
brauðinu er það sem máli skiptir
og ádeilan á kerfið og viðvarandi
ástand mála á Bretlandseyjum dylst
engum.
„Trainspotting" hefur slegið í
gegn þar sem hún hefur verið tekin
til sýninga og sömu sögu má segja
um tónlistina úr myndinni sem kom-
in er út á plötu. Þar má nefna flytj-
endur eins og Blur, Damon Albam,
Pulp, Brian Eno, Iggy Pop, Primal
Scream, New Order, Lou Reed og
Underworld, segir ennfremur í
fréttatilkynningu.
SNIGLABANDIÐ Ieikur í Hreðavatnsskála á sunnudag. SALKA leikur í Valaskjálf föstudagskvöld og
sunnudagskvöld á Kaffi Reykjavík.
■ HREÐAVATNSSKÁLI Hljómsveitin
Sniglabandið verður með stórdansleik í
Hreðavatnsskála sunnudaginn 26. mai,
hvítasunnudag. Er þetta fyrsti stórdansleik-
ur sumarsins í Hreðavatnsskála og mun
Sniglabandið koma mikið við sögu i dans-
leikjahaldi þar. Hljómsveitin mun brydda
upp á gestasöngvurum á dansleikjum sínum
og nú á sunnudag er það söngkonan
Andrea Gylfadóttir sem treður upp með
hljómsveitinni.
■ HÓTEL HVERAGERÐI Á föstudags-
kvöld verður haldin stórskemmtun frá kl.
22-3 þar sem m.a. verður hárgreiðslusýn-
ing, förðun og Laddi rifjar upp uppvaxtarár-
in i Hveragerði á sinn hátt. Hljómsveitin
Pass frá Mars frumflytur nýtt Hveragerði-
slag sem heitir Blómabærinn Hveragerði
og er það samið í tilefni 50 ára afmælis
Hveragerðis.
■ ÚTITÓNLEIKAR VIÐ HVERAKAUP
verða haldnir mánudaginn 27. maí kl. 15
við Hverakaup í Hveragerði. Hljómsveitim-
ar sem koma fram eru Skítamórall, Riff
Redhead, Pass frá Mars og fleiri hljóm-
sveitir taka lagið. Ókeypis tónleikar.
■ GJÁIN SELFOSSI Á föstudag og
sunnudag leikur hljómsveitin Karma og á
föstudeginum kemur ennfremur fram
hljómsveitin Riff Redd Hedd. Meðlimir
Karma eru Ólafur Þórarinsson, Guðlaug
Ólafsdóttir, Helena Káradóttir, Páll
Sveinsson, Ríkharður Arnar og Árni
Ólafsson sem tekur sæti Jóns Ómars Erl-
ingssonar næstu vikurnar.
■ BUBBI MORTHENS er á tónleika-
ferðalagi sínu um landið og á föstudags-
kvöld leikur hann í Bæjarbíói, Hafnarfirði
kl. 21 og í Bíóhöllinni, Akranesi, laugar-
dagskvöld kl. 21. Með Bubba leikur Þorleif-
ur Guðjónsson, bassaleikari.
■ STJÓRNIN verður á stórsveitaballi í
félagsheimillinu Ýdölum í Aðaldal föstu-
dagskvöld. Stjómin hefur nú lokið við hljóð-
ritun á nýjum geisladiski og mun hann
koma í verslanir í lok júní. Eftir miðnætti
á hvítasunnudag leikur Stjómin í Sjallanum
á Akureyri frá kl. 24-4.
■ SVEITASETRIÐ BLÖNDUÓSI Á
föstudagskvöld verður boðið upp á kvöld-
verð og dansleik með hljómsveitinni Mýr-
anda frá Akranesi. Verð er 1900 kr. með
dansleik og er 18 ára aldurstakmark. Nafn-
sklrteini.
■ NÆTURGALINN Hljómsveitin Útlag-
ar leikur föstudagskvöld og aðfaranótt
mánudags, annars í hvítasunnu, en þá er
opið til kl. 4.
■ FÓGETINN Á fimmtudagskvöld leikur
trúbadorinn Halli Reynis og á föstudags-
kvöld leikur hljómsveitin Rollon. Á laugar-
dagskvöld er opið til kl. 24 og á sunnudag
er opnað á miðnætti til kl. 4 en þá leikur
hljómsveitin Rollon. Á mánudags- og
þriðjudagskvöld leikur trúbadorinn Jón Ing-
ólfsson og á miðvikudagskvöld leikur dúett-
inn Strákarnir hennar Önnu.
■ KAFFI REYKJAVÍK Á fimmtudags-
kvöld leikur hljómsveitin KOS og á föstu-
dagskvöld er það hljómsveitin Hunang. Á
laugardag er opið frá kl. 12-23.30 og á
sunnudag er opnað kl. 24' og opið til kl. 4
Skemmtanir
þar sem hljómsveitin Salka leikur. Mánu-
dagskvöld er svo opið frá kl. 14-3 en þá
leikur hljómsveitin KOS.
■ SSSÓL leikur föstudagkvöld í Njálsbúð.
Hljómsveitin hefur upp á síðkastið verið að
ganga frá fimm nýjum lögum sem koma út
í sumar. Með í ferðinni að þessu sinni eru
hljómsveitimar Funkstrasse og Skítamór-
all en hún hefur lokið upptökum á sinni
fyrstu plötu sem er væntanleg til landsins
á næstu vikum. DJ. Glamour þeytir lögum
út í sal á milli atriða og heyrst hefur að
hin nýstofnaða pönkhljómveit Rass verði
með óvænta uppákomu.
■ SÓL DÖGG leikur á hvítasunnuballi í
Logalandi föstudagskvöld. Hljómsveitin er
á þeytingi um landið og verður það I sum-
ar. Þess má geta að strákamir voru að
senda frá sér annað lag er nefnist KOX á
útvarpsstöðvarnar af væntanlegri plötu
þeirra sem kemur út í júni. Rútuferðir verða
frá BSÍ, Akranesi og Borgarnesi. Sól Dögg
leikur svo á hvítasunnudaginn, 26. maí, á
skemmtistaðnum Bíókaffi, Siglufirði frá
kl. 24-4.
■ TWIST & BAST sem nýlega sendi frá
sér plötuna Uppstökk veðrar á ferðinni nú
um hvítasunnuhelgina. Á föstudagskvöld
leikur hljómsveitin í Sæluhúsinu á Dalvík
og eftir miðnætti á hvítasunnudag á Kaffi
Krók, Sauðárkróki. Hljómsveitina skipa:
Sævar Sverrisson, Magni Gunnarsson,
Jósep Sigurðsson, Jóhann Geir Árnason,
Gestur Pálsson og Jón Kjartan Ingólfs-
son.
■ SIXTIES leikur á dansleik í Sjallanum
ísafirði föstudagskvöld en aðfaranótt ann-
ars i hvítasunnu, verða þeir félagar aftur
með dansleik í Sjallanum.
■ HÓTEL ÍSLAND Á föstudagskvöld
verður haldin Fegurðarsamkeppni ís-
lands 1996. Að þessu sinni keppir 21
stúlka að því að vinna hinn eftirsótta titil
en auk þess verður valin Fordstúlkan úr
hópnum. Húsið opnað kl. 19 og er tekið á
móti gestum með fordrykk. Stúlkunar
koma þrisvar sinnum fram, á tískusýningu,
í sundbolum og í samkvæmiskjólum en auk
þess skemmta dansarar frá Dansskóla Jón
Péturs og Köru, Bjarni Arason skemmtir
o.fl. Kynnar kvöldsins verða Unnur
Steinsson og Hinrik Ólafsson. Lokað
laugardag.
■ THE DUBLINERS Á föstudagskvöld
verður írsk stemmning frá kl. 12-3, lokað
laugardag og sunnudag en opið mánudags-
kvöld frá kl. 15-3.
■ TRES AMIGOS leika á hvítasunnudans-
leik á Hótel Venus í Hafnarskógi við
Borgarnes sunnudagskvöld frá kl. 24-4.
■ SALKA leikur á stúdentaballi í Vala-
skjálf föstudagskvöld og sunnudagskvöld á
Kaffi Reykjavík. Hljómsveitin er nýstofnuð
og hana skipa: Þór Breiðfjörð, Tómas
Tómasson, Björgvin Bjarnason, Ólafur
Hólm og Georg Bjarnason. Hljómsveitin
leikur melóldískt rokk en fyrirliggjandi er
mikið af frumsömdu efni og er plata í bígerð.
■ BYLTING er búin að vera í fríi undan-
farnar vikur en er nú að fara á fullt og
verður á fullu í allt sumar. Undanfarna
daga hafa Byltingarmenn verið I stúdiói
að taka upp nokkur ný lög sem koma til
með að hljóma á útvarpsstöðvunum nú í
sumar. Þeir byrja sumartúrinn um næstu
helgi á Skagaströnd f Kántrýbæ á föstu-
dagskvöldið og verða á Hótel Mælifell á
Sauðárkróki á sunnudagskvöldið.
■ FEITI DVERGURINN Á föstudags-
kvöld leikur Jón Víkingsson og er opið frá
kl. 16-3. Á laugardag er opið frá kl.
14-23.30, á sunnudag er opnað á mið-
nætti og er opið til kl. 4 þar sem Jón Vik-
ingsson leikur og á mánudag er opnað kl.
14.
■ NAUSTKJALLARINN Kántrýhelgi
verður í Naustkjallaranum þar s_em Anna
Vilhjálms og hljómsveit leika. Á fimmtu-
dags- og mánudagskvöld er opið frá kl.
10-1, föstudagskvöld kl. 10-3 og á sunnu-
dag frá kl. 24-4.
■ RÓSENBERGKJALLARINN Hljóm-
sveitin Áklæði leikur rokktónlist föstudags-
og sunnudagskvöld. Hljómsveitin er nýleg
og hana skipa: Dóri, söngur, Maggi, bassi,
Júlíus, trommur og Siggi gítar. Gestaleik-
ari verður Tómas Jóhannesson, trommu-
leikari. Á mánudagskvöld verða svo tónleik-
ar með hljómsveitinni Leiksvið fáranleik-
ans í tilefni nýútkominnar plötu þeirra
Martraðir.
■ CAFÉ OLIVER Þeir Stefán Hilmars-
son og Eyjólfur Kristjánsson leika
fimmtudagskvöld. Á föstudags- og sunnu-
dagskvöld er svo leikin diskótónlist.
■ KAKTUS 96 Haldnir verða útitónleikar
á Víðistaðatúni sem nefnast Kaktus 96
fimmtudagskvöld kl. 19 þar sem hinir
ýmsu tónlistarmenn Hafnarfjarðar munu
troða upp. Þeir sem koma fram eru:
Botnleðja, Stolía, Á túr, Pppönk, Roll-
on, Dallas, Gullý, Jón Hallur, Ifö, Dizzy
mint family, The big blue, Aumingja-
fólkið, Brilli Larsen, Flasa, The fun
kids og Pez.
■ SJALLINN Á AKUREYRI stendur í
samvinnu við Stöð 3 fyrir beinni útsend-
ingu á Fegurðarsamkeppni íslands sem
haldin er á Hótel íslandi 24. maí nk. Út-
sending hefst kl. 23.30 en húsið opnað kl.
19 og hægt verður að kaupa pizzur frá
Greifanum en þær þarf að panta. Eftir að
úrslit hafa verið kynnt verður diskótek. Á
sunnudagskvöld leikur hljómsveitin
Stjórnin.
■ VINIR VORS OG BLÓMA leika föstu-
dagskvöld á Langasandi á Akranesi þar
sem aldurstakmark er 18 ár. Á sjálfan hvíta-
sunnudaginn leikur hljómsveitin í Félags-
heimilinu Skildi rétt fyrir utan Stykkis-
hólm. Þar verður opið frá kl. 24-4.
■ RJÚPAN sem skipuð er þeim Skúla
Gautssyni og Karli Olgeirssyni leikur
fimmtudagskvöld á Torginu, Akureyri.
■ BLÚSBARINN Á fösutdagskvöld
skemmtir Kvartett Dan Cassidy og á
sunnudagskvöld skemmta Rúnar Júliusson
og Tryggvi Hiihner.