Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ
38 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996
Vid ætliuii að opua vinalcgan, lítimi cu
pcrsóuulcgaii leikskóla áyrir 16 liöru.
Við Ictjyiiiii ákcrslu á:
• (iæ^i oi< pcrsónulcga |>jóiiii*»(ii.
• IVáiö saniKÍarf við forclclra.
• Efla sjálhuiyud og sjálfslicái l>;iriisins.
• Skö|»iiiiar2>>lcöi.
• Skýra lcikskólastcfnu.
Alilur 2-(i ára.
Kyuningarfuiiduur og iiuirituu
■H laugardagiiiii 1. jiuii kl. 11.00
Eiimii* uý Icikskóladcilcl Iiaustiö 19í)7
Leikskólinn Höfn
Marargötu 6, 101 Reykjavik, sími 552 3222.
Ragnar Sær Ragnarsson,
leikskólakennari.
AÐSENDAR GREINAR
Segist sammála
en er ósammála
í GREINARGERÐ sem Jón Baldvin
Hannibalsson alþingismaður og for-
maður Alþýðuflokksins sendi frá sér
tii skýringa á því hversvegna hann
hætti við framboð til forsetaembætt-
is,og sem birtisti í Morgunblaðinu
22. maí, vitnar hann meðal annars
í grein sem Sigurður Líndal prófess-
or birti í Skírni og nefnist: „Stjórn-
skipuleg staða forseta íslands“.Jón
Baldvin virðist hafa misskilið niður-
stöður lagaprófessorsins eða séð
ástæðu til þess að snúa þeim á haus.
„Ég er sammála Sigurði Líndal
um það, að það er ekki heil brú i
því að efna til þjóðkjörs um valda-
lausan forseta, þar sem ekki er um
annað að kjósa en persónulega eigin-
leika“, segir Jón Baldvin.
Sigurður Líndal er hinsvegar alveg
ósammála Jóni Baldvin um að sá
síðarnefndi sé sammála sér, ef marka
má niðurstöðurnar í áðurnefndri
Skírnisgrein, en þær eru þessar:
„Af því sem nú hefur verið rakið
má draga þessar ályktanir:
Forseti Islands er ekki valdalaust
sameiningartákn.
Forsetinn þarf atbeina ráðherra
til flestra beinna athafna, en hins
Gangi ykkur vel
á morgun strákarl
McDonald's
á Islandi styður ykkurl
STYÐJUM KSÍ!
Allir semkaupa miða á lands-
leikinn á milli íslands og Makedóníu
já ajsláttarmiða á McDonald's. Förum
á leikina. Styðjum okkar menn!
McDonalds á íslandi er
formlegur veitingastaður KSI
1996-97.
Lyst ehf hefur ákveðið að McDonald’s
á íslandi verði einn af aðalsamstarfs-
aðilum Knattspyrnusambands íslands
næstu tvö ár.
í samningnum felst m.a. að
McDonald’s á íslandi verður form-
legur veitingastaður KSÍ, og verður
afsláttarmiðum á McDonald’s dreift
með aðgöngumiðum á alla heima-
landsleiki íslands á þessum tíma. í
tengslum við einn landsleik á hverju
ári verður svo McDonald’s getraun þar
sem verðlaunin eru ferð með íslenska
landsliðinu. Landsliðsmenn munu
einnig mæta á McDonald’s og gefa
eiginhandaráritanir á plaköt með
íslenska landsliðinu sem gefin verða út
af KSÍ og McDonald’s.
MiUjóna króna styrkur.
Áœtlað er að Lyst ehj jyrir hönd
McDonald's á íslandi leggi jram
talsvert fé í þessu samstarji.
Styrkurinn er i formi beinna
peningagreiðslna og kostnaðar við
auglýsingar sem tilheyra samn-
ingnum og íformi matarúttekta hjá
veitingastöðum McDonald's á
Suðurlandsbraut og Austurstræti.
LYST
Stuðningur við barna- og
unglingastarfið.
McDonald’s leggur mikla áherslu á
stuðning við knattspyrnu barna- og
unglinga. Kjartan Orn Kjartansson
framkvæmdastjóri Lystar ehf. segir: „Ég
og samstarfsfólk mitt lítum á íþróttir sem
mikilvægt uppeldis- og forvamarstarf og
viljum leggja okkar af mörkum til
þjóðfélagsins. Við ætlum þess vegna að
veita bœði liðum og einstaklingum sérstök
McDonald’s verðlaun. Verðlaunin eru
matarboð og verðlaunapeningur. Á 15
mótum sem haldin verða fyrir yngstu
flokkana víða um land fcer prúðasta liðið í
hverjum aldursflokki verðlaun og í lok
keppnistímabilsins verða veitt ástundunar-
og prúðmennskuverðlaun til eins leikmanns
í hverjum yngri aldursflokki bæði karla og
kvenna á íslandsmóti. Það er þátttakan og
góður íþróttaandi sem er leiðarljósið."
Alltaf gæði • Alltaf góður matur • Alltaf góð kaup
Ef frekari upplýsinga er óskad, skrifið þá góðfúslega til: LYST ehf.
Pósthólf 52, 121 Reykjavik. LYST ehf, er islenskt fiölskyldujyrirtæki.
A-landslið Islands leikur í HM á móti Makedóníu á morgun kl. 19.00 á Laugardalsvellinum.
Guðný Aradóttir
Sigurður Líndal er,
segir Guðný Aradóttir,
ósammála Jóni Baldvini.
vegar ekki til synjana sem honum
eru heimilar að stjórnlögum. Ákvæði
11. greinar stjórnarskrárinnar um
að forseti sé ábyrgðarlaus í stjórnar-
athöfnum ná ekki til þeirra.
Forseti hefur vissan frumkvæðis-
rétt, til dæmis mjög frjálsar hendur
um það hvernig hann hagar störfum
við stjórnarmyndun.
Venja hefur ekki breytt stöðu for-
seta að þessu leyti.
Þjóðkjör forseta er til marks um
að hann gegni í reynd því stjómskipu-
lega hlutverki sem fínna má stoð fyr-
ir í stjómlögum - það styrkir stjóm-
skipulega stöðu hans. Það er í fyllsta
samræmi við hlutverk forseta sem
þjóðarleiðtoga og sameiningarafls að
standa vörð um stjómlögin - stofn-
sáttmála ríkisins - sem heitir Stjóm-
arskrá lýðveldisins íslands."
Að ofansögðu má ráða að Sigurð-
ur Líndal er gjörsamlega ósammála
Jóni Baldvini Hannibalssyni um að
forseti íslands sé valdalaust samein-
ingartákn. Þjóðkjörið er staðfesting
á því að forsetinn hefur stjórnskipu-
legt hlutverk og þar með völd. Hitt
er svo önnur saga hvernig eigi með
þetta vald að fara og um það mættu
frambjóðendur gjarnan tjá sig.
Höfundur er kerfisfræðingur.
Hlúum að
börnum heims
- framtíðin
er þeirra
FRAMLAG ÞITT
ER MIKILS VIRÐI
- með þinni hjálp