Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREIIMAR Niðurskurður og gæði heilbrigðisþj ónustunnar Landlæknisembætt- inu er falið eftirlit með starfi og starfsaðstöðu heilbrigðisstarfsstétta. Þar af leiðandi fylgist embættið með lækn- inga- og forvarnarað- gerðum ásamt vinnu- brögðum og starfsað- stöðu heilbrigðisstétta. Á síðustu 20-30 árum hafa orðið veru- legar framfarir á sviði heilbrigðisþjónustunn- ar. Við erum að mestu orðnir sjálfum okkur nógir á því sviði eftir að stærsti hluti hjarta- aðgerða á börnum er að flytjast heim. Nokkrir tugir sjúklinga eru þó sendir erlendis á ári hveiju til hátækniaðgerða og er líklegt að svo verði í nánustu framtíð. Sökum þess að allflestir hátæknisérfræð- ingar okkar leita sér framhalds- náms í 5-10 ár erlendis, hefur okk- ur tekist að innleiða hér svipaðar nýjungar í heíla-, augn-, eyrna-, hjarta-, æða-, meltingar-, bæklun- ar- og nýrnaaðgerðum sem valdið hafa gerbyltingu í meðferð. Framleiðni í heilbrigðisþjónustu er erfítt að mæla, en ef litið er á fjölda aðgerða og sjúklinga á starf- andi heilbrigðisstarfsmann á sér- greinasjúkrahúsum okkar, gefum við félögum okkar á Norðurlöndum ekkert eftir. Heildarkostnaður vegna heilbrigðisþjónustunnar er aðeins lægri að raungildi en meðaltals- kostnaður vestrænna iðnaðarþjóða (OECD) og hefur haldist óbreyttur sl. 7-8 ár. A allra síðustu árum sjást merki þess að gæði þjónustunnar hafí versnað vegna þröngs fjárhags og mikils vinnuálags, sérstaklega á bráðadeildum sérgreinasjúkrahús- anna. Nokkur dæmi skulu nefnd. Það dregur úr sérhæfðri þjónustu Telja má að upphaf sérhæfingar á sjúkrahúsum á Islandi hafi hafíst fyrir hálfri öld þegar handlækn- ingadeild Landspítalans var skipt í fæðingardeild og hand- lækningadeild. Eftir það sáu sérlærðir fæð- ingarlæknar um fæð- Ólafur Ólafsson grannaþjóðum í þessu efni. Nú virðist sem sérhæfíngin hafí staðnað á sumum svið- um. Minni sérdeildir, t.d. deildir sem sinna Tafla 1 Gjörgæsludeild Landspítalans Á árunum 1986-1993 varð eftirfarandi breyting á fjölda sjúklinga og aðgerðum á deildinni: Kostnaður jókst nokk- 1986 1993 Breyting uð en burðarmálsdauði Fjöldi legudaga 2.728 3.406 + 24,9 % féll! Þessi þróun hélt Nýting á leguplássi 74,7 93,3 + 24,9% síðan áfram á öðrum Meðallegutími 2,75 2,44 - 11,3% sviðum læknisfræðinn- Fjöldi hjartaaðgerða 32 248 + 675% ar og stöndum við nú Fjöldi sjúklinga í öndunarvél 101 357 + 253,4% að mestu jafnfætis ná- Fjöldi hjúki-unarfræðinga 19,0 24,4 + 26,3% Ríkisspítalar 1995. alvarlegum brunasárum, hafa verið fluttar yfir á almennar deildir og sérþjálfað starfslið til margra ára látið vinna við almenn störf til þess 70%,þeirra sem bíða eftir mjaðma- og hné aðgerðum, segir Olafur Ólafsson í þessari fyrri grein sinni, eru á vinnualdri. að draga úr kostnaði. Afleiðingin er að þetta starfsfólk nær ekki að viðhalda sérþjálfun 'sem skyldi og ýmsir þeirra hverfa úr starfi. Svip- aðar aðgerðir eru nú t.d. fyrirhug- aðar varðandi einu augndeild lands- ins! Afleiðing þessa er að senda verður 80-100 sjúklinga er þarfnast sérhæfðrar meðferðar til nágranna- landa. Sérhæfð þekking fer for- görðum. Á sama tíma og þetta gerist reka ýmsir ráðandi aðilar áróður fyrir sölu á sérhæfðri ís- lenskri heilbrigðisþjónustu til ann- arra þjóða! Aukning á vinnuálagi samfara fækkun starfsfólks Á sumum hjúkrunarheimilum hefur hjúkrunarþyngd aukist um 30% á síðustu árum. Á árunum 1992-1994 breyttist hjúkrunar- þyngd sjúklinga, t.d. á Landspítala, á eftirfarandi hátt. Árið 1992 þörfn- uðust 31% sjúklinga stöðugs eftir- lits allan sólarhringinn en árið 1994 var hlutfallið 46,4%. Svipuð breyt- ing hefur orðið á öðrum bráða- sjúkrahúsum. Aðalorsök þessa er m.a. að í kjölfar mikillar tækniþró- unar gangast fleiri eldri sjúklingar undir aðgerðir en áður enda eru nú gerðar mun flóknari aðgerðir sem krefjast mikillar sérhæfingar. Á árunum 1986-1995 fjölgaði sjúklingum 65 ára og eldri á Rík- isspítölum um 20-30%. Á gjör- gæsludeildum hefur vinnuálag aukist mjög mikið. Til dæmis hefur sjúklingum er þarfnast meðferðar í öndunarvélum fjölgað um 250% frá 1986. Yfirleitt hefur starfsfólki á sérgreinasjúkrahúsum ekki fjölg- að heldur jafnvel fækkað á þessu tímabili. Árið 1993 var gerð könn- un er náði til 17 sjúkrastofnana og töldu um 87% heilbrigðisstarfs- manna að vinnuálag hefði aukist við „sparnaðarráðstafanir". Um 60% töldu að ekki væri hægt að halda uppi sama þjónustustigi og áður. Svipaðar niðurstöður fengust úr könnun Landlæknisembættisins meðal starfsfólks á sérgreina- sjúkrahúsunum á þessu ári. 80-90% töldu að vinnuálag hefði aukist mikið og mætti rekja stóran hluta af fjarvistum og versnandi sam- skipti starfsmanna tii þessa (Streita og þreyta, Landlæknisembættið 1996). Sjá Töflu 1. Biðlistar - ósk um 3-6 mánaða bið hið mesta Aukin fjarvistartíðni og þröngur fjárhagur hefur dregið úr afköstum, stuðlað að lengri biðlistum og heilsuvanda sjúklinga. Léleg stýr- ing hefur einnig áhrif til hins verra og getur skapað óþarfa „flösku- hálsa“. Sem dæmi má nefna að bið- listi eftir hjartaþræðingu á Land- spítalanum hefur lengst mikið en fækkað hefur á biðlista eftir krans- æðaaðgerðum! Hjartaþræðing er forsenda kransæðaaðgerða. Líðan margra á biðlistum er slæm. T.d. skal nefnt að um 70% þeirra er bíða eftir mjaðma- og hnéaðgerðum eru á vinnufærum aldri. 70% þessa fólks þarfnast stöð- ugra verkja- og vöðvaslakandi lyfja og hvílist ekki á nóttunni vegna svefnleysis og vanlíðunar. Ein af- leiðing niðurskurðar er að ekki er hægt að sinna fólki á biðlistum al- mennra skurðdeilda svo vel fari. Um 60% gallaðgerða eru nú gerð brátt en áður voru um 20% þessara sjúklinga skorin upp á þann veg. Mun hættara er við fylgikvillum við bráða gallvegsbólgu (sýkt og bólgin líffæri) en ef aðgerð er gerð á sjúkl- ingum sem ekki eru bráðveikir (J. Magnússon próf. 1995). Tafla 2 Líðan þeirra er bíða eftir aðgerð Mikillverkur 77,8% Svefntruflun 68,8% Taka verkjalyf 70,3% Taka svefnlyf 35,0% Taka vöðvaslakandi lyf 70,3% Getaekkibjargaðsérsjálfir 55,5% Á vinnufærum aldri 68,6% Óvinnufærni 31,4% Bið eftir kransæðaaðgerðum reynist mörgum erfið enda er dán- artíðni á slíkum biðlistum 3-4 sinn- um hærri en á flestum öðrum bið- listum (European Club Cardiac Surg. 1995 og Bjarni Torfason, yfírlæknir). Tafla 3 Rannsókn á biðlistum fyrir kransæðaaðgerðir Royal Victoria Hospital Af 1.000 sjúklingum á biðlista: •Dánir kransæðasjúklingar 8,4% •Dánir lokusjúklingar 2,1% •Dánir með aðra sjúkd. 1,1-1,5% Tafla 4 Rannsókn á biðlistum fyrir kransæðaaðgerðir Biðlistar á Hjartadeild Landspitalans Miðað við 4-6 mánaða bið deyja á biðlista 5-6% sjúklinga. Bjami Torfason, yfirlæknir, 1995. Flestir þeirra sem bíða og þjást á biðlistum eru eldra fólk sem hefur átt stærstan þátt í því að byggja upp góða heilbrigðisþjónustu hér á landi. Réttmæt krafa þessa fólks er að það þurfí ekki að bíða lengur en 3-6 mánuði eftir veigameiri aðgerð- um en slíkar reglur hafa náð fram að gagna í sumum nágrannalanda (Nordisk Medicin 3/1996). Þeir sem skipuleggja spamaðarráðstafanir og ráða ferðinni verða að skilja þörf veiks fólks fyrir heilbrigðisþjónustu. Þeir eiga að taka tillit til þess að almenningur kýs ekki að dregið sé úr rekstrarkostnaði heilbrigðisþjón- ustunnar sbr. fjölmargar skoðanak- annanir. Sjá Töflu 5. Höfundur er landlæknir. Tafla 5 Bið eftir gerviliðaaðgerð á Borgarspítala 55 sjúklingar % Hæfileg bið að áliti sjúklinga Bið >3 mánuði 20,4 <1 mánuð 14,8% 4-6 mánuði 20,4 3 mánuði 40,7% 7-12 mánuði 33,3 3-6 mánuði 33,3% 1-2 ár 21,8 1 ár 11,1% >2 ár 3,6 K. Vald. Læknablaðið , 1995. Eflum viðskipti við útgerð- ir, farþega og áhafnir skemmtiferðaskipa Á NOKKRUM þingum hef ég flutt frumvarp til laga um breytingar á tollalög- um sem lúta að því að heimilt sé að reka verslanir með toll- fijálsar vörur í Reykjavíkurhöfn, Akureyrarhöfn, Seyðisfjarðarhöfn og Vestmannaeyjahöfn. Þetta mál hefur enn ekki náð fram að- ganga. Það er athyglis- vert, þegar til þess er litið að á sl. sumri komu 115 skemmti- ferðaskip til landsins - auk þess sem Norræna kom 14 sinnum til Seyðisfjarðar. Á undanfömum sum- rum hefur komu skemmtiferðaskipa sífellt fjölgað. Á sl. sumri kom til Reykjavíkur 51 skemmtiferðaskip með rúmlega 21 þúsund farþega og auk þess voru um 10 þúsund manns í áhöfnum þessara skemmti- ferðaskipa. Til Akureyrar komu 38 skemmtiferðaskip með 18 þúsund farþega og 10 þúsund manns í áhöfn. Eins og fyrr segir kom Norræna 14 sinnum til Seyðis- fjarðar og með því skipi um 6.500 farþegar auk áhafnar. Það sem vekur athygli við komu þessara skemmtiferðaskipa er það að t.d. þegar til Reykjavíkur er komið fer meginfjöldi skemmti- ferðamanna þessara skipa með áætlunarbíl- um að Gullfossi og Geysi. Stutt er þar við- dvölin en komið við í Hveragerði og síðan er það nærri undantekningarlaust að fólki að ekið að skipshlið aftur og fljótlega látið úr höfn án þess að mikið sé verslað í Reykjavík. Víða erlendis, þar sem skemmti- ferðaskip koma að, eru tollfrjálsar verslanir sem farþegar þurfa að ganga í gegnum til að komast í land - og þannig verður umtalsverð verslun. Það er líka athyglisvert og ég hef veitt því athygli að þau Ég vænti þess að sú breyting sem felst í frumvarpinu, segir Guðmundur Hall- varðsson, muni leiða til aukinna viðskipta við skemmtiferðaskipin sem hingað koma. skemmtiferðaskip sem hafa komið til Reykjavíkur taka hvorki vatn né vistir. Nú liggur það ljóst fyrir í september, októbermánuði hvers árs hvaða skip muni koma til ís- lenskra hafna sumarið á eftir. Það er athyglisvert að þeir sem eru með vöru og þjónustu við skip skuli ekki leita upplýsinga um nöfn skipanna og frá hvaða landi, hver sér um útgerðarrekstur með það í huga að senda þessum aðilum upplýsingar um það hvaða möguleikar eru á verslunarviðskiptum'hér, t.d. varð- Guðmundur Hallvarðsson andi ferskan fisk, íslenskt lamba- kjöt eða grænmeti sem hér er fram- leitt. Hafandi komið sem farmaður í fjölmargar hafnir erlendis hef ég upplifað það að varla er búið að binda skipið við bryggju þegar um borð koma fjölmargir aðilar sem bjóða upp á verslun og viðskipti. Vörur þá á sérstöku útflutnings- verði og vörur þá sem hægt er að kaupa tollfijálsar. Þegar farþegar koma úr skoðun- arferðum, t.d. frá Gullfossi.og Geysi, og stíga um borð aftur þá er það sérkennilegt að ekki skuli vera við landgang skipanna sölumenn ís- lenska lambakjötsins með grill til að gefa svöngum ferðamönnum að smakka á hágæða íslensku lamba- kjöti. Það eru nokkur ár síðan ég hafði samband við aðila hjá bænda- samtökunum og undraðist þetta mjög að þeir skyldu ekki reyna að bjóða fram sína vöru. Athugasemd- irnar voru þær að það þýddi nú lítið að vera að bjóða þessum farþegum upp á að smakka íslenskt lambakjöt því að ekki mundu þeir nú mikið versla af því, því að þeir væru að fara um borð og skipið á leið til útlanda. En að sjálfsögðu er það ekki málið, - heldur hitt að þeir ferðamenn sem koma úr langri ferð og eru svangir, smakka hið ágæta íslenska lambakjöt, munu að sjálf- sögðu þegar þeir koma um borð spyija þá sem um matseldina sjá hvenær þeir eigi von á því að ;s- lenskt lambakjöt verði á boðstólum. Hvað áhrærir tollfijálsa verslun í þessum fjórum höfnum sem hér hefur áður verið getið er það auðvit- að svo að nokkuð hefur borið á því að kaupmenn verslana hafa haft áhyggjur af því að þetta muni leiða til minnkandi verslunar þessara far- þega í landi. Ég er sannfærður um að kaupmenn þurfi ekki að óttast samkeppni við þessar tollfijálsu verslanir því að samt sem áður mun sá hópur sem hefur lagt upp í skoð- anaferðir um borg eða bæi - t.d. á Akureyri, auk þess að versla í tollfijálsri verslun, muni þeir auð- vitað versla í búðum þar. Með tilliti til þess hve fjölgun skemmtiferðaskipa er orðin hér mikil og þess hve Islendingar eru seinir - hafa ekki skjót viðbrögð hvað áhrærir viðskipti og verslun við þessi skip - tel ég að sú breyt- ing sem felst í því frumvarpi, sem ég ásamt 15 öðrum þingmönnum hef lagt fram, muni leiða til aukinn- ar verslunar og viðskipta við hin fjölmörgu skemmtiferðaskip sem leggja leið sína til íslands. Ég vænti þess að þetta frumvarp muni ná fram að ganga nú á þessu þingi og ég er sannfærður um það að verði svo muni aukast verslun og viðskipti við skemmtiferðaskip sem Islendingar hafa annars látið algjör- lega afskiptalaús. Islendingar hafa mjög talað um þá aukningu sem orðið hefur í ferðaþjónustunni en á mörgum sviðum hafa þeir ekki litið til allra átta hvað varðar þá geysi- legu möguleika sem enn eru ónýtt- ir hvað áhrærir sölumennsku vegna erlendra ferðamanna. Höfundur er 10. þingmaður Reykja víkurkjördæmis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.