Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996 19
glæpa-
réttarhöld
í Tansaníu
37 ÁRA verkfræðingur, Ge-
orges Rutaganda, varð í gær
fyrsti maðurinn til að verða
sóttur til saka fyrir aðild að
drápum á allt að milljón manna
í óöldinni í Rúanda árið 1994.
Rutaganda var leiddur fyrir
stríðsglæpadómstól á vegum
Sameinuðu þjóðanna í Tansa-
níu. Hann er sakaður um að
hafa séð öfgamönnum úr röð-
um Hútú-manna fyrir vopnum
og skipulagt dráp á Tútsum.
Bildt hafnar
Plavsic
CARL Bildt, sem stjórnar upp-
byggingarstarfinu í Bosníu,
hafnaði í gær samvinnu við
Biljana Plavsic, sem Radovan
Karadzic, „forseti" Bosníu-
Serba, skipaði nýlega sem
„varaforseta". Bildt sagði að
Karadzic, sem hefur verið
ákærður fyrir stríðsglæpi,
hefði skipað Plavsic í von um
að geta sjálfur haldið embætti
sínu þótt friðarsamningar
kveði á um að hann fari frá.
N-Kóreu-
menn flýja
YFIRVÖLD í Seoul sögðu í
gær að tveir Norður-Kóreu-
menn, annar þeirra vísinda-
maður, hefðu óskað eftir hæli
í Suður-Kóreu sem pólitískir
flóttamenn eftir að hafa flúið
til lands í Suðvestur-Asíu sem
ekki var tilgreint. Flóttinn end-
urspeglar mikla óánægju með-
al yfirstéttarmanna í Norður-
Kóreu, sem á við alvarlegan
matvælaskort að stríða.
Hundruð líka
í ferju
KAFARAR fundu í gær
hundruð líka í feiju frá Tansa-
níu, sem sökk í Viktoríu-vatni
í vikunni sem leið, eftir að
hafa brotið sér leið inn í ódýr-
asta farrými ferjunnar. Þeir
töldu líklegt að um 1.000
manns hefðu farist í slysinu.
Friðarvið-
ræður
í S-Afríku
AFRÍSKA þjóðarráðið (ANC),
stærsti stjórnarflokkurinn í
Suður-Afríku, og Inkatha-
flokkur Zulu-manna sögðust í
gær hafa hafið viðræður að
nýju til að freista þess að binda
enda á átök stríðandi þjóð-
flokka í KwaZulu-Natal. Rúm-
lega 14.000 manns hafa beðið
bana í átökum í héraðinu milli
stuðningsmanna ANC og Ink-
atha-flokksins á síðustu tíu
árum.
Ráðuneyti
styður Clinton
BANDARÍSKA dómsmála-
ráðuneytið kvaðst í gær styðja
þá ósk Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta, að réttarhöldum
í máli Paulu Jones á hendur
honum, yrði frestað fram yfir
forsetakosningar í nóvember.
Jones sakar forsetann um kyn-
ferðislega áreitni.
Sjávarútvegsráðherra Rússlands hrósar íslenskum stjórnendum á Kamtsjatka
Ellefu Islendingar
leystu af hólmi
110 skriffinna
Morgunblaðið/Kristinn
ÞÁTTTAKENDUR á ráðherrafundinum ræða við fréttamenn á
Hótel Sögu í gær. Lengst til vinstri er Earl Wiseman, sem kom
í stað Freds Mifflins, sjávarútvegsráðherra Kanada er ekki gat
setið allan fundinn, þá Paviaraq Heilmann, sjávarútvegsráð-
herra Grænlands, José Almeida Serra, fulltrúi framkvæmda-
sljórnar Evrópusambandsins, Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra, Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegsráðherra Noregs,
Ivan Johannesen, sjávarútvegsráðherra Færeyja, Vladímír F.
Korelski, sjávarútvegsráðherra Rússlands og túlkur Korelskis.
TAKA verður aukið tillit til rann-
sókna á samverkandi áhrifum í vexti
og viðgangi hinna ýmsu físktegunda
á Norður-Atlantshafí þegar teknar
eru ákvarðanir um fískveiðistjómun
með sjálfbæra nýtingu stofnanna í
huga. Mikilvægt er að huga að stöð-
ugri þróun í tækni við eftirlit með
veiðunum og leita leiða til að gera
eftirlitið virkara en um leið halda
kostnaði í skeflum. Þetta kemur m.a.
fram í sameiginlegri yfírlýsingu ann-
ars fundar sjávarútvegsráðherra
Norður-Atlantshafsríkja sem lauk í
Reylqavík í gær.
Viðræðumar stóðu í þijá daga og
voru þátttakendur ráðherrar frá
Kanada, Grænlandi, íslandi, Færeyj-
um, Noregi og Rússlandi auk hátt-
setts embættismanns frá fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Viðfangsefnið var sameiginleg hags-
munamál á sviði fískverndar og ann-
arra sjávarútvegsmála. Á blaða-
mannafundi í gær bauð Ivan Johann-
esen, sjávarútvegsráðherra Færeyja,
þátttakendur velkomna til næsta
fundar sem verður í Færeyjum að ári.
Rætt um gervihnattaeftirlit
„Það urðu allverulegar umræður
um þær tæknibreytingar sem eru
fyrir höndum varðandi nýja mögu-
leika með gervihnattaeftirlit," sagði
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra. Hann sagði að rætt hefði ver-
ið um úthafsveiðisáttmála Samein-
uðu þjóðanna og hvernig koma ætti
honum S framkvæmd í viðeigandi
stjórnunarstofnunum við Atlantshaf.
Samþykkt var að óformlegur starfs-
hópur myndi gera skýrslu um sam-
eiginlega staðla í tengslum við veiði-
stjórn á svæðinu með tilliti til starfs-
ins í Norður-Atlantshafsfískveiðiráð-
inu, NAFO. Yrði skýrslan lögð fyrir
Færeyjafundinn.
Ráðherrarnir minntu á að 33 þjóð-
ir hefðu þegar undirritað úthafsveiði-
sáttmála SÞ og vel gengi að und-
irbúa endanlega staðfestingu. Fjallað
var um mál sem ætlunin er að taka
fyrir á ársfundi NAFO. í yfírlýsing-
unni er minnt á viðræður ráðherr-
anna um aðferðir við fískveiðistjóm-
un á heimamiðum og sagt að gildi
slíkra skoðanaskipta sé ótvírætt fyr-
ir framtíðarþróun þeirra mála, þeim
verði haldið áfram á næstu fundum.
Vladímír Korelskí, sjávarútvegs-
ráðherra Rússlands, lýsti mikilli
ánægju með undirbúning fundarins
hér og sameiginlegu yfirlýsinguna.
Hann sagði Rússa hrifna af íslandi.
Lýðræðissinninn og friðarverðlauna-
hafínn Andrej Sakharov, sem nú er
látinn, hefði sagt að mætti hann
velja sér búsetu myndi hann svo
sannarlega velja sér Island. Korelskí
sagði að þrátt fyrir nokkur ágrein-
ingsmál ættu mikil og góð viðskipti
sér nú stað milli Rússa og íslendinga
í sjávarútvegsmálum, þau hefðu haf-
ist er Rússar sendu skip til síldveiða
við ísland skömmu eftir síðari heims-
styijöld.
Ráðherrann minnti einnig á vax-
andi samskipti í sjávarútvegsmálum
milli íslenskra og rússneskra fyrir-
tækja á Kamtsjatka við Kyrrahaf,
einnig vildu Kamtsjatkamenn fá að-
stoð við að nýta sér jarðhita en á því
sviði væru íslendingar mjög framar-
lega.
„Rússneskur togarafloti undir
stjóm herra Abramovs stundar nú
veiðar á Okhotsk-hafí fyrir íslensk
fyrirtæki. Ég get upplýst að 11 ís-
lenskir stjómendur sem hófu störf á
skrifstofu Abramovs leystu af hólmi
110 fyrrverandi, rússneska skrif-
finna!“
Valdbeiting í Smugunni
Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi
við Korelskí sem sagt hefur í sjón-
varpsviðtali að til greina gæti komið
að beita valdi til að hrekja íslensk
veiðiskip úr Smugunni. Var ráðherr-
ann spurður hvort hann teldi hættu
á að til blóðugra átaka gæti komið
eins og á Okhotsk-hafi þar sem jap-
anskir fískimenn hafa týnt lífí í átök-
um við rússnesku strandgæsluna.
„Ég vil ekki að slíkir atburðir verði
á Barentshafí," sagði Korelskí. „Að-
stæður hé_r [á Barentshafínu] eru
gerólíkar. Á Okhotsk-hafí var um eins
konar ögmn að ræða af hálfu Jap-
ana. Þar voru að verki japönsku
glæpasamtökin, Jakuza, sem hvöttu
sjómennina til að fara inn í rússneska
lögsögu. Á Barentshafí er ekki um
að ræða svæði innan lögsögu okkar,
Smugan er alþjóðlegt úthafssvæði“.
Korelskí sagðist vilja leggja áherslu
á að semja ætti um ágreiningsmálin,
betra væri að búa við „slæman frið
en stríð". Hann væri mjög ánægður
með þau sjónarmið sem komið hefðu
fram hér á landi, að það væri í þágu
íslenskra hagsmuna að friður ríkti
um úthafsveiðar landsmanna. Vitnaði
ráðherrann m.a. í forystugrein í
Morgunblaðinu í gær í þessu sam-
bandi. „Við viljum eiga friðsamleg
samskipti við ykkur í sjávarútvegs-
málum,“ sagði Korelskí.
Nellika í potti kr. 168
plöntusalan í Fossvogi
Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspítala) Opið kl. 8-19. helgar kl. 9-17. Sími 564 1777
Jl Ji