Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996 51 I --------------------------------- i Staðarskoð- un í Viðey HEFÐBUNDIN dagskrá verður um helgina í Viðey. Kl. 14.15 verður gönguferð á suðurhluta Austureyj- arinnar. Gengið verður austur í Við- Ieyjarskóla, þar skoðuð ljósmynda- sýning frá fyrri hluta þessarar aldar en síðan gengið með suðurströndinni og heim að Stofu aftur. Á þessari leið er margt að skoða og ekki síst æðarfugla á hreiðrum. Gangan tekur um einn og hálfan tíma. Rétt er að vera á góðum skóm og að öðru leyti búinn eftir veðri. Á sunnudag verður staðarskoðun á sama tíma. Hún hefst í kirkjunni sem verður sýnd og síðan gengið um . heimahlöð, fornleifagröfturinn skoð- aður og loks útsýnið af Heljarkinn, hólnum fyrir austan Stofuna. Ef að- | stæður leyfa verður einnig gengið ■ um Viðeyjarstofu. Staðarskoðun tek- ur um þrjá stundarfjórðunga. Hún er öllum auðveld og krefst ekki neins sérbúnaðar. Á eftir er hægt að njóta veitinga í Viðeyjarstofu, ef menn vilja. Eins er hægt að bregða sér á hestbak því ef áætlanir standast verður hesta- leigan opnuð á laugardag. Áætlunarferðir með Maríusúð um helgar eru á klst. fresti kl. 13-17 á I3 heila tímanum úr landi en hálfa tím- anum úr eynni. Jafnréttisfull- trúi varnarliðs- ins á fundi hjá Sellunum | SELLURNAR, hreyfing alþýðu- á bandalagskvenna og annarra rót- tækra jafnaðarkvenna, gangast fyrir fundi á Kornhlöðuloftinu við Banka- stræti á morgun, laugardag, kl. 11. Þar mun William Jameson, sem gegnir starfi jafnréttisráðgjafa á Keflavíkurflugvelli, segja frá starfi sínu og stefnu bandarískra stjórn- valda í jafnréttismálum, en banda- ríski herinn er líkt og aðrir opinberar 9 bandariskar stofnanir skyldugar til íj að vinna markvisst að framgangi á jafnréttis kyna og kynþátta. " Bill Jameson er kvæntur, sex barna faðir, og hefur hann gegnt starfi jafnréttisfulltrúa hjá banda- ríska hernum í átta ár, fyrst í Miss- isippi en síðustu fjögur árin í Kefla- FRÉTTIR ÞAÐ var bjart yfir þeim 119 nemendum sem útskrifaðir voru með stúdentspróf frá Kvennaskólanum. Skólaslit í Kvennaskólanum 119 STÚDENTAR útskrifuðust frá Kvennaskólanum í Reykja- vík síðastliðinn laugardag og hafa aldrei jafnmargir stúdent- ar útskrifast frá skólanum í einu. Um fjórðungoir af útskrift- arhópnum eru karlmenn. Útskriftin fór fram í Hall- grímskirkju. Dúx að þessu sinni vík. Alls hefur hann starfað í tvo áratugi við starfsmannamál hjá opin- berum stofnumum í Bandaríkjunum. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem jafnréttisfulltrúanum er boðið að halda erindi á fundi stjórnmálasam- taka utan herstöðvarinnar. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku en verður jafnframt túlkaður á ís- lensku. Hann er öllum opinn og er 500 króna kaffigjald. Knipplað í Ar- bæjarstafni ÁRBÆJARSAFN verður opið helg- ina 1.-2. júní, frá kl. 10-18 báða dagana. Laugardaginn 1. júní verður teymt undur bömum frá kl. 14-15. Börnum verða sýnd leikföng og farið í gamla leiki. Á sjómannadaginn verður kniplað í Suðurgötu 7 og knipl kynnt á Korn- húsloftinu, en knipl er aldagömul aðferð til að búa til skraut á fatnað. Fyrr á öldum var talsvert kniplað hér á landi og eru ullarkniplingar varðveittir á Þjóðminjasafninu og ýmsum öðrum söfnum. Fyrir 14 árum voru nokkrar áhugasamar kon- var Drífa Kristín Þorsteinsdótt- ir með 9,44, sem er með hæstu einkunnum frá Kvennaskólan- um. Kvennaskólinn var stofnaður 1874. Fyrstu stúdentarnir voru útskrifaðir 1982 og hafa um níu hundruð nemendur verið útskrif- aðir með stúdentspróf þaðan. ur um knipl sem ákváðu að hittast reglulega til að knipla en tilgangur- inn er að viðhalda og útbreiða knipl hér á landi. Hér er því um einstakt tækifæri til að sjá þetta gamla hand- verk. Auk þess verður messað kl. 14 í safnaðarkirkjunni, hátíðarkaffi í Dill- onshúsi, gullsmiður verður að störf- um og boðið upp á lummur í Árbæ frá kl. 14-15. Sú sem ók á hafi samband LÖGREGLAN í Hafnarfirði óskar eftir að hafa tal af konu, sem ók svargrárri bifreið sinni aftan á aðra á Hjallahrauni við Fjarðarhraun, gegnt kjúklingastaðnum Kentucky Fried, mánudaginn 13. maí sl. Konan, sem ók fremri bílnum, tal- aði við ökumann aftari bílsins, sem hún lýsir sem konu á sjötugsaldri. Þar sem hún taldi engan skaða hafa hlotist af aftanákeyrslunni hélt hún leiðar sinnar og láðist henni að skrá hjá sér nafn og bílnúmer tjónvalds- ins. Síðar reyndist konan hafa meiðst á hálsi. Ökumaðurinn, eða aðrir sem veitt geta upplýsingar um óhappið, eru beðnir um að hafa samband við rann- sóknardeild lögreglunnar í Hafnar- fírði. Laugaborg 30 ára LEIKSKÓLINN Laugaborg heldur upp á 30 ára afmæli sitt á morgun, laugardag, frá klukkan 11-14. Af því tilefni er gömlum nemend- um, starfsfólki og öðrum velunnurum skólans boðið í heimsókn. Sýning verður á vinnu barnanna í máli og myndum, leiktæki í garðin- um, ýmis skemmtiatriði og frumflutt- ur verður Laugarborgarbragur, sem foreldrar sömdu í tilefni dagsins. Bót á helginni á ísafirði Bílar og vörur á Torfnesi BÍLASÝNING og vörukynning verð- ur í íþróttahúsinu á Torfnesi á ísafirði um helgina. Sýningin kallast „Bót á helginni". Bílatangi hf. sér um bílasýning- una, þar sem kynntar verða nýjar bifreiðar frá Toyota, Mazda og Mercedes Benz. Þá verða tuttugu sýningarbásar í íþróttahúsinu, þar sem þijátíu ísfirsk fyrirtæki kynna vöru sína og þjónustu. Ætlunin er að sýna þverskurð af atvinnulífi kaupstaðarins. Sýningin er opin frá kl. 13-18 laug- ardag og sunnudag. Ýmsar uppákom- ur verða sýningardagana, s.s. tísku- sýning og önnur skemmtiatriði. Danslist ’96 á Selfossi UM HELGINA verður haldið dans- listarmót á Selfossi. Um 500 ungir dansarar víðs vegar af landinu munu koma saman og æfa og þjálfa dansa undir leiðsögn atvinnudanskennara. Þetta er í þriðja sinn sem slíkt mót er haldið en frumkvölull að því er ljöllistarmaðurinn Öm Ingi á Akur- eyri. Að þessu sinni er Félagsmiðstöð Selfoss framkvæmdaraðili mótsins. Almenningi gefst kostur á að sjá afrakstur mótsins, en tvær sýningar í íþróttahúsinu á Selfossi eru fyrir- hugaðar. Sú fyrri verður laugardag- inn 1. júní og hefst kl. 20. Sú síðari er sunnudaginn 2. júní og hefst kl. 18. Aðgangseyrir er 500 kr. Þátttakendur koma frá ýmsum dansskólum. Má þar nefna jazzbal- lettskóla, listdansskóla, ballettskóla, og einnig félagsmiðstöðvum, en ekki er um samkvæmisdansa að ræða. Útivist og eignarréttur SKOTVEIÐIFÉLÁG íslands efnir til ráðstefnu um útivist og eignarrétt á Hótel Loftleiðum laugardaginn 1. júní kl. 10. Ráðstefnan hefst á ávarpi um- hverfisráðherra, Guðmundar Bjarna- sonar. Aðrir framsögumenn verða fulltrúar bænda, sveitarstjórnar, for- maður umhverfisnefndar Alþingis, fulltrúar útivstarsamtaka, Náttúru- verndarráðs, Náttúruverndarstofn- unar og þá mun Ólafur Sigurgeirsson hdl. fjalla um veiðar á afréttum. Ráðstefnan er öllum opin og úti- vistarfólk og aðrir er hafa áhuga á þessum málaflokki eru hvattir til að mæta. Aðalfundur Samstöðu AÐALFUNDUR Samstöðu um óháð ísland verður haldinn að Hótel Varmahlíð Iaugardaginn 1. júní og hefst kl. 13. Á fundinum fjallar Hjörleifur Guttormsson alþingismaður um þró- un Evrópusambandsins og stöðu ís- lendinga gagnvart því í ljósi nýjustu atburða. Þá verða lagðar fram tillögur um lagabreytingar sem eiga m.a. að styrkja starfsgrundvöll samtakanna. Að loknum aðalfundi verður hátíðar- kvöldverður. Efnt verður til hópferðar frá Reykjavík norður í Varmahlíð. Lagt verður af stað frá Umferðarmiðstöð- inni kl. 8 á laugardagsmorgun. Renault Prem- ium sýndur BIFREIÐAR og Landbúnaðarvélar kynntu á dögunum nýjan vörubíl frá Renault, Renault Premium. Bíllinn var fyrst kynntur í Barcelona í apríl sl. og er ísland eitt af fyrstu löndun- um sem kynnir hann. Renault Premium kemur i stað Major og Manager. Premium er kynntur í tveimur línum, Distribution og Lond Distance. Við hönnun á bíln- um var umhverfi bílstjóra haft í huga hvað viðkemur umgengni og þægind- um í akstri. Hægt er að velja um sex mismunandi vélarstærðir í Premium, 21 til 385 hestöfl. Báðar línurnar verða til sýnis á stórsýningu B&L í Perlunni um helgina. NÓATÚN < i i i i i Verslanir Nóatúns eru opnar til kl. 21, öll kvöld NÓATÚN NÓATÚN 17 - S. 561 7000, R0FABÆ 39 - S. 567 1200, LAUGAVEG 116 - S. 552 3456, HAMRAB0RG 14 KÓP -S. 554 3888, FURUGRUND 3, KÓP - S. 554 2062, ÞVERH0LT 6, MOS - S. 566 6656, JL-HÚSINU VESTUR í BÆ - S. 552 8511, KLEIFARSEL 18 - S. 567 0900, AUSTURVER, HÁALEITISBRAUT 68 - S. 553 6700.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.