Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996 URVERINU ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Góð úthafskarfaveiði á Reykjaneshrygg 2.000 tonnum landað í kringum sjómannadag FRAMLEIÐSLA íslenskra sjávar- afurða á sjófrystum_ karfa er mun meiri en í fyrra. „Útlitið er bara gott,“ segir Aðalsteinn Gottskálks- son, framkvæmdastjóri fram- leiðslu- og þjónustusviðs ÍS. „Það hefur verið góð veiði. Við áætlum að landað verði um tvö þúsund tonnum í kringum sjó- mannadaginn. Markaðshorfur eru góðar og við reiknum með töluverð- um verðhækkunum miðað við sama tíma í fyrra.“ Aðalsteinn segir að ÍS hafi verið með átak í gæðaeftirliti og gæðin séu meiri í ár en í fyrra. „Síðan má segja að við höfum líka haft möguleika á að taka ferskan karfa í land og framleiða á okkar hefð- bundnu markaði þannig að mark- aðsaðstæður eru góðar,“ segir hann. Búið er að framleiða þrjú þús- und tonn af karfa hjá ÍS, en á sama tíma í fyrra höfðu verið framleidd 1.500 tonn. ÍS eru með fleiri skip núna og auk þess spil- aði sjómannaverkfallið inn í á síð- asta ári. „Verðið er mun betra núna en á sama tíma í fyrra,“ segir Aðal- steinn. „Það hefur verið stígandi í verði á þessu ári.“ Morgunblaðið/Ómar Össurarson Lúða úr Víkurál KRISTJÁN Jóhannesson á Hampiðjutorginu eða með væna lúðu sem fékkst Víkurál. Sjómanna- blaðið Öldu- rót komið út ÖLDURÓT, blað Sjómannadags- ráðs Akureyrar 1996 er komið út og er efni þess fjölbreytt. Rætt er við sjómannskonurnar Önnu Kristjánsdóttur, Björgu Finnbogadóttur, Lucindu Gígju Möller og Ásdísi Sigríði Þorsteins- dóttur. Einnig er rætt við Vern- harð Jónsson, bátsmann á Harð- baki EA, Dagný M. Marinósson, yfirvélstjóra á Súlunni EA, Vil- hjálm Sigurðsson, skipstjóra á Sig- urbjörgu frá Ólafsfirði, og Konráð Alfreðsson, formann Sjómannafé- lags Eyjafjarðar. Yfirskrift sjómannadagsins á Akureyri er „Heilir í höfn“ og vill Sjómannadagsráð með því skapa umræðu um öryggismál sjómanna. Fjallað er um þau mál frá ýmsum hliðum í Ölduróti og rætt við Ant- on Sigþórsson, einn þeirra fimm sem björguðust er flutningaskipið Suðurland fórst á leið til Mur- manks á aðfangadagskvöld jóla árið 1986. í blaðinu er einnig fjöldi mynda sem tengjast sjómennsku og sjósókn fyrr og nú og loks eru birt úrslit helstu keppnisgreina frá síðasta sjómannadegi auk þess sem lesendum gefst kostur á að ráða verðlaunakrossgátu. Ritstjóri blaðsins er Bragi V. Bergmann. Þetta er fimmta árið í röð sem Sjómannadagsráð Akureyrar gef- ur út sérstakt blað í tilefni sjó- mannadagsins og fá allir sjómenn á Eyjafjarðarsvæðinu blaðið sent heim. Þá er það einnig til sölu við hús Slysavarnafélags íslands á Akureyri á laugardag og við Sund- laug Akureyrar á sjómannadaginn. Islandsmót í handflökun Sýning á verk- um Bjarna Jónssonar Á SJÓMANNADAGINN, sunnudaginn 2. júní, verður í Sjóminjasafni íslands, Hafnar- fírði, opnuð sýning á fimmtán olíumálverkum eftir Bjama Jónsson, listmálara. Allt eru þetta myndir um sjómennsku og sjávarhætti fyrir daga vél- væðingar og sýna árabáta af ýmsum stærðum og gerðum, verbúðir, varir, naust, sjóklæði, sögunarvirki, gangspil o.fl. Segja má að hér sé um hrein- ar heimildamyndir að ræða sem varpa ljósi á horfna atvinnu- hætti. Sýningin stendur yfír sumartímann. Allar myndirnar eru til sölu. Bjarni Jónsson er m.a. kunn- ur fyrir að hafa unnir nær allar teikningar j riti Lúðvíks Krist- jánssonar, íslenskir sjávarhætt- ir, sem út kom í fímm bindum fyrir um tíu árum. Frá 1. júní til 30. september er Sjóminjasafnið opið alla daga frá kl. 13 til 17 og ennfremur eftir samkomulagi við safnvörð. OPIÐ íslandsmeistaramót í hand- flökun verður haldið þann l.júní nk. í stóru tjaldi á miðbakkanum við Reykjavíkurhöfn. Keppnin er nú haldin í þriðja sinn og áhugi fisk- vinnslufólks og þátttaka stöðugt að vaxa. Líkt og í fyrra munu nokkrir erlendir flakarar taka þátt en eriend- ir keppendur í fyrra voru tólf talsins en keppendur voru alls 38. Dæmt verður eftir gæðum, nýtingu og hraða og flakaðar verða þijár teg- undir; ýsa, karfi og grálúða. Verð- laun verða veitt fyrir þtjú efstu AFLAREGLUR á öðrum fískistofn- um en þorski, loðnu og síld eru ekki fullmótaðar að sögn Jakobs Jakobs- sonar, forstjóra Hafrannsóknastofn- unnar. Hann segir að verið sé að vinna aflareglur fyrir ýsu, ufsa og rækju en vonast til að í framtíðinni verði hægt að móta aflareglur varð- andi alla nytjastofna. „Það þarf fleiri sætin í samanlögðum stigum og jafnframt verða verðlaunaðir ýsu, karfa og grálúðumeistarar sem og nýtingar, hraða og gæðameistarar. Markmiðið með keppninni er að hvetja fiskvinnslufólk sem þetta starf vinnur til dáða en með aukinni tæknivæðingu fiskvinnslunar hefur þessi aldna verkkunnátta víða tapast niður. Þá mun keppnin vafalítið auka gæðavitund þeirra sem þátt í henni taka og æfa sig fyrir hana. Einnig er ætlunin að keppnin vekji áhuga almennings á fiskvinnslustörfum. prófanir á stofnunum svo hægt sé að setja aflareglur, kanna viðbrögð stofnanna við ýmsar aðstæður, svo sem nýliðun. Þetta var mikið prófað á þorskinum á sínum tíma og það þarf einnig mikla vinnu nú.“ Jakob segir að þessar aflareglur verði tilbúnar fyrr eða seinna og vonandi fyrir næstu ráðgjöf. Nýjar aflareglur ekki fullmótaðar Reuter Flóttafólk snýr heim BOSNÍUMAÐUR kyssir barna- barn sitt við komuna til Sarajevo í gær. Þá komu um 150 flóttamenn til borgarinnar, stærstur hluti hópsins kom frá Tyrklandi þar sem fólkið hafði verið í fjögur ár. Einnig komu nokkrir frá Danmörku en þang- að höfðu þeir verið sendir í læknismeðferð. Kohl í heimsókn í Portúgal Segir ráðlegast að hunsa Evrópu- andstæðingana Lissabon. Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Þýska- lands, sem er í tveggja daga heim- sókn í Portúgal, sagði í gær við gestgjafa sína að besta ráðið til að eiga við andstæðinga samruna Evr- ópusambandsríkja væri að virða þá að vettugi. Kohl sneri sér að Antonio Gu- terres, forsætis- ráðherra Portúg- als, á sameigin- legum blaða- mannafundi þeirra og kvaðst vita um gott ráð sem beita mætti gegn þeim sem hafa efasemdir um efnahagslegan og pólitískan samruna ríkja Evrópu- sambandsins. „Eftir að hafa barist við þá í áratug tel ég bestu leiðina að hunsa þá. Gefðu þeim ekki mik- inn gaum og Evrópulestin mun halda áfram.“ Á fundinum lögðu Kohl og Guterr- es áherslu á að samskipti ríkjanna væru góð og að þeir væru sammála í grundvallaratriðum um framtíðar- skipan Evrópusambandsins. Kohl sagði að þeir væru sammála um að nokkur fyrrverandi kommún- istaríki í Mið- og Austur-Evrópu ættu að fá aðild að Evrópusamband- inu og að hjálpa þyrfti Rússum að koma á erfiðum efnahagsumbótum og markaðshagkerfi. Kanslarinn kvaðst vona að sem flest ríki gætu fullnægt skilyrðum fyrir aðild að myntbandalagi ESB árið 1999, en kvaðst ekki vera spá- maður þegar hann var spurður hvort Portúgal yrði þeirra á meðal. Kohl áréttaði ennfremur stuðn- ing sinn við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, sem berst fyrir endurkjöri í kosningunum 16. júní. Þjóðverjar eru helsta viðskiptaþjóð Portúgala og viðskipti ríkjanna voru ofarlega á baugi á fundum Kohls með ráðamönnum í Lissabon. Kohl og Guterres voru viðstaddir undirrit- un viljayfírlýsingar portúgalska efna- hagsráðuneytisins og þýska raf- tækjafyrirtækisins Siemens, sem hyggur á jafnvirði 25 milijarða króna íjárfestingu í norðurhluta Portúgals. Kohl skoðar í dag sameiginlega verk- smiðju Volkswagen og Ford nálægt Lissabon, en hún er mesta fjárfesting erlendra fyrirtækja í Portúgal. Þetta er fyrsta heimsókn Kohls til Portúgals í tólf ár. EVRÓPA^ i l Kúariðurannsókn gæti tekið átta ár Brussel. Reuter. ÓHÁÐIR vísindamenn hafa skýrt framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins frá því að það gæti tek- ið þá allt að átta ár að svara því með vissu hvort kúariða getur valdið banvænum hrörnunarsjúk- dómi í mönnum. „Þeir gáfu til kynna að örugg svör við spurningunni kynnu ekki að fást fyrr en eftir fimm til átta ár,“ sagði Franz Fischler, sem fer með landbúnaðarmál innan fram- kvæmdastjórnarinnar. Fischler sagði frönskum blaða- mönnum í gær að framkvæmda- stjórnin hefði óskað eftir skýrslu frá vísindamönnunum um hvort kúariða gæti borist í menn. Hann sagði að vísindamennirnir hefðu Iofað skýra frá fyrstu niðurstöð- um sínum í haust en mörg ár gætu liðið þar til lokaskýrslan yrði lögð fram. Svissneski vísindamaðurinn Charles Weissmann stjórnar rannsókninni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.