Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Helgason
MARGIR notuðu tækifærið og létu mæla blóðþrýstinginn.
Margir létu mæla
blóðþrýstinginn
Stykkishólmi - Alþjóðadagur
hjúkrunarfræðinga er 12. maí
ár hvert. Af því tilefni buðu
hjúkrunarfræðingar í Stykkis-
hólmi bæjarbúum til skrafs og
ráðagerða um heilbrigði fyrir
utan vöruhúsið Hólmkjör í
góða veðrinu mánudaginn 13.
maí.
Mættir voru þeir hjúkrunar-
fræðingar sem starfa í Stykkis-
hólmi með sín tól og tæki og
veittu almenningi ráðleggingar
um heilbrigða lífshætti, en þeim
fylgir betra líf. Auk þess mældu
þeir blóðþrýsting, púls, súrefnis-
mettun og fleira hjá þeim sem
það vildu.
Það voru margir sem litu inn
hjá þeim og fræddust um það
sem þarna fór fram og flestir
fóru heim með hvítan miða eftir
að búið var að mæla blóðþrýst-
inginn.
Góður afliá Hvítasunnu-
móti SJÓVE í Ej/jum
Vestmannaeyjum - Árlegt Hvíta-
sunnumót Sjóstangaveiðifélags
Vestmannaeyja var haldið í Eyjum
um helgina. 49 þátttakendur tóku
þátt í mótinu og var þátttakendum
skipt í 13 sveitir sem reru á 14
bátum. Ágætis veður var meðan
mótið stóð yfir og voru aflabrögð
þokkaleg en alls veiddust 13.404
kíló og var verðmæti aflans
771.285 kr.
Mótið hófst á laugardagsmorg-
un og var verið að veiðum fyrri-
part laugardags og sunnudags en
mótsslit fóru fram á sunnudags-
kvöld. Þá voru veitt verðlaun fyrir
afrek mótsins.
Aflahæsti karlmaðurinn á mót-
inu var Karl Hreggviðsson, SJÓ-
SKIP, með 496,06 kíló, en í öðru
sæti varð Árni Karl Ingason,
SJÓVE, með 477,85 kíló. Aflahæst
kvenna varð Sigurbjörg Kristjáns-
dóttir, SJÓSNÆ, með 429,12 kíló
og í öðru sæti varð Guðrún Snæ-
björnsdóttir, SJÓVE, með 359,97
kíló.
Aflahæsta sveitin
veiddi rúm 1.400 kíló
í sveitakeppni karla varð sveit
Einars B. Einarssonar, SJÓVE,
aflahæst með 1.402,74 kíló en í
öðru sæti varð sveit Arnþórs Sig-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ÞAU voru kampakát með aflann.
urðssonar, SJÓVE, með 1.350,11
kíló. I sveitakeppni kvenna varð
svejt Sigurbjargar Kristjánsdóttur,
SJÓSNÆ, aflahæst með 1.035 kíló
en í öðru sæti varð sveit Guðrúnar
Snæbjömsdóttur, SJÓVE, með
840,25 kíló.
Aflahæsti bátur á hveija stöng
varð Gustur með 444,78 kíló og
þar um borð varð einnig mesta
aflaverðmætið á hveija stöng
27.731,98 krónur.
Stærsta fisk mótsins dró Anton
Örn Kærnested, SJÓR, 12,6 kílóa
þorsk en flesta fiska dró Auðunn
Stefnisson, SJÓVE, 312 talsins.
ÖARISTON
ÉSARI5TON
/ Fjórar rafmagnshellur ■
Stafræn klukka
Blástur í ofni
Grill og blásturgrill / Hæð
Færanlegt lok / Breidd
Kr. 64.500,-
rRúmmál: 230 lítrar
Kælir: 185 Iftrar
Frystir: 45 lítrar y'f’T
2 hurðir, / Hœí
frystir aö ofan [ Breldd
Kr. 51.300,-
L39cm
I verslun
BYKO og
Byggt og>úiö
bjooast stor og
smá heimilistæki á
hagstæðu verði.
6’ ARI5TON
f Tekur 12 manna stell
Tvö hitastig 55°C -
og 65°C
7 þvottakerfi /"*a 85cm
Hraöþvottakerfi /Breidd I50cm
áÍARISTON
f Tekur 5 kg af þvotti H
18 þvottakerfi:
Fyrir venjulegan þvott, H
viökvæman þvott og ulH
Stiglaus hitastillir
Vindur 500/850 /H»8
snúninga á mín. /Breidd
515 4000><
Skiptiboro^
yjiiiiiimuj» 515 4030 ,
Hólf og gðlf, afgreiðsláVsS'LO
555 44117
Almenn afgfeiftsla
562 94007
Almenn afgreiðsla
568 94007
Almenn afgrei&slax-------------'
800 4000;
Grænt númef
MÁNAÐARTILBOÐ
Skiptiborö:
Verslun. Breiddinni, Kópavogi:
Verslun, Dalshrauni 15, Hafnarfiröi:
Verslun, Hringbraut 120, Reykjavík:
Morgunblaðið/Egill Egilsson
6 ára hnátur í kynnisferð
Flateyri - Jónína Rut, Birna
Dröfn, Margrét Alda og Írís Ósk
fóru um daginn í göngutúr með
Gróu leikskólakennara. Þær ætl-
uðu að kynna sér nýja skólann
sinn sem þær eiga eftir að ganga
í næstu árin. Þær stilltu sér upp
fyrir ljósmyndara Mbl. á meðan
þær biðu eftir því að skólabjallan
léti í sér heyra. Og þegar inn
var komið blönduðuþær geði
við hóp Guðmundu Öglu sem var
að kenna krökkunum ýmislegt
um vikudaga og veðurfar.
FRÁ fundi hjúkrunarforstjóra.
Morgunblaðið/Silli
Hjúkrunarfor-
sljórar funda
Húsavík - Hjúkrunarforstjórar og
hjúkrunarframkvæmdastjórar í
heilsugæslu héldu sinn árlega fund
nú nýlega á Hótel Húsavík, en þar
voru ræddar væntanlegar nýjung-
ar á sviði heilsugæslu.
Á fundinum flutti Ásta Thorodd-
sen, hjúkrunarfræðingur, erindi
um skráningu hjúkrunar, tilhögun
hennar og nauðsyn.
Starfsmenn fyrirtækisins
Gagnalind kynntu og veittu til-
sögn í grunnatriðum sjúkraskrár-
kerfis fyrir heilbrigðisþjónustu,
starfsmenn og stjórnendur. Þetta
kerfi verður væntanlega tekið í
notkun hjá heilsugæslustöðvum.
Mikilsvert var talið að heilsu-
gæslustöðvar landsinsJiefðu sam-
ræmt kerfi.