Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ1996 53
BRÉF TIL BLAÐSINS
Bylting hjá
dagvist barna
Frá Margréti ívarsdóttur:
MÉR FINNST kominn tími til að
geta þess sem vel er gert í málefn-
um Dagvistar barna. Allt of oft
ber aðeins á því neikvæða en þó
vissulega megi ýmislegt bæta, þá
hefur mjög margt breyst til batn-
aðar. Nánast má segja að um bylt-
ingu sé að ræða frá því sem áður
var. Nú eiga öll börn í Reykjavík
rétt á því að vera skráð á biðlista
eftir dagvistun er þau hafa náð 6
mánaða aldri og foreldrar geta
valið um vistunartíma barna sinna
burt séð frá hjúskaparstöðu sinni.
Það eru ekki mörg ár síðan giftu
fólki eða sambúðarfólki stóð aðeins
til boða að vista börn sín hálfan
daginn á leikskóla og 6 tíma vistun
var fáséð. Gert hefur verið stórátak
í því að fjölga dagvistarrýmum
þannig að biðlistarnir hafa ekki
lengst þrátt fyrir fjölgun barna á
þeim. Börnum gefst einnig kostur
á að bytja yngri á leikskólum, fyr-
ir þá sem það kjósa. Það er þó
misjafnt eftir hverfum hversu bið-
listinn er langur en sumsstaðar
komast börnin að innan við 2 ára
en annarsstaðar um 3 ára. Það
hefur einnig verið komið til móts
við þá sem kjósa að hafa börn sín
hjá dagmæðrum,því þar er vistunin
einnig greidd niður að hluta eins
og vissulega er gert hjá leikskólun-
um. í nokkurn tíma hafa tvíburar
fengið afslátt af leikskólagjaldi
sem var fyrsta skrefið í almennum
systkinaafslætti og nú 1. júní bæt-
ist við systkinaafsláttur á 8 og 9
tíma vistun. Það er vissuíega í átt-
ina og nú bíðum við eftir afslætti
fyrir þau systkini sem em í skemmri
vistun og verður þess vonandi ekki
iangt að bíða. Mín reynsla í gegnum
árin er sú að nú sé sveigjanleikinn
og valið miklu meira, t.d. hvað varð-
ar matinn og vistunartímann og
biðtíminn eftir plássi miklu styttri.
Ég endurtek ánægju mína með
þessa þróun og það var vissulega
kominn tími til að_ stokka upp í
dagvistarkerfinu. Á meðan við
búum við þennan raunveruleika að
flestir vinni úti er það auðvitað rétt
þróun að dagvistarkerfið lagi sig
að þeim raunvemleika. Það er einn-
ig ólíku saman að jafna að koma
niður á Dagvist barna nú en j)egar
svörin við erindi manns þar vora
oftast neikvæð eða bið í heilt ár
eftir plássi ef börnin komust ekki
inn um sumarfrí.
MARGRÉT ÍVARSDÓTTIR,
fjögurra barna móðir,
Hjálmholti 4, Reykjavík.
Breytt
og betri
borg
Frá Sigurbjörgu Ásgeirsdóttur:
í TILEFNI þess að tvö ár eru liðin
síðan Reykjavíkurlistinn tók við
stjórnartaumum í borginni okkar vil
ég minna á það að mikið var hamr-
að á því fyrir kosningar að sundrung
og deilur innan Reykjavíkurlistans
myndu einkenna það samstarf og
ekkert gott af hljótast. En hver er
svo raunin? Samhentum meirihluta
hefur tekist að koma ótrúlega miklu
í verk á skömmum tíma. Uppbygg-
ing og úrbætur blasa hvarvetna við
og það er orðið eftirsóknarvert fyrir
barnafjölskyldur að flytjast til
Reykjavíkur. Þar vegur ekki minnst
sú breyting sem orðið hefur í leik-
skólamálum en það var svo sannar-
lega orðið tímabært að bið eftir slíkri
sjálfsagðri þjónustu styttist. Þar sem
ég þekki til er almenn ánægja með
þá forgangsröðun sem ríkir hjá
Reykjavíkurborg og í fyrsta skipti í
langan tíma er tilfinning manna sú
að borgaryfirvöld láti hagsmuni
heildarinnar ráða en ekki hagsmuni
fárra útvalinna.
Ég vil þakka borgarstjóranum,
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrir
þá réttsýni go ráðdeildarsemi sem
mér virðist einkenna stjórn borgar-
innar og Reykvíkingum til hamingju
með betri borgarstjórn.
iberno
þvottavélar
tauþurrkarar
u ppþvottavél ar
""----- j
\ smá-wte*'
aðeigm vah
kr.3000 r-
við WaoP * .
\ \BERNM*k' l
Legnframvisuo
\ ppssa miða
LBI-2518TX Þvottavél
* ryðfrítt stál í tromlu og kari
*18 þvottakerfi fyrir allt tau
* stiglaus hitastilling
* sparnaðarrofi f/lítið taumagn
* vinduhraði 800 sn./mín.
* stillanlegur vinduhraði 800/400 sn.
* rofi til að aftengja vindingu
* orkunotkun 1,2 kwh á 60°C kerfi
* HxBxD = 85x60x52 cm
Verðlistaverð kr. 50.650,-
NÚ Á KYNNINGARVERÐI
AÐEINS 44.990,- stgr.
mm
LBI-218T Þvottavél | ABI-25 Þurrkari I LSI-56 Uppþvoltavél
800/400 sn. vinding
12 þvottakerfi
frjálst hitaval
sparnaðarrofi
HxBxD = 85x40x60 cm
(Rétt verð 55.960,-)
TILBOÐ 49.990,- stgr.
2,5 m barki fylgir
tímarofi 1-130 mín.
2 snúningsáttir
taumagn 4,5-5,0 kg.
HxBxD = 85x60x52 cm
(Rétt verð 29.100,-)
TILBOÐ 25.990,- stgr.
tekur 12 m. borðbúnað
5 þvottakerfi,
hitaval 65°/55°C
vatnstenging: kalt/heitt
HxBxD = 85x60x60 cm
(Réttverð 51.590,-)
TILBOÐ 46.990,- stgr.
FRÍ HEIMSENPING - F]ARLÆG!UM GAMLA TÆKIÐ ÁN GREIÐSLU
iberno flokks /rOnix
VONDUÐ VEL A VÆGU VERÐI
frá n
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMi 552 4420
Slysagildra
Frá Jónu Jónsdóttur:
ÞESSAR línur eru ritaðar til þess
að þakka Friðriki Ásmundssyni
Brekkan fyrir bréf sem birtist í
Mbl. ásamt myndum, þ. 26. maí
sl. Þar vekur hann athygli á mjög
áríðandi máli, þ.e. hinum hand-
ónýta og stórhættulega vegi milli
Gullfoss og Geysis.
Þetta voru sannarlega orð í tíma
töluð. Vil ég hér með taka undir
hvert orð sem í bréfi þessu stend-
ur, það er eins og talað útúr mínu
hjarta, því sjálf var ég alltaf „á
leið“ að skrifa um þetta. Ég vona
að fleiri láti frá sér heyra vegna
þessa máls, því það er brýnt að
nú verði tekið til hendinni.
Ég skora einnig á þá, sem hafa
með veg þennan að gera, að láta
í sér heyra: Finnst þeim allt i lagi
að hafa veginn svona eins og hann
er?
Hver er forgangsröðin í vega-
gerð á þessum slóðum?
Hvað er það sem ræður því að
farið er í framkvæmdir t.d. við
uppbyggingu á „Skálholtsvegi“
(nr. 31?), frekar en að ganga nú
loksins og endanlega frá þeim
hringvegi, sem meðal ferðamanna
kallast „The golden circle“, og er
einn umferðarþyngsti vegarkafli á
íslandi á sumrum?
(Ég undanskil í þessari umræðu
veginn milli Þingvalla og Laugar-
vatns, sem í daglegu tali kallast
Lyngdalsheiði.)
Ef virkilega er skilningur á því
hversu áríðandi það er að byrgja
brunninn áður en bamið dettur
ofan í hann, þá hlýtur eitthvað áð
gerast í málinu ekki seinna en
núna!
Gleðilegt sumar.
JÓNA JÓNSDÓTTIR,
leiðsögumaður,
Klapparstíg 18, Reykjavík.
■OofuGii
ný ÓPER^A EFtllcjÓn ÁSCEÍR^SOn
mÍÐASALön
OPÍn KJ.. 15-19
nEmfl món.
SÍmÍ 551-1475
ÍSLEnSKA ÓPER0n
I. iÚnI UPPSELt OG 4. ÍOní UPPSELt
nÆstu sÝnincARj. júní 8. júní n. júní oc 14. júní
Elizabeth Arden
KYNNING í DAG
Grafarvogsapótek
frákl. 14-18
2o% kynningarafsláttur
Blað allra landsmanna!
-kjarni málsins!
SIGURBJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR,
Fjólugötu 25, Reykjavík.
GULLSMIÐJAN
PYRIT-G15
ÍSLENSK HÖNNUN OG HANDVERK
flísar
-7--ÍF
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
síini 567 4844
WATERMAN ®
«n
S
s
Bókabúðin Mjódd • Bókabúðin Suðurströnd • Skákhúsið • Bókabúð Keflavíkur • Bókval Akureyri • Mál og menning
Veda Kópavogi • Gríma Garðabæ • Bókabúðin Vestmannaeyjum • Bókabúð Brynjars Sauðárkróki
VBJ Neskaupsstað • Ritbær Hafnarfirði