Morgunblaðið - 11.07.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1996 35
AÐSENDAR GREINAR
í GREIN sem birtist á síðum
blaðsins fyrir skemmstu, benti ég
lesendum á ýmislegt sem leiddi
hugann að því að ef til vill ættu
mörg okkar _að huga betur að
mataræðinu. Ég fjallaði um hugs-
anlegar afleiðingar vegna neyslu á
dýrakjöti og að Biblían okkar inni-
heldur mörg góð ráð hvað matar-
venjur snertir.
Hér á eftir mun ég aðallega
beina sjónum mínum aðáhrifum
kólesteróls en eftirfarandi grein
byggist að hluta á grein úr banda-
risku háskólatímariti, Dialogue,
eftir Heather M. Bowen, en hún
er með masterspróf í dýravísind-
um. ■
Ekki er allt búið enn.
Kólesteról, klingir það einhverri
bjöllu? Undanfarin ár hafa augu
okkar beinst að þessu efni sem er
fitukennt alkóhól í frumum og lík-
amsvökvum dýra; mikilvægt í
efnaskiptum líkamans. A meðan
sumt kólesteról er nauðsynlegt er
líka hægt að fá „of mikið af því
góða“. Nokkurn veginn helmingur
allra dauðsfalla í Bandaríkjunum
eru af völdum æðakölkunar. Hér
á landi eru tölurnar einnig háar
hvað hjarta- og æðasjúkdóma
varðar. Á árinu 1994 létust 1717
Islendingar og þar af 799 af völd-
um hjarta- og æðasjúkdóma (nýj-
ustu tölur).
Æðakölkun er sjúkdómur þar
sem kólesteról safnast inn á stórar
og meðalstórar slagæðar, og
myndar fitulag innan á veggjum
þeirra. Með tímanum myndast
kökkur sem teppir einhveija æðina
og veldur það hjartaáfalli eða heila-
blóðfalli. Kólesterólið sem veldur
þessum æðasjúkdómum á rætur
að rekja til örsmárra agna kallaðar
lipóprótín (LDL = low density li-
poprotein) en lipóprótín er lífræn
sameind mynduð'af prótíni og fitu.
LDL er í blóðstreyminu og því
meira sem er af því, því hraðar
skemmast æðarnar og æðakölkun
á sér stað.
En fyrst kólesteról eða LDL er
náttúrulegt, afhverju leyfir líkam-
inn því að hækka svo mjög í sum-
um einstaklingum? Til þess að út-
skýra það þurfum við að skilja
hvernig líkaminn stjórnar LDL
Réttir úr jurtafæði, seg-
ir Alda Baldursdóttir
í þessari síðari grein
sinni, eru hollir, fljótleg-
ir og flestir hræódýrir.
kólesteróli. Á yfirborði hverrar ein-
ustu frumu í líkamanum eru stað-
settir LDL viðtakar. Hlutverk
þeirra er að fjarlægja LDL úr blóð-
streyminu og flytja það inn í fru-
muna, brjóta það niður og endur-
vinna í frumuafurð. Venjulega eru
margir slíkir viðtakar á hverri
frumu. Það hefur hinsvegar komið
í ljós að ef kjöt og mjólkurafurðir
eru í fæðunni getur það fækkað
viðtökunum það mikið
að það hrindir af stað
keðjuverkandi áhrif-
um sem leiða tii þess
að LDL hækkar í blóð-
inu og æðakölkun
byijar.
Þótt ótrúlegt sé,
hafa viðbrögð vísinda-
manna verið frekar
hægvirk og stundum
óraunsæ. Sumir vís-
indamenn, sem vita af
þessu með áhrif kjöts-
ins, segja að það ætti
ekki að ýta undir það
að borða jurtafæði
einfaldlega vegna fé-
■ lagslegra og ijárhags-
legra áhrifa á samfélagið. Einnig
tala þeir um að það séu bara fimm-
tíu prósent þjóðarinnar [U.S.A.]
sem látist vegna fituhrörnunar;
hinir eru svo lánsamir að vera
erfðafræðilega ónæmir fyrir fækk-
un LDL viðtaka. í stað þess að
mæla með einfaldri breytingu á
mataræði, hafa sumir vísindamenn
byggt vonir sínar, á að öðlast góða
heilsu, á þróun lyfs sem er fyrir-
byggjandi: „Ef það kemur í ljós
að þessi lyf munu koma í veg fyr-
ir að fæðan valdi fækkun viðtak-
anna og að hægt verði að sýna
fram á að langtíma notkun verði
hættulaus, þá verður það ef til vill
mögulegt einhvern tíma fyrir fólk
að fá sér steikina sína og lifa til
þess að njóta hennar líka.“
Útlista mætti fleiri svið í tengsl-
um við neyslu á dýrakjöti s.s. notk-
un hormóna og sýklalyfja í ræktun
dýra til manneldis og áhrifin sem
það hefur á fólk sem neytir kjöts
af því tagi. En þó svo kjötið hér á
landi teljist með því besta sem
fæst ferðast íslendingar víða er-
lendis og neyta kjöts þar. Hvað
bændur snertir kallar breytt mat-
aræði á annars konar ræktunar-
hætti svo ekki þyrftu
þeir að verða atvinnu-
lausir, en breytingar
af þessu tagi tækju að
sjálfsögðu tíma, en ís-
lensk korn- og græn-
metisræktun sýnir að
það er ýmislegt hægt.
Ég vildi einnig geta
keypt lífrænt ræktuð
egg úti í búð .
Ekki er alveg hægt
að stöðva hér skrifin
án þess að minnast á
hættu þess að neyta
efna og annarra
mengunarvalda í fiski
og skelfiski. Þó svo
íslendingar búi við þá
gæfu að búa almennt í frekar
ómenguðu landi erum við ekki al-
veg laus við mengun og erlendis
er víða pottur brotinn. Hér á landi
hafa margar úrbætur átt sér stað
en betur má ef duga skal.
Það að gerast jurtaæta hvort
sem maður gerir það sem kristinn
einstaklingur í leit að lífi sem fær-
ir mann nær Guði og himninum,
en í Jesaja stendur: „Úlfur og lamb
munu vera saman á beit, og ljónið
mun hey eta sem naut, ...Hvergi
á mínu heilaga fjalli munu menn
illt fremja eða skaða gjöra - segir
Drottinn." Js 65.25. Eða hreinlega
af heilsufarsástæðum. Hvort held-
ur er fannst mér það skylda mín
að deila þessum upplýsingum með
þér, lesandi góður. Ég veit að það
getur líka verið góð leið til þess
að uppræta fordóma og bara kynn-
ast öðru fólki að hittast á nám-
skeiði og læra að matreiða græn-
metisrétti frá ýmsum þjóðum og
af ýmsum gerðum. Ég er rétt að
byija og mér finnst svo spennandi
að fræðast um allt mögulegt tengt
heilsusamlegu mataræði en það
þarf að lesa sér til og huga að
samsetningu fæðisins, það má ekki
verða of einhæft og hreyfing og
útivera eiga auðvitað sinn þátt í
góðri heilsu. Sem betur fer er góð-
ar bækur að finna í bókaverslunum
svo við ættum að geta haldið okk-
ur í toppformi. Margir halda því
fram að börn geti ekki lifað ájurta-
fæði en það er hin mesta fjar-
stæða, en áður en róttækar breyt-
ingar eiga sér stað þarf að kynna
sér málin vandlega. Ég hef tekið
í hendurnar á fullorðnu frísku fólki
sem aldrei hefur borðað annað en
jurtafæði Hver og einn prófar og
finnur út hvað honum og fjölskyld-
unni líkar en það besta sem ég hef
rekið mig á til þessa, er að það
eru til svo margir fljótlegir og
góðir réttir og oftast nær hræódýr-
ir. _ •*£
Ég get nú eiginlega ekki stillt
mig um að láta eina góða upp-
skrift fylgja með í lokin sem ég
lærði um daginn og hef aðlagað
pínulítið að smekk heimilisfólksins.
Linsu- og hnetubúðingur
1 bolli linsur (grænar, mjög góðar)
1 bolli hnetur (t.d. Brasilíuhnetur)
2-3 egg ( má sl. 2 rauðum)
1 ‘A bolli mjólk
1-2 msk. olía (ólífu)
1 'A bolli kornflögur
'/2 laukur (saxaður smátt)
'A rauð paprika
Kryddað að smekk.
Linsurnar soðnar þar til þær eru ;
mjúkar, u.þ.b. '/2 tíma. Hneturnar
malaðar frekar smátt. Öllu blandað
saman. Kryddað t.d. með smásalti,
kúmendufti, hvítlauksdufti, hvítum
pipar og aromati. Sett í eldfast
mót. Bakað í ca. 45 mín. við 180
gráður. Borið fram með t.d. hrásal-
ati, soðnum eða bökuðum kartöfl-
um og ef vill, góðri fitusnauðri
sósu t.d. tómat- sveppasósu.
Höfundur er grunnskólakennari.
Græn grein!
Er jurtafæði eitthvað fyrir þig?
Alda
Baldursdóttir.
I AUCiAViCiF I H \\ HE YK IAVIK