Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sveitarfélög keppa um gTunnskólakemiarana SAMKEPPNI er milli sveitarfélaga um að fá til sín grunnskólakennara. Meira virðist vera um yfirborganir og sérkjör heldur en áður, en samt hefur reynst erfitt að fá fólk í stöður í skólum úti á landi. Siguijón Pétursson, yfirmaður grunnskóla- deildar Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að dæmi séu um að kennarar hafi verið ráðnir til eins skóla en hafi síðan farið fyrirvaralaust yfír til annars sem betur bauð. Erfitt er að fá heildarmynd af ástandi skóla- mála vegna þess að stjórn þeirra hefur dreifst á fleiri staði en áður. Skólamenn sem Morgun- blaðið ræddi við voru þó sammála um að kennaraskortur væri meiri en áður. Skólastjórar hafa þurft að bjóða betri kjör en áður. Til dæm- is er borguð óunnin yfírvinna, flutningsstyrkir, dagvistun fyrir börn kennara niðurgreidd, leiga niðurgreidd eða ókeypis húsnæði boðið og svo framvegis. Þrátt fyrir þessar ráðstafanir hefur oftar en áður þurft að ráða leiðbeinendur í stað merintaðra kennara. í Grundarfírði hafa skólayfirvöld boðið kenn- urum þrjátíu þúsund króna flutningsstyrk og að dagvistargjöld verði greidd niður, jafnvel að fullu. Þrátt fyrir þetta tókst ekki að ráða í allar stöður fyrr en nú á síðustu dögum. Að sögn Gunnars Kristjánssonar skólastjóra, verður hlut- fall leiðbeinenda í kennslunni helmingi hærra en í fyrra. Gunnar segir að ástandið sé víðar slæmt á Snæfellsnesi og sama er að segja um Vestfirði. Launin of lág Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands íslands, segir ýmsar skýringar á kennaraskortin- um. Kennslustundum fari fjölgandi, margir skólastjórar og kennarar hafí farið á eftirlaun við tilfærslu skólanna til sveitarfélaganna og fleiri hafi farið til stjórnsýslustarfa vegna fjölg- unar fræðsluskrifstofa. „Meginástæðan er samt sú að laun kennara eru of lág. Það er sama sagan að endurtaka sig og var í góðærinu á níunda áratugnum; kennur- um bjóðast betri kjör annars staðar. Vandinn fer vaxandi á næstu árum því kennslustundum mun enn fjölga." Eiríkur telur að yfirborganir kennara úti á landi séu tvíeggjuð kjarabót. Utanaðkomandi fólk sé lokkað á staðina með fríðindum en þeir sem fyrir eru fái engar hækkanir. Hann segir þetta skyndilausnir sem valdið geti óeiningu. Sigurður Helgason, formaður undanþágu- nefndar, sem gefur út leyfi til að ráða leiðbein- endur til starfa í skólum í stað menntaðra kenn- ara, segist búast við að minnsta kosti jafn mörg- um, og sennilega fleiri umsóknum en í fyrra. Nú hafa borist fjögur hundruð undanþágubeiðn- ir en í fyrrahaust bárust samtals 540. Sigurður telur að ráðningar hafi farið seinna af stað en í fyrra og enn eigi því mikið eftir að berast. Hagkaup Boða ódýr- ustu lyfin ÓSKAR Magnússon, forstjóri Hag- kaupa, segir að lyfjaverslun fyrir- tækisins sem opnuð verður í Skeif- unni eftir nokkrar vikur, muni skuldbinda sig til að vera alltaf ódýr- asta lyfjaverslun landsins. „Við munum gera reglulegar verðkannanir til að tryggja að við séum alltaf lægstir. Ef viðskiptavin- ir sýna fram á að lægra verð sé annars staðar munum við bjóða betur. Óskar segir að lyfjaverslanir hér- lendis hafí hingað til ekki verið rekn- ar á hagkvæmasta hátt vegna þess að samkeppni hafi skort. Hann seg- ir að hægt verði að hafa lægra verð j í verslun Hagkaups vegna þess að hún verði lítil og rekin undir sama þaki og matvöruverslunin. Enn hefur ekki verið ákveðið hve- nær verslunin verður opnuð, en Ósk- ar segir að nokkrar vikur séu í það. Prestvígsla í Landakoti KAÞÓLSKUR prestur, séra Atli Gunnar Jónsson, var vígður í Kristskirkju í Landakoti á laug- ardaginn og söng hann sína fyrstu messu á sunnudag. Jo- hannes Gijsen biskup vígði Atla. Atli er sjöundi íslendingurinn sem vígist til prests í kaþólskum sið eftir siðaskipti. Hann hefur stundað nám í Bretlandi og Róm og mun ljúka licentiatsprófi á komandi sumri. Fjölmargir er- lendir vinir og kunningjar Atla, frá Þýskalandi, Bretlandi og Ítalíu, komu til landsins til að fylgjast með vígslunni. -----» ♦ ♦ Þoka trufl- ar flug FLUGSAMGÖNGUR á Reykjavík- urflugvelli fóru úr skorðum í gær vegna svartaþoku. Fjórar flugvélar í innanlandsflugi gátu ekki lent á vellinum og var beint til Keflavík- ur. Síðdegis, þegar létti til, gátu þijár vélanna lent í Reykjavík. Um tíma var þokan það dimm í Reykjavík að flugvélar gátu ekki tekið á loft og er óvenjulegt að slíkt ástand skapist í Reykjavík. Morgvnblaðið/Kristinn Starfsmenn Landmælinga fá rökstuðning umhverfisráðherra fyrir flutningi til Akraness Stuðlar að jafnvægi í byggð landsins FORSTJÓRI Landmælinga ríkisins kynnti starfsmönnum stofnunarinn- ar í gær formlega ákvörðun um- hverfísráðherra að flytja Landmæl- ingar ríkisins frá Reykjavík til Akraness. Jafnframt var starfs- mönnum kynntur rökstuðningur ráðuneytisins fyrir flutningnum. Þar kemur fram að stjórnvöld vilji með þessari ákvörðun gefa ungu fólki, sem leitar sér háskólamennt- un á höfuðborgarsvæðinu eða er- lendis, kost á vinnu við sitt hæfi í heimabyggð og jafnframt hamla gegn þeirri þróun að fólk og fyrir- tæki flytji í auknum mæli af lands- byggðinni á höfuðborgarsvæðið. Akvörðun umhverfísráðherra fel- ur í sér að Landmælingar ríkisins taka að fullu til starfa á Akranesi í ársbyijun 1999. Starfsmenn hafa frest til 1. janúar 1998 til að taka ákvörðun um hvort þeir vilja starfa áfram hjá stofnuninni í nýju sveitar- félagi eða segja upp störfum. Mikil óánægja er meðal starfsmanna með ákvörðun ráðherra. Umhverfísráðherra hefur óskað eftir að starfsmenn skipi fulltrúa í þriggja manna vinnuhóp sem ætlað er að fjalla um málefni þeirra starfs- manna sem vilja flytja á Akranes. Hópnum er ætlað að fjalla um flutn- inginn, aðgang að félagslegri þjón- ustu, húsnæðismál, vinnu maka o.fl. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, tals- maður starfsmanna, segir að starfs- menn hafi samþykkt að skipa ekki fulltrúa í vinnuhópinn vegna þess að ekki sé vitað til þess að neinn starfsmaður ætli að flytjast með stofnuninni til Akraness. í bréfí Guðmundar Bjarnasonar umhverfísráðherra til Ágústs Guð- mundssonar, forstjóra Landmæl- inga ríkisins, segir að það sé stefna núverandi ríkisstjórnar að flytja rík- isstofnanir út á land. Vísað er í rík- isstjómarsáttmála stjórnarflokk- anna þar sem segir að stuðla beri að eflingu þjónustukjarna með ákvörðun um staðsetningu opin- berra stofnana. Bent er á að flutn- ingur ríkisstofnana út á lands- byggðina hafi verið stefna flestra stjórnmálaflokka á íslandi og ríkis- stjóma síðustu tvo áratugina. „Með stefnu sinni um flutning opinberra stofnana vilja stjómvöld m.a. stuðla að jafnvægi í byggð landsins, styrkja byggðakjarna, dreifa opinberri þjónustu og stuðla að fleiri og fjölbreyttari atvinnu- tækifæmm utan höfuðborgarsvæð- isins. Þá vilja stjómvöld gefa ungu fólki, sem Ieitar sér háskólamennt- unar á höfuðborgarsvæðinu eða erlendis, kost á vinnu við sitt hæfí í heimabyggð og jafnframt hamla gegn þeirri þróun að fólk og fyrir- tæki flytji í auknum mæli af lands- byggðinni á höfuðborgarsvæðið." Ágreiningur um leiguverð Umhverfísráðherra bendir á að með bættum samgöngum og fjar- skiptum og aukinni tækni verði flutningur og rekstur ríkisstofnana utan höfuðborgarsvæðisins auð- veldari en áður. I bréfi hans segir jafnframt að núverandi húsnæði Landmælinga ríkisins í Reykjavík sé bæði óhentugt og of stórt. Leigu- tíminn sé útrunninn og aðeins tíma- spursmál hvenær taka verði ákvörð- un um flutning í annað og hent- ugra húsnæði. Ráðherra segir í bréfinu að áætl- að sé að leigukostnaður Landmæl- , inga ríkisins verði lægri á Akranesi en kostnaður stofnunarinnar í Reykjavík. Hrafnhildur Brynjólfs- j dóttir segir að þær upplýsingar sem hún hafí í höndum bendi til annars. Samkvæmt bréfí Framkvæmda- sýslunnar frá 14. mars 1996 kosti 10 ára leigusamningur á Akranesi Landmælinga ríkisins 80-91 millj- ón, en nýr og breyttur leigusamn- ingur í núverandi húsnæði kosti stofnunina 72 milljónir miðað við j 10 ára leigusamning. Starfsmenn samþykktu ályktun á starfsmannafundi í gær þar sem mótmælt er orðum forstjóra Land- mælinga, sem hann lét falla í við- tali við DV, en þar segir hann að starfsmenn Landmælinga ræði nú möguleika á því að búa í Reykjavík og ferðast á milli eða að flytja til Akraness. í ályktuninni segir að starfsmenn ræði ekki möguleika á að ferðast á milli Reykjavíkur og Akraness eða flytjast til Akraness. Starfsmenn hafi einbeitt sér að því að beijast gegn ákvörðun ráðherra og muni halda því áfram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.