Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 7
FRÉTTIR
A heimleið
frá Korsíku
KORSÍKUFARARNIR sem lögðu
upp í langferð síðastliðinn föstudag
eru nú á heimleið og hefur ferðin
gengið eins og í sögu, að sögn einka-
flugmannsins unga, Jóns M. Har-
aldssonar, en hann er aðeins nítján
ára gamall.
Þetta er eitt lengsta fiug sem
einkaflugmaður hefur farið á lítilli
eins hreyfils flugvél frá íslandi. Vél-
in, sem er af gerðinni Aerospatiale
Socata TB20 Trinidad, er í eigu Flug-
taks. Með Jóni í för eru Elíeser Jóns-
son flugstjóri og Sara Vöggsdóttir
einkaflugmaður.
Korsíka einstaklega falleg
Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir
Kúasmali er ekki
ónýtur titill
Vopnafirði. Morgunblaðið.
Þóra Pétursdóttir er ekki há
í loftinu en hefur samt gegnt
því virðulega embætti að vera
kúasmali á búi foreldra sinna
á Skjaldþingsstöðum í Vopna-
firði í sumar. Þóra sagðist brátt
ætla að hætta störfum því hún
er byijuð í 5. bekk í Vopna-
fjarðarskóla og styttist í að
kýrnar verði hýstar fyrir vet-
urinn. Uppáhaidskýrin hennar
Þóru er kýrin Draumadís. Hún
sagði kýrnar geta verið ótrú-
lega þijóskar, sérstaklega á
haustin þegar þær fá að ganga
á túnunum. Þóra plataði þær
þó einu sinni með því að segja
þeim að það væri útsala á góðu
heyi heima í fjósi.
Senn líður að skilarétt í
Vopnafirði en hún verður um
miðjan mánuðinn. Þá hefst slát-
urtíð og annir hjá húsmæðrum
í sveitum landsins.
Jón sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að flugið hefði tekið
mun skemmri tíma en hann hafði
búist við, enda skilyrði öll afar hag-
stæð. Hann lenti á Korsíku á laug-
ardagskvpldið og þar var gist í tvær
nætur. „Ég er alveg steinhissa á því
hvað það sjást fáir ferðamenn á
Korsíku eins og þetta er einstaklega
fallegur staður," segir Jón.
Frá Korsíku héldu Jón, Elíeser og
Sara til Cannes í Frakklandi í gær
og þar voru þau nýlega lent þegar
Morgunblaðið náði tali af Jóni. Þar
var þá þijátíu stiga hiti, léttskýjað
og logn. Að sögn Jóns er ætlunin
að dvelja þar í tvo daga áður en þau
halda áfram til Normandí og
Glasgow og síðan heim til íslands
en hingað eru þau væntanleg síðdeg-
is á fimmtudag.
-----♦ ♦ ♦-----
• •
Orlyg’shafnarvegrir
Lægsta boð
helmingur
af áætlun
LÆGSTA tilboð í Örlygshafnarveg
um Skápdalshlíð í Patreksfirði var
rétt rúmur helmingur af kostnaðar-
áætlun Vegagerðarinnar. Verktak-
inn býðst til að vinna verkið fyrir
16,7 milljónir kr. en kostnaðaráætl-
un Vegagerðarinnar hljóðar upp á
30 milljónir.
Lægsta tilboðið er frá Friðgeiri
V. Hjaltalín í Grundarfirði. Næst
lægsta tilboðið hljóðaði upp á 24,7
milljónir kr. sem er 82% af áætlun
Vegagerðarinnar.
Um er að ræða enduriagningu
Örlygshafnarvegar um Skápdals-
hlíð, alls tæplega 2 km leið. í verk-
inu felast og lagfæringar á vatnsrás
á Barðastrandarvegi í fjarðarbotn-
inum og gerð rofvarnar við Stapana
innanvert við Raknadal í norðan-
verðum Patreksfirði. Verkinu á að
vera að fullu lokið 15. júlí næsta
sumar.
------♦ ♦ ♦----
Reykur í Al-
þingíshúsinu
SPENNIR á annarri hæð Aiþingis-
hússins brann yfir laust eftir hádegi
í gær og sprakk. Talsverður reykur
varð af þessum völdum í húsinu en
enginn eldur. Allt tiltækt lið lögreglu
og slökkviliðs fór á staðinn.
Að sögn slökkviliðs fór eldvarn-
arkerfi i gang. Hvergi var eldur í
húsinu en talsverður reykur í risi.
Húsverðir voru á neðstu hæð hússins
þegar þetta gerðist.
------» ♦ ■■•--
Hass gert
upptækt
LÖGREGLAN í Reykjavík gerði upp-
tæk níutíu grömm af hassi við hús-
leit í Breiðholtinu á föstudagskvöld.
Einn maður var handtekinn í tengsl-
um við málið. Málið er í rannsókn
hjá fíkniefnadeild lögreglunnar.
NÝR SÝNINGARSALUR BMW
NÚ BJÓÐUM VIÐ 3-LÍNUNA
MEÐ 200.000 KR. AFSLÆTTI
BMW 316 og BMW 318 á lægra verði
í tilefni opnunar nýs sýningarsalar aö Suður-
landsbraut 14 höfum við fengið nokkra BMW bíla
af '96 árgerðinni frá verksmiðjunum í Þýskalandi
á sérstöku verði. Því getum við boðið þessa
einstöku gæðabíla með 200.000 kr. afslætti.
Komdu og skoðaðu þýsku gæðingana í nýjum
sýningarsal að Suðurlandsbraut 14.
SUÐURLANDSBRAUT14
SÍMI 568 1200
Beinn sími: 553 8636
ENGUM LÍKUR