Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ATVIN N U A UGL YSINGAR Baader-mann vantar á Hólmadrang ST-70. Upplýsingar gefur Gunnar í síma 451 3209 eða 451 3180. Vélstjóri óskast á netabát. Þarf að hafa 1.000 ha réttindi. Upplýsingar í síma 421-1908. Básúna og flauta Sinfóníuhljómsveit íslands auglýsir lausar eftirfarandi stöður frá 1. janúar 1997: - Staða almenns flautu- og piccoloflautu- leikara meðtímabundna uppfærsluskyldu. - Staða bassabásúnuleikara. Hæfnispróf verða haldin á tímabilinu 18.-21. nóvember nk. Umsóknarfrestur er til 10. október. Nánari upplýsingar eru veittar af starfsmannastjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar í Háskólabíói og í síma 562 2255. Sinfóníuhljómsveit íslands. Félagsmálaráðuneytið Deildarsérfræðingur Laus er til umsóknar 100% staða deildarsér- fræðings í félagsmálaráðuneytinu frá 1. októ- ber nk. Um er að ræða vinnu við Jöfnunarsjóð sveit- arfélaga sem einkum erfólgin í útreikningum, afgreiðslu og eftirliti vegna framlaga úr sjóðnum. Æskiiegt er að umsækjandi hafi menntun á sviði viðskipta- eða félagsfræði og þekkingu á sveitarstjórnarmálum. Góð hæfni og reynsla í tölvunotkun er nauðsynleg. Laun eru sam- kvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Pálsdóttir, deildarstjóri í félagsmálaráðu- neytinu. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og starfsferil, sendist félagsmálaráðuneyt- inu fyrir 25. september nk. Félagsmálaráðuneytið, 9. september 1996. Fræðslustjóri starfsmannahald Starfsmannahald Reykjavíkurborgar óskar að ráða í stöðu fræðslustjóra hjá starfsmannahaldi. Starfið er laust nú þegar. Starfið felst í stefnumótun og yfirumsjón endurmenntunarmála starfsmanna borgar- innar í samráði við starfsmannastjóra Reykja- víkurborgar. Leitað er að einstaklingi með háskóla- menntun og reynslu af endurmenntunar- málum. Viðkomandi þarf að eiga gott með að tjá sig í ræðu og riti og hafa kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu Guðna Jónssonar og skal umsóknum skilað á sama stað. Umsóknarfrestur er til 20. september nk. Rétt er að vekja athygli ó að það er stefna borgaryflrvalda að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja. Guðni Jónsson RÁDGIÖF & RÁDNINGARMÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 5-62 13 22 Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Skrifstofustarf Laus er til umsóknar staða skrifstofumanns við embætti sýslumannsins í Stykkishólmi. Starfið, sem er almennt skrifstofustarf, er aðallega á sviði bókhalds. Hér er um að ræða fullt starf og er gert ráð fyrir því að ráðið verði í starfið frá 1. október nk. og er ráðningartími ótímabundinn. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af skrifstofustörfum og nokkra þjálfun í tölvu- vinnslu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðni Friðriksson aðalbókari, sími 438 1220. Umsóknarfrestur er til 24. september 1996 og skulu umsóknir berast til skrifstofu sýslu- manns, Aðalgötu 7, Stykkishólmi. Þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið verður öllum umsóknum svarað. Stykkishóimi, 9. september 1996. Sýslumaðurinn íStykkishólmi, Ólafur K. Ólafsson. Störf á sviði fjármála og verðbréfa Verðbréfafyrirtæki óskar eftir að ráða starfs- menn í eftirtalin störf: Forstöðumaður upplýsingasviðs Forstöðumaðurinn hefur umsjón með bók- og reikningshaldi fyrirtækisins ásamt upp- byggingu og rekstri tölvukerfis. Kröfur um hæfni: Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi viðskipta- fræðimenntun og æskileg er löggilding á sviði endurskoðunar. Reynsla í sambærileg- um störfum er mikilvæg. Verðbréfamiðlun/ráðgjöf Starfsmaður mun sjá um kaup og sölu verð- bréfa, mat á verðbréfum ásamt fjármálaráðg- jöf fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Kröfur um hæfni: Starfsmaður þarf að hafa viðskipta- eða lög- fræðimenntun. Reynsla innan fjármálafyrir- tækis er æskileg. Bókhald Starfsmaður mun sjá um og bera ábyrgð á merkingum og skráningu bókhaldsgagna, færslum í bókhaldi, afstemmingum og stöðu reikninga. Kröfur um hæfni: Starfsmaður þarf að hafa viðeigandi mennt- un. Reynsla á sviði bókhalds í fjármálafyrir- tæki eða lánastofnun er æskileg. Ofangreind störf eru öll krefjandi og er áhersla iögð á skipuleg vinnubrögð, árang- ur f starfi og að starfsmenn séu tilbúnir til samstarfs og liðsvinnu þegar aðstæður krefjast. Fyrir rétta aðila eru góð laun íboði. í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar upplýsingar um menntun og fyrri störf. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðar- mál og öllum umsóknum verður svarað. Þeim, sem telja sig uppfylla þær kröfur sem að ofan greinir, er boðið að senda inn um- sókn til KPMG Sinnu ehf. fyrir 14. septem- ber 1996. Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf Vegmúli 3 Slmi 588-3375 108 Reykjavík Fax 533-5550 KPMG Sinna ehf. veitir ráðgjöf á sviði stjórnunar- og starfsmannamála og einnig sórhæfða ráðningarþjónustu. KPMG Sinna ehf. er í samstarfi við KPMG Management Consulting. Lögfræðingur óskast til innheimtustarfa í lögfræðideild Búnaðarbankans. Upplýsingar veitir Ársæll Hafsteinsson í lög- fræðideild bankans. Laun og kjör samkvæmt kjarasamningi SÍB og bankanna. Hafir þú áhuga á starfinu, sendu þá skriflega umsókn með upplýsingum um nám og fyrri störf til starfsmannahalds, Austurstræti 5, fyrir 20. september nk. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS A KÓPAVOGSBÆR Þinghólsskóli - matráður Matráður óskast í Þinghólsskóla - fullt starf. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 13. september. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 554 2250 milli kl. 10 og 11 alla virka daga. Starfsmannastjóri. Smá ouglýsingor t • J U ll /I i—. .^3 Hallveigarstíg 1 • simi 561 4330 Dagsferðir 15. september 1. Kl. 9.00 Fjallasyrpan, 9. ferð, Ok. Ekið um Þingvelli og upp á Kaldadal og þaðan gengið á fjallið. 2. Kl. 9.00 Nytjaferð, áttunda ferð. Fjallagrös. Helgarferðir 13. -15. sept. Hjörleifshöfði og Mýrdalur. Kl. 20.00 Gengið á Hjörleifshöföa, farið upp mjalta- stíg. Siglt að Reynisdröngum, farið á Dyrhólaey. Gist í Vík. 14. -15. sept. Jeppaferð í Setr- Ið. Kl. 10.00 Ferðin hefst í Ár- nesi. Ekið upp Gljúfurleit, Dynkur I Þjórsá skoðaður. Gist I Setrinu, skála 4x4 sunnan undir Hofs- jökli. Til baka er farin sk. Klakks- leiö. Staðfesta þarf pantanir fyr- ir 12. sept. 14.-15. sept. Fimmvörðuháls. Kl. 8.00 Gengið frá Skógum og gist í Fimmvörðuskála. 20.-22. sept. Grillveisla í Bás- um. Kl. 20.00 Ein vinsaelasta Básaferö Útivistar. Gönguferðir fyrir alla fjölskylduna, sameigin- leg grillveisla, varðeldur og kvöldvaka. Netfang: http://www.centrum.ls/utivlst Resilience therapy Markvls leið til þroska og til að losna við hlekki fortíðar. Nlckholas Demetry brautryðj- andi á sviöi sálrænnar sjálfskoð- unar, geðlæknir, sálfræöingur og miðill og Morena Costa bras- ilískur heilari og sáltherapysti. Þau verða með byrjenda- og framhaldsnámskeið I Resilience therapy. 1. hluti: Andleg hellun • Orkustöðvar og sálfræðileg merking þeirra. • Frumöfl í tengslum við heilun og sjúkdóma. • Unniö meö samspil hugsana og tilfinningavandamála (bjarg- leysi, gagnrýni, ótti og sjálfsvan- mat). • Andleg lögmál - karma og Dharma heilunaræfingar. Námskeiðið er 17., 18., 19. og 20. sept. á kvöldin. 2. hluti: Heilun innra barns • Þróun hliðarpersónuleika- meðferöar og kort af öllum svið- um meðvitundar æviskeiðsins. • Heilunarferli innra barnsins; bernska, dulið ástand, unglings- árin, fyrstu fullorðinsárin og mið- bik ævinnar. • Heilun áfalla I lífinu. • Heilun fyrstu ástarinnar. • Þroskun (samþáttun) undra- barnsins. • Samvirkni-sálræn bönd. Námskeiðið er 21. og 22. sept. (allan daginn lau. og sun.). Einkatímar verða 17., 18., 19. og 20. sept. yfir allan daginn. Skráning og nánari uppl. eru í sima 586 1146 og 588 2722 e.h. Staðsetning námskeiðs og einkatima er í Mannræktinni, Sogavegi 108, 2. hæð. Nýbýlavegi 30, Kópavogi, gengið inn Dalbrekkumegin Sjálfefli auglýsir: Þróunarhringir Langar þig að eiga Ijúfa stund elnu sinni I viku þar sem þú situr í öruggu umhverfi undir hand- leiðslu ábyrgra leiðbeinenda og hugleiöir, ræðir við andlega þenkjandi fólk, um þína reynslu af andans málum, gerir æfingar er stuðla að auknu næmi þínu á hinum ýmsu sviðum? Ef svo er þá höfum við kannski eitthvaö fyrir þig. Erum að fara af stað með þróun- arhringi og þjálfunarhópa í þess- ari viku og næstu. Þeir eru óóum að fyllast svo hafðu samband sem fyrst ef þú hefur áhuga. Slmi 554 1107 milli kl. 9.00 og 13.00. Námskeið Kristín Þorsteinsdóttirog Eggert Kristinsson verða með nám- skeið I hugleiðslutækni laugar- daginn 14. seþtember kl. 10.00- 17.00, verð kr. 4.000. Þetta nám- skeiö nýtist ekki einungis til að ná bættum árangri í hugleiðslu heldur þjálfar upp einbeitingar- hæfni einstaklingsins. Skráning fer fram í síma 554 1107. Námskeiðið er öllum opið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.