Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 43
Islandsmetín
stóðust metamótið
HESTAR
Kj óa v c11 i r
Metamót skeiðfélag-sins
SKEIÐFÉLAGIÐ og ýmsir áhuga-
samir keppnismenn stóðu nú öðru
sinni fyrir svokölluðu „metamóti“
þar sem farið er nokkuð frjálslega
með gildandi reglur og ýmsar nýj-
ungar reyndar. Sem sagt nokkurs-
konar tilrauna- eða þreifingarmót.
Engin íslandsmet hafa verið sett á
þessum mótum en vallarmetin fuku
í bæði 150 og 250 metra skeiði þann-
ig að hægt er að segja með réttu
að mótið hafi staðið undir nafni þótt
meginmarkmiðið hljóti að vera að
koma gildandi Islandsmetum fyrir
kattarnef.
Gæðingakeppni mótsins var með
erlendu sniði, svo kyndugt sem það
nú er. Keppnin fór fram á beinni
braut, bæði forkeppni og úrslit. Vera
kann að keppendur kunni betur við
þetta form, en frá sjónarhóli áhorf-
andans er hér farið 20 ár aftur á
bak og að mati margra ekki ástæða
til að „prófa" slíkt fornaldarform.
Þá fékk hjálmaskyldan frí og sömu-
leiðis reglur um fótabúnað og pískur-
inn leyfður. En keppnin sjálf var
spennandi. Þórður Þorgeirsson
mætti með fjórðungsmótajaxlinn
Seim frá Víðivöllum fremri til leiks
og eftir forkeppni virtist allt stefna
í sigur þeirra þótt ekki væri forskot-
ið mikið. Ekki varð raunin þó sú,
því Sigurður Sigurðarson og Prins
frá Hörgshóli, sem hefur verið í örri
framför í sumar, náðu betur hylli
dómaranna og hlutu sigurinn og
utanlandsferð í kaupbæti. Hér hefði
getað farið á hvorn veginn sem var,
kannski spurning um smekk. Tíu
hestar voru í úrslitum og var keppn-
in jöfn, einkunnir 4. til 10. hests frá
8,28 til 8,33, sem segir sína sögu
um keppnina.
Einnig var mjótt á munum í B-
flokki að því undanskildu að sigur-
vegararnir Þórður Þorgeirsson og
Laufi frá Kollaleiru höfðu nokkra
yfirburði í einkunn. Þeir sigruðu
einnig í töltkeppni mótsins og þar
voru yfirburðir þeirra enn meiri.
Ljóst er að hjá góðum knapa er
Laufi hestur í algerum sérflokki.
Þess ber að gæta að hesturinn er
aðeins sex vetra gamall.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
GLAÐIR og sigurreifir að loknu velheppnuðu móti tóku knapar
á móti verðlaunum sínum með bros á vör. Frá vinstri Logi og
Spengjuhvellur, Erling og Funi, Páll Bragi og Viljar, Ragnar og
Hjörtur og Hulda og Kolur.
PRINS frá Hörgshóli og Sig-
urður Sigurðarson höfðu sig-
ur í A-flokki eftir spennandi
keppni við Seim og Þórð.
Tímar í skeiðinu voru heildina séð
prýðilegir miðað við að mótvindur
var í flestum sprettum. Vallarmet
var sett í 150 og 250 metrunum.
Lúta frá Ytra-Dalsgerði sigraði í 150
metrunum á 13,96 sek. sem er besti
tími sumarsins á þessari vegalengd
og máske hugsanlegt að Lúta og
Þórður Þorgeirsson geti höggvið
nærri meti á næsta ári. Sprengju-
hvellur frá Efstadal sem Logi Lax-
dal sat að venju var í sérflokki í 250
metra skeiðinu og setti einnig vallar-
met, 22,09 sek. Var það eini alvöru
tíminn á þessari vegalengd. Þá voru
gerðar tilraunir með 100 metra flug-
skeið, þar sem einn hestur fór í
brautina í senn og ræst með fljót-
andi ræsingu, þ.e. hesturinn kemur
á ferð á ráslínu. Þarna er skeiðvega-
lengdin sú sama og í gæðingaskeiði
en knapar þurfa aðeins að hugsa
um að halda hrossinu á skeiði og
það fari sem hraðast.
Niðurtaka og niðurhæging er
aukaatriði. Þessi keppni fór fram
eftir að myrkur var skollið á en kom
ekki að sök því brautin á Kjóavöllum
er upplýst. Erling Sigurðsson og
Funi frá Sauðárkróki vann á hiut-
kesti með tímann 7,70 en í auka-
spretti sem ekki gilti til verðlauna
náði hann bestum tíma 7,40 á El-
vari frá Búlandi.
Þátttaka í metamótinu var mjög
góð að þessu sinni og undirstrikar
enn frekar þörfina fyrir þessum hau-
stauka hestamennskunnar og er það
nú spurning hvort ekki megi keppa
fram í miðjan september. Ljóst er
þó á þessari stundu að keppnistíma-
bili hestamanna 1996 er lokið, en
hestamenn þurfa að huga að því
hvort ekki sé full ástæða til að lengja
tímabilið enn frekar en gert hefur
verið.
Valdimar Kristinsson
Metamót á
Kjóavöllum
A-flokkur gæðinga
1. Prins frá Hörgshóli, eigandi Þorkell
Traustason, knapi Sigurður Sigurðarson,
8,58.
2. Seimur frá Víðivöllum fremri, eigandi
Inga J. Kristinsdóttir, knapi Þórður Þorgeirs-
son, 8,66.
3. Magnús frá Steinum, eigandi Axel Geirs-
son, knapi Vignir Siggeirsson, 8,39.
4. Mósart frá Grenstanga, eigendur Auðun
og Gréta, knapi Ragnar Olafsson, 8,33.
5. Stjörnu-Fákur frá Viðvík, eigandi og knapi
Guðmundur Einarsson, 8,30.
6. Demantur frá Bólstað, eigendur Elsa og
Pjetur, knapi Elsa Magnúsdóttir, 8,32.
7. Tímon frá Lýsuhóli, eigendur Margrét og
Agnar, knapi Erling Sigurðsson, 8,29.
8. Freyja frá Múlakoti, eigendur Pétur Jök-
ull og fjölskylda, knapi Guðmar Þ. Péturs-
son, 8,31.
9. Váli frá Nýjabæ, eigandi og knapi Elías
Þórhallsson, 8,28.
10. Gormur frá Aðalbóli, eigandi og knapi
Höskuldur Þráinsson, 8,28.
B-flokkur gæðinga
1. Laufi frá Koilaleiru, eigandi Ilans Kjer-
úlf, knapi Þórður Þorgeirsson, 8,70.
2. Feldur frá Laugamesi, eigendur Erling
Sigurðsson og Snúlla Einarsdóttir, knapi
Erling Sigurðsson, 8,57.
3. Númi frá Bergþórshvoli, eigandi og knapi
Ragnar Ólafsson, 8,46.
4. Gandur frá Fjalli, eigandi Gunnar Vals-
son, knapi Sölvi Sigurðarson, 8,49.
5. Kraki frá Reykjavik, eigandi Bjöm Ást-
marsson, knapi Olil Amble, 8,42.
6. Fiðringur frá Ögmundarstöðum, eigandi
Ingólfur Jónsson, knapi Viðar Ingólfsson,
8,40.
7. Prati frá Stóra-Hofi, eigandi og knapi
Davíð Matthíasson, 8,43.
8. Spuni frá Syðra-Skörðugili, eigandi og
knapi Guðmar Þ. Pétursson, 8,41.
9. Tölt
1. Þórður Þorgeirsson á Laufa frá Kolla-
leiru, 8,41.
2. Sölvi Sigurðarson á Gandi frá Fjalli, 7,37.
3. Erling Sigurðsson á Feldi frá Laugar-
nesi, 7,05.
4. Olil Amble á Kraka frá Reykjavík, 6,8.
5. Sigurður V. Matthíasson á Þræði frá
Beinárgerði, 6,63.
6. Ragnar Hinriksson á Leista frá Búðar-
hóli, 6,41.
Skeið 250 metrar
1. Sprengju-Hvellur frá Efstadal, eigandi og
knapi Logi Laxdal, 22,09.
2. Funi frá Sauðárkróki, eigandi Margeir
Þorgeirsson, knapi Erling Sigurðsson, 23,70.
3. Viljar frá Möðruvöllum, eigandi og knapi
Páll Bragi Hólmarsson, 23,95.
4. Hjörtur frá Ketilsstöðum, eigendur Hjört-
ur Bergstað og Ragnar Hinriksson, knapi
Ragnar Hinriksson, 24.05.
5. Kjölur frá Stóra-Hofi, eigandi Hinrik
Bragason, knapi Hulda Gústafsdótir, 24,08.
Flugskeið 100 metrar
1. Funi frá Sauðárkróki, eigandi Margeir
Þorgeirsson, knapi Erling Sigurðsson, 7,70.
2. Glaður frá Sigríðarstöðum, eigandi og
knapi Hafsteinn Jónsson, 7,70.
3. Elvar, knapi Erling Sigurðsson, 7,71.
4. Kolur frá Stóra-Hofi, eigandi Hinrik
Bragason, knapi Hulda Gústafsdóttir, 7,80.
5. Mósart frá Grenstanga, eigendur Auðun
og Gréta, knapi Ragnar Ólafsson, 7,80.
t
Okkar ástkæri faðir, uppeldisfaðir,
bróðir, mágur, vinur, tengdafaðir og afi,
SVAVAR GESTS,
Miðleiti 3,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 1. þessa mánaðar.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Hjúkrunarfólki og læknum í Landspítal-
anum, heimahjúkrun Karitas og öðrum
er önnuðust hann er þökkuð eindæma umhyggja og hjartahlýja.
Þeir, sem vildu minnast hans, eru beðnir um að hafa Krabba-
meinsfélagið í huga.
Bryndís Svavarsdóttir,
Hjördis Svavarsdóttir,
Hörður Svavarsson,
Gunnar Svavarsson,
Máni Svavarsson,
Nökkvi Svavarsson,
Hólmfríður Á. Bjarnason,
Gyða Erlingsdóttir,
Aðalsteinn Dalmann Októsson,
Tómas Grétar Ólason,
tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og
útför eiginmanns, föður, tengdaföður
og afa,
ÞÓRÐAR STEINARS PÁLSSONAR
fisksala,
Þorsteinsgötu 13,
Borgarnesi.
Marfa Ragnheiður Elbergsdóttir,
Hreiðar Þórðarson, Þórey Einarsdóttir,
Einar Ingi Hreiðarsson,
Þórður Steinar Hreiðarsson,
Hörður Helgi Hreiðarsson.
t
Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda
samúð, hjálpsemi og vinarhug við
andlát og útför
EINARS SÆVARS KJARTANSSONAR.
Stuðningur ykkar er ómetanlegur.
Sá er ekki ríkur sem mikið á heldur hinn
sem gefur mikið.
Ingibjörg Gisladóttir,
Gísli Dan Einarsson,
Elín Salka Einarsdóttir,
Jón Kjartan Einarsson,
Kjartan Kristófersson, Hafdfs Guðmundsdóttir,
Gfsli Þorsteinsson, Elfn Jóhannesdóttir.
t
Systir okkar og fóstursystir,
SIGRÚN ÓLÖF TÓMASDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 12. sept. nk. kl. 15.00.
Sigurður Þ. Tómasson,
Hailfríður Tómasdóttir,
Þórný Þ. Tómasdóttir,
Margrét Tómasdóttir,
Jóna Friðbjarnardóttir,
Baldvina Baldvinsdóttir,
Sólveig Stefánsdóttir,
Dana Anna Sigurvinsdóttir.
t
Innilegar þakkir færum við öllum, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, bróður, afa og lang-
afa,
ÞORGEIRS JÓNSSONAR
bónda,
frá Möðruvöllum,
Kjós.
Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir,
Eygló Þorgeirsdóttir, Reynir Pálmason,
Ólöf Þorgeirsdóttir, Sigurður Ásgeirsson,
Jón Þorgeirsson, Orapin Chaksukheuw,
Hugrún Þorgeirsdóttir, Ólafur Sigurjónsson,
Kári Jakobsson, Elín Ingimundardóttir,
Jónmundur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tendafaðir, afi og
langafi,
ÓLAFURT. VILHJÁLMSSON
Bólstað,
Garðabæ,
sem lést þann 3. september sl. verður
jarðsunginn frá Vídalínskirkju,
Garðabæ, fimmtudaginn
12. september kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
líknarstofnanir.
Guðmundur T. Ólafsson,
Vilhjálmur S. Ólafsson,
María Ólafsdóttir,
Guðbjörg Ólafsdóttir,
Logi Ólafsson,
Ólafur H. Ólafsson,
Alda Hauksdóttir,
Soffía Vala Tryggvadóttir
Sveinn Jónsson,
Gunnar Á. Arnórsson,
Guðlaug Ingvadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.