Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Margrét Þóra ÞEGAR búið var að gróðursetja settust menn niður og gæddu sér á nestinu sínu og drukku ketilkaffi. SIGURLAUG var dugleg að gróðursetja lerkiplönturnar. LÆKNARNIR Eiríkur Sveinsson og Hilmir Jóhannsson tóku ásamt fleirum þátt í að planta í svæðið sunnan við Háls. Morgunblaöið/Kristján i í _ ^ |PSj| Maður féll þegar vinnupallur hrundi VINNUSLYS varð á Akureyri skömmu fyrir hádegi í gær. Vinnupallur féll frá tveggja hæða húsi og maður sem var á pallinum skall einnig til jarð- ar og brotnaði illa á hægra fæti. Maður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins, þar sem hann gekkst undir aðgerð. Að sögn varðstjóra hjá lög- reglunni á Akureyri var mað- urinn að vega sig af pallinum og upp á þak og er talið að við þá tilburði hafi hann spyrnt pallinum frá húsveggn- um með fyrrgreindum afleið- ingum. Talið er að fall manns- ins hafi verið eitthvað á fimmta metra. A myndinni eru sjúkraflutn- ingamenn og lögregluþjónar að koma manninum fyrir á sjúkrabörum. Skógræktarfélag Eyfirðinga leigir fólki svæði til skógræktar Valkostur fyrir þá sem stunda vilja skógrækt Búið að friða um 80 hektara og annað eins svæði til viðbótar tekið í notkun á næsta ári FÉLAGAR í Skógræktarfélagi Ey- firðinga, sem leigja spildur í landi Háls í Eyjafjarðarsveit, hittust að Hálsi síðasta laugardag og áttu þar saman dagstund. Gróðursettar voru plöntur á svæðinu, þá sýndu for- svarsmenn félagsins fólki landið og greindu frá því sem næst er fyrir- hugað að gera. Skógræktarfélag Eyfirðinga leigir landið af ríkinu til 80 ára og framleigir það til einstaklinga, íjöl- skyldn? og félagasamtaka. Form- lega var landið tekið í notkun haust- ið 1994. Búið að friða 80 hektara Vignir Sveinsson formaður Skóg- ræktarfélags Eyfirðinga sagði að nú væri búið að friða um 80 hekt- ara lands og væri stefnt að því að friða að minnsta kosti annað eins og taka í notkun á næsta ári. Félag- ið fékk úthlutað fé úr Umhverfis- sjóði verslunarinnar, sem m.a. verð- ur notað til girðingafranrkvæmda og fleiri verkefna sem ráðast þarf í. Nú í sumar voru töluverðar fram- kvæmdir á vegum félagsins á svæð- inu, m.a. voru þar útbúnar snyrting- ar og gert átak í vatnsmálum. Um 30 manns, einstaklingar og félagasamtök, leiga misstórar spild- ur af Skógræktarfélagi Eyfirðinga á Hálsi. Vignir sagði að félagið hefði látið gera gróðurkort af svæð- inu og ölium leigjendum lands feng- ið það í hendur, sem leiðbeinandi varðandi val á plöntutegundum. Annars er fólki nokkuð í sjálfsvald sett á hvern hátt það útbýr sinn reit. Spildurnar eru leigðar út til 40 ára með möguleika á framleng- ingu. Leigan er lág, svona rétt til málamynda eins og Vignir orðaði það. „Með þessu hyggjumst við hvetja fólk til skógræktar, að bjóða upp á valkost fyrir þá sem vilja stunda skógrækt á eigin vegum en hafa ef til vill ekki kost á landi. Við höfðum lengi verið að skoða hvern- ig við gætum mætt þörf fólks fyrir land til skógræktar og leitað tölu- vert að slíku landi. Nú er allt komið í fullan gang og þetta hefur mælst einstaklega vel fyrir. Eftirspurnin er mikil og með því að ráðast í að girða meira, jafnvel í haust, von- umst við til að geta mætt henni, en þau svæði sem til úthlutunar voru í fyrravor fóru strax,“ sagði Vignir. f 1 í ■■■■•...... c>. ! If t • WwmwMWwlil Ti 1. . IF f il « Morgunblaðið/Jónas Baldursson UMHVERFI Grenivíkurkirkju hefur verið fegrað, m.a. hlaðin grjóthleðsla umhverfis kirkjugarðinn sem tyrfð er að ofan. Umhverfi Grenivíkurkirkju fegrað Grýtubakkahreppur. Morgunblaðið. Á SÍÐASTLIÐNU sumri hafa ver- ið gerðar miklar endurbætur á umhverfi kirkjunnar á Grenivík, gömul girðing sem orðin var við- haldsþurfi var fjarlægð og í henn- ar stað var hlaðin snyrtileg gijót- hleðsla og hún tyrfð að ofan. Þeir Kristján Ingi Gunnarsson og Ásgeir Valdimarsson frá Akur- eyri sáu um framkvæmdina. Að sögn Björns Ingólfssonar, for- manns Grenivíkursóknar, er verki því sem vinna átti í sumar að mestu lokið. Kostnaðurinn er á þriðju milljón króna sem er innan kostnaðaráætlunar. Á næstu árum verður kirkjugarðurinn stækkaður og umhverfi kirkjunnar bætt frek- ar. í Grenivíkursókn eru tæplega 300 manns og er kirkjunni sinnt frá Laufásprestakalii. Morgunblaðið/Rúnar Antonsson Þijár sýningar opnaðar ÞRJÁR sýningar voru opnaðar í Listasafninu á Akureyri um helgina. Einar Helgason sem kennt hefur íþróttir og mynd- mennt við Barnaskólann og Gagnfræðaskólann á Akureyri sýnir verk sín í austursal safns- ins, vatnslita- og pastelmyndir sem eru allt frá því að vera nýj- ar til mynda frá upphafi feriís hans. í miðsalnum eru nokkur verk sem safnið hefur eignast nýverið, en sýningargestum gefst reglulega kostur á að fylgjast með nýrri listaverka- eign þess. í vestursalnum hafa þær Edda Jónsdóttir og Kolbrún Björgúlfsdóttir, Kogga, sett upp sérstæða leirlistasýningu sem vakti athygli sýningargesta. Skólinn „skreyttur“ LÖGREGLAN á Akureyri náði í skottið á pörupiltum sem voru að „skreyta" Lundarskóla með lakki úr úðabrúsa á sunnudags- kvöld. Að sögn varðstjóra voru piltarnir þrír og sá elsti fæddur 1978 „og því kominn yfir það að geta talist óviti.“ Þá var lögreglan með klippurn- ar á lofti um helgina og klippti númer af ökutækjum sem ekki höfðu verið færð til skoðunar inn- an tilskilins tíma, eða eru í þann- ig ásigkomulagi að ekki þótti ástæða til að hafa þau lengur í umferð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.