Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 23 LISTIR Glæsilegur kórsöngur Hörpuútgáfan gefur út tíu bækur Eftirminnilegir atburðir o g sérstætt fólk TONLIST Ilallgrlmskirkja KÓRTÓNLEIKAR Clare College Chapel Choir frá Cambridge flutti ensk kórverk, mótettu eftir J.S. Bach og orgelverk eftir Janácek. Sunnudagurinn 8. september 1996. TÓNLEIKARNIR hófust á Festival Te Deum, eftir Benjamín Britten, op. 32, samið 1944, fyrir blandaðan kór og orgel. Um þetta leyti var Britten að semja óperuna Peter Grimes og hafði þá lítinn tíma fyrir aðrar tónsmíðar en samdi þó þijú stutt kórverk, tvö við texta eftir Auden, A Shep- herd’s Carol og Chorale en einnig Festival Te Deum fyrir aldaraf- mæli Markúsarkirkjunnar í Swin- don. Þetta er glæsilegt verk, sem var mjög vel flutt. Þijú næstu verk voru frá 16. öld, fyrst Dum transisset Sabbat- um eftir John Taverner (1495- 1545), en hann var tónlistarstjóri í Oxford fram til 1530, er hann féll í ónáð hjá Thomas Cromwell, kanslara Hinriks VIII, fyrir það að „semja í blindni lög við páfaleg- ar vísur“. Taverner snerist gegn katólskum, gerðist ofstækisfullur siðbótarmaður og launaður njósn- ari fyrir Cromwell. Sem betur fer glötuðust ekki tónverk hans, sem eru með því „besta sem samið hafði verið á þessum tíma í Eng- landi“. Annað verkið í þessum flokki var Vox in Rama, eftir Ge- orge Kirbye (?-1634) er var mikil- virkur „madrigalisti" en samdi einnig kirkjuleg verk. Þriðja verkið var Laudibus in sanctis, fimm radda verk eftir William Byrd (1543-1623), eitt af þeim vinsælli eftir meistarann og voru öll þessi fyrrnefndu verk frábærlega vel flutt, undir stjórn Timothy Brown. Þar með lauk að flytja tónlist frá gullöld enskrar kórtónlistar og voru viðfangsefnin á seinni hluta tónleikanna ensk tónlist, ýmist ný af nálinni eða frá endurreisn en- skrar tónlistar á 19. öld, svo og eitt verk eftir Janacek og annað eftir J.S. Bach. One foot in Eden eftir Nicholas Maw (1935-) var næst á efnisskránni, en hann lærði hjá Lennox Berkeley og Nadiu Boulanger og er tónstíll hans sam- tvinnun á seríal- og tónal-aðferð- um með rómantísku ívafi. Þetta er áheyrilegt verk, frekar óljóst í stíl en var afburða vel flutt. Smá orgelmillispil var næst, eftirspil úr Glagólítísku messunni eftir Leos Janácek (1854-1928) er hann samdi 1926. Verk þetta er samið yfir fornslavneskan texta, sem enn er notaður við trúarathafnir í slav- nesku rétttrúnaðarkirkjunni. Sem messa stendur þetta verk mjög sér og var þessi postlúdía vel flutt af organista kórsins, Jonathan Brown. Síðasta verkið fyrir hlé var I was glad, eftir óðalseigandann og íþróttamanninn C.H. Parry (1848-1918), sem ásamt Stanford stóð fyrir ensku endurreisninni á sviði tónlistar. I was glad er fal- legt verk, hefðbundið að gerð og býr yfir töluverðri reisn, sem blómstraði í frábærum flutningi kórsins. Eftir hlé var flutt mótettan Komm, Jesu, komm, eftir J.S. Bach, glæsilegt verk fyrir tvo kóra, sem var sérlega vel flutt. Á eftir þessu verki voru flutt þijú messusöngverk eftir Walton, Parry og Wood, áferðafalleg verk og gat þar að heyra enskan kirkju- söng í sínu besta formi. Á eftir smá orgelmillispili, Alleluyas, eftir Simon Preston (1939-) orgelleik- ara við Westminster Abbey, söng kórinn fimm negrasálma úr verk- inu A Child of Our Time (1941) eftir Michael Kemp Tippett (1905-). Negrasálmarnir eru uppi- staðan í verkunum, sem eru meira en útsetningar og eiga harla lítið sameiginlegt með upprunalega söngmátanum, sem eru þarna færðir inn í ramma erópskrar há- menningar. Verk þessi eru glæsi- lega unnin og var flutningurinn afburða góður. Clare College Chapel Choir und- ir stjórn Timothy Brown er frábær sönghópur, samanstendur af 22 söngvurum, sem búa yfír mikilli dýnamik í styrk og fallegri tón- mótun, jafnvel í hinu erfiða tveggja kóra verki Bachs. Ein- söngvarar sem sungu nokkrar strófur sýndu að kórinn er sérlega vel mannaður góðu og vel mennt- uðu söngfólki. Kórinn lauk tónleik- unum með því að syngja íslenska þjóðlagið Sofðu unga ástin mín á íslensku en með kórnum söng Hallveig Rúnarsdóttir utan úr kirkjuskipinu og náði kórinn þarna að magna upp sérstæða stemmn- ingu með afburða fögrum söng sínum. Jón Ásgeirsson HÖRPUÚTGÁFAN á Akranesi gef- ur út tiu bækur á þessu ári. Meðal væntanlegra bóka eru æviminningar Soffaníasar Cecilssonar, Lífskúnstn- erinn Leifur Haraldsson og bók um Þórð í Haga — hundrað ára einbúa. Soffi í særoki söltu nefnast ævi- minningar Soffaníasar Cecilssonar skipstjóra og útvegsmanns í Grund- arfirði. Bókin greinir frá lífi og starfi sjómanna og frá samferðamönnum í sjávarútvegi. Höfundur er Hjörtur Gíslason blaðamaður. Daníel Ágústínusson er höfundur bókarinnar Lífskúnstnerinn Leifur Haraldsson. Leifur var kaffihúsa- maður, frægur fyrir vísur sínar og tilsvör og þýðandi heimsbókmennta. Þórður í Haga — hundrað ára ein- búi er bók eftir son hans, Óskar Þórðarson frá Haga. Þórður Run- ólfsson, bóndi í Haga í Skorradal, er annálaður kjarkmaður og ferða- garpur við erfiðar aðstæður. Hann er elsti starfandi bóndi á íslandi og býr enn einn. Æðrulaus mættu þau örlögum sínum er safn frásagna af eftir- minnilegum atburðum og fólki, með- al annarra kemur við sögu Oddur á • ÚT ER komið hjá Félaginu Ing- ólfi fimmta bindið í ritröðinni Land- nám Ingólfs, nýtt safn til sögu þess. I bókinni eru níu greinar. Lýð- ur Björnsson fjallar um fyrstu Is- lensku klúbbana. Krislján Sveins- son ritar um strand togarans Coots og þilskipsins Kópaness, Hrefna Róbertsdóttir segir frá áætluninni um allsheijarviðreisn íslands 1751-52, EinarE. Sæmundsen ritar um undirbúning og fram- kvæmdir við fyrsta nútíma lystigarð- inn á íslandi, sem er Alþingishús- garðurinn. Halldór Baldursson færir rök fyrir að Holger Rosen- krantz höfuðsmaður hafi sýnt meiri Akranesi, einn af sérstæðustu fréttariturum landsins á sínum tíma. Höfundur bókarinnar er Bragi Þórð- arson útgefandi. Bókaflokkurinn Lífsgleði er í um- sjá Þóris S. Guðbergssonar. í þetta skipti birtast minnningar og frásagn- ir eftir Guðna Þórðarson (Guðna í Sunnu), Guðríði Elíasdóttur, formann verkakvennafélagsins Framtíðarinn- ar, Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu, Sigríði Schiöth söngstjóra og Ömólf Thorlacius, fyrrverandi rektor. Óður til nýrrar aldar, spakmæli og þankabrot eftir Gunnþór Guð- mundsson er einnig meðal útgáfu- bóka. Að auki koma út þýddar skáld- sögur eftir Jack Higgins og Bodil Forsberg og nokkrar bækur verða endurútgefnar. í vor kom út hjá Hörpuútgáfunni ný ljóðabók eftir Matthías Johann- essen, Vötn þín og vængur, sautj- ánda ljóðabók skáldsins, „meðal stærstu og veigamestu ljóðabóka" hans að sögn útgefanda. Fyrsta ljóðabók Inga Steinars Gunnlaugssonar skólastjóra kom einnig út hjá Hörpuútgáfunni í vor. Hún nefnist Sólskin. herkænsku en íslendingar hafa talið hingað til við atlögu Tyrkja að Seil- unni 1627. Sr. Þórir Stephensen birtir fyrstu samantektina um ábú- endatal Reykjavíkur, allt frá því er Ingólfur Arnarson og kona hans Hallveig Fróðadóttir settust þar að um 874 til ársins 1753. Bjarni Gunnarsson skrifar um drauginn á Vogastapa og vegferð hans á 20. öld. Magnús Guðmundsson skrifar um ljósmyndir frá hernámsárunum í Mosfellssveit. Úr fórum Héraðs- skjalasafns Arnesinga, Selfossi birtast tvö verslunarskjöl. Ritið er unnt að kaupa hjá Sögu- félagi, Fischcrsundi 3. Verð 2.100 kr. Nýjar bækur 88888881 Kínversk Hreyfilist, (róleg styrkingarleikfimi), ieiðbeinant Afrísk dansleikfimi, Afifö, (ekta frumskógarstemmning), íeiðbei Kínversk sjálfsvarnarlist, CLuw, (Kung Fu eins og Jiað leiðbeinandii J-ClMiAVj Skránija? og upplýsingar í símá: Orvill
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.