Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 31
30 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 31 fHttrgnnfrlftfetfe STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SAMSTARFA SVIÐIVÍSINDA MEÐ STUTTU millibili hefur verið skýrt frá tveimur merkum vísindaverkefnum á sviði læknisfræði, sem íslenzkir vísindamenn vinna í samvinnu við erlenda starfs- bræður, augnrannsóknum með Japönum og flogaveiki- rannsóknum, sem Bandaríska heilbrigðisstofnunin kostar með 150 milljón króna framlagi. Forvígismenn í lækna- stétt og margir íslenzkir vísindamenn hafa lengi haft á orði, að ísland sé kjörið til vísindarannsókna á ýmsum sviðum, ekki sízt í læknavísindum, vegna þeirrar sérstöðu sem m.a. felst í smæð þjóðarinnar og þess, hve auðvelt er að rekja ættir manna langt aftur í tímann. Auk þess má minna á, að sjúkraskrár hafa verið færðar hér lengur en víða annars staðar, menntunarstig þjóðarinnar er hátt og færni íslenzkra vísindamanna viðurkennd. Fyrir skömmu hófst á augndeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur á Landakoti viðamikil rannsókn á áhrifum útfjólublárr- ar geislunar á augu í samvinnu við japanska vísinda- menn. Augu 1.100 hundruð íslendinga 50 ára og eldri verða rannsökuð nákvæmlega í því skyni að leita að áhættuþáttum vegna augnsjúkdóma og m.a. eru kannað- ir lífshættir almennt, fæðuval og þá sérstaklega venjur fólks er lúta að sól og ljósalömpum. Rannsóknin beinist sérstaklega að þremur augnsjúkdómum, sem hrjá fólk eftir fimmtugt, skýmyndun á augasteini, gláku og elli- hrörnun í augnbotnum. Um þetta segir Friðbert Jónasson, yfirlæknir augndeild- ar á Landakoti: „Það, sem við erum fyrst og fremst að gera, er að reyna að átta okkur á dreifingu og eðli þessara þriggja meginsjúkdóma og hins vegar að leita að forvörnum til að koma í veg fyrir þá.“ Augnrannsóknirnar eru umfangsmiklar og vinna að þeim sjö Japanir og nær tuttugu Islendingar, augnlækn- ar, hjúkrunarfræðingar og aðstoðarfólk. Kostnaður er áætlaður um 18 milljónir króna og greiða Japanir um 80% kostnaðarins. Styrktaraðili rannsóknarinnar er jap- anska fyrirtækið Nidek, sem er eitt helzta fyrirtæki í framleiðslu augntækjabúnaðar. Það lánar þrjú tölvusneið- myndatæki, sem hvert kostar um tólf milljónir króna, en aðeins eitt slíkt tæki er til á Norðurlöndum, í Stokkhólmi. Af þessu má sjá, að rannsóknir sem þessar færu ekki fram á íslandi nema vegna samvinnu við erlenda vísinda- menn og fyrirtæki. íslendingar verja einfaldlega ekki slík- um fjármunum í afmarkaðar vísindarannsóknir sem þess- ar, því þeir telja sig hvorki hafa mannafla né peninga aflögu. Það byggist hins vegar á misskilningi, því takist vísindarannsóknirnar vel munu þær skila sér margfalt til baka. Framfarir í læknavísindum eru að sjálfsögðu mikil- vægasti árangur slíkra rannsóknarverkefna og þar með lækning sjúkra, en jafnframt geta þær leitt til efnahags- legs ávinnings. Vonandi verður því áframhald á slíku samstarfi. SKOLARNIR OG UMFERÐIN UM HELGINA varð alvarlegt umferðarslys á Vestur- landsvegi við Keldnaholt, er tveir bílar, sem voru að mætast, skullu saman. Sex manns voru í bílunum og var allt fólkið flutt í slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, kona og barn lífshættulega slösuð, en aðrir mikið slasaðir. Um síðastliðin mánaðamót hófst skólaganga þúsunda skólabarna. Þessi árgangur er einhver sá fjölmennasti, sem hafið hefur skólagöngu um árabil. Þessir litlu Islend- ingar eru fullir væntinga, nú þegar þjóðfélagið í fyrsta sinni leggur þeim á herðar þær skyldur að læra og nema. Ökumenn verða að sýna aðgæzlu, varkárni og tillits- semi, þegar ekið er um nágrenni skólanna, því að þar eru á ferli viðvaningar i umferðinni. Ökumenn verða að hafa þetta hugfast, því að ekki má treysta því, að börn meti aðstæður ávallt rétt eða að þau skynji þá hættu, sem getur verið yfirvofandi. Viðbrögð barns við hættu geta verið röng í augum fullorðins fólks. Því er aldrei nægilega brýnt fyrir ökumönnum að sýna árvekni og aðgæzlu þegar skammdegið færist yfir og skól- ar eru að byrja. Verndum börnin og forðumst slysin. ÍSLAND OG LIECHTENSTEIN Nýtt álver og stækkun járnblendiverksmiðjunnar þyrfti um 1.350 GWst raforku Nauðsynlegt aðhalda EES á lofti * Samskipti Islands við Liechtenstein, einkum á sviði Evrópska efnahagssvæðisins, voru í brennidepli er Andrea Willi, utanríkisráðherra Liechtenstein, sótti landið heim fyrir helgina. Auðunn Arnórsson hitti hana að máli. Morgunblaðið/Sigurgeir DAGSKRÁ heimsóknar Andreu Willi, utanríkisráðherra Liechten- stein, samanstóð ekki eingöngu af formlegum viðræðum við ís- lenzka ráðamenn. Einn dagur var helgaður náttúruskoðun í Vest- mannaeyjum. Hér mundar Willi lundaháf í Álsey. HÉR er gesturinn með fríðu föruneyti Álseyinga og starfsmanna utanríkisráðuneytisins. Willi stendur fyrir miðju. Sér á hægri hönd hefur hún Hannes Hafstein, sendiherra, og Georg Kr. Lárusson, sýslu- manninn í Vestmannaeyjum, á þá vinstri. LIECHTENSTEIN og Island geta að lítt athuguðu máli virzt eiga fátt sameiginlegt. Liechtenstein er landlukt furstadæmi í Mið-Evrópu, 160 km3 að stærð, en Island stór eyja úti í miðju Atlantshafi. Þegar betur er að gáð, er þó ýmislegt sem tengir þessi tvö annars svo ólíku lönd. Helzti hlekkurinn milli þeirra er samstarfið á vettvangi Fríverzlunarsamtaka Evr- ópu, EFTA, og Evrópska efnahags- svæðisins, EES, en þau mynda ásamt Noregi EFTA-„stólpa“ EES á móti hinum 15 aðildarríkjum Evrópusam- bandsins, ESB. ísland og Liechten- stein eru jafnframt einu EFTA-þjóð- irnar, sem aldrei hafa sótt um aðild að Evrópusambandinu. Dagana 5. til 8. september var ut- anríkisráðherra Liechtenstein, Andrea Willi, í opinberri heimsókn hér á landi. Hún endurgalt þar með heimsókn Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráð- herra, sem fór til Liechtenstein í marz sl. Reyndar er Willi, auk þess að vera ráðherra utanríkismála, ábyrg fyrir menningar- og íþróttamálum, að ógleymdum ungmenna-, fjölskyldu- og jafnréttismálum. í ríkisstjóm Liecht- enstein sitja fimm ráðherrar. Þeir eru kjörnir af þinginu, sem 25 manns skipa. Þingkosningar eru á fjögurra ára fresti; þær næstu fara fram í febr- úar nk. Tveir flokkar skipta með sér öllum þingsætunum á sitjandi þingi, utan eins. 13 þingmenn tilheyra Föðurlandsflokki (VU), 11 hinum Fijálslynda Borgaraflokki (FBP) og einn er óháður. Þrír ráðherranna eru fulltrúar þess fyrrnefnda og tveir hins síðamefnda. Willi, sem er einn þriggja ráðherra meirihlutaflokksins, tók við ráðherra- embætti í desember 1993. Þar áður hafði hún verið um árabil í utanríkis- þjónustu furstadæmisins og tekið m.a. virkan þátt í samningaviðræðunum um aðild Liechtenstein að EFTA og EES. Nokkrir fundir samningavið- ræðna þessara fóru fram hér á landi, svo Willi hefur að eigin sögn haft góð kynni af Islandi og Islendingum á undanförnum árum. Hinn formlegi hluti dagskrár heim- sóknar hennar til Islands mótaðist því að miklu leyti af umræðum um sam- starfið innan EES. En auk þess ræddi hún við íslenzka ráðamenn, þeirra á meðal Björn Bjarnason menntamála- ráðherra og Davíð Oddsson forsætis- ráðherra, m.a. um möguleika á tengsl- um landanna á menningar- og íþrótta- sviðinu. Jákvæð reynsla af EES Liechtenstein gerðist fullur aðili að EFTA árið 1991 og að EES þann 1. maí í fyrra, 16 mánuðum eftir að EES- samningurinn gekk í gildi. Willi segir reynsluna sem fengizt hafi af EES hingað til vera mjög jákvæða. Þegar eitt ár var liðið frá EES-aðild Liechtenstein í vor, birti ríkisstjómin niðurstöður könnunar, sem hún hafði látið gera meðal atvinnurekenda og almennings í landinu til að meta reynsluna af EES. Eins árs reynsla sé þó of stutt til að draga einhveijar algildar álykt- anir, segir ráðherrann. í stuttu máli sagt voru niðurstöður könnunarinnar þær að allir sáu ávinn- ing í aðildinni, sem þó hafði verið umdeild. Vorið 1995 var haldin þjóðar- atkvæðagreiðsia um hana. Heitast var deilt um það, hversu langt Liechten- stein gæti gengið í að veita þegnum hinna EES-landanna atvinnu- og bú- seturétt, sem er kjarni ákvæðanna um fijálsa fólksflutninga innan EES. Nú þegar eru um 38 af hundraði íbúa Liechtenstein af erlendum uppruna, en um 60 af hundraði launþega í land- inu eru útlendingar. Flestir þeirra búa nærri landamærunum, í Austurríki og Sviss. Þar sem íbúar Liechtenstein borga mjög litla skatta er mikil ásókn í að öðlast búseturétt þar. Liechten- stein fékk tímabundna undanþágu frá búseturéttarákvæðinu, sem tryggði meirihlutastuðning við EES-aðildina í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þar sem undanþágan er ekki varanleg - hún verður endurskoðuð á næsta ári - er búseturéttarmálið ennþá áhyggjuefni margra. En þrátt fyrir þetta er almenn ánægja með EES-aðildina í Liecht- enstein. Ánægjan er einkar mikil meðal iðnrekenda; að sögn Willi hefðu tvö mikilvæg iðnfyrirtæki flutt megin- hluta starfsemi sinnar til ESB-lands, ef EES-aðildin hefði ekki komið til. Fjármagnsþjónustufyrirtækin, sem skila stórum hluta þjóðartekna Liec- htenstein, höfðu verið alluggandi um sinn hag, en eru samkvæmt könnun- inni sátt við reynsluna fram að þessu. Fyrir smáríki eins og Liechtenstein felst líka mik- ill pólitískur ávinningur í EES-aðildinni. „Þessi jafn- réttháa þátttaka okkar í stofnunum EES og í smíði nýrrar löggjafar í Brussel styrkir stöðu okkar sem sjálfstæðs ríkis,“ segir ráðherrann. „Þetta fyrsta ár aðildarinnar fólst þátttakan að mestu í yfirtöku löggjafar Evrópusambands- ins fyrir innri markaðinn. Það var mikið átak, einkum fyrir þingið, en við höfum á þessu eina ári afgreitt um 80% hennar. Vonir standa til að hún muni hafa náðst öll um næstu árarnót." Mikilvægi pólitískra skoðanaskipta Willi átti vinnufund með hinum ís- lenzka starfsbróður sínum á fimmtu- dag. Hún segir þann fund hafa verið mikilvægan fyrir sig, þar sem Island fer nú með forsætið í EES-nefnd EFTA-ríkjanna, en Liechtenstein tek- ur við því um næstu áramót. Hún segir Islendinga hafa sinnt forsætis- hlutverkinu af myndarskap og skyn- semi og því sé henni fengur í að kynn- ast reynslu íslendinga af hlutverkinu. Hún segir að EFTA-ríkjunum sé mikill akkur í að halda EES á lofti við fulltrúa ESB-ríkjanna á sem flest- um vígstöðvum. í þessu sambandi hafi hin svokölluðu pólitísku skoðana- skipti ráðamanna EES-ríkja sérstaka þýðingu, að hennar mati. EES-samn- ingnum fylgir yfiriýsing um pólitísk skoðanaskipti í utanríkismálum „með það fyrir augum að koma á nánari tengslum í sameiginlegum hagsmuna- málum“, eins og segir orðrétt í yfirlýs- ingunni. í samræmi við yfirlýsinguna hittast utanríkisráðherrar EES- EFTA- og ESB-ríkjanna á fundum sameiginlegu EES-nefndarinnar á hálfs árs fresti. Mikilvægasta skrefíð, sem að mati Willi hefur verið stigið í þessu sambandi frá því EES-samn- ingurinn gekk í gildi, er að - fyrir frumkvæði íslendinga - hefur því verið komið á, að hin pólitísku skoð- anaskipti fari fram ekki ein- vörðungu á stigi utanríkis- ráðherra, heldur einnig á stigi ríkisstjórnarleiðtoga. Slíkur fundur fór fram í fyrsta sinn er ríkisstjórnar- leiðtogar Noregs, Islands og Liecht- enstein hittu leiðtoga fiestra ESB-ríkj- anna auk forseta framkvæmdastjórn- ar ESB í Visby á Gotlandi í maí sl., en þangað sóttu leiðtogarnir fund Eystrasaltsráðsins. Willi ítrekar mikil- vægi samráðs EES-ráðamanna á þessu hæsta stigi ákvarðanavalds, til þess að viðhalda vitund leiðtoga ESB- ríkjanna um Evrópska efnahagssvæð- ið. Önnur mál halda ESB-ríkjunum mjög uppteknum þessi misserin; Aust- ur-Evrópuríkin þrýsta á um að gerast ESB-aðilar sem fyrst - endurskoðun grundvallarsáttmála sambandsins og stofnanauppbyggingar þess er í gangi á ríkjaráðstefnu ESB, og aðildarríkin eru þar að auki að búa sig undir efna- hags- og myntbandalag Evrópu (EMU). Það sé því skiljanlegt, að hafa verði fyrir því að halda EES á lofti, og til þess séu hin pólitísku skoðana- skipti ómetanleg. Menningar- og íþróttatengsl En tengsl Islands og Liechtenstein takmarkast ekki eingöngu við sam- starfið innan EES. Heimsókn Willi hófst á heimsókn hennar ásamt fylgd- arliði í Listasafn íslands, þar sem hún hitti nokkra fulltrúa íslenzkrar mynd- listar. I samræðum við Björn Bjarna- son menntamálaráðherra var ákveðið að stefna að auknum tengslum land- anna á sviði menningarmála. íslenzk- um tónlistarmönnum hefur verið boðið til Liechtenstein og til stendur að halda þar íslenzka kvikmyndahátíð bráðlega, að sögn Wilii. Á komandi vori mun þar að auki koma hópur íþróttamanna frá Liec- htenstein til íslands til að taka þátt í smáþjóðaleikunum, þar sem íslend- ingar verða gestgjafarnir í þetta sinn. Á smáþjóðaleikunum reyna íþrótta- menn frá átta evrópskum smáþjóðum með sér, auk íslands og Liechtenstein eru það Lúx- emborg, Malta, Kýpur, San Marino, Monaco og And- orra. Leikarnir fara fram á tveggja ára fresti. Næst á eftir Islandi fara þeir fram í Liecht- enstein, árið 1999. Willi segist einnig hlakka til að fá íslenzka landsliðið í knattspyrnu í heimsókn, en ísland og Liechtenstein eru í sama riðli í undankeppni heims- meistarakeppninnar í knattspyrnu og munu því landslið þjóðanna reyna tvisvar með sér í vetur. Mikill ávinn- ingur í EES- aðildinni Menningar- og íþrótta- tengsl aukin Snör handtök nauð- synleg í orkuöflun Auknar líkur eru nú taldar á því að viðræður íslenskra stjómvalda við bandaríska fyrirtækið Columbia Ventures Corporation vegna álvers á Grundartanga muni leiða til jákvæðrar niður- stöðu. í samantekt Halls Þorsteinssonar kemur fram að verði af uppsetningu álversins og stækkun jámblendiverksmiðjunnar þurfi að ráðast í risavaxnar virkjanaframkvæmdir á næstu árum. FULLTRÚAR Landsvirkjunar og iðnaðarráðuneytisins áttu fund með stjórnendum Columbia Ventures í síðustu viku um rafmagnsverð og orkusölu- skilmála vegna 60 þúsund tonna ál- vers á Grundartanga og segist Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra bjart- sýnni á lausn málsins eftir fundinn. Viðræðum verður haldið áfram á næstu vikum. Columbia Ventures keypti 60 þús- und tonna álver í Þýskalandi á síð- asta ári, en það hefur nú verið tekið niður og bíður þess að verða reist á nýjum stað. Álverið þarf rúmlega 900 GWst rafmagns á ári, og heildarfjár- festing við að reisa það á Grundar- tanga er áætluð 150-175 milljónir dollara, eða um 9,9-11,5 milljarðar króna. Afkoma Járnblendiverksmiðjunnar hf. á Grundartanga hefur verið góð á þessu ári og fyrstu sex mánuði ársins nam hagnaðurinn rúmlega 400 milljónum króna. Athuganir á því að stækka verksmiðjuna eru nú í fullum gangi, að sögn Jóns Sigurðssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins, en ákvörðun verður tekin um það í vetur hvort þriðji bræðsluofninn verður settur þar upp. Ef ráðist verður í stækkun verksmiðjunnar verður ofn- inn tekinn í notkun á árinu 1999, en hann þyrfti um 450 GWst á ári. Sam- tals væri orkuþörf vegna ofan- greindra framkvæmda á Grundart- anga því um 1.350 GWst á ári og myndu nauðsynlegar virkjanafram- kvæmdir kosta um 20 milljarða króna. Orkugetan eykst um 660 GWst á næsta ári Framleiðsla í nýjum steypuskála ÍSALs hefst í júlí á næsta ári, þrem mánuðum á undan því sem upphaf- lega var ráð fyrir gert. Með stækkun- inni eykst framleiðslugeta álversins úr 100 þúsund tonnum á ári í um 160 þúsund tonn, og nemur raforkuþörf nýja kerskálans 950 GWst á ári. Samkvæmt upplýsingum Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, er talið að um 730 GWst af forgangsorku verði til reiðu í raforkukerfinu á næsta ári, en til að útvega það sem á vantar fyrir ál- verið í Straumsvík og anna orkuþörf almenningsveitna fram til aldamóta hefur verið ráðist í framkvæmdir við orkuöflun sem að mestu verður lokið við á næsta ári og eykst orkugeta raforkukerfisins með þeim um 660 GWst. Þorsteinn bendir á að þörf sé fyrir snör handtök í orkumálum ef af upp- setningu álvers Columbia Ventures og stækkun verksmiðju Járnblendifé- lagsins á Grundartanga verður. Fari svo er reiknað með að Reykjavíkur- borg hefji raforkuframleiðslu á Nesjavöllum og setji þar upp tvo 30 MW hverfla og ætti fyrri hverfillinn að geta hafið framleiðslu á haust- mánuðum 1998 og sá síðari um ára- mótin 1998-1999. Viðræður standa nú yfir milli Reykjavíkurborgar og Landsvirkjunar um hvernig fram- leiðslu og orkusölu frá Nesjavöllum yrði háttað. Nú er unnið að því að setja upp aðra vélasamstæðu Kröfluvirkjunar, en samstæðan hefur legið ónotuð frá byggingartíma virkjunarinnar. Er ætlunin að auka uppsett afl í Kröflu úr 30 MW í 45 MW með því að afla viðbótar- gufu. Verði af ofangreindum fram- kvæmdum á Grundartanga myndi Landsvirkjun ráðast í lokaáfanga í aflaukningu Kröfluvirkjunar úr 45 í 60 MW og gerð Hágöngumiðlunar sem skilar um 200 GWst á ári, og er gert ráð fyrir að hægt verði að ljúka þessum framkvæmdum í árslok 1998. Þá myndi Landsvirkjun ráðast í 125 MW virkjun við Sultartanga í Þjórsá, sem hafið gæti rekstur ári seinna. Úrskurður umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum vegna fram- kvæmda við gerð Hágöngumiðlunar er væntanlegur í lok september, og til að auka viðbragðsflýti Landsvirkj- unar er vinna þegar hafin við gerð útboðsgagna vegna Hágöngumiðlun- ar og Sultartangavirkjunar. Þá fara rannsóknir á Kröflusvæðinu fram á næstunni til að ákvarða hvar best er að bora eftir háþrýstigufu til þess að fá fullt afl í hverflana tvo í stöð- inni. Ýmsir iðjukostir í athugun Fimm ár eru nú liðin frá því síð- ast fóru fram samningar við Atlant- álhópinn svonefnda um byggingu álvers á Keilisnesi. Fyrirtækin sem að þessu verkefni standa, Alumax, Hoogovens og Granges, ákváðu fyrr á þessu ári að hefja endurskoðun í samvinnu við Landsvirkjun og ís- lensk stjórnvöld á fyrri áætlunum um þetta verkefni, og að sögn Þor- steins munu fyrirtækin taka afstöðu til þess síðar í vetur hvort hagkvæmt sé að reisa álver á Keilisnesi í áföngum á árunum 2001 til 2003. Ál- verið þyrfti um 5.000 gígawattstundir árlega, en framleiðslugeta þess yrði rúmlega 300 þúsund tonn á ári. Ýmsir fleiri stóriðjukostir eru nú í athugun hjá Markaðsskrifstofu iðn- aðarráðuneytisins og Landsvirkjunar og fleiri aðilum. Þeirra á meðal er kínverskt álver upp á nokkra tugi þúsunda tonna og er talið hugsanlegt að farið verði út í sameiginlega hag- kvæmniathugun íslendinga og Kín- veija á byggingu þess. Sendinefnd á vegum stærsta málmvinnslufyrirtæk- is Kína kom hingað til lands í fyrra- haust til að kynna sér aðstæður og íslensk sendinefnd fór til Kína síðast- liðið vor til viðræðna við fulltrúa stjórnvalda og forystumenn í áliðnaði og að skoða kínversk álver. Síðan þá hefur verið skipst á upplýsingum um tæknileg atriði. í lok síðasta mánaðar lauk að mestu leyti hlutafjáraukningu sem íslenska magnesíumfélagið hf. réðst í vegna síðari hluta hagkvæmni- athugunar á byggingu magnesíum- verksmiðju á Suðurnesjum, en gert er ráð fyrir að niðurstaða hag- kvæmniathugunarinnar liggi fyrir í lok janúar næstkomandi. Er gert ráð fyrir að bygging verksmiðjunnar muni kosta um 30 milljarða króna og framleiðslugeta hennar yrði um 50 þúsund tonn á ári, en það nemur um 15% af heimsframleiðslu mag- nesíums í dag. Samstarfsaðilar Hitaveitu Suður- nesja og fleiri íslenskra aðila í þessu verkefni eru þýsk, rússnesk og kana- dísk fyrirtæki, en ef af byggingu verksmiðjunnar verður liggur fyrir hluta- fjárloforð frá dótturfyrir- tæki þýska stórfyrirtækis- ins Preussag Anlagenbau. Fyrirtækið Zinc Corporation of America, ZCA, hefur kannað mögu- leika á starfsemi sinkverksmiðju á Grundartanga eða í Gufunesi. Sam- kvæmt forathugun fyrirtækisins þyk- ir hagkvæmasti kosturinn að byggja hér 100 þúsund tonna rafhitunarverk- smiðju og um 25 þúsund tonna sinkoxíðverksmiðju, auk þess að reisa verksmiðju sem sæi að mestu um forvinnslu á hráefni, en sinkverk- smiðjan myndi byggja á endurvinnslu. Orkuþörf verksmiðjunnar er talin 400 Gígawattstundir á ári. Bakslag kom hins vegar í þetta mál eftir að reglur sem leyfa förgun úrgangs með sinki tóku gildi í Bandaríkjunum, en það gerir það að verkum að útvegun hrá- efnis fyrir verksmiðjuna yrði erfiðari og dýrari. Norska fyrirtækið Hydro Alumin- ium, sem er dótturfyrirtæki Norsk Hydro, hefur verið í sambandi við Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneyt- isins og Landsvirkjunar og lýst áhuga á að kanna hagkvæmni þess að byggja hér álver sem yrði hugsan- lega að verulegu leyti í eigu ís- lenskra aðila. Hydro Aluminium á hlut í álveri í Noregi á móti Alu- suisse og hafa forráðmenn fyrirtæk- isins komið oft hingað til lands á undanförnum árum til að kynna sér aðstæður. Nokkrir bandarískir fjárfestar í pappírsiðnaði hafa lýst áhuga á að kanna möguleika á að reisa pappírs- verksmiðju hér á landi og ef af því verður er um að ræða 30-40 milljarða króna stofnfjárfestingu og fram- leiðslu á rúmlega 200 þúsund tonnum af gæðapappír á ári. Aflvaki hf. hefur unnið að undirbúningi þessa máls en rætt hefur verið um að verksmiðjan yrði staðsett í nágrenni Straumsvík- ur. Pappírsframleiðsla krefst bæði mikillar raf- og gufuorku en hráefni til framleiðslunnar yrði innflutt tijá- kvoða. Þann 4. júlí síðastliðinn var stofnað samstarfsfélag iðnaðarráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og Hafnarfjarðar- bæjar um undirbúning jarðgufuveitu til iðnaðar við Straumsvík, en áhugi á samstarfinu vaknaði vegna fyrir- spurna frá erlendum aðilum um að- stöðu til að reisa og reka stóriðjuver hér á landi sem nýttu mikið magn jarðgufu til framleiðslunn- ar auk raforku og er papp- írsverksmiðjan meðal þess sem til athugunar er. Að lokum má nefna að stálverksmiðjan í Hafnar: fjarðarhrauni stendur enn og hefur komið fram einhver áhugi á að hefja rekstur hennar að nýju. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar er þörf á endurbótum á rafbúnaði verksmiðjunnar svo hægt verði að selja henni rafmagn án þess að það valdi truflunum hjá öðrum viðskipta- vinum Landsvirkjunar. Keyptu 60 þúsund tonna álver Hagnaðurinn rúmlega 400 milljónir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.