Morgunblaðið - 10.09.1996, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Greiða hreinsun bílanna
VEGAGERÐIN mun greiða bíleig-
endum sem áttu leið um Norðurár-
dal síðastliðinn föstudag hluta af
kostnaði við hreinsun á bílunum
sem fengu tjöru á sig við akstur á
þessum slóðum.
Birgir Guðmundsson, -forstöðu-
maður Vegagerðarinnar í Borgar-
nesi, segir að ætlunin sé að vega-
gerðarskrifstofur í umdæmi við-
komandi bíleigenda geri skýrslu og
sendi til Borgarness og verði þá
hluti kostnaðar við þrifin greiddur.
„Menn geta hreinsað bílana sjálf-
ir og við borgum einhvern kostnað.
Þetta er engu að síður talsvert álita-
mál. Það sem þarna gerðist var að
það var nýbúið að leggja klæðningu
á veginn og það kemur gífurleg
úrkoma á stuttum tíma um leið og
þarna er mikil og þung umferð. Við
þessar aðstæður rennur asfaltið og
vatnið saman. Þetta er eins og hvert
annað slys,“ sagði Birgir.
## Morgunblaðið/RAX
ARINBJORN Vilhjálmsson, arkitekt, Halldór Þorgeirsson, deildarstjóri umhverfisdeildar
RALA, Steingrímur Hermannsson, seðlabankasljóri, og Magnús Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, eru í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar.
Ráðstefna um hlutverk íslands í sjálfbærri þróun
Aldamótafundur á
Þingvöllum undirbúinn
HLUTVERK íslands í sjálfbærri
þróun á 21. öldinni verður um-
ræðuefni ráðstefnu sem haldin
verður 13.-14. september nk. á
Hótel Sögu og Þingvöllum. Ráð-
stefnan er undirbúningsráð-
stefna fyrir aldamótafund á
Þingvöllum árið 2000 þar sem
ætlunin er að ræða framtíð
mannkyns og leiðina I átt til
sjálfbærrar þróunar.
Að undirbúningsráðstefnunni
standa Framtíðarstofnunin, The
Millennium Institute í Washing-
ton og The Gandhi Foundation í
Kaliforníu, í samvinnu við um-
hverfisráðuneytið.
Að sögn Steingríms Her-
mannssonar, formanns undirbún-
ingsnefndarinnar, hefur ekki ver-
ið tekin endanleg ákvörðun um
hvort aldamótafundurinn verður
haldinn hér á landi. „Ákvörðunin
er hjá stjórnvöldum og þá einna
helst forsætis- og umhverfisráðu-
neyti, en undirbúningsráðstefnan
er liður í að skapa grundvöll fyr-
ir ákvörðun stjórnvalda um það
hvort slíkur fundur verður hald-
inn.
Gerald O. Barney, fram-
kvæmdastjóri Millennium-stofn-
unarinnar, á hugmyndina að
aidamótafundinum. Hugmyndin
er fyrst nefnd í skýrslunni „Glob-
al 2000 revisited“ sem hann vann
fyrir Heimsþing trúarleiðtoga í
Chicago 1993, en fyrsti vísirinn
að aidamótafundinum kom fram
í skýrslu sem hann vann fyrir
Jimmy Carter, fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, árið 1980,“
segir Steingrímur.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni
koma víðsvegar að úr heiminum.
Meðal þeirra eru, auk Gerald 0.
Barney, Sir Shridath Ramphai,
fyrrverandi aðalritari Breska
samveidisins og meðformaður
ráðs um alheimsstjórnun en hann
var í undirbúningsnefnd alþjóð-
legu umhverfisráðstefnunnar í
Río de Janeiro. Hann mun fjalla
um sameiginlega framtíð mann-
kynsins og undirbúning fyrir 21.
öldina.
Dr. Carlos A. Quesada Mateo,
framkvæmdastjóri rannsóknar-
stöðvar í sjálfbærri þróun á Costa
Rica, mun ræða mikilvæg við-
fangsefni 21. aldarinnar á sviði
umhverfismála.
John Huddleston, fyrrverandi
deildarstjóri í Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum fjallar um alþjóða þegn-
rétt og leiðina til sjálfbærrar þró-
unar.
Auk þess munu frú Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi for-
seti íslands, og Rodrigo Carazo,
fyrrverandi forseti Costa Rica
flytja ávörp á ráðstefnunni.
Vaknaði við reyk og
vakti fjölskylduna
ELDUR kom upp í húsi á Framnes-
vegi 34 aðfaranótt siðastiiðins
sunnudags. Sex íbúðir eru í húsinu
og var ekki vitað í fyrstu hvar íbú-
arnir voru niðurkomnir. Síðar kom
í ljós að þeir höfðu allir komið sér
út úr húsinu. Töluverður eldur log-
aði í íbúð á annarri hæð hússins.
Næsta hús, númer 32, var rýmt
vegna hættu á að eldurinn næði að
læsast í það. Fjórir voru í íbúðinni
þar sem eldurinn kom upp og vakn-
aði kona þar í reykjarkófi og vakti
fjölskyldu sína.
Reykkafarar voru sendir inn í
húsið. Þeir brutu upp hurð á íbúð-
inni þar sem eldurinn var laus og
einnig hurð á risíbúð þar sem talið
var að fólk væri. Risíbúðin reyndist
vera mannlaus.
Slökkviliðið hafði mikinn viðbún-
að og gekk greiðlega að ráða niður-
lögum eldsins. Kranabíll var á
staðnum og tókst að opna þak-
glugga hússins með aðstoð hans.
Mestur eldur var í stofu íbúðarinnar
þar sem sjónvarpstæki stóð. Líkur
eru taldar á að upptök eldsins hafi
verið í sjónvarpstækinu. Kona og
maður með 11 ára og eins árs börn
voru í íbúðinni og komust af sjálfs-
dáðum út. Konan vaknaði við
reykinn um kl. 23 og vakti þá fjöi-
skylduna. Maðurinn reyndi að
slökkva eldinn með handslökkvi-
tæki en varð frá að hverfa.
Eldur hafði læst sig í veggi og
loft og miklar skemmdir urðu í allri
íbúðinni vegna reyks og sóts.
Fólkið var skoðað í sjúkrabíl á
staðnum og reyndust því ekki hafa
orðið meint af.
Morgunblaðið/Júlíus
FJÖLMENNT lið slökkviliðs og lögreglu var kvatt út vegna elds
á miðhæð í húsi á Framnesvegi.
Tóku
mann
nauðugan
af heimili
sínu
HÓPUR manna veittist að
húsráðanda einum á heimili
hans í Rimahverfi síðastliðið
laugardagskvöld og var mað-
urinn fluttur nauðugur á brott
í bifreið aðkomumanna. Til
nokkurra ryskinga kom og
gerði eiginkona mannsins lög-
reglu aðvart. Jeppabifreið var
stöðvuð nokkru síðar og voru
mennirnir í honum.
Allir hafa mennirnir komið
við sögu hjá lögreglu áður
vegna fíkniefnamála. Maður-
inn sem var tekinn nauðugur
var í bifreiðinni. Mennirnir
voru allir færðir á lögreglustöð
og gáfu þá skýringu að þeir
hefðu átt nokkuð vantalað við
manninn vegna bílaviðskipta.
Við líkamsleit fannst fíkni-
efni á þremur mannanna, þar
á meðal LSD, E-töflur, amfet-
amín og hass. Við leit í bílnum
fannst bardagakylfa.
Nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla iátnir kaupa bækur
Oheimilt samkvæmt
grunnskólalöffum
LANDSSAMTÖKIN heimili og skóli
hafa sent frá sér ályktun til að
vekja athygli á að samtökunum
hafa borist fregnir af því að nem-
endur í 9. og 10. bekk séu látnir
kaupa námsgögn í valgreinum nú
í upphafi skólaárs, en slíkt sé með
öllu óheimiit. Grunnskólalög og
reglugerð um valgreinar í grunn-
skóla taki af öll tvímæli um slíkt.
Guðni Olgeirsson námsstjóri
grunnskóladeildar í menntamála-
ráðuneytinu segir að ráðuneytið hafi
haft spumir af samsvarandi málum,
en muni hins vegar ekki taka þau
til sérstakrar meðhöndlunar nema
að formlegt erindi berist því.
Guðni segir þetta fyrirkomulag
hafa verið við lýði um langa hríð,
en árið 1990 hafi umboðsmaður
Alþingis kveðið upp úr með að það
væri óheimilt að láta börn í skyldu-
námi kaupa bækur eða önnur gögn
fyrir námið, svo sem ritvélar. Sú
niðurstaða hafi síðan verið staðfest
með_ grunnskólalögum.
„Ég held að skólar viti þetta al-
veg. Hins vegar er staðan stundum
þannig að þeir geta fengið bækur
frá Námsgagnastofnun en vilja aðr-
ar bækur sem þeir telja betri eða
rúmast ekki innan kvóta, og fara
þá leið að rukka nemendur. Við
teljum samt að þetta hafi minnkað
mikið á undanförnum árum.
Seinast í dag [í gær] fengum við
þó dæmi um að nemendur í 10.
bekk voru látnir kaupa námsgögn
fyrir valgrein, en þá túlkaði skólinn
þá ákvörðun svo að hún væri rétt-
lætanleg því að valgreinina væri
hægt að meta til framhaldsskóla.
Þetta er vissulega grátt svæði og
ekki liggur fyrir lögfræðileg túlkun
á þessu atriði," segir Guðni.
Leita verður álits
Hann kveðst.gera ráð fyrir að
leitað verði lögfræðilegrar álits-
gerðar á þessu efni, enda telji ráðu-
neytið mjög skýrt að óheimilt sé
að láta nemendur kaupa kennslu-
bækur og yalgreinar séu hluti af
skyldunámi.
„Ráðuneytið hefur skyldu að
fylgja þessum lagaákvæðum eftir
en aðhefst ekkert í stjórnsýslumál-
um sem þessum nema að formlegt
erindi berist. Við vitum að slík er-
indi eru á leiðinni og munum þá
fjalla um málið,“ segir hann.
Samtökin heimili og skóli hvetja
foreldra, skólastjórnendur og skóla-
nefndir til að kynna sér reglur þar
að lútandi og minna á að nám í
grunnskóla skuli vera nemendum
að kostnaðarlausu og því sé óheim-
ilt að krefjast greiðslu fyrir kennslu-
bækur sem nemendum er skylt að
nota við nám sitt.
Samtökin beina því til foreldra-
ráða grunnskóla að kynna sér
hvernig þessum málum er háttað í
hveiju sveitarfélagi og koma at-
hugasemdum á framfæri við sveita-
stjórnir, þyki ástæða til.