Morgunblaðið - 10.09.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞORUNN Guðmundsdóttir, formaður Lögmannafélags Islands, ávarpar
Hæstaréttardómara við athöfn í Dómhúsi Hæstaréttar í gær.
Málflutningur hefst í nýju Dómhúsi
Hæstaréttar við Arnarhól
Litið til hússins sem
musteris réttlætisins
MÁL var flutt í fyrsta sinn í nýju
Dómhúsi Hæstaréttar við Arnar-
hól í gær. Áður en málflutningur-
inn hófst var stutt athöfn í dóm-
sal 1 þar sem Þórunn Guðmunds-
dóttir, formaður Lögmannafélags
íslands, færði Hæstarétti listaverk
eftir Svövu Björnsdóttur. Haraldur
Henrysson, forseti Hæstaréttar,
sagði að Hæstiréttur vonaðist til
að þeir sem þar myndu starfa
gætu tryggt það að litið yrði til
hússins sem musteris réttlætisins.
Haraldur Henrysson, forseti
Hæstaréttar, sagði við þetta tæki-
færi að öllum væri það ljóst hver
breyting hefði orðið á allri starfs-
aðstöðu Hæstaréttar með nýja
húsinu.
„Hér er risið Dómhús með reisn
sem borgararnir geta litið til með
stolti og virðingu. Er við fáum
þetta hús til umráða sem starfs-
vettvang okkar hlýtur það að
verða okkur enn frekari hvatning
til að leggja okkur öll fram í þeim
mikilvægu störfum sem hér eru
unnin og okkur eru falin. Það er
sameiginlegt verkefni okkar dóm-
enda, lögmanna og annarra mál-
flytjenda að tryggja öruggan
framgang hvers máls sem til rétt-
arins kemur, gera glögga grein
fyrir staðreyndum máls og flytja
það með markvissum hætti, bæði
málsástæður og lagarök sem máli
skipta. Síðan er það dómenda á
grundvelli þessa að ljúka dómi á
málum. Miklu skiptir að öll þessi
störf séu unnin af trúmennsku við
aðilana og hollustu við sannleik-
ann og lögin þannig að réttlæti
verði fullnægt. Það er einlæg von
Hæstaréttar að þannig verði ætíð
starfað innan þessara veggja og
að við sameiginlega, dómendur og
málflytjendur, getum tryggt það
að til þessa húss verði með réttu
litið sem musteris réttlætisins,“
sagði Haraldur.
Haraldur sagði að gert væri ráð
fyrir því að málflutningur yrði í
nýja húsinu í þriggja dómara deild
alla virka daga vikunnar. Lét hann
í Ijós þá ósk sína að gott samstarf
yrði hér eftir sem hingað til milli
réttarins og málflytjenda.
Ljós og hljóð
Þórunn Guðmundsdóttir, for-
maður Lögmannafélags íslands,
þakkaði Hæstarétti boð til hæsta-
réttarlögmanna í nýja húsið og
sagði að það ætti að vera aðall
hverrar þjóðar að búa vel að sínum
dómstólum. Með nýju húsi Hæsta-
réttar hefði það sannarlega verið
gert. Hún sagði að Lögmannafé-
lagið hefði tilkynnt Hæstarétti á
75 ára afmæli réttarins 16. febr-
úar 1995 að það hygðist gefa hon-
um listaverk í hið nýja hús. Lista-
verkið er eftir Svövu Björnsdóttur
og hefur því verið komið fyrir í
dómsal 2. Þórunn sagði að lista-
verkið væri nafnlaust en mörgum
þætti það minna á hlust.
„Þeir sem hafa farið inn í dóm-
salinn hafa tekið eftir kringlóttum
þakljóra sem veitir birtu inn í dóm-
salinn. Listaverkið er kringlótt,
múrað inn í vegginn. Þessir tveir
hringir geta verið tákn um ljós og
hljóð. Kannski má segja að táknin
minni á að dómendur hlýða á lög-
mennina og lögmennirnir á dóm-
inn. Það að verkið er nafnlaust
gefur ímyndunaraflinu lausan
tauminn," sagði Þórunn.
Forseti Hæstaréttar þakkaði
formanni Lögmannafélagsins
gjöfma og sagði að listaverkið líkt-
ist vissulega hlust og væri eflaust
dómendum hvatning til þess að
hlusta vel eftir því sem lögmenn
hefðu fram að færa.
VIÐ vígslu Dómhúss Hæstaréttar síðastliðinn fimmtudag settust
að spjalli tveir fyrrverandi hæstaréttardómarar, Ármann Snæv-
arr (t.h.) og Gizur Bergsteinsson. Gizuri á hægri hönd er eigin-
kona hans, Dagmar Lúðvíksdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUÐMUNDUR Ingvi Sigurðsson hæstaréttarlögmaður (t.v.), fað-
ir Þórunnar Guðmundsdóttur, formanns Lögmannafélags ís-
lands, (fyrir miðju) og Guðmundur Pétursson hæstaréttarlögmað-
ur sem var að flytja sitt síðasta mál í nýju Dómhúsi Hæstaréttar.
Fyrsta og síðasta málið
í nýju Dómhúsi
FYRSTI málflutningurinn í nýju
Dómhúsi Hæstaréttar fór fram í
gær. Flutt var hæstaréttarmálið
Þórhallur Dan Johansen gegn Eim-
skipafélagi íslands hf. Málflytjend-
ur voru hæstaréttarlögmennimir
Guðmundur Pétursson og Guð-
mundur Ingvi Sigurðsson. Guð-
mundur Pétursson var að flytja sitt
síðasta mál en hann hefur starfað
sem hæstaréttarlögmaður í 40 ár.
Guðmundur Pétursson sagði í
samtali við Morgunblaðið að það
væri sambiand af söknuði og
ánægju að vera að flytja sitt síð-
asta mál. „Ánægju vegna þess að
núna get ég farið að taka það
rólega. Eg er tiltölulega hress enn
þá. I þessu síðasta máli er eg veij-
andi fyrir Eimskipafélag Islands.
Þetta er slysamál sem fjallar um
skipstjóra sem féll ofan í lest skips
síns. Það er ekki deilt um bóta-
skyldu heldur aðeins um fjárhæð-
ir,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur er fæddur 1917 og
verður því áttræður á næsta ári.
„Eg hafði hugsað mér það síðast-
liðinn vetur að hætta þegar mín
mál væru gengin út. Tvö þeirra
kláruðust fyrir réttarfríið og
þetta verður síðasta málið.“
Guðmundur flutti sitt sitt fyrsta
mál fyrir Hæstarétti í marsmánuði
1956. Hann sagðist ekki minnist
eins máls frekar en annars. „Það
hafa komið fyrir atvik sem eru
annaðhvort skringileg eða varð-
veita kátínu. Mér er núna ofarlega
í huga hve geysilegur munur verð-
ur á starfsaðstöðunni og það er
enginn vafi að iðnaðarmennirnir
hafa vandað sérstaklega til verks-
ins,“ sagði Guðmundur.
Kláradu dæmid
med SP-bílaíáni
Með SP-bílalán inní myndinni kaupir
þú bíi sem hæfir greiðslugetu þinni
I VW Golf Pasadena 1.6 árg.
'91, ek. 117 þús. km, blár, 5 g.
Verð 590.000. Áhv. bílal án.
Toyota Double Cab dísil árg.
'89, ek. 178 þús. km., rauður,
hús, 33" dekk, mikið end urn.
Verð 1.070.000. Ath. skipti.
GMC Sierra Classic dísil 7,3 árg.
'88, ek. 20 þús. á vél, svart-ur,
38" dekk, spil, nýtt lakk. Verð
1.550.000. Ath. skipti.
I Ford F 350 4WD Crew Cap 7,3
dísil árg. '89, ek. 160 þús.
km., svartur, 44" dekk, sjálf-
sk„ camper á palli og m.m.fl.
Verð 3.200.000. Ath. skipti.
op
Sími 588-7200
Tjármögnun hf
tlLEVULll FLUTT LL\LL\1 nýlega bíla frA kanada
..............................................................'■
Sólumenn:
B1
Ingimar Sigurðsson, lögg. bifr.sali
uu
Axel Bergmann
Funahöfða 1 • Sfmi: 567-2277 • Rífandi sala ♦ Fríar auglýsingar • Fritt innigiaid
5LAG LÖGCILTRA BlFRElDASAL
Chevrolet Blazer LS 4,3L árg.
'95, ek. 31 þús. km, fjólublár,
álfelgur, cc, r/ö, ABS, airb.,
200 hö. Verð 3.250.000.
Toyota Corolla XLi árg. '96,
ek. 11 þús. km, dökkblár,
sjálfsk. Verð 1.290.000. Bein
sala.
Opel Corsa 1,41 árg. '96, ek. 7 Tveir góðir: Nissan Sunny SLX
þús. km, vínrauður, 5 g. Verð árg. '91, ek. 63 þús. km, sjálfsk.
1.050.000. Áhv. bílalán. Verð 770.000 og Sunny SLX árg.
'91, ek. 75 þús. km„ 5 g. Verð
740.000. Góðir í skólann.