Morgunblaðið - 10.09.1996, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Mikil veltuaukning hjá Opnum kerfum á fyrri árshelmingi
Hagnaður nam
um 33 milljón-
um króna
HAGNAÐUR Opinna kerfa hf. á
fyrstu sex mánuðum þessa árs
nam tæpum 33 milljónum króna,
án rekstrarafkomu hlutdeildarfé-
laga. Þetta er 12 milljónum króna
meiri hagnaður en varð á rekstri
fyrirtækisins allt síðasta ár, en þar
sem þetta er í fyrsta sinn sem
fyrirtækið birtir endurskoðað
milliuppgjör liggja ekki fyrir sam-
anburðarhæfar tölur við sama
tímabil í fyrra.
Rekstartekjur Opinna kerfa á
fyrri árshelmingi námu tæpum
444 milljónum króna, en rekstrar-
gjöld námu tæpum 410 milljónum.
Þá er ekki tekið tillit til uppfærðra
umboðslauna. Fjármagnsliðir fyr-
irtækisins voru jákvæðir um 400
þúsund krónur og að auki varð
rúmlega 15 milljóna króna hagn-
aður af sölu eigna, sem felst að
stærstum hluta í sölu fyrirtækisins
á 10% hlut í Tæk'nivali.
Frosti Bergsson, framkvæmda-
stjóri Opinna kerfa, segir að veltu-
aukningin miðað við sama tímabil
í fyrra sé rúmlega 60%. „Það eru
nokkrar skýringar á því en ein
skýringin er sú að mörg fyrirtæki
hafa verið að endurskipuleggja hjá
sér reksturinn og kaupa ný upplýs-
ingakerfí.
Mörg stórfyrirtæki hafa verið
að færa sín viðskipti yfir til okk-
ar. Við fundum strax fyrir þessari
Viltu
endilega
borga
meira
en þú
þarft
fyrir
gleraugun?
EF SVO ER - ÞA ERUM
VIÐ EKKIRÉTTA GLER-
AUGNAVERSLUNIN
FYRIRÞIG
S’?Um
Lækjargötu 6
Reykjavík
Sími 551 6505
uppsveiflu á síðasta ári og hún
stendur enn yfir. Hluti af þessari
veltuaukningu kemur líka til
vegna þess að við höfum verið að
auka þjónustu okkar mikið. Aukn-
ingin í tekjum af þjónustu er þann-
ig yfir 40%.“
Frosti segir að fyrirsjáanlegt sé
að framhald verði á þessari upp-
sveiflu, þó svo að hún kunni að
verða aðeins minni en á fyrri hluta
ársins. „Það er ljóst að árið í heild
verður mjög gott og við erum farn-
ir að gæla við það að ná jafnvel
1 milljarði í veltu.“
Stefnt á hlutabréfamarkað
á þessu ári
Að sögn Frosta hefur stefnan
verið sett á hlutabréfamarkað og
reiknar hann með að hiutabréf
félagsins verði jafnvel skráð á
Opna tilboðsmarkaðnum á þessu
ári. Hann segir að í kjölfarið sé
eðlilegt að stefna að skráningu á
Verðbréfaþingi íslands innan 2-3
ára.
„Við teljum að það sé eðlilegt
að fyrirtæki eins og okkar sé á
opnum markaði. Undirbúningur
að skráningu er hafinn og ég
reikna með að á næstu mánuðum
liggi það fyrir hvernig við munum
standa að henni. Nýverið keypti
Auðlind 2% hlut í félaginu og var
það liður í því að breikka hluthafa-
hópinn í fyrirtækinu.
Fyrir eigendur held ég að það
sé tákn nýrra tíma að þeir eigi
auðvelt með að selja eða kaupa
hlut í fyrirtækinu. Við teljum jafn-
framt að það séu mjög mörg áhug-
verð sóknartækifæri í upplýsinga-
tækni. Við viljum því líka eiga
Úr árshlutareikningi 1996
Milljónir króna 1/1-30/6 Jl/1-31/12
Rekstrarreikn. 1996 1995
Rekstrartekjur 443,6 593,6
Rekstrargjöld 409,5 565,8
Rekstrarhagnaður 34,1 27,8
Fjármagnsgjöld 0,4 (0,2)
Hagnaðurf. skatta 34,5 27,6
Aðrar tekjur 15,4 0,7
Skattar (17,3) (8,39
Hagn. tímabilsins 32,6 20,6
Efnahagsreikn. 30/6 ‘96 31/12
Eionir: 1
Veltufjármunir 195,1 159,8
Fastafjármunir 34,9 37,9
Eignir samtals 230,1 197,7
Skuldir oq eiqið fé þ
Skammtímaskuldi 115,8 114,7
Eigið fé 114,3 82,8
Samtals 230,1 197.7
Sjóðstreymi
Veltufé frá rekstri 21,6 26,5
Kennitölur
Veltufjárhlutfall 1,68 1,40
Eiginfjárhlutfall 0,49 0,42
Arðsemi eigin fjár 39,2% 31,8%
möguleika á að hafa aðgang að
auknu íjármagni í gegnum hlutafj-
árútboð, ef einhver áhugaverð
tækifæri koma upp.“
Frosti segir að ekki verði farið
út í hlutafjárútboð í tengslum við
skráninguna, heldur liggi fyrst og
fremst fyrir mönnum að fá virk
viðskipti með hlutabréf félagsins
og þ.m. eðlilega verðmyndun.
Hluthafar í Opnum kerfum eru
í dag 6. Stærsti hluthafi er Þró-
unarfélag íslands hf. með um 37%
hlut, en þar á eftir koma Frosti
Bergsson með 31%, Pharmaco með
20%, Auðlind með 2%, auk tveggja
starfsmanna sem hvor um sig eiga
4,5%. Heildarhlutafé fyrirtækisins
er tæpar 30 milljónir króna.
Leití sameinast
Þormóði ramma
ÞORMÓÐUR rammi hf. á Siglu-
firði og Útgerðarfélagið Leiti ehf.
á ísafirði hafa gert samning um
að sameinast undir nafni Þormóðs
ramma hf. Samruninn er aftur-
virkur og miðast við 30. júní 1996.
Útget'ðarfélagið Leiti ehf. er í
eigu Asbergs Péturssonar og
Brynju Guðmundsdóttur á ísafirði
og hefur gert út frystitogarann
Jöfur ÍS-172, sem nú stundar veið-
ar á Flæmska hattinum. Togarinn
hefur hingað til verið gerður út
frá Isafirði en við samrunann flyst
heimahöfn hans til Siglufjarðar.
Eftir breytinguna gerir Þormóður
rammi út tvo frystitogara, tvo ís-
fisktogara, rekur rækjuverk-
smiðju, frystihús, saltfiskverkun
og reykhús. Kvóti Jöfurs er mest-
megnis rækjukvóti og með sam-
runanum eykst kvóti Þormóðs
ramma Iif. um 1.400 þorskígildi
eða 20%.
Róbert Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Þormóðs ramma,
segir að fyrirtækið sé vel í stakk
búið til að taka við og vinna úr
auknum afla. „Með kaupunum
erum við enn að styrkja okkur í
rækjunni enda höfum við trú á því
að rækjuveiðar og vinnsla verði
burðarás félagsins í framtíðinni.
Við samrunann verður hlutafé
Þormóðs ramma hf. aukið um 91
milljón að nafnvirði eða 15% og
það styrkir eiginfjárstöðuna veru-
lega.“
Um 200 manns starfa nú hjá
Þormóði ramma hf. Hlutabréf í
fyrirtækinu hækkuðu lítillega í
verði á Verðbréfaþingi íslands í
gær eða um 0,4% og var loka-
gengi þeirra 4,82.
Úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppn-
ismála vegna stjórnarmanna í Olís
Málið líklega
tekið upp að nýju
SAMKEPPNISSTOFNUN mun
væntanlega leggja til við sam-
keppnisráð á næstu vikum að það
fjalli að nýju um hvort seta tveggja
stjórnarmanna í Olís samrýmist
samkeppnislögum að sögn Georgs
Ólafssonar, forstjóra Samkeppnis-
stofnunar.
í síðustu viku felldi áfrýjunar-
nefnd samkeppnismála úr gildi úr-
skurð Samkeppnisráðs um að tveir
stjómarmenn víki sæti úr stjóm
Olís vegna of náinna tengsla við
Esso. Telur nefndin að úrskurður
samkeppnisráðs frá því í fyrra, þar
sem kaupum Esso og Hydro Texaco
A/S á hlutum í OIís voru sett ýmis
skilyrði, hafi verið of óskýr.
Georg segir að úrskurður
áfrýjunarnefndarinnar sé ekki
áfellisdómur yfir vinnubrögðum
Samkeppnisyfirvalda. „Úrskurður
áfrýjunarnefndarinnar er ekki efn-
islegur og því felst ekki í honum
dómur um niðurstöðu okkar sem
slíka heldur vinnubrögðin. Nefndin
gagnrýnir framsetninguna og telur
að hún hefði átt að vera skýrari.
Við lítum því ekki á þetta sem
endanlegan úrskurð og munum
væntanlega taka málið upp að
nýju á næstu vikum.“
VIÐ HANDSAL samninga, frá vinstri: Runólfur Ólafsson, framkvæmdaslj. FÍB, Halldór Sigurðsson
og Gísli Maack frá Alþjóðlegri miðlun ehf. og Þorsteinn Guðbrandsson, Jón Hörður Hafsteinsson og
Jón Orn Guðbjartsson frá Navís hf.
Ibex at Lloyd’s valdi
hugbúnað frá Navís hf.
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Navís hf. hefur þróað upplýsingakerfí
fyrir breska tryggingarfélagið Ibex
at Lloyd’s sem nú er að hasla sér
völl hér á landi í samstarfi við Félag
íslenskra bifreiðaeigenda. Trygginga-
félagið mun starfa undir nafninu FÍB
Trygging hjá Lloyd’s og bjóða bif-
reiðatryggingar á lægra verði en áður
hefur þekkst hér á landi, segir í frétt.
Upplýsingakerfið er hannað í Na-
vision Financials, sem er nýtt
Windows-kerfi frá Navision Soft-
ware a/s, stærsta framleiðanda við-
skiptakerfa í Danmörku.
Beinlínutenging verður við kerfið
frá Bretlandi en aðilar hjá Ibex at
Lloyd’s munu hafa aðgang að því til
jafns við þá sem vinna við það hér-
lendis.
Fram kemur að nýja kerfið hefur
vakið mikla athygli í Bretlandi og
hefur fjöldi erlendra tryggingafélaga
sýnt því áhuga. Fulltrúar þriggja
breskra tryggingafyrirtækja hafa
t.d. sótt Navís hf. heim á síðustu
vikum til að kynna sér þessa lausn.
Upplýsingakerfið frá Navís hf.
býður upp á mikinn hraða við vinnslu
og tryggir þannig góð afköst starfs-
manna. Það tekur t.d. aðeins örfáar
mínútur að skrá niður nauðsynleg
gögn vegna áformaðra trygginga og
gefa upp skilmála og væntanleg ið-
gjöld. Þetta er því hægt að vinna í
síma. Þá tekur aðeins örfáar sekúnd-
ur að skoða allar upplýsingar sem
tengjast hveijum viðskiptavini og
skoða tjónaskýrslur sem eru varð-
veittar í kerfinu. Margir notendur
hafa aðgang að kerfinu samtímis og
geta t.d. starfsmaður FÍB Trygginga
og fulltrúi Ibex at Lloyd’s í Bret-
landi skoðað tjón samtímis.
Hugbúnaðarkerfið Navision Fin-
ancials fékk nýverið gullverðlaun hjá
PC-User, einu virtasta tölvutímariti
í heimi.
Athuga-
semd frá
Þorsteini
Olafssyni
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Þor-
steini Ólafssyni, stjórnarformanni
Iðnþróunarsjóðs.
„I fréttaskýringu í Morgunblað-
inu hinn 7. september sl. í sam-
bandi við vangaveltur um stofnun
„Fjárfestingarbanka íslands" er
nafn undirritaðs nefnt sem hugs-
anlegur bankastjóri í þessari
ímynduðu stofnun.
Að gefnu þessu óvænta tilefni
vil ég taka fram að mál þetta
hefur eðlilega aldrei verið fært í
tal við undirritaðan af aðilum
málsins, enda þeir ugglaust það
skynsamir að velta slíkum málum
ekki fyrir sér áður en samkomulag
liggur fyrir um efnisatriði varð-
andi stofnun hugsanlegs banka.
Þá er af sama tilefni nauðsyn-
legt að það komi fram að jafnvel
þótt einhveijum velmeinandi
mönnum sýndist slíkt koma til
greina, er slíkt ekki til umræðu
af minni hálfu. Frábið ég mér því
vinsamlegast að vera nefndur til
sögu þessarar frekar en orðið er.“
Virðingarfyllst,
Þorsteinn Ólafsson.