Morgunblaðið - 10.09.1996, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Skógurinn
er í vitundinni
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
UÓÐASÝNINGIN Rjóður í Hallormsstaða-
skógi stendur nú sem hæst og mun fá að
njóta sín í litaskiptum náttúrunnar úr há-
sumri yfir í haust. Fjölmargir gestir hafa
lagt leið sína í Trjásafnið og séð og upplifað
verk listamannanna sem nálgast viðfangsefn-
ið á ólíkan hátt.
Ses skáld taka þátt í sýningunni. Einar
Már Guðmundsson , Pétur Gunnarsson, Sig-
rún Eldjárn, Sigurður Pálsson, Steinunn Sig-
urðardóttir og Þorsteinn frá Hamri.
,Einar Már Guðmundsson sagði það áhuga-
vert fyrir sig sem rithöfund að vera með í
þessu verkefni. „Innan ljóðlistarinnar er hægt
að tala um grein sem kallast Skógarljóð. Sú
grein hefur fremur þróast í öðrum löndum
en íslandi. Á íslandi er sterk íslensk náttúru-
ljóðahefð sem menn beita fyrir sig þegar
þeir takast á við verkefni sem þetta og því
er þetta ekkert framandi fyrir ljóðamálið, það
rúmar allt. Þetta svæði og Austurland er
skemmtilegt viðfangsefni, þar er samspil
náttúru og menningar, samanber Hallorms-
staðaskógur og Skriðuklaustur,“ segir Einar
Már.
Ttjásafnið var opnað almenningi 1993 en
tilurð þess var fyrir tilviljun eða sem afleiðing
af því að verið var að reyna margar erlendar
tijátegundir. í markmiðum um safnið segir
að Tijásafnið sé menningarstofnun sem laðar
til sín ferðamenn og aðra gesti. í safninu eru
einstök tré merkt og gerður hefur verið bækl-
ingur um það. Tijásafnið er tengt með göngu-
stíg yfir í Atlavík. Þór Þorfinnsson skógar-
vörður segir hugmyndir um að nýta safnið
fyrir listsköpun hafa fæðst hjá starfsfólki
Skógræktarinnar og heimamönnum á Hall-
ormsstað og það sé ánægjulegt að finna áhug-
ann hjá listamönnunum sjálfum og þann vilja
að tengja saman skóginn og menninguna á
þennan hátt.
TVEIR ungir sýningargestir
lesa ritverk Sigrúnar Eldjárn
en hún samdi og myndskreytti
skógarsögu fyrir börn.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
„Nonvibratou
*
A eigin
vegum
London. The Daily Telegraph.
TVEIR þekktir breskir rithöfundar
hafa bæst í hóp þeirra sem lagt hafa
út á þá grýttu brautað gefa bækur
sínar út sjálfir,, þau Rupert Allason,
njósnasagnahöfundur og þingmaður
íhaldsflokksins, sem skrifar undir
nafninu Nigel West, og Susan Hill,
sem skrifað hefur bækur og leikrit
og hlotið fjölda bókmenntaverðlauna.
Þrátt fyrir að rithöfundum sé ráð-
ið frá því að fara út í eigin útgáfu,
segjast Susan Hill og Rupert Allason
engu kvíða. Fýrsta bókin, sem Alla-
son gefur út er eftir John Cairn-
cross, vin Grahams Greenes, en Alla-
son segir Caimcross hafa játað að
hafa verið fimmti maðurinn í njósna-
hneykslinu sem tengdist Burgess,
Maclean og Philby. Þá hyggst Aila-
son gefa út eigin bók sem fjallar um
mann sem tekist hefur að fá upplogn-
ar æviminningar sínar sem njósnara
birtar.
Susan Hill byijar á því að gefa
út fjórar nýjar smásögur. „Listening
to the Orchestra" nefnist bókin. Með
þessu fetar Hill ennfremur í fótspor
Virginiu Woolf, sem hún segir hafa
verið fyrirmynd sína frá unga aldri.
TONLIST
Norræna húsiö
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Sigurbjörg Magnúsdóttir mezzosópr-
an og Olafur Vignir Albertsson
píanóleikari fluttu söngverk eftir
Haydn, Pál ísólfsson, Carter, Bar-
ber, Sibelius, Massenet og Bizet.
Laugardagurinn 7. september 1996.
SIGURBJÖRG hóf tónleikana á
fímm lögum eftir Haydn, svonefnd-
um ensku lögunum, sem flest eru
samin við ljóð eftir Ánne Hunter, A
Pastoral Song, Fidelity, The Spirit’s
Song og The Mermaid’s Song. She
Never Told Her Love samdi Haydn
við texta eftir Shakespeare. Anne
Hunter gerði sér einkar dælt við
Haydn og var sífellt að færa honum
ljóð eftir sig. Eitt af frægari ensku
lögunum er einmitt 0 Tuneful Voice
en það ljóð færði skáldkonan Haydn
er hann fór frá London úr fyrri
ferð sinni til Englands.
Það hefur verið erfitt fyrir Haydn
að semja við enskan texta en á
móti kom að hann vann meira með
undirleikinn en í þýsku lögunum
og ritaði þau á ensku, t.d. á þijá
nótnastrengi. A Pastoral Song er
fallegt lag og var þokkalega sung-
ið. Fidelity er eitt af þeim lögum
þar sem Haydn átti í erfiðleikum
með enskuna en sem tónverk gæti
þetta lag staðið eitt sem „söngur
án orða“. Frægasta enska lagið er
The Spirit’s Song en þar náði Ha-
ydn tökum á innihaldi textans og
píanóhlutverkið er allt að því í sama
gæðaflokki og hjá Schubert, sér-
staklega í niðurlagi lagsins, sem var
sérlega fallega mótað af Ólafi
Vigni. Sigurbjörg flutti sum ensku
lögin þokkalega vel en með full-
miklu „non vibrato", sem fer ekki
vel, jafnvel í þeim stíl klassískrar
tónlistar, er stendur nærri barokk-
inu, eins og sönglög Haydns gera
að nokkru leyti.
Söngvar Páls ísólfssonar við texta
úr Ljóðaljóðunum eru kröfuharðir
varðandi leikræna túlkun og þar
vantaði nokkuð á. Sama má segja
um amerísku lögin, eftir Carter og
Barber, sem standa nær leikrænu
lýsandi eintali en tilfinningalegri
umfjöllum sönglags. Amerísku lögin
þarf nauðsynlega að túlka með leik-
rænni tónmótun og framsögn mynd-
ræns texta. Bestu lög Sigurbjargar
voru lögin eftir Sibelíus en í þeim
býr það syngjandi tónflæði, sem
jafnvel þarf ekki móta, því lagferlið
er í raun svo talandi tengt textan-
um. Falleg rödd Sigurbjargar naut
sín best í meistaraverkunum Den
första kyssen og Flickan kom ifán
sin álsklings möte. í tveimur síðustu
lögunum, „grátaríu" Karlottu úr
óperunni Werther, eftir Massenet
og „Habanerunni" eftir Bizet, vant-
aði nokkuð á hina leikrænu túlkun
þó þessi söngverk væru að öðru leyti
þokkalega sungin.
Sigurbjörg hefur fallega og mikla
rödd en söng nær öll lögin „non
vibrato". Hún segir sig mezzosópr-
an en mótar söng sinn með sópran
blæbrigðum, svo að lítið heyrist til
mezzoblæbrigða, sem helst hefðu
þurft að móta söng hennar, t.d. í
Habanerunni. Dýpri hljómgun radd-
arinnar gæti ef til vill gert söng
hennar mýkri í stað þess að leggja
áherslu á skarpan sópranhljóm.
Þetta er svo sem vandamál margra
söngvara,^ að finna röddinni réttan
farveg. Ölafur Vignir Albertsson
lék vel, t.d. í lögum Sibelíusar, sem
búa yfir einkar fallegum blæbrigð-
um í samspili við sönglínurnar og
þá naut sín skýr leikur hans í Haydn
og í amerísku lögunum.
Jón Ásgeirsson
í leit að trú og tilgangi
KVIKMYINDm
Háskólabíó
JERUSALEM ★ ★★
Leikstjóri Bille August. Handritshöf-
undur Bille August, eftir sögu Selmu
Lagerlöf. Kvikmyndatökustjóri Jörg-
en Persson. Tónlist Stefan Nilson.
Aðalleikendur Ulf Friberg, Maria
Bonnevie, Sven-Bertil Taube, Hans
Alfredson, Pernilla August, Lena
Endre, Olympia Dukakis, Max Von
Sydow, Sven Wallter, Annika Borg,
Reine Brynjolfsson. Svíþjóð 1996.
EINN virtasti Evrópubúi í leik-
stjórastétt, Daninn Bille August,
hefur nokkurn veginn hrist af sér
hið framandi, rómanska töfraraun-
sæi Húss andanna og er aftur kom-
in á heimaslóðir. Háskandinavískt
andrúmsloft Selmu Lagerlöf við
upphaf nítjándu aldar, svífur yfir
Jerusalem. Myndin er byggð á einni
kunnustu sögu skáldkonunnar, sem
aftur studdist við atburði sem gerð-
ust í Norður-Svíþjóð. Aðalpersón-
umar í þessu viðburðaríka drama
eru stórbóndasonurinn Ingmar (Ulf
Friberg) og Gertrud (Maria
Bonnevie), heimasæta á næsta bæ.
Þau eru ung, ástfangin og framtíð-
in ætti að brosa við þessum óbrotnu
Dalabörnum, en svo fer aldeilis
ekki. Til sögunnar kemur prédikar-
inn Hellgum (Sven-Bertil Taube)
og setur líf hreppsbúa úr andlegu
jafnvægi. Nær tökum á vondaufum
söfnuðinum, einkum þó Karinu
(Pernilla August), systur Ingmars,
sem selur ættaróðalið og heldur
ásamt flestum sveitungum sínum
til Landsins helga - með Hellgum
í fararbroddi. Til að tapa ekki jörð-
inni kvænist Ingmar Barbro (Lena
Endre), dóttir kaupandans, og svík-
ur þar með Gertrud í tryggðum.
Yfírkomin af sorg slæst hún í hóp
Hellgums en sambandi hennar og
Ingmars er þó ekki lokið.
Við gerð þekktustu mynda sinna
hefur August notið merkilegra og
víðlesinna bókmenntaverka en ár-
anghrinn misjafn. Hús andanna var
stjörnum prýtt, einstaklega vel
mannað framan sem aftan við töku-
vélarnar og ekkert til sparað svo
verkið mætti lukkast sem best á
hvíta tjaldinu. Myndin hlaut engu
að síður last sem lof hvarvetna um
heimsbyggðina, sitt sýnist hveijum.
August kann auðsjáanlega betur
við sig í kunnugu umhverfí Norð-
ursins og gerir margt vel. Jerúsalem
þolir þó ekki samanburð við stór-
virkið Pelle sigurvegara, sem hann
skrifaði og kvikmyndaði svo eftir-
minnilega eftir hinu sígilda bók-
menntaverki Martins Andersen
Nexö. Ramminn er jafnvandvirknis-
legur hér, horfinn tími og andblær
endurgerður með ágætum hvað
snertir svið og búninga. Hinsvegar
saknar maður þeirra sterku áhrifa
sem geisluðu af Pelle. Minnisstæðra
lýsinga á kröppum kjörum lítil-
magnans, örbirgðinni og ekki síst
ástinni sem mestu máli skipti - líkt
og hér. Öll sú mynd einkenndist af
óvenjulega beinskeyttu raunsæi
sem hreif með sér áhorfandann.
Upphaf Jerúsalem er best lukk-
að, Áugust undirbýr jarðveginn vel.
Efasemdir safnaðarins, kyrrlátt en
tilbreytingarlaust og erfitt hvers-
dagsamstur í sænskri sveit. Það
gustar af Hellgum sem á auðvelt
með að sannfæra óupplýst alþýðu-
fólkið um betra líf í framandi landi,
Helvíti jafnan á næsta leiti. Hinn
myrki og dökkklæddi Hellgum er
svipmesta persóna myndarinnar frá
hendi Augusts og verður gustmikill
í túlkun Svens-Bertil Taube. Er
hann helgur eða heiðinn, Frelsari
eða falsspámaður? Gerir hann
bændafólkinu gott með því að
planta því niður á eyðimörk Palest-
ínu? Sumir finna nálægð við Drott-
in allsheijar, aðrir þurfa að láta
rífa bindið frá augunum, sem er svo
sem engin ný niðurstaða. Stórt er
spurt og fátt um svör. Persónurnar
eru grunnar og ógnarlengd mynd-
arinnar dregur mikið úr áhrifum
þeirra og nánd. Maður tekur að
lýjast á snúnum ástamálunum, sem
reyndar verða allfyrirsjáanleg er
líða tekur á myndina. Ulf Friberg
bætir ekki úr skák með drumbsleg-
um og gjörsamlega órómantískum
leik í burðarhlutverki en Maria
Bonnevie lætur engan ósnortin.
Annars er leikur samvalins hóps
yfirleitt með ágætum þó fæstar
persónurnar skiji mikið eftir aðrar
en Hellgum og Gertrud. Prunilla
August er óaðfinnanleg, sömuleiðis
Hans Alfredson í hlutverki bónda
hennar. Stórleikarinn Max Von
Sydow fær ekki mikið gert úr smáu
hlutverki sveitaklerksins, ekki
nema svipur hjá sjón miðað við
Pelle. Yfir Jerúsalem hvílir þó reisn,
hægfara reisn, jafnan svipmikil,
tónlistin og takan vönduð og fínleg.
En maður saknar sterkari áhrifa,
nánari tengsla við persónurnar og
verður að bíða enn um sinn eftir
næsta stórvirki frá Áugust, sem
greinilega er betri leikstjóri en
handritshöfundur.
Sæbjörn Valdimarsson
„Eg er
andvarp“
„ÉG ER andvarp" kallast
klukkustundar langur ljóða-
flutningur Hjalta Rögnvalds-
sonar leikara á Kaffí Oliver
í kvöld kl. 22. Þar mun hann
lesa upp ljóðabækur Þorsteins
frá Hamri, Lifandi manna
land og Langnætti á Kalda-
dal.
Aðgangur er ókeypis.
September-
tónleikar Sel-
fosskirkju
1996
ÞRIÐJU tónleikarnir í tón-
leikaröð Selfosskirkju nú í
haust, verða í kvöld 10. sept-
ember kl. 20.30.
Organisti að þessu sinni
er prófessor Mark A. Ander-
son frá Princeton í Banda-
ríkjunum.
Hann er mörgum kirkju-
tónlistarmönnum að góðu
kunnur, en hann var aðal-
kennari á námskeiði barna-
kórstjóra í Skálholti í fyrra.
Lengd tónleikanna er um
45 mínútur. Aðgangur er
ókeypis.
Fyrirlestur í
Nýlistasafninu
FRANSKI heimspekingurinn
Roger Pouivet heldur fyrir-
lestur í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b, miðvikudaginn
11. september kl. 20.30.
Fyrirlesturinn nefnist
„Þjónar einhveijum tilgangi
að skilgreina list?“ Roger
Pouivet, sem er kennari við
háskólann í Rennes á
Bretagneskaga, starfar um
tíma hérlendis sem gesta-
kennari við heimspekideild
Háskóla íslands. Ein af sér-
greinum hans er lista- og
fagurfræði og hefur hann
kynnt sér sérstaklega sam-
tímalist frá Afríku. Roger
hefur skrifað greinar í tíma-
rit og bæður og út er komin
bók eftir hann um umhverfís-
list í heimaborg hans Rennes.
Fyrirlesturinn fer fram á
ensku og er aðgangur ókeyp-
is og allir velkomnir.
Árnesinga-
kórinn í Róm
ÁRNESINGAKÓRINN í
Reykjavík hefur nú hafið
vetrarstarfið, en í sumar söng
kórinn á tónleikum í Panthe-
on-hofinu í Róm 10. júní og
að kvöldi sama dags í 13.
aldar kirkju í Perugia, Chesa
di Monteluce. Laugardaginn
13. júní söng kórinn á tónleik-
um í Dómkirkjunni í Massa
en þar á meðal tónleikagesta
voru utanríkisráðherra ís-
lands og frú.
Efnisskrá kórsins var sam-
ansett af kirkjulegum og
þjóðlegum verkum, islenskum
og erlendum. Einsöngvari
með kórnum var Signý Sæ-
mundsdóttir sópransöngkona
auk þess sem fjórir kórfélag-
ar, Ámi Sighvatsson, Ingvar
Kristinsson, Smári Vífílsson
og Þorsteinn Þorsteinsson
sungu einsöng.
Píanó- og orgelleikari kórs-
ins var Bjarni Þ. Jónatansson.
Stjórnandi kórsins er Sigurð-
ur Bragason.