Morgunblaðið - 10.09.1996, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 10.09.1996, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIMAR Rödd Eistlands JÓN Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra og Lennart Meri, forseti Eistlands ræðast við. VACLAV Havel, Lech Walesa, Vytautas Landsbergis og Lennart Meri - þetta eru leiðtogar lýðræðis- byltingarinnar í Mið- og Austur- Evrópu og Eystrasaitsríkjunum. Havel og Meri eru þeir einu sem enn sitja á vaidastóli. Meri er ekki einungis rödd Eistiands á alþjóða- vettvangi; hann er áhrifamesti tals- maður þeirrar kröfu Eystrasalts- þjóðanna að fá að sameinast þjóða- ijölskyldu Evrópuþjóðanna á ný. Þess vegna mega Eistar og Eystra- saltsþjóðirnar allar ekki við því að missa Meri frá vöidum. Það er einkum þrennt í aðdrag- anda forsetakosninganna í Eistlandi sem vekur okkur vinum Eistlands ugg, ekki síst vegna þess, hvemig um þessi mál er fjallað á heimavett- vangi í Eistlandi. Andstæðingar Meris hamra á því á þingi og í fjölmiðlum að forsetinn Lennart Meri sé of sterkur og ráð- ríkur fyrir hið veikburða lýðræðis- kerfi landsins og verðskuldi því ekki endurkjör. Þeir sem þekkja stjórnar- skrá Eistlands og hafa fylgst með stjómmálum í Eistlandi á undan- förnum ámm vita að ásakanir af þessu tagi eru með öllu ástæðu- lausar. Stjórnarskrá Eistlands færir for- setanum margvísleg völd sem Lenn- art Meri hefur aldrei beitt. Þótt fáir séu til að vekja á því athygli er það samt sem áður staðreynd að einu valdheimildir forsetans sem Meri hefur beitt - rétturinn til að synja staðfestingu laga sem bijóta í bága við stjórnarskrána hefur hann nýtt af varfærni. Þótt málgögn sem eru undir handaijaðri gamla kerfisins dragi upp mynd af forsetanum sem eins konar einræðisherra, er það samt sem áður staðreynd að forset- inn hefur staðfest meira en 95% þeirra laga, sem þingið hefur sam- þykkt. I 19 tilvikum hefur Meri hafnað staðfestingu, á þeim forsendum að samþykkt lagafrumvörp bijóti í bága við stjórnarskrána eða alþjóð- legar skuldbindingar Eistlands. Stjórnlagadómstóll Eistlands hefur staðfest niðurstöður forsetans í öll- um tilvikum nema einu. Með ár- vekni sinni hefur Meri aflað Eist- landi virðingar erlendis og tryggt Eistum aðild í stjórnum fjölmargra alþjóðastofnana. Annað sem veldur okkur vinum Eistlands áhyggjum vegna forseta- kosninganna er hatrömm óhróðurs- herferð sem andstæðingar Lennarts Meri standa fyrir, í trausti þess að hann geti ekki stöðu sinnar vegna borið hönd fyrir höfuð sér. Arið 1992 reyndu ýmsir fulltrúar gamla kerfisins að hindra forsetakjör Mer- is með því að halda því fram að faðir hans, sem á sínum tíma mátti gista Gulagið, hafi í reynd verið í þjónustu KGB. Nú, fjórum árum síðar, reyna sömu aðilar að ófrægja Lennart Meri sjálfan með sams kon- ar ásökunum. Það er ekki snefill af trúverðug- um sönnunargögnum fyrir þessum ásökunum. Engu að síður er hætta á að leðjuslagur af þessu tagi villi einhveijum sýn. Sérstaklega þar sem forsetanum er óheimilt sam- kvæmt eistneskum lögum að bera hönd fyrir höfuð sér, t.d. með vitna- leiðslum. Hann hefur þegar svarið eið að því að hafa aldrei átt nein samskipti við KGB. Sem forseti getur hann ekki endurtekið slíka eiðtöku. Andstæðingar forsetans reyna að færa sér í nyt þögn hans. Fjölmiðlar eru samsekir með þögninni því að þeim hefur láðst að útskýra fyrir almenningi að forsetanum er lögum samkvæmt óheimilt að svara fyrir sig með viðeigandi hætti. Enginn ljölmiðill hirðir um að rifja upp að helsti andstæðingur forsetans var Lennart Merí er ásýnd Eistlands gagnvart umheiminum, segir Jón Baldvin Hannibalsson. Hverfi þessi ásýnd sjónum Vesturlanda er hætt við að sú athygli, sem Eistland nú vekur, dofni líka. hins vegar á sínum tíma miðstjórn- armaður í sovéska kommúnista- flokknum. Það virðist ekki valda eistneskum fjölmiðlum áhyggjum þótt umræður fyrir kosningarnar snúist ekki um afstöðu forseta- framjóðenda til brýnustu hags- munamála þjóðarinnar, heldur um staðlausan áburð og óhróður. Eist- land er auðvitað ekkert einsdæmi að þessu leyti. En við höfðum vænst þess að hið unga lýðræði Eista væri kröfuharðara um heiðarleika, að fenginni dapurlegri reynslu fyrr á tíð. Það sem veldur okkur vinum Eist- lands þó mestum áhyggjum vegna kosningabaráttunnar er að svo virð- ist sem flestir vilji leiða hjá sér aðal- atriði, sem kosningarnar snúast um: Hvað verður um stöðu Eistlands í samfélagi þjóðanna, verði Lennart Meri hafnað á grundvelli gildandi kosningareglna? Fyrir fjórum árum var forsetinn þjóðkjörinn. Nú hefur leikreglunum verið breytt. Stjórn- málamennirnir í þinginu og oddvitar héraðsstjórnanna, þar sem gamla kerfið hefur sterkust ítök, eiga að ráða. En hveijar yrðu afleiðingarnar fyrir Eistland, ef þessi kjörhópur afræður að hafna hinum vinsæla forseta? l'ari svo að Lennart Meri bíði lægri hlut fyrir fyrrverandi komm- únista mun hið alþjóðlega samfélag draga þá ályktun að Eistland hafi kosið að feta slóðina til fortíðar eins og sum fyrrverandi kommúnistaríki, sem hefur mistekist að koma á lýð- ræðisstjórnarfari og fijálsu mark- aðskerfi. Það kynni að hafa alvarlegar af- leiðingar fyrir eistlensku þjóðina í heild. Erlendir fjárfestar myndu halda að sér höndum eða jafnvel taka saman pjönkur sínar. Það yrði alvarlegt efnahagsáfall fyrir Eist- land. Kjósi Eistland að leita aftur á náðir fortíðarinnar er borin von að vinir Eista á Vesturlöndum geti beitt sér fyrir því að Eistland njóti öryggis í sameiginlegu varnarkerfi lýðræðisríkjanna. Verði þetta niður- staðan er öllum þeim glæsilega ár- angri sem Eistar hafa náð á sviði efnahagsmála og stjórnmála teflt í tvísýnu. Hafni kjörhópurinn Meri hafna þeir um leið áhrifamesta talsmanni Eistlands gagnvart Vesturlöndum. Ásamt Havel er Meri sá eini þeirra stórhuga andans manna, sem hrundu af stað lýðræðisbyltingunni gegn sovéska nýlenduveldinu, sem enn er við völd. Vegna þessa ferils og vegna yfir- burðaþekkingar og málflutnings- hæfileika á Lennart Meri greiðan aðgang að öllum helstu valdhöfum vestrænna lýðræðisríkja. Þegar Meri talar hlusta menn. Þess vegna hefur Eistland ekki efni á að hafna honum nú. Þeir sem heyrt hafa Meri á alþjóð- legum málþingum sveifla sér fyrir- hafnarlaust milli allra höfuðtungna áifunnar spyija sjálfa sig: Hvaða erlend tungumál, önnur en rúss- nesku, hafa andstæðingar hans á valdi sínu? Halda menn virkilega að Eistar þurfi svo lítið fyrir lífinu að hafa næstu fimm árin að þeir hafí efni á að hafna slíkum yfir- burðamálflytjanda? Sannleikurinn er sá að með Lenn- art Meri við stjórnvölinn hefur Eist- land notið sérstöðu meðal þjóða heims. Eistland hefur notið viður- kenningar vegna þess forystuhlut- verks sem Meri hefur gegnt við endurheimt sjálfstæðis og frelsis Eistlands og annarra Eystrasalts- þjóða og vegna hinnar öruggu fram- göngu hans gegn sovéska nýlendu- kerfinu. Eistland hefur notið viðurkenn- ingar vegna þessa forystuhlutverks. Þess vegna hefur Eistland notið mun meiri skilnings og stuðnings meðal forystumanna Vesturlanda eh ætla mætti af landfræöilegri legu lands- ins eða fámennis þjóðarinnar. Lennart Meri er ásýnd Eistlands gagnvart umheiminum. Hverfi þessi ásýnd sjónum Vesturlanda er hætt við að sú athygli, sem Eistland nú vekur, dofni líka. Um þetta snúast forsetakosning: arnar í Eistlandi í raun og veru. í vissum skilningi eru forsetakosning- arnar í Eistlandi þess vegna ekki einungis einkamál Eista. Niðurstaða þeirra er sameiginlegt hagsmuna- mál allra þeirra sem vilja sjá sjálf- stæði Eystrasaltsþjóðanna fest í sessi undir merkjum lýðræðis, friðar og frelsis. Höfundur var utanríkisrádherra íslands 1988-1996. Astu Möller svarað um neyðarþjónustu í kjaradeilu ASTA Möller, formaður Félags íslenskra hjúrkrunarfræðinga, geys- ist fram á ritvöllinn á síðum Mbl. þann 6. september sl. með sérstök- um hætti. Þar kynnir hún sig sem sérstakan fræðimann og túlkanda siðareglna lækna og læknalaga. Hún ætlar sér líka þá dul, að kunna sjálf bezt skil á því, hvemig heil- sugæzlulæknar eiga að meðhöndla það viðkvæma verkefni að halda uppi öryggisneti á landsbyggðinni, eftir að þeir eru löngu hættir störf- um. Þá fullyrðir formaðurinn, að heilsugæzlulæknar séu úr takti við allar aðrar heilbrigðisstéttir í skiln- ingi á siðferðilegum skyldum sínum. Agk þessa er grímulaust gefið í skyn, að ábyrgðartilfinning heil- sugæzlulækna sé lakari en reynsla hjúkrunarfræðinga af læknum al- mennt gefur tilefni til. Ásta Möller tekur fram, að hún túlki álit Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga. Það er þvl skoðun hjúkrunarfræðinga á Islandi, svo framarlega sem þeir biðjast ekki undan því á sama vettvangi, að heilsugæzlulæknar séu öðrum heilbrigðisstétt- um brotlegri við skyld- ur sínar gagnvart skjól- stæðingum sínum, bæði siðferðilega og lagalega. Hér er hátt reitt til höggs og af dómhörku, sanngirnin í vafasam- ara lagi og sannleikan- um misþyrmt. Stað- reyndin er sú, að heil- sugæzlulæknar hafa nú í einn og hálfan mánuð - og gera svo enn - annast neyðarstöðu vítt og breitt um landið og mun víðar, en fram kemur í skipulagi heilbrigðisráðu- neytisins. Þeir hafa setið launalaus- ir í héruðum til þess að skapa skjól- stæðingum sínum visst öryggi með nærveru sinni. Mótaðili lækna, fjár- málaráðuneytið, hefur firrt sig allri ábyrgð varðandi ástandið á lands- byggðinni. Ráðuneytið hefur miklu frekar nýtt sér samvinnu lækna um neyðarstöðu til að draga deiluna á lang- inn. Það er athyglisvert og verður eftirminni- legt, að formaðurinn fordæmir annan deilu- aðilann og leggur á hann höfuðábyrgð, þótt sjaldan valdi einn þá tveir deila. Skrif formanns Fé- lags ísl. hjúkrunar- fræðinga eru ótímabær og byggð á röngum forsendum. Lands- fundur heilsugæzlu- lækna á Akureyri ákvað ekki að hætta að sinna neyðarþjón- ustu, til þess hafði fundurinn ekki vald. Samþykkt var hins vegar, að ekki sé lengur hægt að mæla með, að læknar manni neyðarvakt þá, sem heilbrigðisráðuneytið hefur komið á fót I ýmsum landshlutum. Á þessu er mikill munur. Ákvörðun- in Iiggur síðan í valdi einstakra lækna vítt og breitt um landið. Hér er reitt til höggs af dómhörku, segir Gunnsteinn Stefánsson, og hallað réttu máli. Það liggja margvísleg rök að baki þessarar ályktunar fundarins. Of langt mál er og fræðilegt að rekja þau á þessum vettvangi. Rétt er þó að vekja athygli á, að nú, þegar vikurnar eru orðnar margar, fjölgar einstaklingum með tvíræð og óljós einkenni, og njóta þeir ekki viðeig- andi aðstoðar. Á einhveijum ákveðnum tímapunkti verður vægi þessa þáttar meiri en gagnsemi tak- markaðrar neyðarvaktar, sem gefur frá þeim tíma falskt öryggi. Núorð- ið getur verið meiri ábyrgðarhluti að viðhalda neyðarvaktinni og draga yfirstandandi neyðarástand á lang- inn, en hætta þessari takmörkuðu neyðarvakt. Gunnsteinn Stefánsson Heilsugæzlulæknar hafa frá upp- hafi búið við óvirkan og óheildstæð- an stjórnsýslulegan bakhjarl. Af þessu leiðir, að þeir hafa auk fag- legrar ábyrgðar borið íþyngjandi ábyrgð samfélagslegs eðlis. Stjórn- sýslulegar forsendur skortir í heilsu- gæzlunni en læknarnir hafa fleytt starfseminni áfram þegar á hefur þurft að halda. Þessi fáliðaði hópur hefur staðið vaktir nætur og daga sl. 20 ár á um 40 vaktsvæðum vítt og breitt um landið. Föst laun heilsugæzlulækna eru lág og valda því, að afrakstur í launum af þess- ari miklu vaktbyrði verður skamm- arlega lítill. Úrbóta og leiðréttinga var þörf og þar með aðgerða bæði vegna okkar læknanna og heilsugæzlunn- ar, en úrvinnslan er viðkvæm og vandasöm. Það er því harður dómur, að heilsugæzlulæknar hafi lakari ábyrgðartilfinningu en almennt ger- ist um lækna, auk þess sem skilning- ur þeirra á siðferðilegum skyldum sínum sé úr takti við allar aðrar heilbrigðisstéttir. Sérstaklega er þetta harður dómur, þar sem hér er talað fyrir hönd allra hjúkrunar- fræðinga í landinu. Hjúkrunarfræð- ingar verða hins vegar að eiga við sjálfa sig og formann sinn hvort þetta er réttmætur dómur. Höfundur er læknir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.