Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Saltfiskverksmiðjan La Bacladera á Spáni
Verksmiðjan seld
tvisvar sinnum
Framkvæmdastjóri SIF segir að samið hafiverið við
Troms Fisk þrátt fyrir bindandi samning við íslendinga
EIGENDUR saltfiskverksmiðjunnar
La Bacladera á Spáni hafa gert
samning við norska fyrirtækið
Troms Fisk um sölu á öllum hluta-
bréfum í verksmiðjunni þrátt fyrir
að hafa áður gert bindandi sölu-
samning við SÍF um sölu allra hluta-
bréfanna. SÍF hefur þegar hafið
málaferli vegna þessa til að fá sölu
verksmiðjunnar til norska fyrirtæk-
isins hnekkt.
Gunnar Örn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, segir að svona
viðskiptahættir séu með ólíkindum.
Eigendur La Bacladera virðist vera
að reyna að fá meira út úr sölunni
með þessu, en það sé einnig ijóst
að stjórnendur Troms Fisk hafi vit-
að, þegar þeir gerðu samning um
kaupin, að búið var að gera um þau
bindandi samning við SIF.
Málavextir eru þeir, að í sumar
komu eigendur La Bacladera að
fyrra bragði til SÍF og buðu 70%
af verksmiðjunni til kaups. í kjölfar
viðræðna um það, varð niðurstaðan
sú, að SÍF keypti allt hlutafé verk-
smiðjunnar á 90 milljónir peseta, um
45 milljónir króna. Til grundvallar
þessu kaupverði lá fyrir rekstrar-
og efnahagsreikningur dagsettur 30.
júní, sem var hluti samningsins.
Einnig var fylgiskjal með samningn-
um úttekt á eignum fyrirtækisins.
Ýmislegt kom fram í dagsljósið
„Við settum þá endurskoðendur
og lögfræðinga frá Spáni og Frakk-
landi til að sannreyna og fara í gegn
um í smátriðum allar skuldbindingar
félagsins, bæði utan og innan efna-
hagsreiknings. En í kaupsamningn-
um var ákvæði þess efnis að kaup-
verð myndi hækka eða lækka eftir
því hver útkoma þessarar athugunar
yrði. Staðreyndin var sú að ýmislegt
kom fram í dagsljósið og svo hefði
getað farið að kaupverðið yrði lítið
sem ekkert," segir Gunnar Örn.
„Við erum svo á kafi í því að yfírf-
ara alla þætti málsins með tengdum
aðilum og viðskiptabönkum La
Bacladera, þegar eigendur selja
skyndilega Troms Fisk á 150 milljón-
ir peseta, um 75 milljónir íslenzkar,
þrátt fyrir bindandi samning við okk-
ur. Það er ennfremur ljóst að Troms
Fisk og bakhjarli þeirra, Fokus-bank-
anum í Noregi, var fullljóst að við
höfðum áður gert þennan kaupsamn-
ing. Á grundvelli þessa sækjum við
rétt okkar með innsetningaraðgerð,
en það getur tekið þijá til ijóra mán-
uði að fá niðurstöðu í málið. Eg vil
því engu spá um það hvernig fer á
endanum," segir Gunnar Örn.
Unnið við
n£jan miðbæ
Isfirðinga
ísafirði. Morgunblaðið.
HAFNAR eru framkvæmdir við
nýjan miðbæ í ísafirði. Efnt var
til hönnunarsamkeppni á meðal
Jfesarkitekta um nýja ímynd miðbæj-
arins á Isafirði og varð tillaga
Pálmars Kristmundssonar arki-
tekts fyrir valinu.
1 fyrsta áfanga verksins, sem
unninn verður í haust, eru ráð-
gerðar 10-15 milljónir króna.
Unnið verður áfram við verkið á
vori komanda og ræðst fram-
kvæmdahraðinn af þeim fjár-
munum sem veittir verða til
verksins. Fyrir framan Stjórn-
sýsluhúsið var Hafnarstræti á
ísafirði erfitt yfirferðar í gær
og framkvæmdir komnar í fullan
gang.
--------------
Kristján
leysir Pava-
rotti af í
Metropólitan
KRISTJÁN Jóhannsson tenór-
söngvari leysir Luciano Pavarotti
af hólmi í óperu Verdís, Vald örlag-
anna, í Metropólitan-óperunni í
New York borg í vetur. Fyrsta
sýning með Kristjáni verður 19.
febrúar en alls verða þær fimm,
22. og 27. febrúar og 4. og 7. mars.
Kristján syngur einnig í fimm
sýningum á Cavalleria Rusticana
eftir Mascagni í Metropólitan-óper-
— unni, 29. janúar, 2., 5., 8. og 13.
febrúar.
Yfirgtiæfandi líkur á
læknasamningum í dag
YFIRGNÆFANDI líkur eru taldar
á því að samningar náist í kjara-
deilu heilsugæslulækna og ríkisins
í dag eða kvöld, samkvæmt áreiðan-
legum heimildum Morgunblaðsins.
Samningafundi sem hófst kl. 21 í
gærkvöldi var frestað kl. 23.30 en
honum verður haldið áfram kl. 13
í dag og bendir allt til þess að á
honum muni takast að ganga frá
gerð nýs samnings.
„Ef ekkert óvænt gerist, þá er
það mitt álit að þessari lotu ljúki
með samkomulagi," sagði Gunnar
Ingi Gunnarsson, formaður samn-
inganefndar Læknafélags íslands
undir miðnætti. „Við erum bjart-
sýnni nú en nokkru sinni fyrr í
þessari deilu. Aðalatriðið er að ljúka
viðfangsefninu sem allra fyrst,“
sagði Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra.
Deiluaðilar komu saman til
samningafunda hjá ríkissáttasemj-
ara á laugardag og aftur á sunnu-
dag. Samninganefnd lækna lagði
fram hugmyndir um nýja útfærslu
á kröfum sínum og samninganefnd
ríkisins lagði fram tillögur á móti
sem læknar fóru yfir í gærdag.
Áttu forystumenn lækna einnig við-
ræður við ráðherra.
Tíu alvarleg tilfelli
Ólafur Ólafsson landlæknir segir
að heilbrigðisþjónustan sé í lama-
sessi og ekki verði við það unað.
Hann bendir á að það sé helst eldra
fólk sem þurfi að leita til heilbrigðis-
þjónustunnar og margt eldra fólk
bíði bara og vonist til að læknar
hefji aftur störf.
„Þessi deila er alvarlegri en
margar aðrar deilur. Hún kemur
niður á veiku fóiki, sem hefur ekki
sama þrek og aðrir til að beijast
fyrir sínu. Ef deiluaðilar geta ekki
leyst þetta er ábyrgð stjórnvalda
mjög mikil og þau verða að grípa
til einhverra ráða,“ segir hann.
Vitað er um a.m.k. tíu alvarleg
tilfelli sem komið hafa upp, þar sem
ekki hefur náðst í lækni, vegna
þess ástands sem skapast hefur.
Þar af eru fjögur alvarleg hjartatil-
felli, að sögn landlæknis.
Laxastigi við
Elliðavatn
opnaður á ný
LAXASTIGI við Elliðavatnsstíflu
hefur verið opnaður en honum var
lokað á síðasta sumri eftir að kýla-
veikisýking kom upp í Elliðaánum.
Fisksjúkdómanefnd ákvað að
heimila opnun stigans með hliðsjón
af því að kýlaveiki hefur ekki
greinst í ánum í sumar.
„Það er mjög mikilvægft að laxinn
komist upp í vatn en sérfræðingar
Veiðimálastofnunar hafa sýnt fram
á að um 60% af klaki og uppeldi
smáseiða á svæðinu fari fram ofan
við Elliðavatnsstíflu, bæði í vatninu
og ánum þar fyrír ofan, Hólmsá og
Suðurá,“ segir Haukur Pálmason,
aðstoðarrafmagnsstjóri og formað-
ur Veiðifélags Elliðavatns.
Fékk 28 punda fisk í Vitaðsgjafa
Stökk út í Laxá eft-
ir stórlaxinum
PÉTUR Steingrímsson í Laxár-
nesi veiddi á sunnudaginn 28
punda Iax í Laxá í Aðaldal.
Pétur setti í Iaxinn á Vitaðs-
gjafa, en daginn áður fékk hann
22 punda lax sem hann veiddi
á Skriðuflúð.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Pétur að laxinn hefði ver-
ið erfiður. „Hann tók 4-5 metra
frá landi. Eftir að ég hafði glímt
við hann dágóðan tíma gaf girn-
ið sig. Laxinn var þá orðinn svo
dasaður að ég hafði smáráðrúm
til að grípa háfinn af Önnu
Maríu, konu minni, sem stóð á
bakkanum og stökkva á eftir
honum út í ána og tókst að háfa
hann,“ sagði Pétur í Laxárnesi.
Pétur hnýtir allar sínar flug-
ur sjálfur. Stórlaxinn tók flugu
sem Pétur hnýtti sem túbu og
heitir Bill Young, í höfuðið á
vini hans. Laxinn sem Pétur
veiddi á Skriðuflúð fékk hann
hins vegar á nýja flugu sem
hann kallaði Wendy ti) heiðurs
eiginkonu Bill Young.