Morgunblaðið - 11.10.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 13
LANDSFUNDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TALIÐ er að a.m.k. 1.700 einstaklingar úr öllum byggðarlögum landsins hafi verið saman komnir í Laugardalshöll þegar Davíð Oddsson flutti setningarræðu sína.
ÞAÐ VAR þröng á þingi í anddyri Laugardalshallarinnar þegar
landsfundarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins komu til setningarat-
hafnarinnar síðdegis í gær. Starfsmenn þingsins höfðu í nógu
að snúast við að afhenda fundargögnin.
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarútvegs- og dómsmálaráðherra, og
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráð-
herra, takast í hendur við komuna á landsfundinn í gær. Fjær
má m.a. sjá Guðjón Guðmundsson alþingismann.
Morgunblaðið/Sverrir
LANDSFUNDARFULLTRÚAR kynntu sér fundargögnin,
hlýddu á tónlist og heilsuðu upp á hvorn annan við setningarat-
höfnina, áður en Davíð Oddsson flutti ræðu sína.
Hjörtur Nielsen um ályktunardrög um viðskipta- og neytendamál
Tekið undir gagnrýni Alþýðuflokks
„MÉR finnst það ekki frétt að sjálfstæðis-
menn viiji vera fijálslyndir og trúir sjálf-
stæðisstefnunni. Mér finnst ályktuna--
drögin sem landbúnaðarnefnd ætlar að
leggja fyrir landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins miklu meiri frétt hvað varðar GATT-
samninginn," segir Hjörtur Nielsen, for-
maður nefndarinnar sem vann drög að
ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins
um viðskipta og neytendamál.
Þar er sagt að ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks hafi unnið
gegn anda samningsins hvað varðar land-
búnaðarafurðir og þannig í raun rýrt lífs-
kjör landsmanna. I ályktunardrögum
landsfundarins um landbúnaðarmál segir
að GATT-samningurinn hafi aukið sam-
keppni á innlendum matvörumarkaði og
leitt til lækkana á vöruverði.
Aðspurður sagði Hjörtur að það segði sig sjálft
að með þessum ályktunardrögum væru höfundar að
taka undir gagnrýni Alþýðuflokksins á ríkisstjórnina
vegna þessa máls en áréttaði að hann teldi ályktun-
ina í samræmi við grundvallaratriði sjálfstæðisstefn-
una.
Hjörtur sagði að fjölmargir sjálfstæðismenn hefðu
tekið þátt í störfum nefndarinnar og hefði ekki kom-
ið fram ágreiningur meðal þeirra um ályktunardrög-
in eins og þau liggja nú fyrir.
„Menn eru óánægðir með hvernig framkvæmd
GATT hefur verið hér á landi. Þess vegna vilja menn
leggja það fyrir landsfundinn að framkvæmdin verði
endurskoðuð í anda viðskiptafrelsis og neytenda-
verndar," sagði Hjörtur Nielsen. „Við erum harðorð
veg^na þess að okkur finnst þetta vera
stórmál og viljum vekja athygli á því.“
Aðspurður um þau efnisatriði sem
óánægja nefndarmanna varðandi fram-
kvæmd GATT-samningsins beindist að,
sagði Hjörtur ljóst að markmiðið með
GATT-samningnum varðandi land-
búnaðarafurðir hefði verið að neytendur
ríkja þar sem innflutningsvernd er beitt
nytu lægra vöruverðs en áður. Það hefði
ekki gengið eftir hér á landi eins og til
dæmis verðlag á grænmetismarkaði og
óljósar reglur um innflutning á græn-
meti gæfu til kynna.
Misskilningur
Davíð Oddsson forsætisráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins, vísar á
bug þeirri gagnrýni í garð ríkissljórnar-
innar sem fram kemur í ályktunardrögum starfs-
hópsins.
„Ríkisstjórnin stóð við allt sitt í sambandi við
GATT-samninginn og vel það. Menn hafa hins vegar
misskilið þetta mál og það hefur verið hafður í
frammi áróður af aðilum sem síst skildi um hvað í
samningnum felst en ríkisstjórnin hefur ekki brugð-
ist í því í neinu. Svo geta menn aftur deilt um það
hvort íslendingar eigi af eigin hvötum og sjálfs sín
vegna að lækka tolla, en það hefur ekkert með
GATT að gera,“ sagði Davíð.
Forsætisráðherra sagði einnig að framkvæmd
GATT-samningsins hér á landi hefði ekki verið frá-
brugðin framkvæmd samkomulagsins meðal ann-
arra þjóða.
Hjörtur Nielsen
lækkað um ríflega 40% og á sama
tíma hefði verðlag á innlendum
búvörum staðið í stað eða lækkað
en þessum árangri hefði verið náð
að hluta til með mikilli kjaraskerð-
ingu bænda. í þann knérunn verði
ekki aftur höggvið.
„Samningurinn um Alþjóðavið-
skiptastofnunina innleiðir nýja sam-
keppni á búvörumarkaði hér og mun
gera vaxandi kröfur til landbúnað-
arins á næstu árum. Náttúrleg skil-
yrði valda því, að íslenskir bændur
geta aldrei keppt í verði við þær
búvörur sem ódýrastar eru í heimin-
um á hverjum tíma, og því síður við
óheyrilega niðurgreiðslu og kostnað-
arfölsun eins og Evrópusambandið
stendur að í landbúnaðarmálum sín-
um. En styrkleiki okkar felst í
hreinni náttúru og heilbrigðum
framleiðsluháttum, á sama tíma og
mengun og hvers kyns efnanotkun
í landbúnaði og matvælavinnslu víða
um heim veldur vaxandi áhyggjum
neytenda. Þessa sérstöðu eigum við
að varðveita og leggja áherslu á við
leit að nýjum sóknarfærum fyrir
landbúnaðinn,“ sagði Davíð.
í ræðu sinni fjallaði Davíð einnig
um jafnréttismál og sagði það skoð-
un sjálfstæðismanna að raunveru-
legt frelsi hvers einstaklings tryggi
eitt jafnrétti í reynd. Síðan sagði
Davíð m.a.:
„Undanfarin misseri hafa átt sér
stað miklar og gagnlegar umræður
um jafnréttismál innan Sjálfstæðis-
flokksins. Sjálfstæðiskonur hafa
talið mikilvægt að flokkurinn gerði
áherslur sínar í þessum málaflokki
sýnilegri og þær hafa fylgt orðum
sínum eftir með athöfnum. Fyrir
síðustu alþingiskosningar skiluðu
þessar áherslur sér vel í stefnu
flokksins og urðu áberandi í kosn-
ingabaráttunni. Við fengum þaðan
veganesti í kosningabaráttuna og
fundum að sú stefna átti góðan
hljómgrunn.
Þessu starfi þarf að fylgja enn
betur eftir innan flokksins sjálfs.
Því hefur verið haldið fram að kon-
ur njóti ekki nægjanlegs trausts og
áhrifa innan Sjálfstæðisflokksins.
Um það verður að fjalla af mikilli
alvöru, enda eru konur um 40%
félagsmanna flokksins eða tæplega
13.000 einstaklingar. Ekki er vafi
á að umræðan endurspeglar al-
mennar hræringar í samfélaginu,
jafnt í félagasamtökum sem at-
vinnulífi. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur ekki efni á að standa hjá í þeirri
umræðu og því síður að nýta ekki
til fulls þá krafta, sem búa í tæp-
lega helmingi félagsmanna hans.
Sjálfstæðismenn eiga að ræða
þetta opinskátt á þessum fjölmenn-
asta fundi sem haldinn er hér á
landi. Umræðunni verður fylgt
myndarlega eftir með fimm opnum
fundum um jafnréttismál nú í kvöld.
Sú staðreynd að þessi landsfundur
setur málið í öndvegi mun hafa
mikla þýðingni.
Óþarft er þó að gleyma að mikið
hefur áunnist síðustu áratugi. Kon-
ur og karlar hafa nú jafnari tæki-
færi en áður. Hins vegar eigum við
enn nokkuð í land. Sá áfangi næst
ekki nema áherslur sjálfstæðis-
stefnunnar verði ofan á. Vinstri-
sinnar stilla kynjunum einatt upp
sem andstæðingum. Þeirri uppstill-
ingu höfnum við sjálfstæðismenn.
Sjálfstæðisflokkurinn, sterkasta
aflið í íslenskum stjómmálum, hlýtur
að taka frumkvæðið í þessum mála-
flokki og beina umræðunni í þann
farveg að hún skili raunverulegum
og varanlegum árangri. Sú umræða,
sem fram fer á landsfundi næstu
dagana mun skila okkur nær settu
og sameiginlegu marki, jafnrétti í
reynd.“