Morgunblaðið - 11.10.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 27
AÐSENDAR GREINAR
Sameining byggingasjóðanna
Núllstefna eða öflugt lánakerfi?
I KJOLFAR skýrslu
Ríkisendurskoðunar
um stjórnsýsluúttekt á
Húsnæðisstofnun ríkis-
ins hafa spunnist um-
ræður um framtíð og
stöðu stofnunarinnar
og um sameiningu
Byggingarsjóðs ríkis-
ins og Byggingarsjóðs
verkamanna. M.a. hef-
ur félagsmálaráðherra
nefnt í sjónvarpsviðtali
(8.10.96) að ekki þyrfti
tvo sjóði til þess að
gegna verkefnum
stofnunarinnar.
Mikið tap hefur verið
á Byggingarsjóði
verkamanna (BV) og hefur framlag
úr ríkissjóði komið til að mæta því.
Eigið fé sjóðsins var um síðustu ára-
mót um 8,6 milljarðar króna og hafði
á árinu 1995 rýrnað um liðlega 620
milljónir króna. Orsök tapsins er
pólitísk: Sjóðurinn lánar út fé til
kaupa á félagslegum íbúðum með
1,0-4,9% vöxtum, en tekur lán til
að fjármagna starfsemi sína á mun
hærri vöxtum. Mismunurinn er
greiddur af annars vegar ríkissjóði,
hins vegar eigin fé sjóðsins. Tilgang-
ur þessarar vaxtastefnu er að
tryggja tekjulágu fólki íbúðalán með
viðráðanlegum afborgunum.
Áframhaldandi rýrnun
eigin fjár BV
Áætlað er að um 400 milljóna
króna framlag þurfi á ári úr ríkis-
sjóði til þess að BV standi í stað frá
ári til árs, án þess að veita nokkur
ný lán. Ríkisframlagið á þessu ári
er 400 milljónir, en lánað er til 250
íbúða, þannig að áframhaldandi tap-
rekstur blasir við. í íjárlagafrum-
varpi fyrir 1997 er gert ráð fyrir
300 milljóna króna ríkisframlagi,
sem þýðir áframhaldandi rýrnun eig-
in fjár BV, jafnvel þótt ekki yrði
lánað til einnar einustu íbúðar.
Nú telja ýmsir menn ástæðu til
að hafa áhyggjur af afkomu sjóðs-
ins. Þó veit löggjafinn fyllilega hvað
hann aðhefst með ákvörðun sinni
um fjárveitingar langt undir fjár-
þörf. Ef BV á að lána til 200-300
íbúða á ári þarf hann framlag sem
nemur u.þ.b. 1.200-1.400 milljónum
króna. Gera verður ráð fyrir að al-
þingismönnum sé ljóst, að ekki verð-
ur lengi gengið á eigið fé sjóðsins,
að því rekur að ríkið þarf að koma
Þórhallur
Jósepsson
til með aukin framlög,
ef halda á áfram fjár-
mögnun félagslega
íbúðakerfisins.
Aðrir valkostir eru
ekki margir. Einn er að
hækka vexti af útlánum
sjóðsins eftir því sem
heimilt er samkvæmt
ákvæðum skuldabréfa
og koma þá eftir atvik-
um með öðrum hætti
til móts við lántakend-
ur, t.d. með skattaf-
slætti eða beinum fram-
lögum til fjölskyldna.
Varla er raunhæft að
gera ráð fyrir þeim
kosti, að alþingismenn
séu reiðubúnir til að afnema með
öllu húsnæðisaðstoð við þá sem
minna mega sín. Spurningin er ein-
ungis hvar þeir taki fé til þess.
Gátt opnuð milli sjóðanna?
Nú hefur um skeið verið nefnd
sú leið, að sameina byggingarsjóðina
og er að skilja á þeim frumhugmynd-
um sem fram hafa komið, að nýta
eigi sterka eiginfjástöðu Byggingar-
sjóðs ríkisins (BR) til þess að standa
undir fjárþörf BV. Hefur jafnvel
verið orðað svo, að opna megi gátt
milli sjóðanna (láta renna úr BR yfír
í BV?). Ég hlýt að vara eindregið
við þeirri leið.
Eigið fé BR var um síðustu ára-
mót um 16,5 milljarðar króna. Sjóð-
urinn stundar nánast enga lánastarf-
semi eftir að húsbréfakerfið kom til
sögunnar. Lánsijárþörf hans er lítil,
1,5-2 milljarðar króna og lýkur um
aldamót. Framreiknuð eiginíjár-
staða eftir 20 ár er á bilinu 16-17
milljarðar króna, eða svipuð og nú.
Eigið fé upp urið eftir 15-20 ár
Verði sjóðirnir sameinaðir og hinn
nýi sjóður látinn halda áfram starf-
semi BV, þ.e. að fjármagna félags-
íbúðakerfið, er afar hætt við að hratt
gengi á fé hans. Það er freistandi í
hinum eilífa slag um jafnvægi í ríkis-
fjármálum að jafna halla á fjárlögum
með því að sleppa ríkisframlagi til
niðurgreiðslu vaxta af félagsíbúða-
lánum. Finna má rúman milljarð á
ári þar, til að stoppa í fjárlagagatið.
En - það er enginn sparnaður í ríkis-
rekstri. Með slíkri ákvörðun yrði
gengið á eignir ríkisins (okkar allra)
og það er ekki sparnaður að ganga
á eign sína.
Hjálparbeiðni frá
Balkanskaga
DAGANA 10.-11.
október næstkomandi
stendur _ Stúdentaráð
Háskóla íslands ásamt
stúdentaskiptafélögum
við Háskólann fyrir
söfnunarátakinu
„Stúdentar hjálpi stúd-
entum“.
Markmið söfnunar-
innar er að útvega há-
skólanemum í Sarajevo
bækur, kennslugögn
og tæki nauðsynleg til
starfrækslu háskóla,
enda er þar nú fátt eitt
til nema bjartsýni og
góður vilji þeirra nem-
Dóra Sif Tynes
enda og kennara sem hafa snúið
aftur að styijöldinni lokinni. Þeir
aðilar sem að baki þessu átaki
standa starfa allir innan alþjóðlegra
samtaka þar sem mikil áhersla hef-
Ég skora á landsmenn
alla, segirDóra Sif
Tynes,að bregðast
vel við þessari
hjálparbeiðni.
Eftir 15-20 ár yrði eigið fé hins
sameinaða sjóðs upp urið og hvað
þá? Þá væri hinn skammgóði vermir
fyrir bí og alþingismenn gætu ekki
lengur komið sér hjá því að ákveða
framlög í það félagslega íbúðalána-
kerfi sem þá verður við lýði. Nema
menn trúi því að alþingismenn þess
tíma verði slík hörkutól að þeir af-
nemi alla slíka aðstoð?
Besta leiðin - bakhjarl
lánakerfis
Það er þó ekki með öllu óskynsam-
legt að sameina byggingasjóðina.
Þvert á móti, sé það gert á réttum
forsendum er það besta leiðin. Sam-
eiginleg eiginfjárstaða sjóðanna er
nálægt 24 milljörðum króna. Það er
Bezta leiðin er að sam-
eina byggingasjóðina,
segir Þórhallur Jósefs-
son, sé það gert á rétt-
um forsendum.
feikna öflugur sjóður á okkar mæli-
kvarða. Slíkan sjóð má nota til
margra góðra verka, ef afl hans
yrði virkjað. Hann gæti orðið öflugur
bakhjarl íbúðalánakerfis, sem stæði
undir sér sjálft og sinnti öllum íbúða-
markaðnum, jafnvel einnig atvinnu-
húsnæði.
Til þess að svo megi verða þarf
hins vegar að tryggja það að hann
hafí tekjur á móti gjöldum. Þess
vegna þarf að ganga þannig frá
málum, að vaxtamunur í félags-
íbúðakerfinu yrði ijármagnaður. Það
er hægt með því að sjóðurinn ann-
ars vegar og ríkið hins vegar gerðu
samning um að ríkissjóður greiddi
þennan vaxtamun frá ári til árs.
Greiði ríkið ekki, hækka einfaldlega
vextir félagsíbúðalána (menn gætu
viljað fara þá leið til þess að veita
aðstoðina með öðrum hætti, t.d. í
gegn um skattakerfið).
Hinn sameinaði sjóður stæði þá
einnig að baki húsbréfakerfínu og
veitti því jafnvel ábyrgð í stað ríkis-
sjóðs að hluta eða öllu leyti.
Tryggir öflugt íbúðalánakerfi
Með sameiningu á þessum for-
sendum yrði tryggt að áfram væri
í landinu öflugt íbúðalánakerfi fyrir
allan almenning jafnt sem hina
tekjulægri. Samhliða sameiningu
sjóðanna þarf að aðgreina félagslega
starfsemi Húsnæðisstofnunarinnar
frá hinni peningalegu, enda fara
markmið þar illa saman (eins og
Ríkisendurskoðun bendir á í skýrslu
sinni). Sjóðurinn yrði rekinn sem
sjálfstæð lánastofnun líkt og ríkis-
bankarnir. Það yrði síðan pólitísk
ákvörðun hvort sú stofnun yrði með
þessu rekstrarformi eða öðru, í eigu
ríkisins að öllu eða hluta eða í eigu
annarra aðila að öllu leyti.
Nú liggur fyrir landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins tillaga um að þessi
leið verði farin. Hér hefur henni
verið lýst í aðalatriðum, ekki síst af
því gefna tilefni sem umræður í kjöl-
far skýrslu Ríkisendurskoðunar eru
og að blikur eru á Iofti um að óskyn-
samleg leið verði valin. Ég vænti
þess að sjálfstæðismenn beri gæfu
til þess að velja þá stefnu sem líkleg-
ust er til að skila góðum árangri og
láti ekki blekkjast af lausnum, sem
kunna að vera þægilegar á meðan
á þeim stendur, þann skamma tíma,
sér í lagi fyrir íjárlagagatið, en koma
síðan með fullum þunga í bakið á
okkur skattgreiðendum öllum.
Ljóst er að verði ekkert að gert
í málefnum Byggingarsjóðs verka-
manna stefnir starfsemi hans, og
um leið félagsíbúðakerfið allt, í óefni.
Verði sjóðirnir sameinaðir í því skyni
að fjármagna vaxtaniðurgreiðslurn-
ar stefnir í engu minna óefni, aðeins
10-15 árum síðar.
Höfundur er stjórnarmaður í
Húsnæðisstofnun ríkisins og
formaður málefnanefndar
Sjálfstæðisflokksins um
húsnæðismál.
KYNNING
á stefnu og starfi
Guðspekifélagsins
laugardaginn 12. október
kl. 15 í húsi félagsins í
Ingólfsstræti 22
Guðspekifélagið. The
Theosophical Societv. er
120 ára félagsskapur sem
lielgar sig andlegri iðkun
og fræðslu. Kélagið byggir
á skoðana- og trúfrelsi
ásamt hugSjóninni um
bræðralag alls mannkyns.
Starfsemi félagsins fer
fram yfir vetrartímann og
felst m.a. í opinberum er-
inclum. opnu húsi. nám-
skeiðahaldi. námi og iðk-
un. Einnig býður bóka-
þjónusta þess mikið úrval
sölubóka og bókasafnið
bækur til útláns fyrir fé-
laga.
I tilefni af 75 ára afmæli
íslandsdeildar félagsins
bvður félagið álmgafólki
um andleg mál að kvnn-
ast starf'i íélagsins sem er
öllum opið án endur-
gjalds.
Einkunnarorð félagsins
O
eru:
Engin trúarbrögð eru
sannleikanum æðri
IÐNAÐARHURÐIR
FELLIHURÐIR LYFTIHURÐIR
GÖNGUHURÐIR ELDVARNARHURÐIR
I SVAL-bORGÁv Erlr.
HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK
SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751
ur verið lögð á hjálpar-
starf við Bosníu. Þann-
ig eru um þessar
mundir svipuð söfnun-
arátök í gangi á vegum
stúdenta víðsvegar í
Evrópu. íslendingar
hafa frá stofnun Sam-
einuðu þjóðanna viljað
vera öflugir þátttak-
endur í alþjóða sam-
starfi og ætti öllum að
vera ljóst mikilvægi
þess, ekki síst í kjölfar
nýrrar og breyttrar
heimsmyndar. Ekki er
langt síðan íslendingar
fundu hversu mikil-
vægt það er lítilli þjóð
að finna hlýhug og
samkennd annarra
þjóða er hörmungar
steðja að.
Ég skora því á
stúdenta og lands-
menn alla að bregðast vel við þess-
ari hjálparbeiðni bosnískra stúdenta
og sýna í verki að við erum þjóð
sem ekki aðeins kann að þiggja
heldur einnig gefa.
Höfundur er forseti ELSA, félags
evrópskra laganema.
Námskeid um
ráðningarsamninga
Vinnuveitendasamband íslands gengst fyrir námskeiðum í Reykjavík og úti á landi um gerð
ráðningarsamninga.
Öllurn atvinnurekendum er skylt að ganga frá skriflegri staðfestingu á ráðningarkjörum starfs-
manna sinna skv. EES. samningnum og samningi aðila vinnumarkaðarins þar um. VSÍ hefur geftð
út leiðbeiningabækling um gerð ráðningarsamninga og gefið út form ráðningarsamninga.
Næstu námskeið eru sem hér segir:
í Reykjavík, Garðastræti 41:
Mánudaginn 14. okt. kl. 9.30—12.00 Mánudaginn 14. okt. kl. 19.30—22.00
Fimmtudaginn 17. okt. kl. 9.30—12.00 Fimmtudaginn 17. okt. kl. 13.30—16.00
Miðvikudaginn 30. okt. kl. 9.30—12.00
Á landsbyggðinni
Vestfirðir Hótel ísafjörður miðvikudaginn 16. okt.
Reykjanes Flughótel Keflavík fimmtudaginn 24. okt.
Vestmannaeyjar Asgarður föstudaginn 25. okt.
Vesturland Hótel Stykkishólmur þriðjudaginn 29. okt.
Austurland Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum fimmtudaginn 31. okt.
Akureyri Hótel KEA miðvikudaginn 6. nóv.
Tilkynnið þátttöku til skrifstofu VSI þar sem nánari upplýsingar um námskeiðin eru veittar.
Námskeiðin eru auk þess kynnt félagsmönnum með bréfi og auglýst í fréttabréfi VSÍ.
Þátttaka á námskeiðum um ráðningarsamninga er aðildarfyrirtækjum VSÍ að kostnaðarlausu.
Þátttökugjald annarra kr. 5.000.
Vinnuveitandasamband Islands,
Garðastræti 41, Reykjavík, sírni 51 1 5000, fax 511 5050.