Morgunblaðið - 18.10.1996, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ráðherrafundur Schengen-ríkja
Samstarfssamn-
ingur í desember
RAÐHERRAR aðildarríkja Scheng-
en-vegabréfasamkomulagsins náðu
í gær pólitísku samkomulagi um
að ganga frá aðild norrænu ríkj-
anna fimm að samkomulaginu fyrir
áramót. Samstarfssamningur ís-
lands við Schengen verður sam-
kvæmt þessu undirritaður í desem-
ber, en hann fer að því búnu til
umfjöllunar Alþingis.
Reuter-fréttastofan hefur eftir
Marc Fischbach, dómsmálaráðherra
Lúxemborgar og formanni Scheng-
en-ráðsins, að samkomulag hafi
náðst meðal allra ríkjanna fimmtán,
sem eiga fulla aðild eða áheyrnarað-
ild að Schengen-samkomulaginu
um aðild Norðurlandanna.
Fischhach segir að aðildarsamn-
ingar Svíþjóðar, Finnlands og Dan-
merkur og samstarfssamningar við
Noreg og ísland verði undirritaðir
á næsta ráðherrafundi Schengen
hinn 19. desember. Þjóðþing allra
ríkjanna þurfa síðan að fjalla um
samningana og er ekki gert ráð
fyrir gildistöku þeirra fyrr en síðari
hluta árs 1998 eða í ársbyijun 1999.
Getur þurft að bæta nýrri
móðurtölvu við
Enn er eftir að ganga frá tækni-
legri útfærslu ýmissa atriða í sam-
starfssamningunum við ísland og
Noreg, einkum hvað varðar sameig-
inlegar Schengen-reglur um veit-
ingu hælis og vegabréfsáritanir.
Fischbach segir að vegna þess
að Schengen-upplýsingakerfið, sem
upphaflega hafi verið hannað fyrir
fimm lönd, þurfí nú að þjóna fimm-
tán, geti þurft að bæta annarri
móðurtölvu við með tilheyrandi
kostnaði.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra sat ráðherrafundinn fyrir ís-
lands hönd. Ekki náðist í Þorstein
í gær.
Skipulagsnefnd Seltjarnarness
Ekki byggt á Nýjatúni
SKIPULAGSNEFND Seltjamamess
hefur fallið frá tillögu um byggð á
Nýjatúni og frestað ótímabundið deili-
skipulagi Norðurtúns á Seltjamamesi.
Bæjarstjóm bárust 900 til 1.000
áskoranir um að frestað yrði fram-
kvæmdum þar til þörf safnasvæðisins
væri ljós og fullkannað væri að fom-
minjar væri ekki að fínna á skipulags-
svseðinu. Engin athugasemd barst
vegna byggingarreits Læknaminja-
safns og staðfesti nefndin þann hluta
deiliskipulagstillögunnar.
Jón Hákon Magnússon sagði að
meirihluti sjálfstæðismanna hefði
með því að auglýsa deiliskipulag
Norðurtúns og Nýjatúns viljað kanna
afstöðu íbúanna til íbúðarbyggðar á
svæðinu enda væri ekki um annað
samfellt byggingarsvæði á Seltjarn-
arnesi að ræða. „Viðbrögð íbúanna
sýndu að vilji er fyrir því að halda
áfram að sinna umhverfísmálum,
draga úr byggingu og ganga frá
útivistarsvæðum. Meirihlutinn hefur
aldrei farið gegn vilja íbúanna enda
höfum við haldið meirihluta hér um
langan aldur," sagði hann og fagn-
aði niðurstöðunni. Hann tók fram
að um hana væri sátt.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Fyrsti snjórinn á nýja fjallinu
FYRSTI snjórinn hefur fallið á nýja fjallið í Vatnajökli, sem ekki hefur enn fengið nafn. Gígurinn er
í kverkinni vinstra megin við fjallið. Eins og sjá má er þar engin virkni.
Sænskur taugaskurðlæknir framkvæmir aðgerðir hérlendis
Morgunblaðið/Þorkell
THOMAS Carlstedt skoðaði í gær Hring Hilmarsson sem
gekkst undir aðgerð hjá honum fyrir tveimur árum. Með á
myndinni er faðir Hrings, Hilmar Vilhjálmsson.
Einka-
aðilar fjár-
magna
ferðina
SÆNSKI taugaskurðlæknirinn
Thomas Carlstedt kom til lands-
ins í gær og mun hann fram-
kvæma þrjár bæklunar- og lýta-
aðgerðir á börnum í dag. Að-
gerðimar felast í að flytja vöðva
og sinar í þeim tilgangi að auka
hreyfigetu barna sem em með
taugalömun í handlegg vegna
axlarklemmu í fæðingu.
Carlstedt mun framkvæma
aðgerðimar í dag ásamt Rafni
Ragnarssyni yllrlækni á lýta-
lækningadeild Landspítalans. í
gær skoðaði hann 8 börn, þar
af tvö sem hann hefur skorið
upp.
Viðhorf TR fáránlegt
Carlsted starfaði áður á
Karolinska sjúkrahúsinu í
Stokkhólmi en er nú læknir á
The Royal National Orthopa-
edic Hospital í Englandi. Hann
hefur komið hingað til lands
áður, meðal annars til að fram-
kvæma taugaflutning í febrúar
1994 þegar hann gerði aðgerð
á Hring Hilmarssyni, sem nú
er þriggja ára gamall.
Foreldrar Hrings, þau Sigríð-
ur Logadóttir og Hilmar Vil-
hjálmsson, beittu sér fyrir komu
Carlstedt hingað til lands og er
stór hluti kostnaðar því samfara
greiddur af einkaaðilum. Meðal
annars greiða Flugleiðir far-
gjald fyrir hann og Hótel Saga
gistingu.
„í ágúst skrifaði ég grein í
Morgunblaðið þar sem fram kom
að hætt hefði verið við komu
Carlstedt hingað til lands í júlí,
vegna kergju Trygginga-
stofnunar sem sagði of dýrt að
fá hann hingað. Greinin vakti
töluverða athygli og viðbrögð
og m.a. hafði samband við mig
eldri borgari sem vildi gera allt
sem í sínu valdi stæði til að
hjálpa okkur. Hann stóð fyrir
því að peningum var safnað til
að greiða kostnað við komu
Carlstedt, en stofnunin greiðir
hluta.
Tryggingastofnun er hins
vegar tilbúin til að greiða fyrir
að senda sjúklinga ásamt að-
standendum til útlanda í aðgerð-
ir, sem kostar að meðaltali eina
milljón króna. Þetta er fáránlegt
að mínu mati,“ segir Sigríður.
Afar fær læknir
Hún segir Carlsted einn fæ-
rasta lækni í Evrópu á sínu sviði
og sé mikið lán að fá hann hing-
að til lands. Menn hafi verið
vantrúaðir á að það tækist, en
hann hafi strax lýst yfir áhuga
og vilja til að heimsælga Is-
lands, þegar beiðni um slíkt var
borin fram.
Framkvæmdastjórn Rík-
isspítala þurfti að sögn Sigríðar
að samþykkja komu Carlsted,
þar sem aðgerðirnar eru fjár-
magnaðar af einkaaðilum að
hluta, og segir hún Vigdísi
Magnúsdóttir framkvæmda-
stjóra hafa sýnt málinu mikinn
og þakkarverðan skilning.
Dregið hefur
úr vatnsrennsli
til Grímsvatna
GOSINU í Vat’.iajökli virðist vera
lokið í bili að minnsta kosti og
hefur orðið talsverð kólnun í gígn-
um, því að vatnsrennsli til Gríms-
vatna hefur minnkað verulega síð-
ustu daga. Hæð vatnanna var í
gær 1.505 metrar. Vatn í gos-
gjánni í jöklinum hefur líka minnk-
að og að öllum líkindum hefur hún
eitthvað stytzt.
Blaðamaður og ljósmyndari
flugu í gær yfir gosstöðvarnar.
Þá var gizkað á að gjáin í jöklin-
um, sem er um það bil 400 metra
breið, væri eitthvað á annan kíló-
metra að lengd. Virðist því sem
hún hafi að einhveiju leyti lokast,
því að hún mældist um 3 kílómetr-
ar fyrir nokkrum dögum.
Smáskjálftar frá gostöðvunum
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkveldi að að-
eins mældust nú smáskjálftar frá
gosstöðvunum. Freysteinn Sig-
mundsson jarðeðlisfræðingur kvað
vatnshæð Grímsvatna hafa mælzt
1.505 metra í gær eða um einum
metra hærri en deginum áður.
Þetta þýddi að bráðnun jökuls-
ins hefði verið mun minni og eld-
stöðin hefði kólnað. Hann kvað
vatnshæð Grímsvatna vera komna
í þá hlauphæð, sem Helgi Bjöms-
son jöklafræðingur hefði rætt um,
en það er á bilinu 1.505 til 1.510
metrar. Allar þessar mælingar
hafa viss skekkjumörk. Hann taldi
þó að ef vatnið væri farið að ryðja
sér farveg úr vötnunum gæti ein-
hver tími liðið unz þess yrði vart
á Skeiðarársandi.
Við flug yfir eldstöðina í gær
sást á gíginn í ísgjánni. Hann ligg-
ur norðarlega í henni en norðan
við hann virðist mikið vatn, svo
og sunnan við hann og suður úr.
Víða gufar upp frá heitum steinum
og í gjárvatninu fljóta ískajar. Er
þetta allhrikalegt á að líta.
MEÐ blaðinu í dag fylgir
fjögurra síðna blað um
danska daga í Nóatúni.