Morgunblaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 49
%
I
(
i
\
(
i
i
I
I
I
I
I
]
I
I
|
Ólympíumótið í brids hefst á sunnudag
Stefnan sett á
sæti í úrslitum
BRIDGE
Ródos, Grikklandi
ÓLVMPÍUMÓTIÐ
Ólympíumótíð í brids verður haldið
dagana 19. október til 2. nóvem-
ber. Slóð mótsins á alnetinu er
http://wbf.bridge.gr/Rhodes.96/
rhodes.htm
ÓLYMPÍUMÓTIÐ í brids verður
sett á grísku eyjunni Ródos á
laugardag og spilamennskan
hefst á sunnudag. íslendingar
senda lið til keppni í opna flokkn-
um þar sem 72 þjóðir munu
reyna með sér við græna borðið.
Hefur stefnan verið sett á úrsli-
takeppnina en þangað hafa ís-
lendingar ekki enn náð á Ólymp-
íumóti.
Liðunum er skipt í tvo riðla í
undankeppni og verða spilaðar
35 umferðir eða fjórir sextán
spila leikir á dag frá sunnudeg-
inum 20. október til mánudags-
ins 28. október. Fjórar efstu
þjóðirnar í hvorum riðli komast
áfram í úrslitakeppnina en af-
gangurinn fer í monrad-keppni
eða heimsmeistaramótið í bland-
aðri sveitakeppni sem haldið
verður í fyrsta skipti á Ródos.
íslenska landsliðið er skipað
þeim Aðalsteini Jörgensen, Matt-
híasi Þorvaldssyni, Guðmundi
Páli Arnarsyni, Þorláki Jónssyni,
Jóni Baldurssyni og Sævari Þor-
björnssyni en Björn Eysteinsson
og Ragnar Hermannsson eru
liðsstjórar.
Erfið byrjun
íslenska liðið er sterkt og í
ágætu formi um þessar mundir
og að mati undirritaðs er mögu-
leikinn á úrslitasæti því góður
þótt við margar sterkar brids-
þjóðir sé að etja. Riðill íslending-
anna virðist heldur erfiðari en
hinn og strax fyrsta daginn fá
íslensku spilararnir verðuga and-
stæðinga því þá spila þeir m.a.
bæði við Bandaríkjamenn og ít-
ali. Á öðrum degi mæta þeir
m.a. Hollendingum og ísraels-
mönnum en öll þessi lið ætla sér
í úrslitin. Og fleiri sterkar brids-
þjóðir eru með íslendingum í
riðli, svo sem Brasilíumenn,
Bretar, Indveijar, Norðmenn og
Tævanbúar en þessar þjóðir hafa
allar spilað í úrslitum á Ólympíu-
og heimsmeistaramótum.
Brasilíumenn hafa Gabriel
Chagas og Marcelo Branco í far-
arbroddi en þeir voru fyrir
skemmstu taldir sterkasta par
heims. Fyrir breska liðinu fara
Tony Forrester og Andy Robson
og Italir senda fjórmenningana
Lauria, Versace, Buratti og
Lanzarotti sem einokuðu Brids-
hátíð hér heima í vetur. í norska
liðinu spila Helgemo, Helness,
Aa og Grötheim og Hollendingar
senda heimsmeistararana
Bauke, de Bauer, Westerhof og
Jansen.
Zia hrópaði á hjáip
Bandaríkin senda hins vegar
lítt þekkta spilara á Ólympíumót-
ið. Það er alltaf keppt um landsl-
iðssætin í Bandaríkjunum og
eins og gengur gefst það ýmist
vel eða illa. Að þessu sinni stóð
sveit frá Chicago uppi sem sigur-
vegari eftir að hafa slegið út
heimsmeistarana frá síðasta ári
og Rosenblummeistarana frá ár-
inu 1994.
Þessir spilarar heita Larry
Robbins, Jerry Goldfein, Steve
Garner, Jack Oest, Gerald Cara-
velli og Gary Cohler. í landslið-
skeppninni unnu þeir í 8 liða
úrslitum sveit sem m.a. var skip-
uð Peter Weicshel, Bobby Levin,
Ron Rubin og Mike Becker sem
allir skarta heimsmeistaratitlum.
í undanúrslitum skelltu Robbins
og félagar núverandi heimsmeist-
urum í sveit Nicks Nickells. Og
í úrslitaleiknum mættu þeir svo
sveit Seymons Deutschs en með
honum spiluðu Zia Mahmood,
Michael Rosenberg, Chip Martel
og Lew Stansby. Þessi sveit er
handhafi Rosenblumbikarsins
sem keppt er um á heimsmeist-
aramótinu í útsláttarkeppni.
Úrslitaleikurinn var jafn lengi
vel en um miðbikið náðu Robbins
og félagar hans skyndilega 60
impa forustu sem þeir héldu til
loka.
„Þeir höfðu yfirburði í úrspili,
sögnum og vörn,“ sagði Zia eftir
leikinn en þegar verst gekk lyfti
hann upp spjaldi að myndavélun-
um í sýningarsalnum þar sem
stóð einfaldlega: Hjálp!
Hér er ein af ástæðunum fyr-
ir því:
Norður
♦ 862
♦ Á43
♦ 3
♦ KG10965
Vestur Austur
♦ K4 ♦ G53
♦ D ♦ G109852
♦ G9752 ♦ 1084
♦ D8743 ♦ 2
Suður
♦ ÁDG97
♦ K76
♦ ÁKD6
♦ Á
Lokasamningurinn var 6 spað-
ar við bæði borð og vestur spil-
aði út laufi. Við annað borðið
drap Garner heima á ás, tók tíg-
ulás og trompaði tígul í borði og
svínaði spaða sem vestur fékk á
kóng. Hann spilaði tígli en Garn-
er trompaði með 8 í borði, fór
heim á hjartakóng, tók trompin
og átti svo innkomu í blindan á
hjartaás til að taka laufakóng-
inn.
Þetta virðist vera ósköp blátt
áfram spilamennska og áhorf-
endur áttu því ekki von á sveiflu.
En við hitt borðið spilaði Rosen-
berg hjarta á ásinn í blindum í
öðrum slag og þar með var spil-
ið tapað.
Hann svínaði spaða og Robb-
ins í vestur spilaði spaða til baka
eftir að hafa fengið á kónginn.
Rosenberg tók heima og tromp-
aði loks tígul í borði en þar sem
blindur var nú innkomulaus varð
Rosenberg að reyna að taka lauf-
kónginn. Austur trompaði og
Rosenberg varð að lokum að
gefa hjartaslag.
Guðm. Sv. Hermannsson
Morgunblaðið/Kristinn
ÓLYMPÍULIÐIÐ í brids. Frá vinstri eru Aðalsteinn, Jón, Guð-
mundur Páll, Sævar, Þorlákur, Matthías, Björn og Ragnar.
* Skrifstofu- og
rekstrarvörur
• Plasthúðun - innbinding
• Vélar - tæki - búnaður
• Prentborðar - dufthylki
- blekfyllingar
ISO-9000 gæðatrygging
• Leiðir til sparnaðar
(Q) SILFURBÚÐIN
VL/ Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- I>ar fœrfíu gjöfina -
Meindl Arlberg barna- og unglingaskór
Léttir gönguskór úr leðri og rúskinni með
góðum sóla.
-líka góðir i skólann í velur!
Stærðir 28-35 Kr. 5.980,-
Stærðir 36-42 Kr. 6.600,-
Léttir gönguskór úr rúskinni og nyloni.
Gore-tex i innra byrði.
-góðirí velrarkuldanum!
Dömust. 37-43 Kr. 11.190.-
Stærðir 41-46 Kr. 11.690,-
Léttir gönguskór úr leðri með góðum sóla.
-koma sér vel i hálkunni!
Stærðir 36-46 Kr. 9.600,-
Gonguskor úr hágæða leðri. Gore-tex I
innra byrði og góð útöndun. Vibram
Multigritf sóli.
-góðir í lengri göngulerðir.
Dömust. 37-43 Kr. 16.640,-
Herrast. 41-46 Kr. 16.900,-
Stærðir 47-48 Kr. 17.900,-
Léttir gönguskór úr rúskinni og nyloni
-góðir lyrir veturinn!
Skórnir tyrir veiðimanninn og þá sem (ara
í lengri gönguterðir.
Hágæðaleður, saumlaus neðri skór. Gore-
tex í innra byrði, góð útöndun.Vibram
Multigriff sóli.
Makalu, stærðir 40-46 Kr. 18.700.-
Makalu Pro, stærðir 38-46 Kr. 19.500.-
Kreta Kr. 8.750,-
Highway Kr. 8.980,-
ferðingengur velá Meindl SMÚTILÍFfSK
QLÆSIBÆ . SlMI 581 2922
Passamyndir • Portretmyndir
Barnaljósmyndir • Fermingarmyndir
Brúdkaupsmyndir • Stúdentamyndir
PÉTUR PÉTURSSON
UÓSMYNDASTÚDÍÓ
LAUGAVEGI 24 • SÍMI 552 0624
„Auglýsing"
Hvers vegna not-
ar þú Rautt Eðal
Ginseng?
Sigurbjörn Bárbarson,
hestaíþróttamaður: Stór-
mót í hestaíþróttum eru
mjög krefjandi. Þess
vegna nota ég Rautt Eöal
Ginseng. Þannig kemst ég
f andlegt jafnvægi, skerpi
athyglina og eyk úthaldið.
Sigrún Sigurðardóttir,
reiðkennari: Til að komast
í andlegt jafnvægi og efla
starfsþrek.
Eyjólfur ísólfsson, tamn-
ingameistari: Það heldur
mér í morgunformi fram á
kvöld.
Rautt Ebal Ginseng
skerpir athygli og
eykur þol.
- kjarni málsins!